Morgunblaðið - 06.03.1998, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Innflutningi ekki
hætt á „ham-
borgarahlaupi“
INGVAR J. Karlsson, eigandi
heildverslunar Karls K. Karls-
sonar, segist ekki hafa í hyggju
að hætta innflutningi Trolly sæl-
gætishlaups. Hann sé að sjálf-
sögðu feginn því að ekki hafi
farið verr er sælgæti af þessari
gerð stóð í átta ára dreng á
Akureyri á miðvikudag en líti
ekki svo á að um hættulega vöru
sé að ræða.
„Ég hafði samband við fram-
leiðandann í gærmorgun til að
kanna hvort hann þekkti til
slíkra atvika og fékk þær upp-
lýsingar að milljónir þessara
hlaupstykkja hefðu verið seldar
síðastliðin tíu ár án þess að til
vandræða hefði komið,“ segir
hann.
„Hins vegar er aldrei of var-
lega farið. Ymis matvara getur
staðið í fólki og mikilvægt er að
foreldrar brýni fyrir börnum sín-
um að bíta í sælgæti af þessari
stærð og að tyggja alltaf vel áður
en kyngt er.“
Engar reglur um
stærð matvæla
Guðrún E. Gunnarsdóttir hjá
Hollustuvernd rfldsins segir eng-
ar reglur til um stærð sælgætis
eða annarra matvæla. Hins vegar
séu til reglur um stærð hluta og
leikfanga sem komi með þeim.
„Ég sé ekki alveg fyrir mér að
von sé á slíkum reglum," segir
hún. „Enda held ég að það sé
mjög erfitt að girða fyrir svona
lagað. Það getur alltaf hrokkið
ofan í fólk og það eina sem ég tel
að hægt sé að gera er að brýna
fyrir fólki að passa smábörnin.“
Guðrún segist hafa athugað það
sælgæti sem um sé að ræða og
hún telji ekkert athugavert við
það fremur en annað sambæri-
legt sælgæti.
Alda Sigurðardóttir, inn-
FRETTIR
Morgunblaðið/Kristinn
„HAMBORGARAHLAUPIÐ" er nú víða horfið úr verslunum.
kaupastjóri Nóatúns, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær
að ákveðið hefði verið að taka
hlaupið, sem er í laginu eins og
hamborgarar, úr sölu í verslun-
um Nóatúns.
Hertha Þorsteinsdóttir, inn-
kaupasljóri Yöruveltunnar, lét
einnig taka sælgætið, sem hún
segir að hafi selst mjög vel, úr
sölu í 10-11 verslununum, eftir
að hafa heyrt um atvikið á Akur-
eyri. „í verslunum Vöruveltunn-
ar hefur sælgæti ekki verið selt í
lausu vegna þess hve krakkar
sækja í það,“ segir hún. „Við höf-
um m.a. óttast að óvitar styngju
því upp í sig, án þess að fylgst
væri með þeim, og að þeir færu
sér þannig á voða.“
Heilsugæslulæknar yfírleitt ósáttir við úrskurð kjaranefndar
„Þar sem best lætur halda
menn því sem þeir hafa“
HEILSUGÆSLULÆKNAR víða
um land, sem Morgunblaðið ræddi
við í gær, eru heldur ósáttir við úr-
skurð kjaranefndar um laun heilsu-
gæslulækna þó að sumir þeirra
telji þær skipulagsbreytingar sem
hann hefur í för með sér jákvæðar
að því leyti að vinnuálag verði
minna. Flestir segjast þeir óttast
að enn erfiðara verði en áður að
manna stöður heilsugæslulækna á
landsibyggðinni og að enn færri
velji að sérhæfa sig í heimilislækn-
ingum. Urskurðurinn verður til
umræðu á fundi Félags íslenskra
heimilislækna í dag og búast marg-
ir við miklum hitafundi.
Atli Ámason, heilsugæslulæknir
í Grafarvogi, álítur að með úr-
skurði kjaranefndar hafi gerst
mjög alvarleg tíðindi. „Ég sé í
fljótu bragði ekki betur en að
heildarkostnaður heilbrigðiskerfis-
ins gagnvart heilsugæslulæknum
lækki jafnvel um eitthvað á annað
hundrað milljónir króna," segir
Atli. Hann telur að erfitt verði að
finna þá heilsugæslulækna sem
Klippt á
bjúgna-
borða
HÚSAVÍKURDAGAR standa nú
yfir í Nóatunsverslunum. Kynnt-
ar verða ýrasar vörur ættaðar
frá Húsavík á tilboðsverði og
meðal þess góðgætis sem í boði
er má nefna Húsavíkurhangikjöt,
taðreykta sperðla og Húsavíkur-
jógúrt. Á myndinni er Halldór
Blöndal samgönguráðherra að
opna Húsayíkurdaga með því að
klippa á þar til gerðan „bjúgna-
borða“ í Nqatúni í Austurveri.
Þess má geta til gamans, að Hús-
víkingar npta orðið sperðill yfir
bjúga. Húsávíkurdagar standa
yfir í tvær vikur og lýkur 17.
mars.
muni hagnast á breytingunni. Það
yrðu þá helst læknar í einmenn-
ingsumdæmum, þar sem ekki hef-
ur þegar verið samið um staðar-
uppbót.
Margir ungir læknar íhuga að
breyta yfir í aðra sérgrein
Jón B.G. Jónsson, heilsugæslu-
læknir á Patreksfirði, segir niður-
stöðu kjaranefndai- skelfilega.
„Með þessu móti lækka laun nán-
ast alls staðar. Þar sem best lætur
halda menn því sem þeir hafa í
dag,“ segir hann og kveðst ekki
skilja þá ánægju með úrskurðinn
sem Gunnar Ingi Gunnarsson, for-
maður samninganefndar heilsu-
gæslulækna, hefur lýst yfir. „Mér
finnst að bæði stjómin og samn-
inganefndin ættu að segja af sér,
það er ekki hægt að sætta sig við
að menn lækki í launum," segir
Jón. Hann segir ljóst að margir
ungir læknar, þar á meðal hann
sjálfur, íhugi nú að breyta yfir í
aðra sérgrein.
Á Eskifirði og Reyðarfirði er
ástandið vægast sagt mjög slæmt,
að sögn Stefáns Oskarssonar, for-
manns stjórnar heilsugæslunnar
þar, sem þjónar rúmlega 1.700 íbú-
um svæðisins. Þar eiga að vera
tveir starfandi heilsugæslulæknar
en afar illa hefur gengið að manna.
stöðumar að undanförnu. Á síð-
ustu fjórtán mánuðum hafa 30
læknar komið þar við sögu, flestir
vom þeir fimm í einni og sömu vik-
unni, að sögn Stefáns. Hann sagð-
ist í gær ekki enn vera farinn að
sjá úrskurð kjaranefndar en eftir
því sem honum skildist á öllu gerði
hann ekki ráð fyrir að betra tæki
við.
Hætt við að flótti lækna frá
dreifbýlinu haldi áfram
Valþór Stefánsson, heilsugæslu-
læknir á Akureyri og stjórnarmað-
ur í Félagi íslenskra heimilislækna,
segir viðbrögðin við úrskurði
kjaranefndar almennt slæm. „Hér
á Akureyri eram við kannski að-
eins jákvæðari. Hér era menn
ánægðir með að fara á fastlauna-
samning, þó að það hafi hugsan-
lega mátt gera betur. En við ótt-
umst að þetta dragi enn frekar úr
nýliðun og ekki mátti nú við því.
Hvort menn tapa eða græða þegar
upp er staðið á svo eftir að skoða
nákvæmlega. Vissulega fæst eitt-
hvað út úr því að hafa fóst laun og
halda þeim í orlofi,“ segir Valþór.
Hann segir það stóran galla á úr-
skurðinum að þar sé gert ráð fyrir
að menn skili sinni vinnu innan 40
stunda vinnuviku. „Við vitum að
það gengur ekki upp og það á eftir
að leysa.“
Úrskurðurinn veldur Þóri B.
Kolbeinssyni, heilsugæslulækni á
Hellu, sáram vonbrigðum hvað
launahliðina varðar en hann telur
þó ákveðnar skipulagsbreytingar
sem úrskurðurinn hefur í för með
sér jákvæðar. Hvað kjör dreifbýlis-
lækna varðar segist hann ekki sjá
að úrskurðurinn bæti úr nema á
örfáum einmenningsstöðum þar
sem kjörin hafa verið mjög rýr og
hann kveðst hræddur um að flótti
lækna frá dreifbýlinu haldi áfram.
Morgunblaðið/Kristinn
' \ ~ ý........
Farbann
yfir árás-
armanni
staðfest
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í
gær úrskurð Héraðsdóms
Reykjaness um farbann yfir
tuttugu og sex ára gömlum
Bandaríkjamanni, sem hefur
játað líkamsárás á íslenskan
jafnaldra sinn síðasta laugar-
dag.
Islendingurinn var sofandi
þegar Bandaríkjamaðurinn
réðst á hann og gekk í skrokk
á honum með þeim afleiðing-
um meðal annars að sá fyrr-
nefndi höfuðkúpubrotnaði,
kinnbeinsbrotnaði og hlaut
fleiri áverka.
Bandaríkjamaðurinn var
handtekinn á leið frá vettvangi
árásarinnar og úrskurðaður í
farbann 28. febrúar síðastlið-
inn eftir að hann gekkst við
verknaðinum, en ekki þótti
ástæða til að krefjast gæslu-
varðhalds yfir honum af þeim
sökum. Var honum bönnuð
brottför úr landi allt til mið-
vikudagsins 1. apríl næstkom-
andi. Hann skaut málinu til
Hæstaréttar með kæra sam-
dægurs og krafðist þess að
farbanni yrði aflétt, en í
Hæstarétti var kröfunni hafn-
að með vísan til forsendna úr-
skurðar Héraðsdóms Reykja-
ness.
Dóminn kváðu upp hæsta-
réttardómararnir Garðar
Gíslason, Gunnlaugur Claes-
sen og Markús Sigurbjöms-
son.
Reykjavíkurhöfn
Framtíðar-
möguleikar
verði
kannaðir
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt tillögu borgarráðsfull-
trúa Reykjavíkurlistans um að
fela hafnarstjóm að kanna þá
möguleika sem sameining
Reykjavíkur og Kjalarnes-
hrepps gefur fyrir framtíðar-
þróun Reykjavíkurhafnar. Til-
lagan var samþykkt með
þremur atkvæðum.
Á fundi borgarráðs voru
lagðar fram bókanir vegna til-
lögunnar og í bókun sjálfstæð-
ismanna segir að þeir hafi þeg-
ar látið kanna möguleika á
hafnaraðstöðu við Álfsnes.
Niðurstaðan sé sú að ef þörf
væri á nýrri höfn þá væru
möguleikamir þar.
I bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlista segir að til-
lögur um höfn í Eiðsvík og at-
hafnasvæði í Geldinganesi hafí
lengi legið fyrir. Bent er á að í
Aðalskipulagi 1990-2010, sem
unnið var undir forystu sjálfr
stæðismanna, var formlega
staðfest lögun hafnarsvæðis í
Geldinganesi og Eiðsvík.
Borgarráðsmenn sjálfstæð-
ismanna lögðu þá fram tillögu
um að borgarráð samþykkti að
fram færi athugun á þörf fyrir
framtíðarhafnarsvæði miðað
við þróun og uppbyggingu
hafna á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu frá Grundartanga
suður til Helgúvíkur. í þeirri
athugun verði sérstaklega
hugað að mati á framtíðarþörf
fyrir viðlegukant skipa og um-
skipunarsvæði óg'hins vegar
óskum fyrirtækja um atvinnu-
lóðir sem ekki tengjast beint
hafnarstarfsemi og gætu því
verið á öðrum atvinnusvæðum.