Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 18
I
18 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Bæjarmála-
félag Akur-
eyrarlistans
stofnað
STOFNFUNDUR bæjarmála-
félags Akureyrarlistans, lista
jafnaðarstefnu, félagshyggju
og kvenfrelsis verður haldinn í
Alþýðuhúsinu á Akureyri á
morgun, laugardaginn 7. mars
kl. 14.
Gengið verður fonnlega frá
stofnun bæjarmálafélagsins,
lögð fram tillagá uppstillingar-
nefndar að skipan Akureyrar-
listans.
Tónleikar
og fyrirlestur
DAGSKRÁ á vegum Félags
áhugafólks um heimspeki og
Listvinafélags Akureyrarkirkju
verður f Akureyrarkirkju á
morgun, laugai-daginn 7. mars.
Hún er liður í Kirkjuviku sem
nú stendur yfir.
Jorg Sondermann organisti
kemur fram á hádegistónleikum
í kirkjunni og hefjast þeir kl. 12.
Að honum loknum flytur Ró-
bert H. Haraldsson heimspek-
ingur fyrirlestur sem hann
nefnir „Getur guð dáið?“.
Aðalfundur
hjá FAASAN
AÐALFUNDUR verður hald-
inn hjá Félagi áhugafólks og
aðstandenda sjúklinga með
Alzheimersjúkdóm og skylda
sjúkdóma á Akureyri og ná-
grenni, á morgun, laugardaginn
7. mars, kil. 13. í Dvalarheimil-
inu Hlíð.
Þrennir tónleikar
ÞRENNIR tónleikar verða um
helgina á vegum Tónlistarskóla
Eyjafjarðar.
Fyrstu tónleikamir verða í
Laugaborg á morgun, laugar-
daginn 7. mars kl. 14, þá verða
tónleikar í Þelamerkurskóla
sama dag kl. 17 og loks verða
þriðju tónleikarnir í Gamla
skólahúsinu á Grenivík kl. 17 á
sunnudag, 8. mars.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskóli í Svalbarðskii-kju á
morgun, laugardag kl. 11.
Guðsþjónusta verður í kirkj-
unni kl. 11 á sunnudag, sr. Arn-
aldur Bárðarson messar. Vænt-
anleg fermingarbörn og fjöl-
skyldur þeirra sérstaklega
hvött til þátttöku. Kirkjuskóli
verður í Grenivíkurkirkju kl.
13.30 á laugardag. Kyrrðar- og
fyrirbænastund í kirkjunni kl.
21 á sunnudagskvöld.
Morgunblaðið/Benjamín
SIGURÐUR Torfi heitjárnar hryssuna Gleði í hesthúsinu
á Torfufelli í Eyjafjarðarsveit.
Heitjárnar á
heimaslóðum
SIGURÐUR Torfi Sigurðsson,
járningameistari og rafvirki, er
nýfluttur heim frá Bandaríkjun-
um og býr nú á æskuslóðum í
Torfufelli II ásamt eiginkonu
og ungum syni. Sigurður stund-
aði nám í jámingum í Eastern
School of Farriery í Martins-
ville í Virginia. Þar Iauk hann
námi og fékk gráðu frá skólan-
um 1995 en sótti einnig nokkur
námskeið í faginu og vann tvö
ár hjá bandarískri járninga-
mannaíjölskyldu þar sem fjöl-
skyldufaðirinn var orðinn 81
árs og hafði 66 ára reynslu sem
atvinnujárningamaður en lét
engan bilbug á sér finna þrátt
fyrir háan aldur.
Þarf minna að tálga
Sigurður hefur breytt aflögð-
um minkaskála í rúmgott hest-
hús. Hann var að heitjárna 12
vetra gamla hryssu sem heitir
Gleði og virtist bera nafn með
rentu því hún tók þessari
óvenjulegu járningaaðferð með
stóískri ró og fyrtist ekki þrátt
fyrir mikinn reyk sem lagði úr
hófunum.
Sigurður sagði að þegar heit-
járnað væri þyrfti minna að
tálga. Skeifan er glóðhituð í
ofni og löguð til þangað til hún
smellpassar og er sfðan lögð á
hófinn og látin brenna þar í
hann. Ef uppsláttur er á skeif-
unni er hann brenndur inn í
hófvegginn og þannig fær
skeifan hámarksstuðning. Þá er
skeifan kæld og negld undir á
venjulegan hátt. Sigurður járn-
ar einnig á hefðbundinn hátt og
tekur að sér sjúkrajárningar ef
svo ber undir.
Átök um skipan framboðslista Fram-
sóknarfélags Akureyrar
Sigfríður velti
Valtý úr
þriðja sætinu
NOKKUR átök urðu á fundi fulltrúa-
ráðs Framsóknarfélagsins á Akur-
eyri, þar sem gengið var frá fram-
boðslista félagsins vegna komandi
sveitarstjórnarkosninga. Ein breyt-
ing varð á tillögu uppstillingarnefnd-
ar og skipar SigMður Þorsteinsdótt-
ir bæjarfulltrúi þriðja sæti listans, en
uppstillingarnefnd lagði til að Valtýr
Sigurbjamarson skipaði það sæti.
Á fundi fulltrúaráðsins lagði Sig-
fríður sjálf til að hún skipaði þriðja
sæti listans og var það samþykkt.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munaði aðeins einu atkvæði
á henni og Valtý. Hann gat hins veg-
ar ekki setið fundið vegna veikinda.
Gísli Kristinn Lórenzson, formað-
ur uppstillingamefndar, sagði að
nefndin hefði lagt fram lista á fund-
inum og á honum hefði orðið ein
breyting. „Það segir mér að menn
eru sáttir og það er fyrir mestu.“
Valtýr Sigurbjarnarson sagði að
væri það rétt að aðeins hefði munað
einu atkvæði á honum og Sigfríði
hefðu atkvæði fallið jöfn ef hann
hefði setið fundinn. „En ef menn
telja þetta sterkari lista verða þeir
að trúa því og ég vona að flokknum
gangi vel,“ sagði Valtýr, sem ekki
verður á listanum.
Liður í kvennabaráttu
Sigfríður Þorsteinsdóttir var að
vonum þakklát fyrir stuðninginn
sem hún fékk á fundinum og sagðist
vissulega til í slaginn. Sigfríði stóð til
að boða að taka 6. sæti listans eða
heiðurssætið en hún hafnaði því. „Eg
tel mig hafa ýmislegt fram að færa
og að sú reynsla sem ég hef geti nýst
áfram í þágu bæjarfélagsins. Þetta
er líka liður í kvennabaráttu, en það
er alltaf verið að tala um að við gef-
umst fljótt upp. Þessi niðurstaða
sýnir konum að þetta er hægt.,“
sagði Sigfríður.
Oddur Halldórsson bæjarfulltrúi
bauð sig fram í 2. sæti listans á fundi
fulltrúaráðsins, gegn Ástu Sigurðar-
dóttur bæjarfulltrúa, sem uppstill-
ingarnefnd hafði sett í það sæti. Beið
Oddur lægri hlut og munaði nokkru
að hann næði að fella Ástu.
Framsóknarmenn mínir
andstæðingar
Oddur sagði þessa niðurstöðu
vissulega vonbrigði og hann hefði
haft fullan metnað til að starfa áfram
með flokknum. „Þetta kom mér hins
vegar ekki á óvart og ég hef fundið
Atvinnumálanefnd Akureyrar
- Styrkveitingar
Atvinnumálanéfnd Akureyrar veitir tvisvar á ári stýrki til
einstaklinga og fyrirtækja á Akureyri sem vinna að atvinnu-
skapandi verkefnum. Styrkir til einstakra verkefná geta
numið allt að 50% af áætluðum kostnaði við framkvæmd
hvers verkefnis. Hámarks styrkupphæð er kr. 400.000.
Styrkirnir eru fyrst og fremst ætlaðir smærri rekstraraðilum.
Umsækjendur verða að fullnægja skilyrðum
atvinnumálanefndar um nýsköpunargildi verkefnisins, auk
þess að leggja fram skýrar upplýsingar um viðskipta-
hugmynd, vöruþróun, markaðssetningu, rekstraráætlun og
fjármögnun.
Umsóknareyðublöð liggja fyrir á Atvinnumálaskrifstofu,
Strandgötu 29, sími 462 1701.
Umsóknarfrestur er til 31. mars nk.
Riðuveiki á Ingvörum í Svarfaðardal
Fjárlaust verður
á bænum í 5 ár
, GENGIÐ hefur verið frá samning-
um milli ábúenda á Ingvörum í
Svarfaðardal og landbúnaðarráðu-
neytis um bætur vegna riðuniður-
skurðar en þeir eru byggðir á reglu-
gerð um riðuvarnir. í lok janúar síð-
astliðins var riða greind í kind á
bænum og allt fé skorið niður í kjöl-
farið. í samningnum er ákvæði um
að fjárlaust verði á Ingvörum í fimm
ár og er það nýmæli að bæir séu svo
lengi fjárlausir eftir riðuniðurskurð.
Vaninn er sá að fé er tekið að nýju
tveimur til þremur árum eftir niður-
skurð.
Ólafur Valsson dýralæknir sagði
að riða hefði komið upp þrívegis á
bænum á síðustu árum en veikin
fyrir því sl. fjögur ár að einu and-
stæðingar mínir í pólitíkinni eru
framsóknarmenn. Ég hef oft verið
óþægur og ekki alltaf farið eftir því
sem menn hafa viljað. Flokksfélagar
mínir hafa því verið hræddir við mig
og sniðgengið mig fyrir vikið.“ Oddi
var boðið að skipa heiðurssæti list>
ans, hann hafnaði því og gaf kost á
sér í eitt af þremur efstu sætunum.
„Ef ég væri orðinn sextugur hefði ég
þegið heiðurssætið. Ég verð áfram
bæjarfulltrúi fram á vor en er hættur
að starfa með framsóknarmönnum.
Ég mun þó ekki valda neinum usla í
meirihlutasamstarfinu." Aðspurðui'
um framhaldið sagði Oddur að mögu-
leiki á sérframboði yrði skoðaður.
Eftirtaldir skipa ellefu efstu sætin
á lista Framsóknarfélags Akureyrar;
1. Jakob Bjömsson, 2. Ásta Sigurðar-
dóttir, 3. Sigfríður Þorsteinsdóttir, 4.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, 5. Guðmund-
ur Ómai- Guðmundsson, 6. Valgerður
Jónsdóttir, 7. Friðrik Sigþórsson, 8.
Konráð Alfreðsson, 9. Guðný Jó-
hannesdóttir, 10. Einar Sveinn Ólafs-
son, 11. Sunna Ámadóttir.
væri óvenjuþrálát í Svarfaðardal.
Allt fé í dalnum var skorið niður árið
1988, en frá því fé var tekið aftur í
upphafi áratugarins hefur riða komið
upp á sex bæjum.
Olafur sagði að fyrir nokkrum ára-
tugum hefði riðuveiki verið sérlega
mikil í Svarfaðardal og fleiri hund-
ruð skepnur drepist af hennar völd-
um. „Þótt það sé ávallt áfall þegar
riða kemur upp, þá hefur samt náðst
árangur í baráttunni og á mörgum
bæjum þar sem áður var riða hefur
hún ekki komið upp aftur,“ sagði
Ólafur.
Með fímm ára fjárleysi er þess
vænst að sögn Ólafs að komist verði
fyrir riðuveikina.
Samspil
byggðar,
umhverfis og
menningar
RÁÐSTEFNA um byggingar-
og sldpulagsmál á norðurslóðum
var sett á Fosshóteli KEA í gær
og verður henni fram haldið í
dag, föstudag. Ráðstefnan er
haldin að fi-umkvæði bygginga-
nefndar og skipulagsnefndar
Akureyrarbæjar en Ferðamála-
miðstöð Eyjafjarðar á Akureyri
hefur umsjón með undirbúningi
hennar og framkvæmd.
Viðfangsefni ráðstefnunnar
eru byggðir á norðurslóðum og
hvernig taka megi tillit til veð-
urfars og staðhátta í húsbygg-
ingum og skipulagi bæja, bæði
almennt og út frá íslenskum að-
stæðum. Fjallað er um bygg-
ingarhætti og byggingartækni,
skipulagsmál, umhverfismál,
lifnaðarhætti, menntun og
menningu og viðhorf til þessara
þátta á norðurhjai'a.
Leirlist
í Samlaginu
KYNNING á verkum Jennýjar
Valdimarsdóttur, leirkerasmiðs,
hefst í Samlaginu, sem félag
myndlista- og listiðnaðarfólks á
Akureyri rekur, í dag, fostudag.
Jenný ér fædd árið 1966 og
var við nám í Den Danske Hus-
flidshojskole í Kertemlnde,
Danmörku 1989 tál 1991. Vinnu-
stofa Jennýjar er að Klettastíg
10 á Akureyri. Kynningin stend-
ur í eina viku og er Samlagið op-
ið alla daga frá kl. 14 til 18.
Vetrargleði
í Gilinu
VETRARGLEÐI Gilfélagsins
verður haldinn í Deiglunni,
Kaupvangsstræti, annað kvöld,
laugardagskvöldið 7. mars og
hefst það kl. 21.
Fólk er beðið um að mæta í
sínum fínustu vaðmálsfötum og
sauðskinnsskóm, borinn verður
fram þjóðlegur matur, dísar-
mjöður og skörungasnafs.