Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Róttæk tilraun til að draga úr skriffínnsku í Kína
Ráðuneytum og ríkis-
starfsmönnum fækkað
Peking. Reuters.
KÍNVERSKA þingið var sett í gær
og Li Peng forsætisráðherra kynnti
þar áform um að leggja niður fjórð-
ung ráðuneyta og æðstu ráða lands-
ins og fækka starfsmönnum ríkisins.
Þetta er róttækasta tilraunin í sögu
kínverska kommúnistaflokksins til
að draga úr skriffinnsku og umsvif-
um ríkisins.
Li sagði að ellefu af 40 ráðuneyt-
um og æðstu ráðum landsins yrðu
lögð niður og valdsvið annarra ráðu-
neyta aukið til að draga úr skrif-
finnskunni, sem stæði atvinnulífinu
fyrir þrifum og væri orðin þungur
baggi á ríkinu. Kínverskir fjölmiðlar
hafa sagt að starfsmönnum æðstu
stofnana ríkisins og kommúnista-
flokksins verði fækkað um allt að
ÍJórar milljónir á næstu þremur ár-
um.
Forsætisráðherrann áréttaði að
stjórnin stefndi einnig að því að selja
eða leggja niður ríkisfyrirtæki, sem
rekin eru með tapi, á næstu þremur
árum og setja strangari reglur um
starfsemi viðskiptabankanna sem
eru komnir á heljarþröm. Hann
sagði að ekki yrði hjá því komist að
segja upp starfsmönnum vegna
þessara breytinga en lagði áherslu á
að ríkið myndi greiða þeim bætur og
aðstoða þá við að finna nýja atvinnu.
I ræðu forsætisráðherrans kom
einnig fram að stjómin gerir ráð fyr-
ir því að hagvöxturinn verði um 8% í
ár þrátt fyrir fjármálaumrótið í Asíu
að undanförnu. Nokkrir fjármálasér-
fræðingar töldu þessa spá stjórnar-
innar of bjartsýna.
Síðasta stefnuræða Lis
Li áréttaði að ekki kæmi til greina
að fella gengi kínverska gjaldmiðils-
ins ti! að stuðla að meiri útflutningi
vegna gengishrunsins í öðrum lönd-
um Asíu, sem hefur gert útflutnings-
vörur samkeppnislandanna ódýrari.
Þetta var síðasta stefnuræða Lis
á þinginu sem forsætisráðherra þar
sem hann verður að láta af embætt-
inu síðar árinu vegna stjórnar-
skrárákvæðis um að enginn megi
gegna því lengur en í tíu ár. Búist
er við að þingið skipi Zhu Rongji í
embættið, en hann hefur haft yfir-
umsjón með efnahagsumbótum
stjórnarinnar.
Líklegt er að Li verði forseti
þingsins í stað Qiao Shi, sem var
þriðji valdamesti maður kommún-
istaflokksins þar til í september þeg-
ar hann var lækkaður I tign að til-
hlutan Jiangs Zemins forseta.
Reuters
ÆÐSTU embættismenn Kína ganga inn í Alþýðuhöllina í Peking áður en kínverska þingið var sett þar í gær. Þeir eru, frá vinstri: Zhu Rongji aðstoð-
arforsætisráðherra sem búist er við að verði næsti forsætisráðherra, Qiao Shi, fráfarandi forseti þingsins, Jiang Zemin forseti Kína og Li Peng for-
sætisráðherra sem lætur af embættinu síðar á árinu.
Kohl
snupraður
FULLTRÚAR samstarfs-
flokks Kristilegra demókrata
(CDU), flokks Helmuts Kohls,
kanslara
Þýska-
lands, svik-
ust undan
merkjum í
gær er þeir
greiddu at-
kvæði með
stjómar-
andstöð-
unni um að breytingar verði
gerðar á lagafrumvarpi um
stjómarskrárbreytingu sem
veita mun lögreglu víðtækari
heimildir til hlerana.
Sjö þingmenn Frjálsra
demókrata (FDP) gengu í lið
með jafnaðarmönnum (SPD),
græningjum og flokki fyrrver-
andi kommúnista í Austur-
Þýskalandi (PDS), og knúðu
fram breytingar á frumvarp-
inu, en samkvæmt því hefðu
hleranaheimildir lögreglu orð-
ið meiri en nokkru sinni frá
því á tímum nasista.
Sprengdu
sjúkrahús
SJÖ létust og 46 særðust er
herflugvél Súdanstjómar
varpaði sprengjum á sjúkra-
hús á yfirráðasvæði uppreisn-
armanna í gær að því er norsk
hjálparsamtök greindu frá.
Þrettán sprengjum var varp-
að og lentu fimm á sjúkrahús-
inu sjálfu og eyðilagðist m.a.
skurðstofa. Tvö böm vom
meðal þeirra sem létust.
Nýr sjúk-
dómur
Netanyahu segir Evrópubúa skorta skilning á málefnum Míð-Austurlanda
„Einungis
B andaríkj amenn
skilja okkur“
Madríd. Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, sagði í blaðavið-
tali í gær að Evrópubúa skorti
þekkingu á Mið-Austurlöndum.
Einungis Bandaríkjamenn hefðu
skilning á hlutskipti Israela. Net-
anyahu er nú á ferð um Evrópu-
ríki til þess að reyna að fá aðstoð
við að koma á friðarumleitunum
fyrir botni Miðjarðarhafs, að því
er hann sagði í viðtali við E1 Pais.
Netanyahu ítrekaði að hann
myndi aldrei samþykkja að stofnað
yrði sjálfstætt ríki Palestínu, því
slíkt myndi hafa algera ringulreið
í för með sér. Netanyahu hóf Evr-
ópuför sína í Madríd en heldur síð-
an til Bonn, Óslóar og London í
leit að stuðningi við afstöðu Isra-
ela f deilunni við nágrannaríkin.
Netanyahu tjáði E1
Pais að hann hefði í
vikunni sem leið sagt
sendiherrum Evrópu-
sambandsins að Evr-
ópa gæti séð um að
miðla málum milli
ísraela og Libana um
brottflutning fsraelsks
herliðs frá suðurhluta
Lfbanons. En Net-
anyahu sagði enn-
fremur að fortíð Evr-
ópuríkja sem nýlendu-
herra kæmi í veg fyrir
að Evrópubúar gætu
skilið málefni Mið-
Austurlanda. „Evr-
ópubúar vita ekkert
um Mið-Austurlönd,“
sagði Netanyahu, og hélt því fram
að í Evrópu hefði verið dregin upp
sú ranga mynd að ísrael væri Gol-
íat að berja á Davíð.
Netanyahu sagði að
nýlendufortíð Evrópu-
rikjanna leiddi til þess
að Evrópumenn litu
„hæðirnar við Jerúsal-
em og Samaríu sömu
augum og hæðirnar
sem Frakkar réðu í
Alsír og Spánverjar
réðu á Filippseyjum.
Einungis Bandarfkja-
menn hafa skilning á
hlutskipti okkar, en
það er ekki vegna
þess, eins og margir
halda, að þar býr mik-
ill fjöldi gyðinga,
heldur vegna þess að
þeir finna til sam-
kenndar með okkur sem hið nýja,
fyrirheitna land, sem Bandarfkin
eru.“
Benjamin
Netanyahu
um framtíð Puerto Rico
Kosið verði
SAMÞYKKT var með naumum meirihluta í full-
trúadeild Bandaríkjaþings á miðvikudagskvöld
frumvarp um að efnt skuli til sérstakrar atkvæða-
greiðslu á Puerto Rico á þessu ári um framtíð
þess, að því er Associated Press greindi frá í gær.
Samþykki öldungadeildin frumvarpið munu Pu-
erto Ricanar greiða atkvæði um það hvort þeir
vilji áfram verða bandarískt samveldisland, gerast
51. ríki Bandaríkjanna, eða verða sjálfstætt ríki.
Frumvarpið var samþykkt með 209 atkvæðum
gegn 208. Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, og
leiðtogar demókrata og repúblíkana í fulltrúa-
deildinni, voru fylgjandi fhimvarpinu. Andstæð-
ingar frumvarpsins reyndu að leggja stein í götu
fylgismanna þess með breytingatillögu um að ef
Puerto Ricanar veldu að gerast ríki í Bandaríkjun-
um yrðu þeir að sættast á að enska yrði eina opin-
bera málið á eynni, þar sem íbúar eru flestir
spænskumælandi. Tillagan var samþykkt með
þeirri breytingu að verði Puerto Rico hluti af
Bandaríkjunum muni þar gilda sömu reglur um
tungumál og gilda annars staðar í Bandaríkjunum,
þar sem ríkin geta haft tvö opinber mál.
Geta barist fyrir Bandaríkin en ekki kosið
í ár er öld liðin frá því Puerto Rico varð að banda-
rísku landsvæði, en áður var eyjan spænsk nýlenda.
íbúamir eru nú 3,8 milljónir og eru bandarískir rík-
isborgarar en hafa ekki atkvæðisrétt í kosningum í
Bandaríkjunum. Þeir eiga einungis áheymarfull-
trúa á bandaríska þinginu. Stuðningsmenn frum-
varpsins bentu á að Puerto Ricanar hafi barist fyiir
Bandaríkin og látið lífið fyrir þau, en aldrei fengið
að hafa áhrif á hver er kjörinn forseti þeirra.
Hector Cruz, Puerto Ricani sem barðist í Ví-
etnamstríðinu, tók þátt í kröfugöngu fyrir utan
þinghúsið í Washington og hvatti til þess að Puerto
Rico yrði gert að 51. ríki Bandaríkjanna. Hann
tjáði Reuters að faðir hans og afi hefðu barist fyrir
Bandaríkin í heimsstyrjöldunum tveim og að dóttir
hans væri í bandaríska landgönguliðinu og hefði
tekið þátt í hernaðaraðgerðum við Persaflóa 1991.
Cmz sagði að yrði Puerto Rico hluti af Bandaríkj-
unum myndi það tryggja honum bandarískan ríkis-
borgararétt, en núverandi staða Puerto Rico gerði
það ekki, þar sem hann er ekki verndaður sam-
kvæmt bandarísku stjómarskránni.
Ekki nldr einhugur meðal íbúanna um hver skuli
verða framtíðarstaða Puerto Rico. Þeir sem hlynnt-
ir em sambandsveldisstöðu áfram segja að frum-
varpið hygli vilja þeirra sem hlynntir séu ríkisstöðu.
STÖÐUGIR vöðvaverkir,
þreyta og lágur hiti einkenna
sjúkdóm sem uppgötvaður
hefur verið í Frakklandi, að
því er heilbrigðisyfirvöld þar
greindu frá í gær. Síðan 1993
hafa læknar greint um 20 til-
vik þessarar nýju veiki, sem
ekki hefur hlotið nafn, og er
orsaka hennar enn leitað.
Sérfræðingar telja að sjúk-
dóminn megi rekja til örvem
sem svipi til berklasýkilsins
(Mycobacterium Tuberculos-
is). Sýni af sýktum vöðvavef
vora send til greiningar hjá
Forvamamiðstöð Bandaríkj-
anna og þar fékkst sú niður-
staða að veikin væri áður
óþekkt.
Dæmigerður sjúklingur er á
milli fertugs og fimmtugs og
hefur oft dvalist á sjúkrahúsi,
oft orðið veikur og er áfátt í
hreinlæti. Verkir era oft í vöðv-
um, liðamótum og útlimum.
Gangamenn
fengu
taugaskaða
STAÐFEST hefur verið með
rannsóknum að sjö starfs-
menn Romerikspprten-jarð-
ganganna milli Óslóar og
Gardermoen-flugvallar í Nor-
egi hlutu taugaskaða af völd-
um þéttiefnis, Rhoca-Gil, sem
notað var til að þétta
vatnsleka í göngunum. Til við-
bótar fékk fjöldi starfsmanna
við gangagerðina astma og
húðsjúkdóma af efninu.