Morgunblaðið - 06.03.1998, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
*
Ráöstefaa um
»I fjarskiptatækai
og framtíðiaa
Erindi flytja fyrirlesarar frá fjórum fyrirtækjum sem
móta upplýsingaheiminn í Evrópu.
í tengslum við fund í ESB verkefninu JAMES (Joint ATM Experiment on European
Services) boðar Landssíminn til ráðstefnu sem opin er áhugasömu fólki um
fjarskipta- og tölvutækni.
Tungumál ráðstefnunnar er enska og titill hennar er:
The role of ATM (Asynchronous Transfer Mode) in the near future development
of Telecommunications - Perspectives of a few European Telcos
14:00 Setning
14:10 Erindi: Stuart Perkins, British Telecom_
Volker Reible, Deutsche Telecom Berkom_
15:10 Kaffihlé
15:30 Erindi: OleKrog Thomsen, TeleDanmark____
SæmundurE. Þorsteinsson, Landssímanum_
16:20 Umræður og fyrirspumir
17:00 Ráðstefnuslit
Ráðstefnan verður haldin í þingsal 1 á Hótel Loftleiðum,
mánudaginn 9. mars, og hefst kl. 14:00.
Ráðstefnustjóri verður Rögnvaldur Ólafsson,
dósent við Háskóla íslands.
JAMES LANDS SÍHINN
Dagskrá:
JAMES er samvinnu-
verkefni helstu
fjarskiptafyrirtækja
í Evrópu og er styrkt af
fjarskiptaáætlun ESB.
Nánari upplýsingar
eru á heimasíðu
verkefnisins:
http://www.labs.bt.
com/profsoc/james
Það eru allar líkur á því
að þú finnir kæliskáp hjá okkur við þitt hæfi
KœHsHáuar
í ótrúiegu úrvali á go&u verði!
-!r
*
Mál hxbxdx Tegund Vörunúmer Kælirými Lítrar Frys'tirými Lítrar Frystir Staösetning Staögreitt
85x50x60 AEG SANTO 1502TK 136 L 8 L Innbyggður 27.900,-
85x50x60 AEG SANTO 1533TK 140 L 32.945,-
85x51x56 INDESIT RG 1145 114L 14 L Innbyggður 29.900,-
85x51x56 INDESIT RG 1150 134 L 29.900,-
85x55x60 General Frost SCR160 147 L 29.900,-
85x55x60 AEG SANTO 1443TK 115 L 19 L Innbyggður 45.464,-
85x60x60 General Frost C 175 158 L 17 L Innbyggður 31.900,-
109x60x60 General Frost C 225 208 L 28 L Innbyggöur 35.900,-
117x50x60 INDESIT RG 2190 134 L 40 L Uppi 44.995,-
127x54x58 AEG SANTO 2532 KA 241 L 59.990,-
127x54x58 AEG SANTO 2232 DT 167 L 46 L Uppi 63.900,-
127x54x58 AEG SANTO 2332 KA 219 L 18 L Innbyggður 63.900,-
130x60x60 General Frost C 275 222 L 28 L Innbyggður 38.900,-
139x55x59 INDESIT RG 2250 184 L 46 L Uppi 49.900,-
140x50x60 INDESIT RG 2240 181 L 40 L Uppi 48.995,-
144x54x58 AEG SANTO 2632 DT 204 L 46 L Uppi 65,849,-
147x55x60 INDESIT RG 1285 232 L 27 L Innbyggður 46.900,-
149x55x60 AEG SANTO 2632 KG 161 L 59 L Niðri 68.990,-
150x55x60 General Frost SCD 260 186 L 59 L Uppi 44.900,-
150x55x60 INDESIT CG 1275 175 L 56 L Niðri 61.950,-
152x55x60 INDESIT RG 2255 183 L 63 L Uppi 52.900,-
155x60x60 AEG SANTO 1555 KS 302 L 69.989,-
162x54x58 AEG SANTO 3032 DT 225 L 61 L Uppi 69.949,-
164x55x60 INDESIT RG 2290 215 L 67 L Uppi 56.900,-
165x55x60 General Frost SCD 290 225 L 62 L Uppi 47.900,-
165x60x60 INDESIT CG 1340 216 L 71 L Niðri 69.990,-
170x60x60 INDESIT RG 2330 258 L 74 L Uppi 59.900,-
170x60x60 AEG SANTO 3232 KG 216 L 79 L Niðri 79.487,-
177x60x60 AEG SANTO 3633 KG 238 L 90 L Niðri 104.900,-
185x60x60 AEG SANTO 1855 KS 354 L 78.540,-
185x60x60 AEG SANTO 1855 KF 178 L 112 L Niðri 92.929,-
186x60x60 General Frost SCB340 207 L 88 L Niðri 68.900,-
195x60x60 AEG SANTO 4133 KG 293 L 90 L Niðri 110.974,-
AEG
4^índestf Oþ
'ENERAL FROST
Umboðsmsn
ft
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgamesi. Blómsturvellit Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal
Vestftrðir: Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík.Straumutlsafiröi.Morðurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga,
Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöárkrókl. KEAby^gingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufiröi Kf. Þingeyinga, Húsavík.lfö, Raufarhðfn. Austurland:
Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Kf. Ntopnfiröinga, Vopnafiröi.Verslunin Vlk, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfirði KASK, Höfn. Suðurland: Mosfell,
Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þortákshðfn. Jón Þorbergs, Kirtjubaejarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavfk. Rafborg, Grindavlk.
Gjaldþrota
áfengisstefna
Umgengni íslendinga við áfengi segir
allt um ágœti þessarar stefnu.
UNDARLEGT er
hvernig viðtekin
sannindi breytast,
hvemig viðhorf
sem áður voru ekki
dregin í efa verða skyndilega
úrelt og á stundum grátbrosleg.
Vísast verður sá sem kortlagt
getur slík umskipti annaðhvort
markaðsstjóri hjá stórfyrirtæki
eða einsetumaður.
A Islandi má finna mörg
dæmi frá síðustu árum þar sem
viðhorf sem lengi höfðu ekki
verið dregin í efa af stjómmála-
mönnum urðu skyndilega hróp-
leg tímaskekkja. Verður ekki
önnur ályktun dregin af þessu
en sú að ráðamenn svonefndir
séu oftlega í litlum tengslum við
VIÐHORF
Eftir Ásgeír
Sverrisson
þær viðhorfs-
breytingar sem
eiga sér stað í
þjóðfélaginu.
A sínum tíma
höfðu áhrifamenn á Islandi ekki
meira álit á íslenskri menningu
en svo að þeir treystu ekki þjóð-
inni til að þola það að hafa að-
gang að sjónvarpi á fimmtudög-
um. Menn sem vildu vel efuðust
um að þjóðmenningin fengi
staðist htasjónvarpið. Ámm
saman var því haldið fram í
fullri alvöra á Islandi að þjóðar-
innar biði hrylhngur og ógæfa
fengju landsmenn að drekka
bjór.
Nú dettur engum í hug að
halda fram slíkum sjónarmiðum.
Litið er á bjórbannið sem hlægi-
legt fyrirbrigði úr fortíðinni. Is-
lendingar hafa ánetjast sjón-
varpi líkt og aðrar þjóðir og
menningin virðist enn skrimta.
Landsmenn hafa tekið auknu
framboði á sjónvarpsefni fagn-
andi enda ekki lengur dæmdir
til að tala saman þá mánuði sem
þeir neyðast til að halda kyrru
fyrir á heimilum sínum vegna
veðurs.
Til skemmri tíma litið virðist
sem að núverandi „áfengis-
stefna“ ríkisvaldsins sem svo er
nefnd verði næsta menningar-
fyrirbrigðið sem tekið verði til
gjaldþrotaskipta í samfélaginu.
Mikil og almenn forsjár-
hyggja einkennir löggjöf um
áfengi á Islandi og hlýtur hún
að teljast verðugt rannsóknar-
efni. Því hefur nefnilega verið
haldið fram að einstaklings-
hyggja eigi sér djúpar rætur á
Islandi og hérlendir menn
geymi almennt í brjósti sér
frelsisást. Stærstu stjómmála-
samtök þjóðarinnar kveðast
meira að segja grundvalla þjóð-
málabaráttu sína á þeim háleitu
hugmyndum.
A Islandi hefur m.a. verið
fylgt því rökhelda sjónarmiði að
þótt ríkisvaldið selji áfengi og
hafi af því drjúgar tekjur skuU
„torvelda aðgengi" að þessari
vöra. Þetta er gert með því að
ríkisvaldið tekur að sér að sjá
um sölu á þessum varningi í sér-
stökum verslunum. Þegar er-
lendir gestir koma hingað til
lands og kynnast þessari áfeng-
isstefnu af eigin raun era við-
brögðin fyrst undran, síðan
hlátur og loks vorkunnsemi.
Reiðin brýst ekki fram fyrr en
þeir þurfa að borga.
Einkaaðilum er ekki treyst til
að selja áfengi og hafa þau rök
m.a. verið borin fram að með því
móti aukist hættan á að fólk
undir lögaldri komist yfir
áfenga drykki. Þessu virðist
einmitt öfugt farið. Líklegra er
að kaupmaður sem selur áfengi
haldi uppi mun öflugra eftirhti í
verslun sinni en ríkisstarfsmað-
ur eigi kaupmaðurinn yfir höfði
sér þungar sektir og leyfissvipt-
ingu verði hann staðinn að því
að selja ungmennum vín. SUku
er ekki fyrir að fara verði
starfsfólld á mistök í hinum rík-
isreknu verslunum fjármálaráð-
herra.
Með því að torvelda svo mjög
aðgengi að áfengi er drykkurinn
gerður spennandi og þá um leið
eftirsóknarverður í augum
hinna ungu. Afleiðingarnar era
óskaplegar. íslendingar drekka
áfengi, þetta forboðna fyrir-
brigði, líkt og vilUmenn og ung-
mennin telja það til marks um
að viðkomandi sé „orðinn stór“
að komast yfir vínflösku.
Verðlagningin verður síðan til
þess að mynda neðanjarðarhag-
kerfi þar sem fram fara ábata-
söm viðskipti með smygl og
heimabrugg. Þetta gi-efur und-
an virðingu fýrir lögunum og
verður það seint talið heppilegt
veganesti. Verðið og aðgengis-
stefnan kaUa fram þá grimmu
helgardrykkju sem einkennir
svo mjög „áfengismenningu" ís-
lendinga. Helgardrykkjan og
virðingarleysið verða síðan mót-
andi fyrirbrigði í samfélaginu.
Sú skoðun nýtur nú vaxandi
fylgis að undarlegt megi kallast
að hér á landi sé að finna ráða-
menn sem telja það öldungis
eðlilegt ástand að Islendingar
geti barið áfengisauglýsingar
augum í erlendum sjónvörpum
og tímaritum en eigi þess ekki
kost að meðtaka slíkan áróður á
sínu eigin máU og í sínum eigin
miðlum. Enn mun ekki hafa
komið fram tUlaga um að stöðv-
aðar verði gei’vihnattasendingar
til landsins og erlend tímarit
gerð upptæk. Kann að vera að
slíkt sé miklu fremur talið
óframkvæmanlegt en óheppi-
legt.
A vesturlöndum hefur nú um
allangt skeið verið fylgt þeirri
heimspeki að réttur manna til
að lifa sínu lífi á þann hátt sem
þeir sjálfir kjósa sé helgur. Það
geti ekld verið hlutverk ríkis-
valdsins að stjóma lífi manna,
móta viðhorf þeiira eða ráða
neyslu þeirra á tilteknum vam-
ingi.
Raunar er það víðast hvar
tahð eitt skilgreiningaratriða
um lýðræðisfyrirkomulagið að
ríkisvaldið hafi ekki óeðlileg af-
skipti af daglegu Ufi manna og
treysti dómgreind þeiiTa. Svo
virðist sem Islendingar hafi ver-
ið dæmdir til vistar í apabúrinu
í hinum alþjóðlega dýragarði
vegna þess hve forsjárhyggjan
er djúpstæð í kjömum fulltrú-
um þjóðarinnar. Alltjent er
varla unnt að álykta á annan
veg en þann að þeir telji al-
menning ekki hafa þroska til að
umgangast áfengi með sama
móti og aðrar þjóðir. Verður
þeirra manna sem hafa þessa
sýn til Islendinga minnst með
sama hætti og þeirra sem ekki
treystu þjóðinni til að drekka
bjór eða horfa á sjónvarp á
fimmtudögum?