Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 68
Jternát
-setur brag á sérhvern dag!
fHttigttiiÞfnMfr
UNAÐARBANKINN
traustur banki
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ(3>MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samningi um kaup
á liðvögnum ríft
Vélin full-
- nægði ekki
settum skil-
yrðum
STJÓRN Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar hefur samþykkt
að rifta kaupum á tveimur Scania lið-
vögnum frá Heklu hf. þar sem í ljós
hefur komið að annar vagnanna sem
afhentur var SVR í desember síðast-
liðnum fullnægir ekki settum skil-
yrðum í kaupsamningi. Síðari lið-
vagninn átti samkvæmt samningn-
um að afhenda í ágúst 1999.
Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar,
t Tggjormanns stjómar Innkaupastofnun-
ar, var krafa um að í vögnunum væri
200 kw vél sem stæðist Evrópustaðal
um mengunarvamir. Scania hafði
boðist til að afhenda vagn sem væri
með 235 kw vél en þegar til kom
reyndist vélin í vagninum, sem kom í
■ desember, ekki vera nema 191 kw.
„Það var þegar haft samband við
Heklu og leitað skýringa á því hvem-
ig á þessu stæði, og þá mun hafa
komið í Ijós að til að uppfylla þennan
Evrópustaðal hefði 235 kw vélinni
T^erið breytt með þeim afleiðingum að
‘ *ún varð aflminni. Scania hefur boð-
ist til að breyta vélinni á nýjan leik til
að uppfylla kröfumar um 200 kw og
er að vinna að því að fá vottun fyrir
þá vél um að hún uppfylli þennan
staðal um mengunarvamir. Málið er
núna í höndum borgarlögmanns sem
á í viðræðum við Heklu. Að þeim við-
ræðum loknum kemur í ljós hvort
SVR muni festa kaup á þessum
Scania vagni breyttum og að upp-
fylltum þessum kröfum sem gerðar
vora, eða hvort samið verður við
Brimborg sem bauð Volvo og átti
næstlægsta tilboð,“ sagði Alfreð.
--------------------
Veizla á
Grandagarði
ÞEIR vaka yfír loðnubátunum,
múkkamir á Grandagarði. Bát-
arnir koma drekkhlaðnir til hafn-
ar og í gær var fúglafjöldinn slík-
ur, að halda mátti að yfir stæði af-
mælisveizla hjá vinsælum og sí-
ungum fugli.
Morgunblaðið/RAX
Vala sigraði
en heims-
metið stóðst
atlöguna
VALA Flosa-
dóttir sigraði í
stangarstökki
á alþjóðlegu
stökkmóti IR1
Laugardals-
höll í gær-
kvöldi. Hún
fór yfir 4,36 m
en mistókst í
þremur til-
raunum að
setja nýtt
heimsmet með
því að fara yf-
ir 4,46 m.
„Tæknin
var slæm þjá
mér í kvöld,
stökkin voru
illa útfærð og
því má í sjálfú sér að segja að 4,36
hafi verið ágætt þegar öllu er á
botninn hvolft,“ sagði Vala við
Morgunblaðið.
Nýbakaður Evrópumeistari og
heimsmethafi innanhúss, Anzhela
Balakhonova frá Úkraínu, stökk
4,31 m og varð í öðru sæti. Hún
reyndi einnig við 4,46 en felldi þá
hæð þrívegis eins og Vala.
Morgunblaðið/Golli
■ Heimsmetið/Cl
----♦-♦-♦---
Skáleyjar
Bóndinn
heim í þyrlu
L ANDHE LGISGÆSLAN var í gær
fengin til að flytja bóndann í Skáleyj-
um á Breiðafirði heim til sín í þyrlu.
Bóndinn hafði um nokkurra daga
skeið verið að reyna að komast yfir í
eyjuna en ekki tekist vegna mikilla
ísalaga á Breiðafirði. Varð að grípa
til nútímaúrræða og fá þyrlu til að
flytja bóndann frá Brjánslæk og
heim til sín.
Auðunn Karlsson sigmaður á þyrl-
unni segir að þarna hafi Landhelgis-
gæslan verið að sinna einu af megin-
verkefnum sínum, sem er að sinna
þörfum afskekktra byggða þegar
eðlilegar samgöngur bregðast.
Risastór flotkví
keypt til
Hafnarfj ar ðar
VÉLSMIÐJA Orms og Víglundar
í Hafnarfirði hefur fest kaup á
stæn'i flotkví en áður hefur þekkst
hér á Islandi. Flotkví þessi getur
tekið allt að 10.000 tonna skip í
slipp en sú sem fyrirtækið á fyrir
hefur 2.750 tonna lyftigetu. Eirík-
, ur Ormur Víglundsson, fram-
r kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
að nú verði ónauðsynlegt fyrir út-
gerðarmenn að senda togara sína
erlendis í slipp.
Eiríkur telur að með nýju flot-
kvínni verði hægt að þjónusta alla
togara og öll fiskiskip á landinu.
„Við höfum hingað til tekið skip
sem hafa sjö metra djúpristu en
getum með þessari flotkví tekið
skip sem hafa tíu og hálfs metra
djúpristu."
Hefur þurft að hafna mörgum
beiðnum um viðgerð
Eiríkur bendir á að vélsmiðjan
hafi hafnað mörgum verkum á síð-
astliðnu ári einfaldlega vegna þess
að kvíin hefur verið upptekin, með
um 95-96% nýtni. Nýja flotkvíin
komi til með að geta tekið tvö stór
skip í einu og geti því skipt miklu
fyrir rekstur fyrirtækisins. „Við
ættum að geta tekið grænlensku
togarana sem verið hafa við ís-
landsstrendur en þurft að fara til
NÝJA flotkvíin var keypt af breska hernum.
Danmerkur og Evrópu til að sækja Flotkvína kaupir véismiðjan af ur segir að kaupin séu frágengin
þjónustu. Við ætlum að róa á þann breska hernum en þar mun hún og að von sé á flotkvínni til Hafn-
markað." m.a. hafa þjónustað herskip. Eirík- aríjarðar innan tveggja mánaða.