Morgunblaðið - 30.04.1998, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Júlíus
SEX starfsmenn Slökkviliðs Reykjavíkur fengu styrk til náms á sviði sjúkraflutninga frá Reykjavíkurdeild
Rauða kross íslands. Hér eru þeir ásamt Hrólfi Jónssyni slökkviliðsstjóra og Þór Halldórssyni formanni
Reykjavíkurdeildar RKÍ. Frá vinstri Hrólfur Jónssou, Siguijón Valmundarson sem hlaut styrk til eins árs
náms, Þórður Bogason, Óttar Sigurðsson, Haraldur Guðjónsson, Pétur Arnþórsson og Þór Halldórsson. A
myndina vantar Sigurð A. Jónsson sem einnig hlaut styrk.
Sjúkra-
flutninga-
menn utan
til náms
REYKJAVÍKURDEILD Rauða
kross Islands hefur veitt sex
starfsmönnum Slökkviliðs
Reykjavíkur styrk til náms á
sviði sjúkraflutninga í Center for
Emergency Medicine í Pitts-
burgh í Bandaríkjunum. Fimm
starfsmenn fengu styrk til fjög-
urra vikna verklegrar þjálfunar
og einn til náms í „paramedic" í
eitt ár. _
RRKÍ leggur Slökkviliði
Reykjavíkur tii sjö sjúkrabif-
reiðar til að sinna sjúkraflutn-
ingum á þjónustusvæði Slökkvi-
liðs Reykjavíkur og eru bifreið-
arnar vel búnar til bráðamót-
töku. í fréttatilkynningu frá
Slökkviliði Reykjavíkur segir að
góður búnaður einn og sér geri
lítið, ef ekki er horft á framfarir
í menntun þeirra sem eiga að
nota hann, pg því séu styrkveit-
ingar RRKI til menntunar
starfsmanna slökkviliðsihs afar
mikilvægar.
---------------
Fíkniefni og
þýfí í Kópa-
vogi
TVEIR menn voru handteknir í bif-
reið á Kringlumýrarbraut í fyrr-
inótt sökum gruns um að ökumað-
urinn væri ölvaður. Við nánari eftir-
grennslan fannst lítilræði af fíkni-
efnum í fórum þeirra og voru þeir
færðir á lögreglustöðina í Kópavogi
vegna málsins.
Þá var par handtekið í Kópavogi
um klukkan þrjú aðfaranótt þriðju-
dags við venjubundið eftirlit lög-
reglu. Bifreið þeirra var stöðvuð og
vöknuðu grunsemdir um að ekki
væri allt með felldu.
Við leit fannst lítilræði af kanna-
bisefnum og amfetamíni, auk muna
sem ætla má að sé þýfi úr innbroti
að sögn lögreglu. Fólkið var flutt í
fangageymslur lögreglu og yfir-
heyrt síðar um daginn.
------♦-♦-♦----
Sýslumannafé-
lag óskar eftir
fundi með ráð-
herra
SIGURÐUR Gizurarson sýslumað-
ur á Akranesi átti á þriðjudags-
morgun fund með stjórn Sýslu-
mannafélagsins og kynnti þar af-
stöðu sína til ákvörðunar Þorsteins
Pálssonar dómsmálaráðherra að
flytja hann til Hólmavíkur.
Að sögn Georgs Lárussonar for-
manns Sýslumannafélagsins mun
stjórn félagsins væntanlega óska
eftir fundi með dómsmálaráðherra
en af því getur ekki orðið fyrr en í
fyrsta lagi í næstu viku því ráðherra
er staddur erlendis.
/Vý sendi
glæsilegum
Það er löngu liðin tíð að glæsileg
taska þurfi endiiega að vera
úr leðri. Nú eru töskur úr
gerviefnum í tísku um víða veröld.
Þær kosta minna og endast ekki
síður vel. Komdu og skoðaðu.
OPIÐ LAUGARDAG TIL 17.
a f
kum
Stærsta töskuverslun landsins, Skólavörðustíg 7, sími 551-5814
Frábært úrval
af gallafatnaði
Ný sending af drögtum
B-YOUNG*
Productdsitct jfcstercloijf
Verð frá kr. 5.464 stgr.
mmw BARNASTÓLARNIR
WmL vinsælu
Þeir eru sterkir og fjaðra sjálfstætt undir barninu, með
fjögurra punkta öryggisbelti og vandaðri fótavörn.
Bandarískar og evrópskar öryggisviðurkenningar.
Hraðlosunarbúnaður, sem passar á flest hjól.
Bögglaberi óþarfur. Fyrir börn 0-25 kg.
Opið laugard. kl.10-16
örninnF*
Skeifunni 11, sími 588 9890
www.mbl.is