Morgunblaðið - 30.04.1998, Blaðsíða 48
"Í8 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ARNI
INGIMUNDARSON
+ Árni Ingimund-
arson fæddist á
Akureyri 17. mars
1921. Hann lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
20. apríl síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðrún Árna-
dóttir frá Reykjum í
Skagafirði, f. 17.
júní 1887, d. 21.
september 1974, og
Ingimundur Árna-
son frá Grenivík,
skrifstofusljóri og
söngstjóri, f. 7.
febrúar 1895, d. 28. febrúar
1964. Árni átti fjögur systkini,
Magnús, f. 8. febrúar 1923,
Steinunni Karólínu, f. 29. mars
1925, Þórgunni, f. 23. júní 1926,
og Jóhann Gunnar Ragúels
(samfeðra), f. 24. apríl 1931.
_ Hinn 12. júní 1943 kvæntist
Árni Auði Kristinsdóttur frá
Hofsósi, dóttur Sigurlínu Gísla-
dóttur frá Neðra-Ási í Hjaltadal
og Kristins Erlendssonar kenn-
ara frá Gröf á Höfðaströnd.
~**Börn þeirra eru: 1) Ingimundur,
f. 8. aprfl 1943, d. 12. janúar
1980. 2) Guðrún, f. 20. apríl
1945, maki Ólafur Huxley
Ólafsson og börn þeirra: Árni
Huxley og Auður Inga. Maki
Árna er Elisabeth Andersen og
sonur þeirra Magnús Huxley. 3)
Kristín Sigurlína, f. 30. ágúst
1951, maki Friðrik Vagn Guð-
jónsson og börn
þeirra Finnur og
Hildur. Maki Finns
er Kristín Sóley
Björnsdóttir og
dóttir þeirra Borg-
ný Finnsdóttir.
Árni lauk gagn-
fræðaprófi frá MA
og stundaði versl-
unarnám í Verslun-
arskóla Islands
1939-1941. Hann
starfaði lengst af
við bókhald og end-
urskoðun, síðast
hjá iðnaðardeild
Sambandsins á Akureyri. Hann
stundaði nám í píanóleik hjá
Þorbjörgu Halldórs frá Höfn-
um og Árna Kristjánssyni og
lék undir hjá, söng með og
stjórnaði ýmsum kórnum,
þ. á m. karlakórnum Geysi og
Heimi í Skagafirði, síðast
gömlum Geysisfélögum. Auk
þess lék hann um árabil fyrir
dansi og var undirleikari fyrir
einsöng, kvartettsöng og kab-
arettsöng af ýmsu tagi. Árni
lagði á yngri árum einnig
stund á ýmsar íþróttagreinar,
m.a. sund, skíði og knatt-
spyrnu, og keppti í þeim fyrir
hönd KA. Á seinni árum lagði
hann mesta stund á golf og lax-
veiðar.
títför Árna fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 10.
Þegar ég kynntist Áma, kom
hann mér fyrir sjónir sem hispurs-
^•íaus, hreinskiptinn og skemmtileg-
ur maður. Nánari kynni styrktu
þessa skoðun, enda tilheyrði hann
hinum glaða og góða systkinahópi,
sem kominn er frá hjónunum Guð-
rúnu Árnadóttur og Ingimundi
Amasyni, söngstjóra. Rætur hans
lágu í Þingeyjar- og Skagafjarðar-
sýslum og þarf því engan að undra,
að hann var mikill gleðimaður og
hrókur alls fagnaðar. Árni var ein-
staklega hæfileikaríkur maður og
bar þar hæst tónlistargáfu hans.
Einnig var hann mjög fjölhæfur
íþróttamaður og keppti á yngri ár-
um fyrir lið sitt KA í knattspymu,
sundi og á skíðum. Þegar því tíma-
bili lauk, tók við keppni í golfi og
-thíklge, þar sem hann náði mjög
góðum árangri. Stangveiði var og
mikið áhugamál hans. Ámi var
þeirrar gerðar, að nýta til fullnustu
það, sem hug hans fangaði, en sinna
síður því sem ekki höfðaði til hans.
Sumum fannst sem meiri jöfnuður
mætti ríkja í þessum efnum, en
þeirrar gerðar var hann nú einu
sinni og veraldleg gæði skiptu hann
ákaflega litlu máli. Ámi kvæntist
12. júní, 1943 Auði Kristinsdóttur
frá Hofsósi, Skagafirði, og bjuggu
þau allan sinn búskap á Akureyri.
Þeim varð þriggja barna auðið, elst-
ur var Ingimundur, sem lést 1980,
þá Guðrún og yngst Kristín Sigur-
lína. Auður var mikil gæfa iyrir
Ama og ætíð homsteinn heimilis-
ins.
Árni bjó alla tíð á Akureyri, að
undansldldum íyrstu árunum í
Grenivík og námsárum í Reykjavík,
og var hann mjög áberandi í tónlist-
arlífi bæjarins. Árni las alla tíð
mjög mikið og lágu tungumál vel
fyrir honum. Síðustu árin var hann
mjög farinn að heilsu og sennilega
þjáðari en nokkurn grunaði. Hann
kaus að lifa lífinu hratt og okkur,
sem næst honum stóðu, fannst hann
einnig kveðja það hratt. Hann var
ákaflega eftirminnilegur og átti sér
ekki marga líka.
Genginn er drengur góður, sem
ég þakka ánægjulega viðkynningu.
Olafur H. Ólafsson.
Hann Árni frændi minn á Akur-
eyri er látinn.
Eg átti því láni að fagna sem bam
og unglingur að vera tíður gestur
hjá afa og ömmu á Oddeyrargötu 36
3 Erfidrykkjur
íM
Sími 562 0200
Tiiiiiiiiii
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
£
Mirmingarkort
Vinafélags
Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru
afgreidd í síma
525 ÍOOO
gegn heimsendingu
gíróseðils
«.
LEGSTEINAR
Islensk framleiðsla
Vönduð vinna, gott verð
Sendum myndalista
MOSAIK
t
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
1fe=
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími 5871960, fax 5871986
á Akureyri. Þegar ég rifja upp
þessa tíma nú við fráfalí Árna
frænda er margt sem kemur upp í
hugann, margar ævintýralegar
ferðir frá Reykjavík til Akureyrar
með ýmsum þjóðkunnum mönnum
sem falin var umsjón með strákn-
um. Þessir tímar á Akureyri í æsku
eru enn ljóslifandi íyrir mér og víst
er að strákur hafði gott og gaman af
þeim tíma sem hann dvaldi þar í
faðmi frændfólks. Þau Árni og Auð-
ur bjuggu á Oddeyrargötu 34
þannig að í raun dvaldi ég meira og
minna jafnt á 34 og 36 þegar ég var
á Akureyri.
Við Árni vorum báðir svo heppnir
að vera forfallnir fótboltafíklar nán-
ast frá fæðingu. Þarna átti ég
stráklingurinn samleið með frænda
og við gátum endalaust talað um
fótbolta bæði þá og svo að sjálf-
sögðu seinna á lífsleiðinni. Þetta var
fýrir tíma beinna sjónvarpsútsend-
inga þannig að t.d. enska knatt-
spyman var einhver ævintýraheim-
ur sem átti eftir að opnast fyrir okk-
ur, en við gátum rætt um af lotn-
ingu og hugsjón úr fjarlægð. Annar
uppáhaldsfrændi minn var Gunnar
móðurbróðir minn sem nú er látinn
fyrir nokkrum árum. Þeir Árni urðu
miklir vinir vegna sameiginlegra
áhugamála og mér eru mjög minnis-
stæðar ferðir á völlinn með þessum
frændum mínum, sérstaklega þegar
Árni átti leið til Reykjavíkur. Þeir
gátu mikið brallað saman þessir
frændur mínir.
Ami var mikill hæfileikamaður í
tónlist og ég minnist nú líka ýmissa
stunda þar sem þeir hæfileikar hans
fengu að njóta sín óbeislað. Hann
átti mörg áhugamál utan fótboltans
og tónlistarinnar. Golfið veitti hon-
um mikla ánægju og hann stundaði
það af miklum áhuga í mörg ár.
Hann hafði líka mikið yndi af stang-
veiði, bæði lax- og silungsveiði og
þeir Gunnar frændi áttu margar
góðar stundir saman við veiðar.
Hann Árni frændi var mikill lífs-
nautnamaður og naut lífsins óspart
meðan hann hafði heilsu og orku til.
Hann setti svip á bæjarlífið á Akur-
eyri til margra ára, þó ekki síst tón-
listarlífið. En íyrir mér var hann
Ami frændi sem hafði mörg sömu
áhugamál og strákurinn og gat átt
samleið með honum sem jafnaldra.
Það er mér nú mikils virði að hafa
átt Árna frænda sem vin.
Hann var mikill gæfumaður í
einkalífmu. Hann var kvæntur góðri
konu, henni Auði sem er einstök
kona. Þau eignuðust þrjú böm,
Ingimund, Guðrúnu og Kristínu
Sigurlínu. Ingi frændi lést langt um
aldur fram og var öllum mikill
harmdauði og andlát hans markaði
auðvitað djúp spor í líf Áma og
Auðar.
Elsku frændi, ég kveð þig hinstu
kveðju með von um að mikill áhugi
sé á tónlist, fótbolta, golfí og stang-
veiðum þar efra sem þú dvelur nú.
Ég votta mínu ágæta frændfólki
samúð við fráfall frænda.
Eggert Árni Magnússon.
Ami Ingimundarson ólst upp við
söng og hljóðfæraslátt. Bæði guð og
menn veittu honum yfirburðahæfi-
leika á því sviði. Kannski var hann
albestur sem píanóleikari.
Áreynslulaus snilld hans í þeim leik
er ógleymanleg. Ámi var fjölhæfur
svo að af bar. Honum var flest allt
vel gefið til munns og handa, orðs
og eðlis. Allir leikhnettir vora hon-
um furðu auðvelt viðfangsefni.
Skipti þá engu hvort það var fót-
bolti, þilljardsoppur eða golfkúla.
Hann var mikill bridge-maður,
djarfur, hugmyndaríkur, óvílinn og
keppnisprúður. Hvað mikla bomm-
ertu sem makker hans gerði, gat
aðfinnslan ekki orðið meiri en: Nú
varstu óheppinn, félagi. Hann var
með ólíkindum veiðinn í fiskiám, og
hvemig sem á stóð. Það má ef til vill
segja galla hans að hann var svo
fjölhæfur og margfær að hann átti
ekki alltaf auðvelt með að einbeita
sér.
Ami var glaðsinna og hafði ríka
frásagnargáfu. Hann var alstaðar
eftirsóttur í mannfagnaði, og má
segja að stór hluti ævi hans hafi
verið í því fólginn að skemmta öðr-
um og gleðja þá. Það er eftirsóknar-
vert hlutskipti.
Ami var dulur um sínar innstu
tilfinningar, en þeir sem kynntust
honum, kenndu hjartahlýju hans.
Hún var ríkur þáttur eðlis hans.
Gáfur, drenglyndi, glaðlyndi,
mannsgæska; þessar vora einkunn-
ir hans. Gott er að hafa við áfanga-
skil slíkt veganesti og velvild fjöl-
mennis, en einskis manns óvild.
Þökk fyrir skemmtunina, félags-
skapinn og uppgerðarlausan hlý-
hugann.
Gisli Jónsson.
Óvænt var sú frétt er það spurð-
ist að Árni Ingimundarson væri lát-
inn, þótt vitað væri að heilsa hans
væri farin að bila, en að hann hyrfi
svo skjótt af sjónarsviðinu kom á
óvart. En enginn má sköpum renna
og huggun er það þeim sem nú
syrgja hann, að hann þurfti ekki að
heyja langt dauðastríð. Þegar litið
er til baka yfir æviferil Árna kemur
fyrst í hugann orðið músík. Hún var
honum í blóð borin ríkulega í báðar
ættir hans og alla ævi sína vann
hann ýmis tónlistarstörf, sem vora
hans líf og yndi þótt hann yrði jafn-
an að hafa þau sem aukastörf. Hann
var frábær píanóleikari þegar á
unga aldri og mun mörgum þeim,
sem komnir era á efri ár, hlýna um
hjartarætur er þeir minnast dans-
leikjanna í Gúttó eða annars staðar
þar sem hann lék fyrir dansinum af
sinni alkunnu snilld. Hann var
einnig eftirsóttur undirleikari ým-
issa söngvara og leysti allt slíkt af
hendi með miklum sóma. Síðast en
ekki síst lék hann undir með karla-
kórnum Geysi lengi vel, m.a. í
frækilegri söngför kórsins til Norð-
urlanda árið 1952 og brást hvergi
bogalistin. Söng hann einnig með
kórnum þegar ekki þurfti undirleik.
Þá er komið að þeim þættinum sem
merkastur er á músíkferli Áma, en
það er kórstjórn hans. Hann tók við
stjórn Karlakórsins Geysis eftir að
faðir hans, hinn alkúnni Ingimund-
ur Arnason, féll frá og stjórnaði
honum um 20 ára skeið. Þar næst
fengu Gamlir Geysismenn hann til
að stjórna söng sínum og gegndi
hann því starfi önnur 20 ár. Þá
stjórnaði hann Karlakórnum Heimi
í Skagafirði um árabil. Öllum þess-
um störfum gegndi hann með mikl-
um sóma og var það rómað hve
hann væri smekkvís stjómandi. Þá
er þvi við að bæta að hann naut ein-
huga vinsælda meðal félaganna í
hvaða kór sem hann stjómaði.
Skrifstofustörf voru aðalatvinna
Árna. Hann vann lengi vel hjá KEA
en síðan hjá iðnaðardeild SÍS á
Akureyri. Sá sem þessar línur ritar
starfaði áram saman með Áma hjá
KEA. Var hann þar afar vinsæll
meðal starfsmanna, hafði næmt
skopskyn og lét skoðanir sínar í ljós
hreint og beint og hispurslaust.
Hann átti það til að vera dálítið
hrjúfur á yfirborðinu, sem ekki féll
öllum í geð, en þeir sem þekktu
hann vissu að inni fyrir var hlýtt
hjarta og næmar tilfinningar. Tóm-
stundaiðkanir Áma auk tónlistar
voru m.a. íþróttir, knattspyma
framan af ævi, en golf á síðari árum.
Var hann á sínum tíma einn besti
leikmanna KA í knattspymu.
Ámi átti því láni að fagna að vera
vel kvæntur. Eftirlifandi eiginkona
hans, Auður Kristinsdóttir, var hon-
um jafnan hinn trausti og sterki lífs-
föranautur. Þau eignuðust þrjú
böm, einn son og tvær dætur. Það
var þeim hjónum þungt áfall, er son-
urinn, Ingimundur, féll frá á besta
aldri. Þessi fátæklegu orð era fest á
blað til þess að þakka Áma fyrir
samfylgdina bæði í leik og starfi.
Gamlir Geysismenn þakka hina frá-
bæra söngstjóm og ógleymanlegar
samverastundir. Undirritaður og
fjölskylda hans þakka Áma elsku-
lega og eftirminnilega samfylgd.
Samúðarkveðjur sendum við öll
Auði og fjölskyldu hennar.
Gisli Konráðsson.
SIGURKARL ELLERT
MAGNÚSSON
+ Sigurkarl Ellert
Magnússon var
fæddur 19. janúar
1932 á Hrófbergi í
Strandasýslu. Hann
lést á Landspítalan-
um 21. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hans eru Árdís Sig-
urðardóttir sem lif-
ir son sinn og Magn-
ús Hansson sem er
látinn en þau
bjuggu á Hólmavík.
Systkini Sigurkarls
eru: Sigrún, býr í
Reykjavík, Pétur,
látinn, og Erna, hálfsystir, býr á
Akranesi.
Kona Sigurkarls
var Guðrún Snjó-
laug Snjólfsdóttir
en þau slitu sam-
vistir og á hún þrjú
börn frá fyrra
hjónabandi. Dóttir
Sigurkarls frá því
fyrir hjónaband er
Ragnheiður Hanna,
f. 29.11. 1961. Hún
býr í Vestmannaeyj-
um, hennar maður
er Arnar Andersson
og eiga þau þijú
börn.
títför Sigurkarls
fer fram frá Bústaðakirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Nú í sumarbyrjun þegar náttúran
er að vakna af vetrardvala og ómur
af söng farfuglanna kveður við í
loftinu kveðjum við ljúfan vin okkar
og félaga Sigurkarl Ellert Magnús-
son, fæddan og uppalinn Stranda-
mann. Hann lést af þeim skæða
sjúkdómi sem svo margan manninn
fellir.
Sigurkarl hóf störf við akstur eig-
in bifreiða á Vörabílastöðinni Þrótti
hér í Reykjavík 1979 og starfaði síð-
an þar til dauðadags. Áður starfaði
hann í áraraðir við akstur vörabif-
reiða á Hólmavík og einnig við akst-
ur langferðabíla á leiðinni Hólmavík
- Reykjavík og átti hann þá heima á
Hólmavík. Marga erfiða ferð lagði
Sigurkarl að baki á þessari leið, við
erfiðar aðstæður, lélegan bílakost
.bnuja iiJauðia 8 ínsfi íIIjs ööíí
og lélega vegi miðað við það sem nú
er, enda minntist hann ósjaldan
þessara ferða.
En nú er vinur okkar farinn í sína
síðustu ferð, ferð sem ekki verður
vildst undan að fara. Hann er horf-
inn sjónum okkar sem áttum sam-
leið með honum í árafjöld. I minn-
ingunni geymum við þær stundir er
við áttum saman í blíðu og stríðu,
sumar tregablandnar, aðrar ljúfar
eins og gengur, og var þá ósjaldan
slegið á létta strengi og hlegið dátt.
Sigurkarl var hnyttinn í tilsvöram
og athugasemdir hans um menn og
málefni áttu greiða leið í mark.
Hann lifði þessu lífi án þess að gera
kröfur sér til handa, en var ávallt til-
búinn að rétta hjálparhönd þeim
sem þess þurftu. Hann var ekki einn
af þeim mönnum sem troðast í gegn-
um lífið með fyrirferð og gassa-
gangi. Þennan góða dreng kveðjum
við með söknuði og segjum að leið-
arlokum: Góða ferð, kæri vinur.
Áfram veginn í vagninum ek ég
inn í vaxandi kvöldskugga þröng.
Okubjöllunnar blíðróma kliður
hægur blandast við ekilsins söng.
Nú er söngurinn hljóður og horfinn
aðeins hljómur frá bjöllunnar khð.
AUt er hljótt yfir langferðaleiðum
þess er leitar að óminni og frið.
(Þýð. Freyst. Gunn.)
Félagar og starfsfólk á Þrótti.
; Lfiion ■fóÍBir enistii inrom i: ;ií u nne
lilBBtáláifeiÍifiiillíiÉiiilMitfiiyWllÍ