Morgunblaðið - 30.04.1998, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Skipverjar Sléttbaks EA fengu hlýjar móttökur við heimkomuna
Morgunblaðið/Kristján
FJÖLMARGIR vinir og vandamenn voru á Oddeyrarbryggju er Sléttbakur lagðist að bryggju í gærmorgun.
FRÍÐUR Jóhannesdóttir, eiginkona Gunnars Jóhannssonar, skip-
stjóra tekur á móti bónda sinum með blómi og kossi.
SANNKÖLLUÐ hátíðarstemmn-
ing ríkti á Oddeyrarbryggju á
Akureyri í gærmorgun, er Slétt-
bakur EA, frystitogari títgerðar-
félags Akureyringa hf., lagðist
að bryggju eftir mettúr. Vinir og
vandamenn skipverja, með eigin-
konur í broddi fylkingar, tóku á
móti sínum mönnum með fagnað-
arlátum. Þær stóðu á bryggjunni
með áletraðan borða, þar sem
skipveijarnir voru boðnir vel-
komnir heim og færðar ham-
ingjuóskir með góðan túr. Kon-
urnar færðu mönnum síhum
rauðar rósir er þeir stigu frá
borði og buðu þeim upp á léttar
veitingar á bryggjunni.
Þrisvar í land með
veika skipveija
Aflaverðmæti Sléttbaks í þess-
um túr var 104,5 milljónir króna,
aflinn um 400 tonn af frosnum
afurðum, sem eru um 620 tonn
upp úr sjó. Þetta er langmesta
aflaverðmæti sem Sléttbakur
hefur komið með að landi en áð-
ur hafði skipið komið mest með
75 milljóna króna aflaverðmæti.
Gunnar Jóhannsson skipsljóri
sagði í samtali við Morgunblaðið
við komuna til hafnar í gær, að
líklega væri þetta mesti afli í túr
sem íslenskur togari hefur komið
með að landi af Islandsmiðum.
Gunnar sagði þó að túrinn hafí
Trúlega stærsti
^ túr skips af
Islandsmiðum
' HUMT ■ 'f
KONUR skipveijanna á Sléttbak tóku vel á móti þeim við komuna
til Akureyrar, færðu þeim blóm og buðu upp á veitingar. Hér eru
þær að leggja á „veisluborðið" en úti á Pollinum sést Sléttbakur
sigla að bryggju.
gengið dálítið skrykkjótt og í þrí-
gang þurfti hann að sigla til
hafnar með veika skipveija. Far-
ið var með tvo til Patreksfjarðar
og einn til Siglufjarðar. Því
þurftu nýir að koma um borð á
Siglufirði og veitti ekki af í
flakavinnsluna, að sögn Gunnars.
Óhemju mikið af þorski
fyrir Norðurlandi
Sléttbakur hóf grálúðuveiðar á
Hampiðjutorginu svokalla, vest-
ur af Látrabjargi, og var við
veiðar þar í þijár vikur. „Síðan
fórum við norður fyrir og byrjuð-
um þorskveiðar á Sporðagrunni
aðfaranótt mánudags fyrir rúmri
viku. Það er alveg óhemjumikið
af þorski víða fyrir Norðurlandi
og að jafnaði var dregið í 15-20
mínútur upp á 8-12 tonn. Við tók-
um þetta þijú hol á sólarhring og
þess á milli var samfelld vinnsla.
Menn höfðu því nóg að gera um
borð og þetta tekst ekki nema
með góðum og samstilltum
mannskap og kjarninn af þessum
mönnum hefur unnið saman í 5-
10 ár.“
Gunnar hefur verið skipstjóri á
Sléttbak í um Ijögur ár en áður
var hann stýrimaður og afleys-
ingaskipstjóri á skipinu. Hann
hefur verið um borð frá því að
skipinu var breytt í frystitogara,
eða á ellefta ár.
Morgunblaðið/Kristján
Smíði reiðbrúar yfir Eyjafjarðará lokið
Hrafnagilsskóli í
Eyj afj ar ðar s veit
Níu umsókn-
ir um stöðu
skólastjóra
ALLS bárust níu umsóknir um stöðu
skólastjóra Hrafnagilsskóla í Eyja-
fjarðarsveit en umsóknarfrestur
rann út nýlega. Umsóknirnar voru
lagðar fram á fundi hreppsnefndar í
gær, sem vísaði þeim til skólanefndar
og óskaði eftir umsögn nefndarinnar.
Umsækjendur um stöðuna eru;
Anna Guðmundsdóttir, Eyjafjarðar-
sveit, Árni Þorsteinsson, Fáskrúðs-
fírði, Bergljót V. Jónsdóttir, Súðavík,
Einar Ólafsson, Drangsnesi, Elsa
Isafold Amórsdóttir, Danmörku,
Finnur Magnús Gunnlaugsson,
Akureyri, Karl Frímannsson, Akur-
eyri, Svanhildur K. Sverrisdóttir,
Garðabæ, og Þorkell Cýrusson, Hell-
issandi.
Sigurður Aðalgeirsson sem verið
hefur skólastjóri Hrafnagilsskóla til
fjölda ára, fór í launalaust leyfi í febr-
úar sl. og lætur af störfum í vor.
Anna Guðmundsdóttir, aðstoðar-
skólastjóri, hefur gegnt starfi hans
frá þeim tíma en hún er einn um-
sækjendaum stöðunainú.
SMÍÐI nýrrar reiðbrúar yfir
Eyjafjarðará, á móts við Melgerð-
ismela í Eyjafjarðarsveit, lauk í
gær. Reiðbrúin, sem er trébrú á
stálbitum, er 36 metra löng og 2,5
metrar á breidd. Það er Vegagerð-
in sem stóð fyrir þessari fram-
kvæmd og var kostnaður við verk-
ið rúmar 6 milljónir króna.
Framkvæmdir við verkið hófust
H8. apríl en það vai’ brúai*vinnu-
flokkur Vegagerðarinnar á
Hvammstanga sem sá um smíði
brúarinnar. Framkvæmdin tengist
því að reiðleiðin frá Akureyri og
suður að Melgerðismelum verði að
austanverðu í firðinum. I haust var
unnið við nýjan reiðveg frá þver-
brautinni sunnan Akureyrarflug-
vallar og suður á móts við bæinn
Ytra-Gil. Þvi er talið að það stytt-
fram á Melgerðismela verði nokk-
uð greið austan megin í firðinum.
Eins og kunnugt er fer Landsmót
hestamanna fram á Melgerðismel-
um í byrjun júlí í sumar.
Forsvarsmenn Vegagerðarinnar
á Akureyri, þeir Guðmundur Svaf-
arsson t.h. og Sigurður Oddsson,
skoðuðu nýju brúna í gær. Með
þeim á myndinni er Hjalti Þórsson
iet L að. reiðleiðin frá Akureyrí sem var verktaki.við jarðvinnu.
Samkór Svarfdæla
Söng-
skemmtun
á Rimum
SAMKÓR Svarfdæla heldur
söngskemmtun í léttum dúr
og moll á Rimum í kvöld,
fimmtudagskvöldið 30. apríl,
kl. 21.
Kórinn mun syngja einn og
óskiptur nokkur lög en einnig
munu einstaklingar og hópar
innan kórsins láta mjög að
sér kveða. Bæði koma fram
kvenna- og karlakórar innan
vébanda kórsins og þá verður
boðið upp á einsöng og tví-
söng við píanóundirleik Reyn-
is Schiöth og trúbadorar úr
röðum kórfélaga leika listir
sínar auk þess sem Tjarnar-
kvartettinn kemur fram.
Kynnir á skemmtuninni verð-
ur Þórarinn Hjartarson.
Ferming
MÖÐRUVALLAPRESTAK
ALL: Guðsþjónusta verður í
Glæsibæjarkirkju á sunnu-
dag, 3. maí kl. 13.30. Ferming
og altarisganga. Fermdir
verða Elmar Freyr Krist-
þórsson, Moldhaugum, Glæsi-
bæjarhreppi og Jóhann
Helgason, Sflastöðum, Glæsi-
bæjarhreppi.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kyrrðar- og bænastund á
sunnudag, 3. maí, kl. 21.
Aksjón
Fimmtudagur 30. apríl.
21.00 ^Níubfó-Ógnir
næturinnar (Night Hunt)
Þijár konur í bfl villast í leit
að bensínstöð inn í hættuleg-
asta hverfi New York-borgar
þar sem glæpagengið „Los
Muertos" ræður ríkjum. Þar
hefst atburðarás sem ekki sér
fyrir endann á. Aðalhlutverk:
Stefanie Powers og Helen
Shavers. 1992. Stranglega
bönnuð börnum.
www.mbl.is