Morgunblaðið - 30.04.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 29
Sýningin Bjartar
nætur fellur niður
á Listahátíð
TIL stóð að einn þriggja hluta sýn-
ingar Nútímalistasafnsins í París á
norrænni myndlist, Bjartar nætur,
kæmi hingað til lands í sumar og
yrði sett upp á Kjarvalsstöðum á
Listahátíð í Reykjavík. Ljóst er að
af því verður ekki vegna fjárkröfu
Nútímalistasafnsins sem fram kom
á síðustu stundu.
Sýnir úr norðri er yfirskrift sýn-
ingarinnar í París. í þeim hluta
sem nefnist Bjartar nætur er úi’val
verka yngri listamanna á Norður-
löndunum og var sýningin unnin af
þeim Hans Ulrich Olbrist og
Laurence Bossé. Sýningin er
styrkt af Norrænu ráðherranefnd-
inni og með lánum á verkum frá
norrænum listasöfnunum. Að sögn
Eiríks Þorlákssonar, forstöðu-
manns Listasafns Reykjavíkur,
hafði safnið unnið að því ásamt
Listasafninu í Bergen, í Gautaborg
og í Pori í Finnlandi að fá að setja
upp lokahluta sýningarinnar í þess-
um söfnum síðar á árinu. Fyrst átti
sýningin að koma á Listahátíð í
Reykjavík við sýningarlok í París
um miðjan maí. I mars hafi Nú-
tímalistasafnið í París hins vegar
sett fram kröfur til safnanna fjög-
urra um umtalsverðar peninga-
greiðslur íýrir komu sýningarinn-
ar.
„Slíkt hafði aldrei verið rætt áð-
ur á undirbúningsstigum sam-
starfsins og forsvarsmenn nor-
rænu safnanna vora einhuga um að
hafna þessum kröfum sem við fór-
um jafnframt fram á að yrðu
dregnar til baka,“ segir Eiríkur.
„Þegar það var ekki gert heldur
boðað til samningaviðræðna við
söfnin var ákveðið að aflýsa sýn-
ingunni í Reykjavík þar sem tíminn
var orðinn of naumur." Hann segir
þessi málalok vissulega vonbrigði
fyrir safnið, viðræður við annan
sýningarstjórann, Hans Ulrich 01-
brist, hófust fyrir tveimur árum og
því hafi ekki mátt ætla annað en að
samningar hefðu verið fullfrá-
gengnir.
I stað norrænu samsýningarinn-
ar Bjartar nætur verða sett upp á
Kjarvalsstöðum verk í eigu safns-
ins. Þetta er sumarsýning safnsins
sem fyrirhugað var að setja upp að
lokinni Listahátíð. Framlag Lista-
safns Reykjavíkur til Listahátíðar
verður eftir sem áður sýning á
verkum eftir Erró sem opnuð verð-
ur í Hafnarhúsinu við setningu há-
tíðarinnar 16. maí nk.
Námskeið um
írskar fornsögur
Endurmenntunarstofnun Háskól-
ans býður á tímabilinu 4.-27. maí
upp á kvöldnámskeið um írskar
fornsögur. Námskeiðið ber nafnið
Dyggðum prýddir kappar og vilja-
sterkar konur eða „Worthy Men of
Noble Deeds and Brave Feats and
Strong-Willed Women: The Irish
Sagas“.
Námskeiðið fer fram á ensku og
verður haldið á mánudags- og mið-
vikudagskvöldum. Það er ætlað
fólki sem þekkir lítið til írskra forn-
sagna en hefur almennan áhuga á
sögu, félagsfræðum og bókmennt-
um.
Líkt og okkar sögur
^ í kynningu á námskeiðinu segir:
„Irar hófu snemma að rita sögur af
köppum sínum og eru þær um
margt sambærilegar við íslenskar
fornsögur. Líkt og okkar sögur
eiga írskar fornsögur sér rætur í
fornum hefðum úr heiðni, munn-
legri geymd og kristnum hug-
myndum sagnaritara á miðöldum.
I sögum þeiira er fjallað um bar-
daga karlmanna, lagaflækjur,
kveðskap og trúarbrögð og dregin
upp mynd af samfélagi þar sem
konur njóta mikils frjálsræðis.
Lögð er áhersla á ættfræði og
tryggð við vini, fjölskyldu og leið-
toga um leið og lýst er átökum
milli eigin hagsmuna og þeirra
skuldbindinga sem á mönnum
hvfla.“
Fyi’irlesari á námskeiðinu verð-
ur Heidi Anna Lazar-Meyn. Hún
er með BA-próf í málvísindum frá
Princeton háskóla og MA-gráðu í
sömu fræðum frá University of
Pennsylvania, hvaðan hún er nú í
leyfi frá doktorsnámi. Heidi hefur
fengið útgefnar ýmsar ritgerðir um
fornírsku sem er hennar sérsvið og
önnur keltnesk mál.
INGIBJÖRG Ágústsdóttir er fatahönnuður og hefur
hannað og saumað brúðarkjóla sem hún sýndi á
sýningu Emblu í Norska húsinu.
ARNDIS Jóhannsdóttir og Anna Þóra Karlsdóttir
úr Reykjavík við eitt verka sem var á listsýning-
unni, blöðrustrengur.
Listsýningar í Stykkis
hólmi í sumarbyrjun
Styldíishólmi. Morgunblaðið.
FELAGIÐ Emblur í Stykkishólmi stóð fyrir listsýn-
ingu í Norska húsinu í tengslum við vorvöku sína.
Þar sýndu 8 konur frá Kirsuberjatrénu, Vesturgötu
4 í Reykjavík, handunna og nýstárlega listmuni unna
úr margvíslegu efni.
Arndís Jóhannsdóttir var með muni úr fískroði,
Anna Þóra Karisdóttir teppi og muni úr ullarflóka,
Valdís Harrysdóttir með hluti úr grísablöðrum, hör og
hrosshári, Unnur Knudsen sýndi textílverk, Hulda B.
Agústsdóttir með skartgripi unna úr plasti, málmi og
silki, Margi’ét Guðnadóttir sýndi körfur, Fríða Krist-
insdóttir var með vefnað og Olöf Erla Bjarnadóttir
sýndi muni úr jarðbrenndum steinleir.
Konurnar eiga það sameiginlegt að eiga og reka
verslunina Kirsuberjatréð í Reykjavík þar sem þær
selja þá muni sem þær búa til.
Ingibjörg H. Ágústsdóttir, fatahönnuður í Stykkis-
hólmi, sýndi brúðarkjóla sem hún hefur hannað og
saumað. Þai’na voru 5 brúðarkjólar eftir hana ólíkir
hver öðrum. Mikil vandvirkni og nostur einkenna verk
hennar. Kjólana tengdi hún ýmsum ævintýrum.
Bernt H. Sigurðsson smiður í Stykkishólmi sýndi
samborgurum sínum nýja hlið á sér. Hann var þarna
með 35 listmuni gerða úr steini og smíðajárni.
Hann hefur fengist við þessa sköpun síðustu 13 árin
heima hjá sér í bílskúrnum og sýnir nú afraksturinn í
fyrsta skipti.
Listsýningin í Norska húsinu var opnuð sumardag-
inn fyrsta og stóð í 4 daga. Sýningin var mjög fjöl-
breytt og vakti hún mikla athygli bæjarbúa. Mikil að-
sókn var að sýningunni og er talið að yfir 300 manns
hafi komið í Norska húsið á sumardaginn fyrsta og eru
Emblu-konur og sýnendur mjög ánægð með viðtök-
urnar.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
BERNT H. Sigurðsson í Stykkishólmi sýndi í fyrsta
sinn verk sem hann hefur unnið í frítíma sínum og
vöktu þau mikla athygli. Hér heldur hann á tveimur
þeirra.
Formaður
með fjölbreytt
áhugamál
FINNLANDSSÆNSKA rithöf-
undasambandið kaus sér nýlega
formann og tók Thomas Wulff við
af ljóðskáldinu Agneta Ara.
Wulff (f. í Helsingfors 1953) sem
er jafnvígur á ljóð og sagnagerð er
áhugamaður um búddíska list,
Andrés önd, bófa- og einkalöggur,
kvikmyndir og goðafræði. Hann
hefur samið bók um aðdráttarafl
hins illa, en í henni er hlutur bófa
stór.
Við sama tækifæri úthlutaði Rit-
höfundasambandið verðlaunum og
styrkjum. Skáldið og þýðandinn
Caj Westerberg fékk hæstu verð-
launin, 30.000 finnsk mörk, fyrir
snjallar þýðingar sínar á ljóðum
Finnlandssænskra skálda á
finnsku.
Athugið að verð á NOOTEBOOM vögnunum
er nú mjög hagstætt
A
Verktakar - Vörubíls
Sýnum þriggja öxla vélavagn á loftfjöðrum.
Hönnun og smíði skv. Evrópustöðlum.
Sjón er sögu ríkari, komið og sjáið það nýjasta!
NOOTEBOOM sem er einn virtasti framleiðandi Evrópu
býður vagna í stærðum upp í 150 tonna burðargetu
og eru þeir þekktir fyrir hugvitsamlega hönnun
og vandaða smíð.
Skútuvogur 12A - Reykjavík - Sími 568 1044