Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
r
FRÉTTIR
Kjaranefnd úrskurðar um
launakjör prófessora
Grunnlaun hækka
um 50% og eru
árangurstengd
Jarðeðlisfræði
frestað
fyrir fótboltann
Morgunblaðið/Halldór
A sjötta tug gengur úr
Alþýðubandalaginu
KJARANEFND úrskurðaði í síð-
ustu viku um kjör háskólaprófess-
ora. Verða grunnlaun þeirra frá síð-
ustu áramótum í lægsta flokki tæp-
lega 212 þúsund krónur en þau voru
að meðaltali um 145 þúsund árið
1996. Prófessorar geta með því að
sýna árangur í starfí sínu flust upp
um flokka og hækkað þar með
grunnlaun sín. Byggist það á mati á
starfsárangri þeirra sem fara á
reglulega fram.
Samkvæmt úrskurði kjaranefndar
hækkuðu laun háskólaprófessora um
6,3% frá 1. maí 1997 en frá síðustu
áramótum kemur fyrrgreind kerfís-
breyting til. Verða launaflokkar þá
fímm og eru grunnlaunin á bilinu
211.950 kr. til 269.661 kr. Pá er sett
ákveðið hámark á kennsluyfirvinnu
prófessora sem er 8-30 tímar eftir
flokkum og ekki heimiluð í efsta
flokknum. Laun verða metin eftir af-
köstum við rannsóknir, kennslu og
stjórnun og því einstaklingsbundin.
Guðiún Zoéga, formaður kjara-
nefndar, segir að kerfisbreytingin
felist annars vegar í því að yfirvinna
sé frá síðustu áramótum færð inn í
grunnlaunin og hins vegar sé gerð
sú grundvallarbreyting að hækkun
milli flokkanna fimm ráðist af ár-
FRAMKVÆMDASTJORN Evrópu-
sambandsins telur að innheimta
flugvallarskatta hér á landi brjóti
gegn 36. grein samningsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið þar sem
hærri skattur sé greiddur í milli-
landaflugi en innanlandsflugi. Eftir-
litsstofnun EFTA hefur málið nú til
athugunar samkvæmt ábendingu
framkvæmdastjómarinnar, að því er
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendi-
herra Islands í Brussel, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Gunnar Snorri sagði að fyrr á
þessu ári hefði framkvæmdastjórn
ESB hafist handa við athugun á inn-
heimtu flugvallarskatta innan aðild-
aiTÍkja Evrópusambandsins. Án
þess að haft hafi verið samband við
stjómvöld í löndunum hafi fram-
kvæmdastjórnin ákveðið að láta
kanna jafnframt framkvæmdina á
Islandi og í Noregi þannig að könn-
unin næði yfir allt Evrópska efna-
hagssvæðið.
Niðurstaða framkvæmdastjórnar-
innar var sú að einungis í fjóram
ríkjum sambandsins bryti innheimta
flugvallarskatta ekki í bága við
ákvæði 59. greinar Rómarsáttmál-
ans, sem samsvarar 36. grein EES-
angri í starfi. Allir prófessorar byrja
í neðsta flokki þar sem mánaðar-
launin eru tæplega 212 þúsund krón-
ur. Kjaranefnd mun nú fljótlega
meta árangur og starfsferil prófess-
ora til hugsanlegrar hækkunar. Sér-
stakar reglur um matið fylgja úr-
skurðinum.
Kerfisbreytingin háskólum og
prófessorum til góðs
Að sögn Guðmundar K. Magnús-
sonar, prófessors og eins fulltrúa í
viðræðunefnd prófessora, þýðir
þessi kerfisbreyting að prófessorar,
sem hafa jafnan tekið að sér auka-
kennslu eða aðra yfirvinnu til að
hækka laun sín, geti í stað hennar
snúið sér í auknum mæli að rann-
sóknum. Eru grunnlaunin ein í nýja
kerfínu svipuð og grunnlaun voru
áður að viðbættri yfirvinnu.
Taldi Guðmundur að þessi kerfis-
breyting yrði bæði háskólum og pró-
fessorum til góðs þar sem hæfir
menn myndu nú fást áfram til starfa
og síður fara til útlanda. Hann taldi
einnig að kerfið gæti hvatt menn til
aukinna rannsóknastarfa, það væri í
senn afkastahvetjandi og yrði til
þess að prófessorar gætu nú helgað
sig starfinu.
samningsins. Mismununin felst í því
að mismunandi gjald sé greitt eftir
því hvort ákvörðunarstaður er inn-
anlands eða utan.
Gunnar Snorri sagði að fram-
kvæmdastjórn ESB hefði ekki eftir-
litshlutverk í þessum efnum gagn-
vart íslandi og Noregi og þess vegna
hefði hún farið þá leið að vekja at-
hygli Eftirlitsstofnunar EFTA,
ESA, á þessari stöðu mála.
Ekki ólíklegt að ESA taki mark
á framkvæmdastjórninni
„I lok apríl fengum við bréf frá
ESA þar sem þeir spurðust fyrir um
hvernig þessum málum væri háttað
á íslandi. Við svöraðum því bréfi í
júní og sendum alla lagatexta og all-
ar upplýsingar um framkvæmd mála
á íslandi. ESA er með það svar til
athugunar núna og við eigum eftir að
fá nánari túlkun þeirra. Við vitum að
framkvæmdastjórnin er búin að gera
upp hug sinn hvað varðar aðildarríki
Evrópusambandsins. Það er ekki
ólíklegt að ESA taki talsvert mai-k á
þvi hver túlkun framkvæmdastjórn-
arinnar hefur verið,“ sagði Gunnar
Snorri.
Hann sagði að það hefði komið
ÞÁTTTAKENDUR á Ólympíu-
leikunum í eðlisfræði, sem lýkur í
dag, voru ekki uppteknari af vís-
indunum en svo að þeir gáfu sér
tíma til að horfa á leik Króatíu og
Frakklands í heimsmeistara-
keppninni í fótbolta í Laugardals-
höllinni í gærkvöld. Fyrir vikið
var fyrirlestri Magnúsar Tuma
upp í umræðunni að skattheimta er
utan gildissviðs EES-samningsins.
„Það gæti verið þáttur í málinu en á
móti kemur að skattheimta er heldur
ekki samræmd innan Evrópusam-
bandsins. Samt hefur framkvæmda-
stjórnin komist að þessari niður-
stöðu. Það er því ekki víst að það sé
hægt að taka skattheimtu sem slíka
út fyrir sviga. Meginregla EES-
samningsins er jú sú að ekki megi
mismuna eftir þjóðerni, í þessu til-
viki áfangastað flugvélar."
Sendiherrann sagði að þegar ESA
hefði lokið athugun gagna um málið
frá íslandi og Noregi myndi stofnun-
in væntanlega senda frá sér niður-
stöður og þá gætu stjómvöld í lönd-
unum tveimur tekið málið til form-
legrar meðferðar enda væri ESA sá
aðili sem væri formlega til þess bær
að gera athugasemdir við málið.
Um það hvort ástæða væri til að
gera athugasemdir við það að málið
kom upp að framkvæði fram-
kvæmdastjómarinnar sagðist Gunn-
ar Snorri ekki telja að neitt væri við
þvi að segja þótt framkvæmdastjórn
ESB fylgist með framkvæmd EES-
samningsins innan EFTA, „rétt eins
og við fylgjumst með því hvemig
Guðmundssonar jarðeðlisfræð-
ings um baráttu elds og íss
frestað um stund. Fremstir við
sjónvarpsskjáina sátu stuðnings-
menn Frakka og Króata, sem
voru stríðsmálaðir í tilefni leiks-
ins og heldur ólíkir hinum alvöru-
gefnu ungmennum, sem fyrr í
vikunni grúfðu sig yfir prófblöð.
framkvæmdin er innan Evrópusam-
bandsins sjálfs,“ sagði hann. „Það
hefði verið ástæða til að gera athuga-
semdir ef framkvæmdastjórnin hefði
haft samband beint við íslensk
stjómvöld eða norsk. En þeir fóra
rétta leið og vöktu athygli ESA.“
165 kr. innanlands, 1.250
i millilandafiugi
Flugvallarskattur í innanlands-
flugi er 165 krónur, samkvæmt upp-
lýsingum Flugmálastjórnar, en 1.250
krónur í millilandaflugi, nema til
Grænlands og Færeyja 165 krónur.
í samtali við Gunnar Snorra kom
fram að viðhorfið hérlendis kynni að
vera annað að einhverju leyti en á
meginlandinu þar sem t.d. flug milli
Parísar og Lyon annai's vegar og
Parísar og Lúxemborgar hins vegar
væri annars vegar innanlandsflug en
hins vegar millilandaflug þótt svip-
aða vegalengd væri að fara. Hann
taldi hugsanlegt að hætt væri að
réttlæta mismunandi gjaldtöku með
því að binda hana við vegalengd eða
flugvélartegund en erfitt væri að
verja viðmiðun við það hvort áfanga-
staðurinn er innan eða utan
landamæra ríkis innan EES.
Ursagnir for-
ystumanna úr
ungliðahreyf-
ingu og á
Austurlandi
ÞRIR af helstu forystumönnum í
ungliðahreyfingu Alþýðubandalags-
ins sögðu sig úr flokknum í gær.
Sama er að segja um tvo af þremur
aðalmönnum og annan af tveimur
varamönnum í framkvæmdaráði Al-
þýðubandalagsins í Austurlands-
kjördæmi. Aðalskrifstofu flokksins í
Reykjavík höfðu í gær samtals
borist 59 úrsagnir eftir aukalands-
fundinn sem haldinn var um síðustu
helgi, flestar þeirra frá Þórshöfn þar
sem allir meðlimir Alþýðubanda-
lagsfélagsins yfirgáfu flokkinn.
Sigfús Ólafsson, ritari Alþýðu-
bandalagsins og fulltrúi í fram-
kvæmdastjóm, Steinþór Heiðars-
son, formaður Drífanda, félags ungs
Alþýðubandalagsfólks í Reykjavík,
og Magnús Magnússon, varafor-
maður Verðanda, landssamtaka
ungs Alþýðubandalagsfólks, sendu í
gærkvöldi frá sér fréttatilkynningu
um að þeir hefðu sagt sig úr flokkn-
um. Ástæðuna sögðu þeir vera þá
að þeir væra ósammála þeirri
stefnu sem samþykkt hefði verið í
viðræðunefndum stjómarandstöðu-
flokkanna um samfylkingu. Þre-
menningarnir útilokuðu þó ekki að
leiðir þeirra og Alþýðubandalagsins
gætu legið saman að nýju.
Á fundi í kjördæmisráði Alþýðu-
bandalagsins á Austurlandi í gær-
kvöldi tilkynntu Guðmundur Beck,
ritari ráðsins, stjórnarmaðurinn
Hallveig Ingimarsdóttir og vara-
maðurinn Magnús Stefánsson úr-
sögn sína úr flokknum. Guðmundur
var í þriðja sæti á framboðslista AI-
þýðubandalagsins í síðustu Alþingis-
kosningum. Þrír efstu menn á þeim
lista - Hjörleifur Guttormsson,
Þuríður Backmann og Guðmundur -
hafa því yfirgefið flokkinn.
Sérblöð í tiag
Framkvæmdastjórn ESB hefur gert athugasemdir við ESA
Telur innheimtu flugvallar-
skatta brjóta gegn EES
8SmHt
VIDSIOFn AIVINNULÍF
VÍSINDI
Hagnýting
hugmynda
Rannsóknastarf
Háskólans/B3
SAMGÖNGUR
Rútusam-
eining
Stærsta
rútufyrirtækið/B6
Handknattleikslandsliðið
herjar á Hiroshima/C4
Heimamenn mæta heimsmeist-
urunum í úrslitum HM/C2
r
t
i
i
t
i
>
!
\
I
i
:
>