Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 55 Klúðrið við Hvalfjarðarg'öng Frá Magnúsi Bergssyni: í MORGUNBLAÐINU 16. júní sl. birtist viðtal við Stefán Reyni Kristinsson, framkvæmdastjóra Spalar, þar sem fram kom að hjól- reiðar muni verða bannaðar í Hval- fjarðargöngunum. Sagði hann að talsmenn hjólreiðaklúbba sýndu því fullan skilning. Sannleikurinn er hins vegar sá, að ekki var haft sam- band við neinn hjólreiðaklúbb um þetta mál. Þann dag sem Spalarmenn fengu ríkisábyrgð á lánum til fram- kvæmda, lofaði fulltrái Spalar í símaviðtali á Rás 2 að hjólreiðar yrðu leyfðar um göngin. Það var svo ekki fyrr en í vetur sem hjól- reiðafólki varð sú staðreynd ljós að ekki mætti hjóla göngin. Það sem verra er, að lítið sem ekkert hefur verið hugsað um að koma til móts við hjólreiðafólk með viðunandi hætti. Þetta er líklega alveg ein- stakt í vestrænu samfélagi þar sem sambærilegar framkvæmdir eiga sér stað. Undin’itaður gerir sér fulla grein fyrir því að göngin eru komin til að vera. En eftir stendur sá vandi hjólareiðafólks, að ferðir Aki-aborg- ar verða lagðar niður. Þar er hjól- reiðafólk á Reykjavíkursvæðinu að missa eina af sínum bestu sam- gönguæðum út á landsbyggðina. Aki-aborgin hefur flutt hjólreiða- fólk beint úr miðborg Reykjavíkur upp í sveit þar sem umferð hefur hvorki verið mikil né ógnandi. Með því að ferðir hennar verða lagðar niður er reiðhjólafólki nauðugur einn kostur að hjóla fyrir Hval- fjörðinn, þar sem umferðin er oft hröð og áhættusöm. Akranes, sem áður var í notalegri klukkustundar fjarlægð frá Reykjavík, er nú orðin f allt sumar 1 MÁLNINGARDAGÁR Vidurkennd vörumerki limimáltiiiig: SKIN10 4 Ltr. Verð frá kr. 2.842.- PLÚS10 4 Ltr. Verð fi á kr. 2.540.- Útimálaing: STEINTEX 4 Ltr. Verð frá kr. t 2.807.- 10 Ltr. Verð frá kr. 6.595.- Viðarvöm: KJÖRVARI 4 Ltr. Verð frá kr. 2.717.- Takið teiknitigar með. Við reilmum emisþöríina Öll málningaráhöld á hagstæðu verði. Grensásvegi 18 s: 581 2444 dagleið í burtu, í hættulegri bflaum- ferð. Fjöldi fólks er farinn að nota reiðhjólið sem farartæki. Það situr ekki reiðhjól sér til afþreyingar heldur til að koma sér á skömmum tíma með þægilegum hætti á milli staða án þess að skaða náttúru og samfélag með hávaða, loftmengun og fyrirferð. Samnýting með al- menningsfarartækjum ýtir enn frekar undir þá góðu þróun. Þar má segja að Akraborgin hafí svo sann- arlega þjónað sínu hlutverki. Það sem hjólreiðafólki gremst mest er, að ekkert skuli koma í stað Akraborgarinnar þegar hún hættir siglingum. Hópferðabifreiðar eru ekki sambærilegar ferjum, eins og málum er háttað nú. Þó að freist- andi sé að láta sérleyfishafann Sæ- mund Sigmundsson sjá um þetta „vandamál" er afskaplega takmark- að sem hann getur flutt með þeim bílum sem hann ætlar að nota um göngin. Ekki dugar að troða reið- hjólum í farangursrými, eða hengja á króka utan á rútu, því það vill oft stórskemma reiðhjólin, auk þess sem rífa þarf allan farangur af hjól- inu. Rúturnar þurfa því fremur að vera eins og strætisvagnar þar sem hægt verður að renna hjólum, full- lestuðum með töskum, inn í vagn- inn. Tilkostnaðurinn ætti að vera sáralítill miðað við heildarkostnað ganganna. Fyrr en þetta vandamál reiðhjólamanna er leyst, geta göng- in vart talist fullkláruð. Sú fullyrðing Stefáns að hjól- reiðafélög lýsi ánægju sinni yfir hugsanlega minni bflaumferð um Hvalfjörðinn er alveg úr lausu lofti gripin. Stefán getur alveg sagt sér það sjálfur að þá daga sem hjól- reiðafólk er helst á ferð um Hval- fjörðinn skín sól í heiði og veðrið lokkar bæjarbúa upp í sveitir. Þá má búast við því að margir bflstjór- ar spari sér gangagjaldið og aki frekar Hvalfjörðinn. Umferðin verður þá vart minni en hún er í dag. Sökina er ekki beinlínis að finna hjá Spalarmönnum. Hana er allt eins að finna hjá þingmönnum þessarar þjóðar sem hafa meiri áhuga á að ræða um einkanúmera- plötur og aukinn hámarkshraða á Alþingi en að koma hjólreiðastígum í vegalög. Því er það freistandi fyrir hönnuði umferðarmannvirkja að gera ekki meira en lög mæla fyrir um, hvort sem það er gáfulegt eða ekki. í tugi ára voru hús ekki hönn- uð með aðgengi fatlaðra í huga en í dag þykir það sjálfsagt mál. Hið sama ætti að gilda um hjólreiða- stíga. íslenskir þingmenn ættu fyr- ir löngu að vera búnir að átta sig á því að umferð er ekki aðeins bundin við bfla og hesta. Eg vil því nota tækifærið og hvetja þingmenn til að líta til nági’annaþjóða okkar, sem eru framarlega á þessu sviði og koma hjólreiðastígum í vegalög. Það er orðið löngu tímabært að reiðhjólið sé raunverulegur valkost- ur til samgangna. Það yrði náttúru, samfélagi og heilsufari manna til mikilla bóta. Að lokum vil ég, fyrir hönd hjól- reiðamanna, kveðja ýmsa þjónustu- aðila í Akranesbæ þar sem bærinn verður ekki framar í alfaraleið. Eg vil líka þakka áhöfn Akraborgar fyrir samfylgdina á liðnum árum og vona að allt það góða fólk verði komið í nýja vinnu eftir 15. júlí. nk. Hjólreiðafólk mun sakna gömlu góðu daganna eftir að ferðir Akra- borgarinnar leggjast niður. MAGNÚS BERGSSON, formaður Islenska fj allahj ólaklúbbsins. SALAN HAFIN Bolir verð frá kr. 490 Buxur verð frá kr 990 KjÓlar verð frá kr. 1.190 Úlpur verðfrákr 1.990 EXIT BESTSELLER Laugavegi 95-97 Sími 552 1444 Fosshótel Vatnajökull Nyti og glæsílegt hótel við Vatnajökul (lOkm írá Höfn). 26 vonduö herbergi með baði. i hótelinu er mjög góður veitingasalur með útsýní yfu jöktilinn. Skemmtileg afþreying er i boði eins og t.d. jcppaferðir iip|) á jökul, sigling á jökiilsárlóm og gönguferðir í Skaftaíelli. Fosshótel Hallormsstaöur Sumarhótcl með 38 nýjum og glaesilegum herbergjurn, i notalegu umhverfi Hallormsstaðarskógar. Veitingasalur opinn allan daginn, alla daga. Góð sundlaug er á staðnum, og hægt er að fara i skemmtilegar gönguferðir utn skóginn. Verið uelkomin fO«HÓTfL Afþrttying þín okkftr fMPpgjn fOSSHÓTf L VAJNAjÖKUlt Siim; A/g ISSS • l«: A78 MU fOSSHÓTÍI HAILORMSSTACUR Sítm 471 l/OS • f;u 47I )\V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.