Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Góð aðstaða á landsmóti hestamanna á Melgerðismelum sem hófst f gær
Góður hesta-
kostur, skaplegt
veður og góð
stemmning
Landsmót hestamanna hófst í gær í
þokkalegu veðrí, þrátt fyrir slæma
veðurspá, með dómum á hryssum, keppni
B-flokksgæðinga og barna. Greinilega
hefur ekkert verið til sparað að sem best
tækist til á alla lund. Valdimar Kristinsson
fylgdist með mótinu í gær ásamt þeim
nöfnum Ásdisi Haraldsdóttur og
Asdísi Asgeirsdóttur ljósmyndara.
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
VEL fór um kappklædda mótsgesti í áhorfendabrekkunni gær, enda flestir íklæddir norpurum. Hann hékk
þurr í gær og jafnvel sólskin á köflum og vindur innan þeirra marka að trufla ekki sýningar hrossanna.
UM ÞRJÚ þúsund manns voru
komin á mótssvæðið síðdegis í gær,
en aðstandendur vonast eftir að
fjöldinn fari í átta þúsund manns
um helgina. Það sem getið hefur að
líta af hestakosti mótsins hefur
ekki valdið vonbrigðum og ljóst að
keppnin sem framundan er verður
spennandi.
Hitasóttin er þegar farin að
setja örlítið mark sitt á mótið og
um miðjan dag í gær sagðist Sig-
ríður Bjömsdóttir, dýralæknir
hrossasjúkdóma, hafa vitað um tvö
hross sem draga hefði þurft út úr
keppni vegna veikinda. Annað
hrossanna er Erill frá Kópavogi,
en hann og knapi hans, Daníel
Jónsson, vora skráðir til leiks í B-
flokki. Hitt hrossið var skráð í
bamaflokk, en fengið var annað
hross undir knapann. Þá sagði Sig-
ríður að ekkert hrossanna sem
skráð var fyrir hönd hestamanna-
félagsins Kóps í Vestur-Skafta-
fellssýslu hefði mætt til leiks þar
sem hitasóttin hefur nýlega gert
vart við sig á Kirkjubæjarklaustri
og nágrenni.
Knöpum ráðlagt að mæla
hross sín að morgni
I mótsskrá er knöpum ráðlagt að
mæla hross sín að morgni til að
ganga úr skugga um hvort þau séu
komin með sóttina. Gætt er fyllstu
varúðar í samgangi hrossa af mis-
munandi svæðum og þau höfð að-
skilin.
Nú í fyrsta sinn á landsmóti var
notað nýtt keppnisfyrirkomulag
þar sem fjórir hestar og knapar
era á vellinum í senn í forkeppni
gæðingakeppninnar og mælist það
vel fyrir.
Störf dómarannna í B-flokki
hafa mælst misjafnlega fyrir og
þykir mörgum bæði að meiri
teygni vanti í einkunnagjöfina auk
þess sem misræmi milli dómara sé
full mikið.
I dag hefst keppni á tveimur
völlum samtímis. Á svokölluðum
kynbótavelli halda dómar á hryss-
um áfram frá því í gær, en dómar á
stóðhestum hefjast klukkan 13.
Dómar A-flokksgæðinga fara fram
á Aðalvelli og er áætlað að þeir
standi yfir til 15.30.
Á Melavelli, hljómar kunnug-
lega, hefst forkeppni unglinga
klukkan 10, en undanrásir kapp-
reiða hefjast klukkan 18 á Aðalvelli
og strax að þeim loknum hefst for-
keppni í tölti.
txrrrxxxx.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
KRINGLA frá Kringlumýri skaust ásamt knapa sínum, Sigurði Sigurðarsyni, á toppinn
undir lok forkeppninnar í gær og er með langhæstu einkunnina, rétt tæpa níu.
ÞOKKI frá Bjarnanesi hafði góða forystu fram eftir degi í gær.
Knapi var Guðmundur Björgvinsson.
Kringla fór á kostum
í B-flokki gæðinga
KRINGLA frá Kringlumýri er
lang efst eftir forkeppni í B-flokki
gæðinga á Landsmótinu á Mel-
gerðismelum með einkunnina 8,96.
Eigandi og knapi á Kringlu er Sig-
urður Sigurðarson.
Keppnin var gífurlega spennandi
í B-flokki, en alls kepptu 77 hestar.
Röðin á efstu hestum var að breyt-
ast alveg til síðasta hests er Krist-
björg Eyvindsdóttir skaut stóð-
hestinum Hektori frá Akureyri upp
í þríðja sætið með 8,71, en í 2. sæti
er annar stóðhestur, Þokki frá
Bjarnanesi, með 8,75. Knapinn á
honum er Guðmundur Björgvins-
son. í 4. sæti er Laufi frá Kollaleiru
og Hans Kjerúlf með 8,67, í 5. sæti
er Valíant frá Heggstöðum og
Hafliði Halldórsson með 8,66. Sjötti
er Blikar frá Miðhjáleigu og Ragn-
ar Hinriksson með 8,59, sjöundi
Farsæll frá Arnarhóli og Ásgeir
Svan Herbertsson með 8,58, átt-
undi Hrafn frá Hrafnagili og Vignir
Siggeirsson með 8,57, níundi er
stóðhesturinn Glampi frá Vatns-
leysu og Bjöm Jónsson með 8,55 og
í tíunda sæti er Ofsi frá Viðborðs-
seli og Vignir Siggeirsson með 8,53.
Linda Rún efst
í barnaflokki
Linda Rún Pétursdóttir er efst
eftir forkeppni í barnaflokki á
Landsmótinu á Melgerðismelum.
Hún keppir á hestinum Fasa frá
Nýjabæ. Linda Rún fékk 8,40 í að-
aleinkunn. í öðra sæti var Sonja
Líndal Þórisdóttir á Öld frá Lækj-
armóti með 8,36. Þriðji er Steinar
Torfi Vilhjálmsson á Svertu frá
Stokkhólma með 8,30, fjórði Ey-
vindur Hrannar Gunnarsson á
Dímon frá Skíðbakka með 8,29,
fimmti er Sigurþór Sigurðsson á
Erli frá Leifsstöðum með 8,29,
sjötta er Sandra Hróbjartsdóttir á
Hlyni frá Selfossi með 8,28, sjöundi
er Daði Erlingsson á Nökkva frá
Sauðárkróki með 8,28, áttunda er
Fanney Dögg Indriðadóttir á Nátt-
hrafni frá Grafarkoti með 8,26,
níunda er Hrönn Gauksdóttir á
Hrefnu frá Þorleifsstöðum með
8,26 og í 10. sæti er Freyja Amble
Gísladóttir á Muggi frá Stangar-
holti með 8,25.
Davíð og Prati með gott forskot
Eftir forkeppni í ungmenna-
flokki er Davíð Matthíasson
langefstur með 8,70 á hestinum
Prata frá Stóra-Hofi. Næstur hon-
um er Sigurður Halldórsson á
Krapa frá Kirkjuskógi með 8,49.
í þriðja sæti er Gunnhildur
Sveinbjarnardóttir á Náttfara frá
Kópareykjum með 8,48, fjórði er
Guðmar Þór Pétursson á Háfeta
frá Þingnesi með 8,47, fimmta er
Marta Jónsdóttir á Kramma frá
Geldingalæk með 8,45, sjötti er
Einar Kristján Eysteinsson á
Freydísi frá Tjarnarlandi með 8,43,
sjöunda er Kristín Þórðardóttir á
Glanna með 8,40, áttunda er Ragn-
heiður Kristjánsdóttir á Dára frá
Keldudal með 8,39, níundi er Sig-
urjón Pálmi Einarsson á Þresti frá
Syðra-Skörðugili með 8,38 og tíu-
anda er Bergþóra Sigtryggsdóttir
á Fálka frá Lambanesreykjum,
einnig með 8,38.