Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Möggu Stínu
ákaft fagnað
í Kaffileikhúsinu
Nýverið kom fyrsta sólóplata Möggu
Stínu út og í tilefni þess voru haldnir
tónleikar í Kaffileikhúsinu. Guðmundur
Asgeirsson fylgdist með.
MARGRÉTI Kristínu Blön-
dal þekkja flestir sem
Möggu Stínu. Hún var
lengi áberandi í tónlistarlífi Reykja-
víkur á meðan hún var meðlimur
Risaeðlunnar vinsælu og hefur nú
skotið þar upp kollinum á ný. í
þetta sinn er Magga Stína ein sins
liðs, því platan sem kom út í síðustu
viku er sólóplata. Aðeins þrjú lög
eru á þessari frumraun og því voru
auglýstir örtónleikar á laugardags-
kvöldið var, í tilefni útgáfunnar. Há-
tíðin fór fram fyrir troðfullu húsi
æstra aðdáenda i Kaffileikhúsinu í
Reykjavík. Þar á bæ hafa tónleikar
verið áberandi á dagskrá sumarsins
og verið öði'um frjálsum leikhúsum
í miðbænum fyrirmynd.
Fjörugir tónleikar
Það var ljóst að áheyrendur voru
spenntir og óþolinmóðir á meðan
Magga Stína og félagar komu sér
fyrir á sviðinu. Heldur stirðlega
gekk að komast af stað, en um leið
og sveitin byrjaði að spila mjmdað-
ist gríðarleg stemmning sem stund-
um virtist ætla að sprengja litla
leikhúsið utan af sér. Gestir stigu
trylltan dans og viðtökur þessa ein-
getna tónlistarafkvæmis Möggu
Stínu voru með ólíkindum. Sveitinni
gekk sýnu erfiðlegar að hætta en
Morgunblaðið/Þorkell
MAGGA Stína fékk frábærar við tökur í Kaffileikhúsinu um síðustu helgi.
byrja fyrir óseðjandi aðdáendum á
dansgólfinu og að margframlengd-
um örtónleikum loknum var haldið
áfram að djamma fram á nótt í
Kaffileikhúsinu.
Baksviðs tók söngkonan og henn-
ar knárra sveina sveit sér fáeinar
mínútur til að kasta mæðinni á með-
an hamingjuóskum rigndi yfir hóp-
inn. Magga Stína sagði viðtökurnar
fara fram úr sínum björtustu vonum
og var greinilega í sjöunda himni,
enda nýja platan sérlega vel heppn-
uð, rétt eins og útgáfuörtónleikarn-
ir.
■
ÁHORFENDUR virtust vel kunna að meta tónlistina hennar Möggu
Stínu, klöppuðu, sungu og voru hinir líflegustu.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MAGGA Stína tók aukalag baksviðs fyrir vini en með henni á mynd-
inni eru Magga R. og Magga O.
AÐDÁENDUR Möggu Stxnu tóku nokkur vel valin og æfð spor á dans-
gólfinu enda tónlistin hin fjörugasta.