Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Formaður Alþýðubandalagsins segir að undirbúningur að sameigin- legu framboði sé að hefjast í sumum kjördæmum Úrsagnir tefja ekki viðræður um sameiginlegt framboð MARGRET Frímanns- dóttir, formaður Al- þýðubandalagsins, seg- ist ekki telja að úrsagn- ir úr Alþýðubandalag- inu hafi áhrif á viðræð- ur Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Kvennalista um sam- eiginlegt framboð. Hún segir að enn hafi ekki margir tilkynnt um úr- sögn úr flokknum, en fólk hafi einnig gengið til liðs við flokkinn á síðustu dögum, m.a. fólk sem hafi dregið sig út úr starfi fyrir flokk- inn. Margrét sagðist gera ráð fyrir að ekki yrði mikill kraftur í viðræð- um félagshyggjuflokkanna um sameiginlegt framboð í júlí, en að aukinn kraftur yrði settur í viðræð- umar í ágúst. Stefnt væri að því að Margrét Frímannsdóttir málefnavinnunni yrði að mestu lokið fyrir aðalfund miðstjómar Alþýðubandalagsins, sem haldinn verður í október. Þá myndi liggja fyrir verkefna- skrá til fjögurra ára. I sumum kjöi-dæmum væri þegar farið að ræða um hvemig stað- ið yrði að málum fyrir kosningamar í vor. Hún sagði að lítið væri farið að ræða um hver kæmi til með að leiða þetta framboð og óvíst hvenær endanleg ákvörðun um það yrði tekin. Margi-ét sagðist hafa rætt við ýmsa af þeim sem studdu tillögu Steingríms J. Sigfússonar á auka- landsfundinum um að taka þátt í málefnavinnunni og því hefði verið vel tekið. Steingrímur og Hjörleif- ur Guttormsson hefðu tekið þátt í málefnavinnunni og þau drög sem fyrir lægju tækju mið af sjónar- miðum þeirra. Hún sagði of snemmt að segja fyrir um hvaða áhrif brottför þeirra hefði á mál- efnavinnuna. Nýtt fólk vill ganga til liðs við flokkinn Margrét sagði þeir atburðir sem orðið hefðu í kjölfar landsfundarins kæmu sér ekki á óvart. Hún hefði rætt við fjölmarga fiokksfélaga fyrir fundinn og gert sér grein fyi-- ir því að andstaða var við sameigin- legt framboð. Andstaðan hefði ekki verið meiri en hún átti von á. Hún hefði hins vegar gert sér vonir um að þeir sem urðu undir í atkvæða- greiðslunni myndu bíða eftir að endanlegri málefnavinnu lyki og taka afstöðu á grundvelli hennar. „Enn sem komið er hafa ekki mjög margir sagt sig úr flokknum. Miðað við þau viðbrögð sem ég hef fengið býst ég við að þeir séu held- ur fleiri sem ei-u að ganga til liðs við flokkinn eða eru að koma aftur til starfa eftir að hafa tekið sé hlé um langan tíma. Menn verða að hafa í huga að Alþýðubandalagið hefur í mjög mörg ár ályktað um samstai-f vinstrimanna. Á lands- fundinum var ákveðið að láta reyna á hvort menn væru tilbúnir að standa við þær yfirlýsingar sem flokkurinn var búinn að gefa. Það er ekki hægt að horfa framhjá því að það er hópur fólks sem ýmis hef- ur dregið sig í hlé í störfum fyrir flokkinn eða jafnvel yfirgefíð hann vegna þess að afstaða hafði ekki verið tekin og ályktunum hafði ekki verið fylgt eftir. Ég hef fengið úr öllum kjördæmum landsins stuðn- ingsyfirlýsingar frá flokksmönnum og frá fólki sem hefur staðið utan hans,“ sagði Margrét. Hluti af súrálsfarmi losaður erlendis ÁKVEÐIÐ hefur verið að flutn- ingaskipið MS Strilberg, sem tekið hafði að sér að flytja 17 þúsund tonna farm af súráli í súrálsgeyma Norðuráls við Grundartanga, sigli á brott með hluta farmsins, en sjálflosunarbúnaður skipsins bilaði þegar búið var að losa úr því rúm 13 þúsund tonn. Ékki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verði með afganginn af farminum til geymslu í Aughinish á Vestur-írlandi, eða Rotterdam. Víst er að hvort sem verður ofan á, mun farmurinn verða losaður í geymslu og síðan lestaður í venju- Breytíngar á stjómsýslu Hafnar- jgarðarbæjar Sviðsstjór- um fækkað BÆJARSTJORN Hafnarfjarðar hefur samþykkt breytingar á stjórn- sýslu bæjarsins, sem meðal annars fela í sér að sviðsstjórar verða þrír í stað sex. Að sögn Magnúsar Gunn- arssonar bæjarstjóra verður bæjar- endurskoðun felld inn í reikningshald og innri endurskoðun bæjarins og ut- anaðkomandi aðilar ráðnir til að end- urskoða reikninga bæjarsjóðs. Magnús segir að í stað sex sviðs- stjóra verði þrír sviðsstjórar en búið var að ráða fjóra. Hefur fjármála- stjóra og framkvæmdastjóra fram- kvæmda- og tæknisviðs verið sagt upp störfum þar sem störf þeirra verða lögð niður. „Fjármála- og stjómsýslusvið verða sameinuð en tveir menn gegndu þeim störfum," sagði Magn- ús. „Og nú verður auglýst eftir manni í það starf og í starf framkvæmda- stjóra fjölskyldusviðs og fram- kvæmdastjóra umhverfis- og tæknis- viðs.“ Þeir sem fluttir verða til í starfi eru Guðbjörn Ólafsson, fram- kvæmdastjóri stjórnsýslusviðs, en hann tekur við framkvæmdastjóm Húsnæðisstofnunar og Magnús Bald- m’sson, framkvæmdastjóri fræðslu- sviðs, en hann verður forstöðumaður Skólaski’ifstofu. Breytingarnar taka gildi 1. september. legt flutningaskip þegar varanlegur losunarbúnaður er kominn upp við Grandai-tanga. Ástæða þess að skipið siglir á brott er seinkun á uppsetningu los- unarbúnaðarins í álverinu að Grundartanga. Reiknað var með að hann yrði tilbúinn hinn 12. júlí og því hefur skipið beðið með afgang- inn af farminum úti á Hvalfirði síð- an í kringum 20. júní. Uppsetning þess búnaðar frestaðist um þrjár vikur og því var ákveðið að losa MS Strilberg við restina af súrálsfarm- inum. Venjulegt flutningaskip mun koma með farminn á ný þegar bún- aðurinn verður tilbúinn, en reiknað er með að það verði í byrjun ágúst, að sögn Guðmundar Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra Nesskips. Tjónið bitnar á skipafélaginu MS Strilberg er í eigu Simon Mokster í Noregi en Nesskip er umboðsaðili skipsins hér á landi. Guðmundur segir að skásti kostur- inn sé að losa skipið við farminn og koma með hann aftur þegar búnað- urinn verði tilbúinn. Skoðunarmenn frá tryggingafélögum skipsins, sem eru norsk, skoðuðu aðstæður um borð og mátu tjónið og hvað væri best að gera. Tjónið bitnar að mestu leyti á eiganda skipsins og trygg- ingafélögum þess. M orgunblaðið/Ásdís SHELLSTÖÐIN á Kópavogshálsi hefur verið fjarlægð, en þess í stað opnar Skeljungur bráðabirgðastöð í Smáranum. Flutt frá Kópavogs- hálsi í Smárann SHELLSTÖÐIN á Kópavogshálsi hefur verið fjarlægð og flutt í Smárann í Kópavogi, en þar mun Skeljungur opna nýja Selectstöð á næsta ári. Margrét Guðmundsdóttir for- stöðumaður markaðssviðs Skelj- ungs segir að miklar framkvæmdir eigi sér stað á Kópavogshálsi og af þeim sökum hafi verið ákveðið að leggja stöðina niður en opna þess í stað bráðabirgðastöð í Smáranum á meðan á byggingarframkvæmd- um þar stæði. Markmiðið væri hins vegar að fá hentuga lóð í vesturbæ Kópavogs í staðinn fyrir lóðina á Kópavogshálsi. Hún vildi taka fram að allt starfsfólk stöðvarinnar flytti með niður í Smára þar sem hún vissi að margir viðskiptavinir til margra ára myndu sjá eftir gömlu stöðinni sem hafði þjónað viðskiptavinum í fjöratíu ár. Fleiri skrá sig í þjóð- kirkjuna TÆPLEGA helmingi fleiri ski’áðu sig í þjóðkirkjuna á fyrsta fjórðungi þessa árs en á sama tíma í fyrra. Rúmlega helmingi fleiri skráðu sig úr þjóðkirkjunni árið 1996 en árið 1997, samkvæmt tölum frá Hagstofu Islands. 55 manns skráðu sig í þjóð- kh’kjuna á tímabilinu 1. janúar til 1. mars á þessu ári. Á sama tímabili í fyrra skráðu 29 manns sig í þjóðkirkjuna, svo aukning- in er rúmlega 47% milli ára. At- hygli vekur að á milli ára er nokkur munur á því úr hvaða trúfélögum einstaklingai’ koma. Á fyrsta fjórðungi þessa árs komu sjö úr fríkirkjusöfnuðum, 23 úr öðram trúfélögum og 25 sem höfðu verið utan trúfélaga. I fyrra komu ellefu úr fríkirkju- söfnuðum, sautján úr öðrum trúfélögum en aðeins einn sem hafði verið utan trúfélaga. Á fyrsta fjórðungi þessa árs sögðu 194 sig úr þjóðkirkjunni en 192 á sama tímabili í fyrra. Mikill munur er hins vegar á fjölda þeirra sem sögðu sig úr þjóðkirkjunni árin 1996 og 1997. 2.344 manns sögðu sig úr þjóðkirkjunni árið 1996 og þar af skráði 1.391 sig utan trúfé- laga. Árið 1997 sögðu 1.056 sig úr þjóðkirkjunni en þá voru ein- ungis 329 sem skráðu sig ekki í nýtt trúfélag. Sveinsstaðahreppur Gunnar í hrepps- nefnd GUNNAR Ellertsson varð ofan á í hlutkesti milli hans og Birgis Ing- þórssonar um sæti aðalmanns í sveitarstjórn Sveinsstaðahrepps en félagsmálaráðuneytið hafði úr- skurðað að úrskurður úrskurðar- nefndar skyldi standa um að varpa ætti hlutkesti um hvor þeirra skyldi taka sæti aðalmanns í sveitarstjóm. Upphaf málsins má rekja til þess að kjörstjórn Sveinsstaðahrepps úr- skurðaði að atkvæði greitt Gunnari Pálmasyni væri greitt Gunnari Ell- ertssyni en enginn Gunnar Pálma- son er á kjörskrá í hreppnum. Bh’g- ir Ingþórsson kærði þessa niður- stöðu kosninganna til sýslumanns og úrskurðamefnd felldi úrskurð kjörstjórnar úr gildi og komst að þeirri niðurstöðu að varpa ætti hlut- kesti milli þeirra Birgis og Gunnars. Þennan úrskurð kærði Gunnar Ellertsson til félagsmálaráðuneytis- ins sem staðfest hefur úrskurð úr- skurðarnefndar. Borgin kaupi hús BORGÁRRÁÐSFULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu um að leitað verði eftir kaup- um á húsi listmálaranna Jóns Stef- ánssonar og Gunnlaugs Scheving við Bergstaðastræti en það hús hef- ur verið auglýst til sölu. í bókun borgarstjóra á fundi borgarráðs kemur fram að borgaryfirvöld hafi þegar falið framkvæmdastjóra menningar-, uppeldis og félagsmála að kanna kaup á húsinu. Að sögn Ingu Jónu Þórðardóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, er til- laga sjálfstæðismanna m.a. fram komin í framhaldi af því að Reykja- víkurborg tókst ekki að eignast Énglabörg, hús málaráns við Flóka- götu. „En eins og menn muna þá runnu þau áform út í sandinn,11 sagði hún. „Þetta er á margan hátt sambærilegt hús þannig að við grip- um tækifærið og lögðum þessa til- lögu fram í borgarráði við fyrsta tækifæri." 1 bókun sjálfstæðismanna er lagt til að borgarlögmanni verði falið að leita eftir kaupum á húsi listmálar- anna í Bergstaðastræti 74a og að það verði nýtt í þágu og í samráði við félaga Sambands ísl. listamanna og sem gestaíbúð fyrir listamenn. í bókun borgarstjóra segir að borgaryfirvöld hafí átt í viðræðum Morgunblaðið/Ásdís LAGT hefur verið til að borgin kaupi húsið við Bergstaðastræti 74 en þar bjuggu listmálararnir Gunnlaugur Scheving og Jón Stefánsson. við Samband ísl. myndlistarmanna um sameiginlega aðstöðu fyrir fé- lagið og gestavinnustofu á vegum borgarinnar um nokkurt skeið. c. i I i i i 6 k fl i i I: g f I c I Jafnframt kemur fram að fram- kvæmdastjóra menningar-, uppeld- is- og félagsmála hafi verið falið að kanna með kaup á húsinu. fl I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.