Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 41
Auglýsingastofa
R-listans og Spice girls
NÚ á dögum er
markaðssetning lykil-
orð á öllum sviðum
mannlífsins og á aug-
lýsingastofum er það
hannað sem á að selja.
Tvö glæsilegustu af-
rek auglýsingastofa í
seinni tíð eru óneitan-
lega markaðssetning-
in á R-listanum í
Reykjavík og Spice
girls á alheimsvísu.
Þessi tvö glæsifley
faglegrar auglýsinga-
mennsku eru svo slá-
andi lík að grunur
læðist að mönnum að
hér sé sama auglýsingastofan að
baki. Upphafið á markaðssetn-
ingu þessara tveggja fyrirbæra
er að fimm einingum er safnað
saman og búin er til vara sem er
líkleg til að selja. í tilfelli R-list-
ans var um að ræða Alþýðuflokk,
Alþýðubandalag, Framsóknar-
flokk, Kvennalista og Nýjan vett-
vang og varan var stjómmála-
flokkur. í tilfelli Spice girls var
um að ræða fimm stúlkuhnátur og
varan var stúlkna-
hljómsveit. í báðum
tilfellum var innihaldið
það sama, lítilsverð
framtíðartónlist og
tískubóla sem fljótt
mun fenna yfir. Þessa
samsuðu tókst auglýs-
ingastofunni í báðum
tilfellum að selja gin-
keyptum kaupendum
en það sem er merki-
legast við afrek aug-
lýsingastofunnar er
hversu lengi tekst að
halda lífi í íyrirbærun-
um tveimur þrátt fyrir
áföll. í báðum tilfellun-
um hafa riðið yfii- holskeflur
sundrungar og spillingar en fyrir-
bærin selja samt sem áður, þótt
fækkað hafi í liðum. í báðum til-
fellum er nú aðeins um fjórar ein-
ingar að ræða. Ginger spice hefur
yfirgefið Spice girls og Alþýðu-
flokkurinn er ekki lengur í R-list-
anum. Má með sanni segja að Nýr
vettvangur eigi meiri ítök í R-list-
anum en Alþýðuflokkurinn þótt
fæstir muni lengur eftir fyrirbær-
í báðum tilfellum var
innihaldið bað sama,
segir Kristján Heiðar
Kristjánsson, lítilsverð
framtíðartónlist og
tískubóla sem fljótt
mun fenna yfír.
inu. Viðhengi ýmis hafa einnig
helst úr lestinni, tímabundið
a.m.k., Fjölnir er hættur með Mel
B og Hrannar er orðinn geldur,
pólitískt séð. Samt sem áður, þrátt
fyrir hrakningar allar eru engin
lát á vinsældum fyrirbæranna.
Gelgjukynslóðin sér enn ekki sól-
ina fyrir Spiee girls og gróskukyn-
slóðin heldur ekki vatni yfir R-list-
anum og vill sameiningu vinstri-
manna. Hvað um það, mikill er
máttur markaðarins og auglýs-
inga.
Höfundur er húsasmíðanemi.
Kristján Heiðar
Kristjánsson
BIRKI
90-125 cm
RUNNAR, GARÐTRÉ\ SUMARBLÓM,
SKÓGARPLÖNTUR
BESTU PLÖNTUKAUPIN
VERÐDÆMI.
hnausaplöntur
Áður kr. 1590-
Nú aáeins
kr. 690-
HEGGUR
Áður kr. 650-
Nú aáeins
kr. 290- s
BLÁTOPPUR
Áður kr. 580-
Nú aðeins
kr. 290-
DVERGFURA
Áður kr. 1740-
REYNIBLAÐKA í PT.
Áður kr. 680-
Nú aáeins
kr. 320-
Allir kvistir í pt.
Áður kr. 680-
Nú aðeins
kr. 320-
MÖRG FRÁBÆR TfLBOÐ
LÍTTU VIÐ
PLÖNTUSALAN í FOSSVOGI
Fossvogsbletti 1 (fyrlr neban Borgarspftala) Oplfi kl. 10-19. helgar kl. 10 -18.
Sfmi 564 1777 Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin
LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG
Þau vítamín og næringarefni sem mjólkin hefur að geyma
gegna mikilvægu hlutverki í daglegu lífi okkar alla ævi.
Látum aldrei vanta mjólk á okkar heimili.
Útsalan
hefst í dag
Stórkostleg
verðlækkun
30 - 50%
Kringlunni 8—12. Sími 568 6688
*
t