Morgunblaðið - 09.07.1998, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 55
Klúðrið við Hvalfjarðarg'öng
Frá Magnúsi Bergssyni:
í MORGUNBLAÐINU 16. júní sl.
birtist viðtal við Stefán Reyni
Kristinsson, framkvæmdastjóra
Spalar, þar sem fram kom að hjól-
reiðar muni verða bannaðar í Hval-
fjarðargöngunum. Sagði hann að
talsmenn hjólreiðaklúbba sýndu því
fullan skilning. Sannleikurinn er
hins vegar sá, að ekki var haft sam-
band við neinn hjólreiðaklúbb um
þetta mál.
Þann dag sem Spalarmenn fengu
ríkisábyrgð á lánum til fram-
kvæmda, lofaði fulltrái Spalar í
símaviðtali á Rás 2 að hjólreiðar
yrðu leyfðar um göngin. Það var
svo ekki fyrr en í vetur sem hjól-
reiðafólki varð sú staðreynd ljós að
ekki mætti hjóla göngin. Það sem
verra er, að lítið sem ekkert hefur
verið hugsað um að koma til móts
við hjólreiðafólk með viðunandi
hætti. Þetta er líklega alveg ein-
stakt í vestrænu samfélagi þar sem
sambærilegar framkvæmdir eiga
sér stað.
Undin’itaður gerir sér fulla grein
fyrir því að göngin eru komin til að
vera. En eftir stendur sá vandi
hjólareiðafólks, að ferðir Aki-aborg-
ar verða lagðar niður. Þar er hjól-
reiðafólk á Reykjavíkursvæðinu að
missa eina af sínum bestu sam-
gönguæðum út á landsbyggðina.
Aki-aborgin hefur flutt hjólreiða-
fólk beint úr miðborg Reykjavíkur
upp í sveit þar sem umferð hefur
hvorki verið mikil né ógnandi. Með
því að ferðir hennar verða lagðar
niður er reiðhjólafólki nauðugur
einn kostur að hjóla fyrir Hval-
fjörðinn, þar sem umferðin er oft
hröð og áhættusöm. Akranes, sem
áður var í notalegri klukkustundar
fjarlægð frá Reykjavík, er nú orðin
f allt sumar
1 MÁLNINGARDAGÁR
Vidurkennd vörumerki
limimáltiiiig:
SKIN10
4 Ltr.
Verð frá kr.
2.842.-
PLÚS10
4 Ltr.
Verð fi á kr.
2.540.-
Útimálaing:
STEINTEX
4 Ltr.
Verð frá kr. t
2.807.-
10 Ltr.
Verð frá kr.
6.595.-
Viðarvöm:
KJÖRVARI
4 Ltr.
Verð frá kr.
2.717.-
Takið teiknitigar með.
Við reilmum emisþöríina
Öll málningaráhöld á
hagstæðu verði.
Grensásvegi 18 s: 581 2444
dagleið í burtu, í hættulegri bflaum-
ferð.
Fjöldi fólks er farinn að nota
reiðhjólið sem farartæki. Það situr
ekki reiðhjól sér til afþreyingar
heldur til að koma sér á skömmum
tíma með þægilegum hætti á milli
staða án þess að skaða náttúru og
samfélag með hávaða, loftmengun
og fyrirferð. Samnýting með al-
menningsfarartækjum ýtir enn
frekar undir þá góðu þróun. Þar má
segja að Akraborgin hafí svo sann-
arlega þjónað sínu hlutverki.
Það sem hjólreiðafólki gremst
mest er, að ekkert skuli koma í stað
Akraborgarinnar þegar hún hættir
siglingum. Hópferðabifreiðar eru
ekki sambærilegar ferjum, eins og
málum er háttað nú. Þó að freist-
andi sé að láta sérleyfishafann Sæ-
mund Sigmundsson sjá um þetta
„vandamál" er afskaplega takmark-
að sem hann getur flutt með þeim
bílum sem hann ætlar að nota um
göngin. Ekki dugar að troða reið-
hjólum í farangursrými, eða hengja
á króka utan á rútu, því það vill oft
stórskemma reiðhjólin, auk þess
sem rífa þarf allan farangur af hjól-
inu. Rúturnar þurfa því fremur að
vera eins og strætisvagnar þar sem
hægt verður að renna hjólum, full-
lestuðum með töskum, inn í vagn-
inn. Tilkostnaðurinn ætti að vera
sáralítill miðað við heildarkostnað
ganganna. Fyrr en þetta vandamál
reiðhjólamanna er leyst, geta göng-
in vart talist fullkláruð.
Sú fullyrðing Stefáns að hjól-
reiðafélög lýsi ánægju sinni yfir
hugsanlega minni bflaumferð um
Hvalfjörðinn er alveg úr lausu lofti
gripin. Stefán getur alveg sagt sér
það sjálfur að þá daga sem hjól-
reiðafólk er helst á ferð um Hval-
fjörðinn skín sól í heiði og veðrið
lokkar bæjarbúa upp í sveitir. Þá
má búast við því að margir bflstjór-
ar spari sér gangagjaldið og aki
frekar Hvalfjörðinn. Umferðin
verður þá vart minni en hún er í
dag.
Sökina er ekki beinlínis að finna
hjá Spalarmönnum. Hana er allt
eins að finna hjá þingmönnum
þessarar þjóðar sem hafa meiri
áhuga á að ræða um einkanúmera-
plötur og aukinn hámarkshraða á
Alþingi en að koma hjólreiðastígum
í vegalög. Því er það freistandi fyrir
hönnuði umferðarmannvirkja að
gera ekki meira en lög mæla fyrir
um, hvort sem það er gáfulegt eða
ekki. í tugi ára voru hús ekki hönn-
uð með aðgengi fatlaðra í huga en í
dag þykir það sjálfsagt mál. Hið
sama ætti að gilda um hjólreiða-
stíga. íslenskir þingmenn ættu fyr-
ir löngu að vera búnir að átta sig á
því að umferð er ekki aðeins bundin
við bfla og hesta. Eg vil því nota
tækifærið og hvetja þingmenn til að
líta til nági’annaþjóða okkar, sem
eru framarlega á þessu sviði og
koma hjólreiðastígum í vegalög.
Það er orðið löngu tímabært að
reiðhjólið sé raunverulegur valkost-
ur til samgangna. Það yrði náttúru,
samfélagi og heilsufari manna til
mikilla bóta.
Að lokum vil ég, fyrir hönd hjól-
reiðamanna, kveðja ýmsa þjónustu-
aðila í Akranesbæ þar sem bærinn
verður ekki framar í alfaraleið. Eg
vil líka þakka áhöfn Akraborgar
fyrir samfylgdina á liðnum árum og
vona að allt það góða fólk verði
komið í nýja vinnu eftir 15. júlí. nk.
Hjólreiðafólk mun sakna gömlu
góðu daganna eftir að ferðir Akra-
borgarinnar leggjast niður.
MAGNÚS BERGSSON,
formaður Islenska
fj allahj ólaklúbbsins.
SALAN
HAFIN
Bolir verð frá kr. 490
Buxur verð frá kr 990
KjÓlar verð frá kr. 1.190
Úlpur verðfrákr 1.990
EXIT
BESTSELLER
Laugavegi 95-97
Sími 552 1444
Fosshótel
Vatnajökull
Nyti og glæsílegt hótel við
Vatnajökul (lOkm írá Höfn).
26 vonduö herbergi
með baði.
i hótelinu er mjög góður
veitingasalur með útsýní
yfu jöktilinn.
Skemmtileg afþreying er i
boði eins og t.d. jcppaferðir
iip|) á jökul, sigling á
jökiilsárlóm og gönguferðir
í Skaftaíelli.
Fosshótel
Hallormsstaöur
Sumarhótcl með 38 nýjum
og glaesilegum herbergjurn,
i notalegu umhverfi
Hallormsstaðarskógar.
Veitingasalur opinn allan
daginn, alla daga.
Góð sundlaug er á staðnum,
og hægt er að fara i
skemmtilegar gönguferðir
utn skóginn.
Verið uelkomin
fO«HÓTfL
Afþrttying þín okkftr fMPpgjn
fOSSHÓTf L VAJNAjÖKUlt
Siim; A/g ISSS • l«: A78 MU
fOSSHÓTÍI HAILORMSSTACUR
Sítm 471 l/OS • f;u 47I )\V