Morgunblaðið - 09.07.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 27
Málverka-
sýning á
Café Riis
Hólniavík. Morgunblaðið.
NÚ stendur yfir málverkasýning
Kára Sigurðssonar, myndlistar-
manns frá Húsavík, á veitingastaðn-
um Café Riis á Hólmavík.
Sýning Kára ber yflrskriftina „A
Ströndum“. A sýningunni eru 40
pastelverk öll af sömu stærð.
Kveikjan að þessari sýningu sem
nú stendur yfír á Café Riis var að
Kári var á ferðalagi um Strandir
sumarið 1996 og hafði að venju með-
ferðis myndlistardót sitt til að skissa
upp það sem fyrir augum bar.
Hreifst hann mjög af þessu gamla
uppgerða húsi sem þá var rétt búið
að opna sem veitingastað og samdi
við eigendur hússins um að opna
sýningu þar með myndefni af
Ströndum. Þetta er því fyrsta eigin-
lega myndlistarsýningin sem haldin
er í húsinu. Eins og komið hefur þeg-
ar fram er myndefnið landslagið í
sínum fjölbreytileika, ströndin, rek-
inn þarinn klappir o.fl.
Sýningin er sumarsýning hússins
og stendur til 23. ágúst.
Hádegistón-
leikar í Hall-
grímskirkju
DOUGLAS A. Brotchie, aðstoðar-
organisti Hallgrímskii-kju, leikur á
hádegistónleikum Hallgrímskirkju í
dag, fímmtudag, kl. 12-12.30. Á efn-
isskrá hans er m.a. Annum per ann-
um eftir eistneska tónskáldið Arvo
Párt, Ave Maria og Te deum eftir
franska tónskáldið Jean Langlais.
Brotchie er fæddur í Edinborg í
Skotlandi og hlaut doktorsnafnbót
fyrir vísindarannsóknir á sviði
skammtaefnafræði. Hann hefur ver-
ið búsettur hérlendis síðan árið 1981
og lauk einleikaraprófi í orgelleik frá
Tónskóla Þjóðkirkjunnar undir
handleiðslu Harðar Áskelssonar.
Hádegistónleikarnir eru haldnir á
vegum Sumarkvölds við orgelið og
er norski orgelleikarinn Ivar
Mæland næstur í þeirri röð á sunnu-
dagskvöldið næstkomandi kl. 21.30,
sem er breyttur tími vegna úrslita-
leiks HM í knattspyrnu.
----:—----------
Spáir Ólafi
Kjartani frama
ÓLAFUR Kjartan Sigurðarson, sem
er í söngnámi í skosku tónlistaraka-
demíunni, fær góða dóma fyrir söng
sinn í Brúðkaupi Fígarós, sem nem-
endur skólans
sýndu í Edinborg
fyrr í sumar.
Gagnrýnandi tón-
listartímaritsins
Opera segir Ólaf,
sem söng hlutverk
Fígarós, vera allt
að því atvinnu-
mannslegan.
Lýrísk barítón-
rödd hans sé „lip-
ur og óvenjulega jöfn (og góð á lægri
tónsviðum), hann dansaði, söng og
yppti öxlum af mikilli list“. Segir
gagnrýnandinn, Raymond Monelle,
ðlaf standa sig vel á sviði og spáir
honum frama í söngheiminum.
--------------------
Leif Segerstam
nýr aðalstjórn-
andi Þjóðar-
óperunnar
LEIF Segerstam verður nýr aðal-
stjómandi Þjóðaróperunnar í Finn-
landi þegar Okko Karnu lætur af
því starfí, en samningur hans renn-
ur út í byrjun ársins 2000.
Ráðningarsamningur Segerstams
gildir fyrir árin 2001-2003. Hann er
nú bæði aðalstjómandi borgarhljóm-
sveitarinnar í Helsingfors og Kon-
unglegu ópemnnar í Stokkhólmi.
Ólafur Kjartan
Sigurðarson
Morgunblaðið/Magnús Magnússon
KÁRI Sigurðsson við eitt verka sinna.
Nýjar bækur
• MORÐINGI án andlits -
glæpasaga er eftir Henning
Mankell í þýðingu Vigfúsar Geir-
dals.
I kynningu segir: „Bókin hefst á
því að bóndi á Skáni í Svíþjóð upp-
götvar einn kaldan janúarmorgun
árið 1990 að nágrannar hans hafa
verið myrtir um nóttina með afar
ógeðfelldum hætti. Hið eina sem
lögreglan, undir stjórn Kurts
Wallander, hefur til að byggja
rannsókn sína á er hinsta orð kon-
unnar: „útlenskir". Þegar þetta
spyrst út veldur það úlfaþyt í sam-
félaginu þar sem fjölmennir hópar
innflytjenda og flóttamanna búa
við vaxandi fjandskap öfgafullra
kynþáttahatara. Leitin að morð-
ingjanum leiðir því lögregluna um
ýmis skúmaskot sænska fyrir-
myndarþjóðfélagsins."
Henning Mankell er einn vin-
sælasti rithöfundur Svía og hefur
hlotið fjölda viðurkenninga fyiúr
bækur sínar. Morðingi án andlits
var valin glæpasaga ársins 1991 í
Svíþjóð.
Mál og menning gefur út. Morð-
ingi án andlits er 336 bls. og prent-
uð hjá Nprhaven í Danmörku.
Verð 999 kr.
GRUNDLAGT
1873
/nuna .
m I
maivöruverslunum
i ny [u m um