Morgunblaðið - 09.07.1998, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vísdómur
Hellisbúans
Gamanleikurinn „Hellisbúinn, okkar mað-
ur“ eftir Rob Becker í leikstjórn Sigurðar
Sigurjónssonar verður frumsýndur í Is-
lensku óperunni í kvöld. Verkið er einleik-
ur sem fjallar um samskipti kynjanna
á broslegan hátt.
Morgunblaðið/Golli
„HELLISBÚINN er ekki með neinn áfellisdóm um
konur eða karla heldur að lýsa mismuninum á þeim,“
segir Bjami Haukur Þórsson, einleikari kvöldsins.
„ÞAÐ er komið inn á fjölmargt eins og heimsmeist-
arakeppnina í fótbolta, poppara, laxveiði, svefn-
herbergið, kynlífið, stjórnmálamenn..."
HALLGRÍMUR Helgason rithöf-
undur hefur þýtt og staðfært
verkið og Bjarni Haukur Þórsson
leikari túlkar allar persónur, kon-
ur og karla í sýningunni. Sigurður
Sigurjónsson, sem leikstýrir
Bjarna í „Hellisbúanum", segir að
ekki sé til nein nákvæm skilgrein-
ing á verkinu. „Þetta er allt í senn
farsi, gamanleikrit og uppistand
og því nær að kalla þetta leikhús-
skemmtun,“ segir Sigurður. Hann
leikstýrði Erni Arnasyni fyrr á ár-
inu í einleiknum Gamansama
m
harmleiknum og segir það tilviljun
að annað leikstjórnarverkefni sitt
á ferlinum sé leikstjórn eins leik-
ara.
Konur og aumingjar
Verk Rob Beckers heitir á
frummálinu „Defending the Ca-
veman“ og hefur verið sýnt við
góða aðsókn í sex ár í Bandaríkj-
unum. „Verkið er aðlagað íslensk-
um aðstæðum og ýmislegt tekið út
sem á eingöngu við í Ameríku, en
grunnhugsunin virðir engin landa-
mæri og er sú að skipta mannkyni
í tvo flokka, konur og aumingja!
Útgangspunktur höfundarins er
síðan sá hvort það sé sanngjarnt
að hafa þetta svona. Hann bendir
á að frekar sé um að ræða frekar
ólíkar tegundir sem geti alveg
unnið saman,“ segir Sigurður.
Hann segir að þótt verkið endur-
spegli karlleg viðhorf og sé jafn-
framt gamansöm málsvörn karl-
mannsins megi líta svo á að verkið
sé um leið lofsöngur um konuna.
„Það mætti halda að það væri
karlrembutónn í verkinu, en svo
er alls ekki, heldur opinberast lof-
söngur um konuna í vísdómi hell-
isbúans," segir hann.
Aðstandendur „Hellisbúans"
fullyrða að kvöldstund með hellis-
búanum muni auðvelda skilning á
því flókna samskiptamynstri sem
hegðun og atferli karla og kvenna
lýtur. „Það er þó ekki ætlast til að
fólk læri í eitt skipti f'yrir öll vís-
dóm hellisbúans, heldur er þetta
hugsað sem innlegg í hina sígildu
umræðu um karla og konur og ég
held að áhorfendur geti lifað á því
þónokkuð lengi. I verkinu eru sett-
ar upp aðstæður sem allir sjá
sjálfa sig í og á æfingum með
áhorfendum að undanförnu hefur
maður tekið eftir olnbogaskotum
úti í sal þegar atriðin kalla fram
fyndnar minningar um eitthvað úr
hversdagslífinu.“
Bjarni Haukur Þórsson leikari
leikstýrði „Master Class“ í Is-
lensku óperunni fyrir tveim árum
og „Trainspotting" í Loftkastalan-
um fyrr á árinu, en sótti menntun
íslensk framleidsla
síðan 1972
MÚRFLEX
Á SVALIR
OGÞÖK
Sl steinprýði
STANGARHYL 7, SÍMI 567 2777
sína til Bandaríkjanna þar sem
hann lærði leiklist og leikstjórn.
Um „Hellisbúann“ sagði Bjarni
að um væri að ræða hinn venju-
lega meðaljón, kvæntan föður,
sem tekur að velta fyrir sér tilver-
unni. „Hellisbúinn er ekki með
neinn áfellisdóm um konur eða
karla heldur að lýsa mismuninum
á þeim og sækir myndmálið til
hellisbúans til að undirstrika
grunnþarfir annars vegar veiði-
mannsins, karlsins, og hins vegar
safnarans, konunnar," segir
Bjarni.
Komið inn á alþekkt
svið mannlífsins
„Það er komið inn á fjölmargt
eins og heimsmeistarakeppnina í
fótbolta, poppara, laxveiði, svefn-
herbergið, kynlifið, stjórnmála-
menn, hvernig konur og karlar
horfa á sjónvarpið, hvernig hjón
era þegar þau fara út að skemmta
sér og hvernig konur og karlar
tala, bæði hvort við annað og vin-
ina eða vinkonumar og margt
annað.“ Bjarni segir að samspil
áhorfenda og leikarans sé mikil-
BIRGIR Schiöth myndlistar-
kennari sýnir pastelmyndir sín-
ar í Ráðhúsinu í Reykjavík dag-
ana frá og með 11.-30. jiilf.
Myndefnið er fjölbreytt, frá
síldarsöltun á Siglufírði á árum
áður, hraunmyndir, portrett,
hestamyndir og fleira.
Birgir er fæddur á Siglufirði
1931, hann stundaði nám við
gagnfræðaskólann þar, Mennta-
skólann á Akureyri og í Kenn-
araskóla Islands.
Hann kenndi verkmennt og
vægt fyrir heildaráhrif sýningar-
innar og hefur á æfingum með
áhorfendum verið að vinna með
viðbrögð þeirra. „I fyrsta skipti
sem við renndum verkinu með
áhorfendum voru gestirnir frá 35
ára aldri. Þá tók ég eftir því að
fólk hló mikið að alls konar að-
stæðum sem koma upp milli karla
og kvenna. Fólk á þessum aldri
samsamar sig með hjónum eða
pörum í kátlegum aðstæðum því
það þekkir sambúðarformið út og
inn. Kvöldið eftir voru áhorfendur
yngri og þá tók ég eftir því að þeir
hlógu frekar að beinum bröndur-
um.“ Bjarni segir að skilji verkið
eingöngu eftir sig hlátur í huga
áhorfenda sé hann harla ánægður
og enn ánægðari ef pör og hjón
geti rifjað upp atriði síðar meir
sem áttu sérstaka skírskotun í
þeirra samband.
Aðrir aðstandendur „Hellisbú-
ans“ eru Vignir Jóhannsson leik-
myndahönnuður, Jóhann Bjarni
Pálmason ljósahönnuður, Ari
Magg, sem sér um ljósmyndir í
sýningu og Hjörtur Howser sem
sá um umhverfishljóð.
myndlist við gagnfræðaskólann
á Siglufirði í tuttugu ár en síðan
kenndi hann við grunnskólana í
Garðabæ meðfram kennslunni.
Hann hefur verið í myndlist-
arnámi í Myndlistarskólum í
Reykjavík, einnig hlotið einka-
kennslu í málun.
Birgir hefur haldið margar
einkasýningar víða um land. Nú
hefur hann hætt kennslu fyrir
nokkrum árum, er búsettur á
Spáni og sinnir eingöngu mynd-
listinni.
CZ
I
Þú átt eftir
að ná laagt
Auktu notkunarmöguleika
OG LANGDRÆGNI FARSÍMANS.
Úrvdl loftneta og aukabúnaðarfyrir
GSM og NMT í bústaðinn, bílinn og
bátinn.
SÍMINN
Ármúla 27, sími 550 7800
Landssímahúsinu v/ Austurvöll, sími 800 7000
Afgreiðslustaðir íslandspósts um land allt
BIRGIR við eitt verka sinna.
Birgir sýnir í Ráðhúsinu