Morgunblaðið - 09.07.1998, Page 29
MORGUNB LAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 29
Ur hljómskála-
handraðanum
TONLIST
Iönó
KAMMERTÓNLEIKAR
Verk eftir 17 höfunda. Martyans
Svégzda von Bekker, fiðla; Steinunn
Birna Ragnarsdóttir, píanó. Iðnó,
þriðjudaginn 7. júlí kl. 20:30.
Á SÍÐUSTU þriðjudagstónleik-
um Iðnós, sem eftir daga- og tíma-
vali að dæma virðist stefnt til höf-
uðs þriðjudagstónleikum Sigur-
jónssafns, sveif kaffihúsa- og
hljómskálaandrúmsloft Vínar og
Parísar frá aldamótaáratugunum
yfir vötnum, þegar hinn ungi lit-
heygski fiðluleikari Martyans
Svégzda von Bekker steig á stokk
með Steinunni Birnu Ragnarsdótt-
ur sér til halds og trausts við flygil-
inn. Dagskrárefnið var að yfir-
gnæfandi leyti af því tagi sem áður
fyrr var leikið undir borðum á betri
veitingahúsum sunnai- í álfu hálfri
til heilli öld áður en slikjuveggfóð-
ur á við Richard Claydermann tók
þar við, og hæfði tímans vegna
hinu nýuppgerða aldamótahúsi við
Tjörnina upp á hár. Það eina sem
vantaði var borðhald og þjónar
með hvítar svuntur.
Eiginlega var dagskráin, séð aft-
ur á bak, á hálfgerðu gráu svæði
milli konsertefnis og bakgrunns-
tónlistar, enda þótt þessi gömlu
kaffihúsalög hafi í seinni tíð mörg
hver farið svipaða leið og jassinn
og færzt skör ofar við að missa
upphaflegt hlutverk sitt.
Dagskráratriðin voru 19 alls eft-
ir nærri því jafnmarga höfunda.
Sum voru útsett af sönglögum, pí-
anólögum eða hljómsveitarverkum,
og gerðu fæst þeirra miklar kröfur
til flytjenda. Fyrir hlé voru tekin
fyrir Kol Nidré (Bruch), Standchen
(Schubert), Intermezzo og Trau-
merei (Schumann), Melodía (Tsja-
kovskíj), Ungverskur dans nr. 1
(Brahms) og Scherzo fantastique
(Bazzini.)
Eftir hléið komu La cinqu-
antaine (Marie), Edith Piaf-glans-
númerið Hymne a l’amour
(Monnot), Caprí Catarína (Jón
Jónsson frá Hvanná) sem Haukur
Morthens gerði frægt fyrir 40 ár-
um (hér setti fiðlarinn upp keilu-
húfu, sem vakti nokkra kátínu þó
að undiiT. næði ekki alveg tilgang-
inum), Rumba (Benjamin),
Kreisler-lögin Schön Rosmarin,
Liebesleid og Liebesfreud, og að
lokum fjögur klassísk verk í út-
setningu Fritz Kreislers, Rondino
(Beethoven), Slavneskur dans nr. 2
(Dvorák), hið sýndar-exótíska
Chant Hindou (Rimskíj-Korsakoff)
og hinn kastaníettu-gneistandi
Danse Espagnol eftir M. De Falla.
Rann flestallt Ijúflega niður, og
þó að heyra mætti á stangli, eins
og í Mozart, Bazzini-scherzóinu,
Beethoven-rondínóinu og spænsk-
um dansi De Fallas, að fiðluleikar-
ann vantaði enn örfá prósent upp á
fullkomið virtúósískt tækniöryggi í
inntónun og bogatækni þegar á
reyndi, var tilfinning hans fyrir
mótun og dýnamík sannfærandi,
sérstaklega í Kreisler-lögunum,
sem voru strokin með hárréttu
Vínar-rúbatói og „Schwung". Tví-
gripin voru oftast mjög góð, svo
sem t.d. í Slavneskum dansi Dvor-
áks, og hin mjaðmahnykkjandi
Rumba Benjamins var leikin af
þeim félögum með töluverðum suð-
rænum bravúr.
Burtséð frá ívið of sterkum leik í
Bazzini og De Falla var píanómeð-
leikur Steinunnar í allgóðu jafn-
vægi, og skartaði slaghörpuspil
hennar ýmist fallega mjúkum
syngjandi tóni eða sópandi snerpu
eftir því sem við átti hverju sinni.
Ríkarður Ö. Pálsson
„FIuga“ á ferð um landið
HJÖRLEIFUR Valsson fiðluleik-
ari og Havard Öieroset gítarleikari
halda tónleika á Norðurlandi og á
Vestfjörðum næstu daga.
Hjörleifur hefiir verið búsettur
erlendis um árabil. Hann nam í
Prag og hefur búið síðasta árið í
Ósló. Þeir félagar hafa áður haldið
tónleika hér á landi og nú hefja
þeir tónleikana fyrir norðan.
Tónleikanir bera yfirskriftina
„Fluga“ og eru á dagskránni m.a.
lög eftir Evert Taube, Bellman,
Lenny Kravitz, Led Zeppelin o.fl.,
einnig lög frá Austur-Evrópu,
sígaunatónlist, þjóðleg lög, popp,
rokk, diskó og frumsamin verk.
Tónleikar Hjörleifs og Havards
verða í Safnahúsinu á Húsavík
fimmtudaginn 9. júlí kl. 20.30 og
sunnudaginn 12. júlí á sama stað á
sama tíma. I sal Tólistarskólans á
Akureyri föstudaginn 10. júlí kl.
20.30. og í samkomuhúsinu á
Breiðumýri laugardaginn 11. júlí
kl. 15 og á Isafirði þriðjudaginn 14.
júlí. Tónleikar verða haldnir í
Reykjavík í byrjun ágúst.
LISTIR____________________
Fjölskylda í geimvillum
KVIKMYNDIR
Laugarásbfó,
Stjörnubfó,
Iturgarbíó Akureyri
TÝND í GEIMNUM („LOST IN
SPACE“) ★ ★
Leikstjóri Stephen Hopkins. Handrit
Akiva Goldsman. Tónlist Bruce
Broughton. Kvikmyndatökustjóri Ro-
bert Levy. Aðalleikendur William
Hurt, Gary Oldman, Mimi Rogers,
Matt LeBlanc, Heather Graham,
Lacy Chabert. 128 mín. Bandarísk.
New Line. 1998.
AKVARÐANIR kvikmyndafram-
leiðenda eru oft á tíðum forvitnilegt
rannsóknarefni. Hversvegna var
t.d. þessi sjónvarpsþáttaröðin frá
sjöunda áratugnum dubbuð upp í
sparifötin? Ekki var hún svo spenn-
andi né afgerandi vinsæl í „den“.
Útkoman gerir heldur ekki betur en
að slefa í slöku meðallagi.
Söguhetjurnar eru meðlimir
Robinson fjölskyldunnar, vísinda-
menn sem eru sendir útí geiminn í
náinni framtíð til að kanna heppi-
lega plánetu fyrir homo sapien,
sem er að kafna í eigin úrgangi á
jarðríki. Þetta eru höfuðpaurinn,
John (William Hurt), kona hans
(Mimi Rogers), og börn þeirra
þrjú. Kapteinninn á geimskipinu
(Matt LeBlanc) og óboðinn gestur,
spellvirkinn dr. Smith (Gary Oldm-
an). Allskyns óáran herjar á skip
og áhöfn. Vélmenni, skemmdar-
vargar, óvinveitt geimskrýmsli,
geimvillur og allt fer í strand. Um
svipað leyti dettur botninn úr
prýðilegri vísindaskáldsögudellu,
langdreginn og óspennandi
lokakafli tekur við.
Tæknibrellurnar eru flottar en
persónurnar hrikalegt samsafn,
óspennandi og leiðinlegar upp til
hópa. Vandræðaleg hliðarsaga um
skort á föðurlegri umhyggju bætir
ekki úr skák. Mimi Rogers, og
William Hurt eru beinlínis fráhrind-
andi, Heather Graham og Lacey
Chabert, sem dætur þeirra, síst
skám. Verstur allra er þó Matt
nokkur LeBlanc, álíka tilgerðarleg-
ur og nafnið. Illskástir eru Jack
Johnson sem undrabarnið Will,
yngsti meðlimur Robinsonfjölskyld-
unnar, og Gary Oldman í hlutverki
skúrksins. Þeir fá jafnan skástu
línrnar í myndum sem þessari, og
hann skilar þeim vel, á sinn spaugi-
lega hátt. Leikstjórinn, Stephen
Hopkins, lofaði góðu með Judgment
Night, fínni og drífandi B-hasar-
mynd. Hann hefur ekki staðið undir
væntingum í úrvalsdeildinni (The
Ghost and the Darkness, Blown
Away.
Sæbjörn Valdimarsson
Lífið sjálft
komið í
Verð í lausasölu
499 kr.
verslanir!
Annað tölublað af tímaritinu
LÍFIÐ SJÁLFT er komið í
helstu verslanir landsins.
Það er ávinningur að vera
áskrifandi!
Ef þú gerist áskrifandi fyrir 23. júlí
áttu kost á sumarglaðningi.
Bæði gamlir og nýir áskrifendur eiga
sama möguleika.
Verðlaun:
1. Helgaraevintýri undir jökli fyrir tvo!
Slökun, heilnæmt fæði og ævintýraleg
útivist f grænni ferðaþjónustu Snæ-
fellsás samfélagsins á Brekkubæ,
Hellnum.
2. Uttekt í Regatta búðinni Skerjabraut 1
að verðmæti kr. 5.000
3. Aðgöngumiði fyrir tvo á
Mannræktarmót Snæfellsás sam-
félagsins um verslunarmannahelgina.
4. Fimm einkatímar í yoga hjá Guðjóni j
Bergmann. Krókamýri 80 j
5. -10. Matreiðslubókin Eldað undir jökli eftir
Guðrúnu G. Bergmann og Guðríði Hannesdóttur.
TiL OG uAttIÁT
Ossur Skarphéðinsson, 1
9'smaður og ritsijóri, j
rttuvíðtali á bls. 22-24
Brjóstin
Eðli tilfinninga
Agi og ytri mörk flp
Lífsreglur Tiep Hien
Bakverkir
Álfar og annað fólk
Vistvænt hvað?
Stjörnuspá fyrir júfi og ágúst
THvistarkreppa karlmanna
Vinningar verða dregnir út mánudaginn 27. júlí.
Vertu með írá byrjun. Áskriftartilboðið er:
Eins árs áskrift og bók að eigin vali á 2.000 kr.
Lífið sjálft
Áskrift og drciting
í sínui 544 8070.