Morgunblaðið - 09.07.1998, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Menningarborgir
Evrópu árið 2000
Vilja
meira fé
frá ESB
Borgirnar níu sem hafa verið til-
nefndar sem Menningarborgir Evr-
ópu árið 2000 telja sig þurfa meira
fé frá framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandinu ef vel á að takast til.
Auk Reykjavíkur eru borgirnar
Björgvin, Kraká og Prag sem
standa utan ESB þátttakendur í
þessu stóra verkefni. Fimm borgir
innan ESB taka einnig þátt,
Helsinki, Avignon, Bologna, Brus-
sel og Santiago de Compostela.
Þegar borgirnar voru valdar
lagði framkvæmdastjórn ESB sér-
staka áherslu á að þær ynnu sam-
an. „Ef við fáum engan fjárstuðn-
ing geldur hugmyndin um margar
evrópskar menningarborgir á sama
árinu þess,“ segja stjórnendur
Menningarborga Evrópu árið 2000
í sameiginlegu bréfi til Jacques
Santer, formanns framkvæmda-
stjómar ESB.
„Þetta bréf var samið á sameig-
inlegum fundi Menningarborganna
í Prag í vor. Með því vildum við ít-
reka nauðsyn þess að til að þetta
umfangsmilda verkefni megi takast
sem best þarf að leggja mikla fjár-
muni í það. Við höfum hins vegar
enga ástæðu til að ætla annað á
þessu stigi en að framkvæmda-
stjóm ESB bregðist vel við. Við
viljum einnig fá að vita hvað ESB
ætlar að leggja í verkefnið fyrir
fjárhagsárið 2000, en á þessu ári
hefur þegar verið veitt fé til undir-
búnings verkefna þ.á. m. til undir-
búnings verkefnis sem er undir
okkar stjórn," sagði Þómnn Sig-
urðardóttir stjórnandi Reykjavíkur
Menningarborgar árið 2000.
Aðspurð sagði Þómnn að kostnað-
aráætlun fyrir Reykjavík Menning-
arborg árið 2000 væri í burðarliðn-
um, þar væri í mörg hom að líta áð-
ur en endanleg tala liti dagsins ljós.
„Við erum í samningaviðræðum við
ýmsa aðila um framlög þeirra og
hlutdeild og vonumst til að geta
lagt fram kostnaðai'áætlun á næstu
vikum,“ sagði Þómnn.
klipptir út. Hvorki Gales né Riley
vom miklir sólistar þó þeir væm
sterkir rýþmaspilarar og sólóar
Gales löngum aðeins göngubassa-
línur, en þá gat Monk stigið sinn
fræga dans umhverfis píanóið.
Charlie Rouse lék lengur en
nokkur annar með Monk (1958-
1970) og er oft og tíðum makalaus
sólóisti sem skilur monkismann
öðrum betur. Samt eru það sólóar
Monks sem eru gimsteinar þess-
ara diska. Makalaus snilli þarsem
lýþmaskyn hans nýtur sín til fulls.
Eg hef aldrei skilið þá sem fmnst
snilidarverk Monks njóta sín betur
í túlkun annarra, mér finnast þau
aldrei njóta sín til fullnustu nema í
túlkun hans sjálfs. Þó em þúsund-
ir djassleikara um allan heim sí-
fellt að spila lög á borð við Monks
Dream, Straight No Chaiser, Well
You Needn’t, Rhythm-a-ning, Ru-
by My Dear, Ask Me Now að ég
nefni ekki ‘Round midnight - og
gera það vel.
Live At The It Club er kjörgrip-
ur fyrir alla sem vilja kynnast
heimi eins stórbrotnasta djassleik-
ara allra tíma: Thelonius Sphere
Junior Monk. Afturámóti gegnir
svolitlu öðru máli um Monk Alone.
Þar er allt einleikssafn Monks á
Columbia samankomið. Monk
sendi ekki frá sér nema fjórar
raunveralegar einleiksskífur um
ævina og var Solo Monk á Col-
umbia sú síðasta. Þarna má fínna
ópusana tólf er vom á þeirri skífu
auk ellefu ópusa er dreift var á sjö
breiðskífur. Þar að auki eru fjórt-
án áður óútgefnar tökur á diskun-
um.
Það era tveir einleikspíanistar
sem ég get hlustað endalaust á:
Art Tatum og Thelonius Monk. Þó
getur varla ólíkari píanista. Tatum
leikur einsog sá sem valdið hefur,
fullkomin tækni og yfirferðin slík
að maður grípur andann á lofti.
Monk oft hikandi einsog bam. Þó
er ótrúlega margt sameiginlegt
með þessum snillingum: óvenjuleg
hljómaskynjun og frábært takt-
skyn - og báðir eru af skóla skálm-
aranna frá Harlem. Afturámóti er
Monk ekki fyrir þá sem vilja að pí-
anóleikari leiki eftir bókinni. Þó
hafði hann mikil áhrif á Bud
Powell, sem hefur haft firnamikil
áhrif á nær alla nútímapíanóleik-
ara djassins. Þeir vora samstæður,
ekld andstæður.
Vernharður Linnet
Munkurinn ómstríði
mig á unglingsárunum þótti flest-
um félögum mínum lítið til píanó-
leiks Monks koma. Fáar nótur,
stríðir hljómar, kantað spil einsog
hjá Brubeck - jafnvel naívt. „Hann
semur kannski góð lög en hann er
enginn píanisti,“ var viðkvæðið.
Það var líka sagt um annan af upp-
áhaldspíanistunum mínum - Duke
Ellington. Það var kannski ekkert
skrítið því píanóleikur þeima var
skyldur. Þeir áttu báðir upphaf
sitt í búggí- og blúsmettuðum pí-
anóleik, ragtæm og New York
skálmi. James P. Johnsson og
Fats Waller höfðu kennt þeim
mikið. Þeir komust líka báðir á
forsíðu Times þarsem djassmenn
eru ekki vanir að skarta vangasvip
sínum - en það er önnur saga.
Á ámnum 1947 til 1971 hljóðrit-
aði Monk verk sín fyrir ýmis
hljómplötufyrirtæki: fyi-stu og
frægustu upptökumar fyrir Blu-
eNote, en þær síðustu fyrir Black
Lion. Þær hafa verið gefnar út í
heildarútgáfum af Mosaic. Allt sem
Monk hljóðritaði fyrir Riverside
hefur verið gefið út á fimmtán
diskum og nú hefur Columbia hafið
skemmtilega útgáfu á Monk. Tveir
tvöfaldir diskar em komnii- út.
Annar með öllu sem Monk lék tvö
kvöld um mánaðamótin októ-
ber/nóvember 1964 á It klúbbnum í
Los Angeles og hinn með öllum pí-
anóeinleik Monks fyrir Columbia.
Eg vona bara að næst sendi þeir
frá sér allar kvartettupptökur er
Monk gerði í hljóðveri fyrir þá. Eg
fékk Monk’s Dream og Criss-
Cross sendar til Eyja er þær komu
út - og nægði sú póstkrafa manni
lengur en ýmsar aðrar.
A Life At The It Club er allt
sem Monk kvartettinn lék þar ut-
an meingölluð upptaka á Sweet
And Lovely fyira kvöldið og Epi-
strophy, kynningarlag Monks, sem
hann lék í lok hvers setts (en sett-
in vora þrjú hvort kvöld), er aðeins
notað í enda hvors disks. Theo,
Bright Mississippi og Just You
Just Me hafa aldrei verið gefin út
áður og ellefu ópusanna hafa að-
eins birst í styttum útgáfum áðm’.
Kannski má deila um hvort stytt-
ingarnar hafi verið til skaða, en þá
voru bassa- og trommusólóar
TÓJVLIST
111 jómdiskar
THELONIUS MONK AT THE IT
CLUB - COMPLETE
Thelonius Monk píanó, Charles Rou-
se tendrsaxdfdn, Larry Gales bassi,
Ben Riley trominur. Hljóðritað á It
klúbbnum í Los Angeles 31. okt. og
1. nóv. 1964. Útgáfa Columbia 1998.
Dreifing Spor. Verð kr. 2.999.
Diskur 1: Blue Monk, Well You’ll
Needn’t, ‘Round Midnight, Rhythm-
A-Ning, Blue Five Spot, Bemsha
Swing, Evidence, Nutty, Epi-
strophy.
Diskur 2: Straight No Chaiser, Teo,
I’m Getting Sentimental Over You,
Mistcrioso, Gallop’s Gallop, Ba-lue
Bolivar Ba-lues-are, Bright Miss-
issippi, Just You Just Me, All The
Things You Are, Epistrophy.
Thelonius Monk piand. Hljdðritað í
New York og Los Angcles 1962-68.
Útgáfa Columbia 1998. Dreifing
Spor. Verð kr. 2999.
Diskur 1: Body And Soul, Just A
Gigolo, Don’t Blame Me, Nicc Work
If You Can’t Get It, Memories Of
You, I Love You Sweetheart Of All
My Dreams, I Surrender Dear,
Sweet And Lovely, Everything
Happens To Me, I Should Care,
Nort h Of The Sunset, These Foolish
Things, I Hadn’t Anyone Till You,
Dianah, I’m Confessin That I Love
You, Monk’s Point, Ask Me Now,
Ruby Me Dear.
Diskur 2: ‘Round Midnight,
Between The Devil And The Deep
Blue Sea, This Is My Story This Is
My Song, Introspection, Darn That
Dream, Body And Soul (tvær tökur),
Don’t Blame Me, I Love You
Sweetheart Of All My Dreams,
Sweet And Lovely, Everything
Happens To Me (þrjár tökur), I Ha-
dn’t Anyone Till You, Dianah, I’m
Confessin That I Love You, Ask Me
Now, Introspection, Ruby My Dear,
FÁIR djassleikarar hafa haft
eins mikil áhrif á þessari öld og
Thelonius Monk. Ásamt Jelly Roll
Morton er hann trúlega það djass-
tónskáld sem næst kemst Duke
Ellington og þó verk þessara
meistara séu sífellt á efnisskrá
djassleikara hefur píanóleikur
þeirra haft næsta lítil áhrif.
Þar hafa menn á borð við
, Earl Hines, Art Tatum og
Bud Powell ráðið ríkjum.
Þegar Monkæði heltók
GIANFRANCO FERRE
umartilboð frá
Þegar þú kaupir tvo hluti að eigin vali frá GIANFRANCO
FERRE færðu að gjöf glæsilega svarta FERRE hliðartösku.
Stór-Reykjavík: Libia Mjódd, Holtsapótek,
Snyrtivörud. Hagkaups Skeifunni og Kringl-
unni, Brá Laugavegi, Sandra Smáratorgi,
Snyrtivörud. Hagkaups Smáratorgi, Snyrti-
höllin Garðatorgi.
Landlð: Gallery föðrun Keflavík, Árnes apó-
tek Selfossi, Miðbær Vestmannaeyjum,
ísold Sauðárkróki, Krisma (safirði, Tara Ak-
ureyri, Snyrtivörud. Hagkaups Akureyri,
Húsavíkur apótek.
Kristbjörg
Guðmundsddttir
Skálar,
staup og
minjagripir
NÚ STENDUR yfir sýning á
verkum Kristbjargar Guðmunds-
dóttur leirlistakonu í listagallerí-
inu Smíðar og skart.
Kristbjörg Guðmundsdóttir er
listamaður júlímánaðar í gallerí-
inu. Hún er fædd árið 1954 og lauk
námi frá Myndlista- og handíða-
skóla Islands 1994. Kristbjörg
lauk einnig námi í uppeldis- og
kennslufræðum frá Háskóla Is-
lands árið 1995.
Á sýningunni sem stendur til 23.
júlí em leirmunir unnir á þessu
ári. Skálar, staup og minjagripir.
Kristbjörg hlaut hönnunarverð-
laun frá Galleríi List árið 1994.
Sýningin er opin á verslunar-
tíma frá kl. 11-18 virka daga og
11-14 laugardaga.
AXEL Eiríksson með verk sitt Syndil.
Axel sýnir í Edin-
borgarhúsinu
AXEL Eirfksson opnar sýningu í
Edinborgarhúsinu á Isafirði,
laugardaginn 11. júlí kl. 15. Sýn-
ingin er tvískipt, annars vegar
myndverk mótuð í gips og járn
ásamt vatnslitamyndum, hins
vegar verk unnin í olíu og með
blandaðri tækni.
Axel er úrsmíðameistari sem
starfrækir verslanir bæði á Isa-
flrði og í Reykjavík. Hann sinnir
myndlistinni í frístundum sinum
en þetta er fyrsta einkasýning
hans.
Axel stundaði nám í kvöld-
skóla Myndlistaskóla Reykjavík-
ur, hefur sótt mörg námskeið
tengd myndlist og var meðlimur
í listahópi um nokkurra ára
skeið.
Heiti sýningarinnar „Fram-
koma“ vísar til þess að á sýning-
unni birtir hann verk sem hann
hefur unnið með hléum undan-
gengin ár, en koma nú fyrir al-
menningssjónir í fyrsta skipti.
Sýnignin verður opin daglega
frá kl. 15-17 og lýkur 25. júlí.