Morgunblaðið - 09.07.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 31
LISTIR
Sagan og daglega lífíð
Inga Lára Baldvinsdóttir.
BÆKUR
Sagnfræði
MARGURí SANDINN HÉR
MARKAÐI SLÓÐ
Eyrarbakkahreppur 1897-1998 eftir
Ingu Láru Baldvinsdóttur. 124 bls.
Prentun: Oddi hf.
MARGIR hafa komið að vinnslu
bókar þessarar. Myndefni er geysi-
mikið, aðallega gamlar ljósmyndir.
Efninu er þannig fyrir komið að á
opnu hverri er annars vegar texti,
hins vegar mynd. Allar tengjast
myndirnar með einhverjum hætti
lífínu í þorpinu. Kaflamir eru jafn-
margir myndunum. Peir eru því svo
til jafnir að lengd. í hverjum þeirra
er tekinn fyrir einn þáttur byggða-
sögunnar. Þannig gefa þeir, allir
saman, hina gleggstu og prýðileg-
ustu hugmynd um daglega lífíð á
þessum merkasta verslunarstað ís-
landssögunnar síðustu hundrað ár-
in, það er að segja frá því er þorpið
varð sérstakur hreppur 1897 þar til
það var nýverið sameinað ná-
grannasveitarfélögum.
Eyrarbakki nýtur sérstöðu með-
al íslenskra þéttbýlisstaða, og það
fyrir margra hluta sakir. Um alda-
mótin síðustu stóð verslun þar með
hvað mestum blóma. Fjögur þús-
und manns voru í fóstum reikn-
ingsviðskiptum hjá Lefolii-verslun.
Útgerð var þá öflugri en bæði fyrr
og síðar. Margir þorpsbúar studd-
ust og við kvikfjárrækt eftir því
sem svigrúm og tími leyfði. Miðað
við íslenskan mælikvarða var Eyr-
arbakki stórstaður. Þess er getið
að árið 1904 hafí verið ákveðið að
reyna hvernig Thomsens-bíllinn,
nýkominn til landsins, dygði til
langferða. Ekið var frá Reykjavík
austur á Eyrarbakka. Fagnandi
tóku þorpsbúar þessu tækniundri
20. aldarinnar. Hrifning þeirra
hefði þó verið trega blandin ef þá
hefði mátt gruna að einmitt þetta
tæki ætti eftir, með ýmsu öðru, að
kippa stoðunum undan þessum
gróna og ævaforna verslunarstað.
En með bílaöld og stækkandi skip-
um um 1920 var sýnt að þunga-
miðjan hlyti að færast til annarra
staða sem betur lágu við verslun og
samgöngum. Tók þá við kyrrstöðu-
tímabil sem ekki var augljóst
hvernig lykta mundi. Þar til síð-
ustu árin og áratugina að nýjum
stoðum hefur verið rennt undir at-
vinnulífið sem stendur nú á traust-
um grunni.
En einmitt sakir hinnar langvar-
andi kyrrstöðu tókst að verðveita
gömlu bæjarmyndina, þar með talið
Húsið, sem reist var 1765 og telst
því með elstu húsum á landinu.
»Fyrsta markvissa endurgerð á
húsi hérlendis var gerð á Húsinu á
árunum 1932-35,« segir í þættinum
Húsavernd.
Þessi ágæta bók Ingu Láru er að
því leyti frábrugðin öðrum ritum,
sem út hafa komið um byggðasögu
á undanfórnum árum, að minna er
sagt frá stjómunarþættinum en
þeim mun meiri áhersla lögð á dag-
lega lífið. Kartöfluræktin og kvenfé-
lagið fá þannig hvort um sig jafn-
mikið rúm og verslunarsagan sem
getur þó hvergi talist léttvæg! í
menningarlegu tilliti stóð Eyrar-
bakki löngum framarlega. Þar var
um tíma prentsmiðja, og jafnframt
nokkur blaða- og bókaútgáfa. Leik-
félag, sem lyfti andanum og
skemmti heimamönnum og ná-
grönnum, starfaði með glæsibrag ef
hliðsjón er höfð af fámenninu. Tón-
listarskóli var starfræktur um tíma
við góða aðsókn. Bindindisfélag var
stofnað nokkru fyrir aldamót og
þótti ekki vanþörf á »þar sem
drykkjuskapur var almennur í
þorpinu og hafði færst í vöxt«, eins
og segir í kaflanum þar að lútandi.
En annaðhvort hefur boðskapurinn
borið svo góðan árangur að félagið
fann sig vera óþarft eða stúkubræð-
ur hafa ekki haft erindi sem erfiði
því síðasti stúkufundurinn var hald-
inn 1956 »og síðan hefur ekki starf-
að bindindisfélag á Eyrarbakka«.
Skömmu eftir aldamótin var svo
stofnað ungmennafélag í anda
þeirrar hreyfíngar sem þá lét svo
mjög að sér kveða um land allt.
Upplýst er að það starfi nú aðeins
sem íþróttafélag og mun það vera í
samræmi við þróun mála annars
staðar á landinu. Er þá ótalið fyrr-
nefnt kvenfélag sem stofnað var
fyrir aldamót og starfar enn. Svo er
að orði komist að það hafi »alltaf
haldið reisn sinni í starfi og mun
vonandi gera um langan aldur«.
Upp úr miðri öldinni hófu Eyrbekk-
ingar að safna gömlum munum með
stofnun byggðasafns fyrir augum.
Er fram í sótti þótti heppilegra að
láta söfnunina sérstaklega taka til
muna sem tengdust sjávarútvegi og
var sjóminjasafn opnað á liðnum
áratug.
Sem að líkum lætur er fjöldi
manns nefndur til sögunnar í bók
þessari. Samt er þetta engin per-
sónusaga, síður en svo. Manna er
einungis getið vegna starfa sinna
eða þátttöku í félagsmálum en ekki
t.d. sakir þess að þeir hafi sett svip
á bæinn. Ekki er heldur verið að
hampa þeim fjölda frægðar- og
áhrifamanna sem ólust upp á Bakk-
anum en störfuðu í höfúðstaðnum
og þóttu bregða ljóma yfir þetta
hnignandi smáþorp sem Eyrar-
bakki taldist vera á öðrum fjórðungi
aldarinnar. Sumra þeirra er raunar
getið í kaflanum Eyrbekkingafélag-
ið, en svo nefndist félag brottfluttra
Eyrbekkinga í Reykjavík. Upplýst
er að það sé nú löngu hætt að
starfa.
Höfundurinn byggir mest á skjal-
festum heimildum og víkur sjaldan
út fyrir efnisrammann. Því síður er
lagður dómur á menn og málefni.
Textinn er klár og gagnorður en
jafnframt notalegur aflestrar. Eftir
lesturinn veit maður hvað Eyrbekk-
ingar störfuðu á umræddu tímabili,
hvemig þeir vörðu frístundum sín-
um og umfram allt hvemig þeim
tókst að laga sig að breyttum tím-
um.
Myndimar, flestar gamlar eins
og fyrr segir, lýsa hversdagslífinu í
fjölbreytileik sínum allar götur frá
því er Eyrarbakki var miðstöð
verslunar á Suðurlandi þar til nú að
hann er orðinn hluti af miklu stærra
sveitarfélagi.
Erlendur Jónsson
Islensk-
bandarískur
Ijóða- og
tóndiskur
MICHAEL Pollock, tónlistarmaður
og skáld, vinnur nú að gerð geisla-
disks með bandaríska rithöfundin-
um Ron Whitehead ásamt Birgittu
Jónsdóttur, skáldkonu, og Daniel
Pollock, tónlistarmanni. Ljóðin á
diskinum em eftir Whitehead en
einnig verða á honum ljóð eftir
Birgittu, Mike og Bandaríkjamann-
inn W. Lawrence. Tónlistin er öll
eftir bræðurna Mike og Daniel og
verður hún af ýmsu tagi.
Ron Whitehead starfaði lengst af
sem prófessor í bókmenntum við
háskólann í Louisville í Bandaríkj-
unum en hefur síðari ár snúið sér að
skáldskap en eftir hann liggja með-
al annars Ijóðasafnið, Blood Filled
Vessels Racing to the Heart og
geisladiskur með upplestri sem
nefnist Tapping my Own Phone.
Nýlega kom svo út skáldsagan Bea-
ver Dam Rocking Chair Marathon.
Whitehead hefur einnig unnið að
skipulagningu fjölda skáldahátíða í
Bandaríkjunum og víðar.
Diskurinn er væntanlegur á
næsta ári.
Bílaleigubílar og sumarhús
í Danmörku
Ódýrir bílaleigubílar fyrir íslendinga
Opel Corsa
Opel Astra
Opel Astra station
Opel Vectra
Vikugjald
dkr. 1.795
dkr. 1.995
dkr. 2.195
dkr. 2.495
3ja vikna gjald
dkr. 4.235
dkr. 5.015
dkr. 5.530
dkr. 6.150
Fóið nónari verðtilboð. Nú til afgreiðslu m.a. ó Kastrup-flugvelli.
Innifalið í verði ótakmarkaður akstur, tryggingar. (Allt nema bensín,
stöðumælasektir, og sektir fyrir of hraðan akstur).
Aðrir litlir og stórir bílar, minibus og rútur.
Utvegum sumarhús, íbúðir og bændagistingu. Höfum íbúðir til leigu or-
lofshverfum með skiptidögum samkvæmt samkomulagi.
Fáið nánari upplýsingar hjá umboðsmanni okkar;
International Car Rental ApS. Danmörk
Fylkir Agústsson, sími 4563745.
Warner’s
Marilyn Monro
Lepel
Valentíno
Lejaby
Udy Collection
Taubert
Che Cosa
o.fl., o.fl.
tataverslun,
ið Kringlunni
li 553 7355
Útsala
Utsala
Cd 40-50%
af s láttur
Dœmi um verð:
Dömujakki
Bómullarpeysa
Hlýrabolur
Rifflaður bolur
Bolur in/v iiúlsni.
Rennd jakkapeysa
Svartur gallujukki
Sítt pils
Dömubuxur
Kjóll
Tmiika toppur
Áður kr.
Ajm
ðJm
im
xvm
jm
zjm
zjm
ium
xm
zjm
Núkr.
2.490
2.490
490
690
390
2.390
1.390
1.790
1.990
2.390
1.690
Opið frá kl. 10.00-18.00
fRíeoöCes
Síðumúla 13, sími 568 2870