Morgunblaðið - 09.07.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 33
í
>
>
I
>
>
I
I
>
.
I
u
I
I
#
I
I
:
o g nú
anna sem börðust um verslunar-
hafnir á 15. og 16. öld hafí verið salt:
„Þegar þeir komu til Grindavík-
ur, voru þeir sviknir og kúgað af
þeim allt, sem var í skipinu: klæði,
léreft og salt, en skip frá Lybiku
varð að leysa þá með lest af öli, lest
af mjöli og lest af smjöri,“ má lesa i
bók Jóns Þórs um „Sögu Grindavík-
ur“, um skip frá Lundúnum sem
kom fyrst 1484 til Vestmannaeyja
og þaðan til Grindavíkur.
En aftur til Brouage, þar sem
saltframleiðslan var á þeim tíma
grundvöllur efnahagslífsins: saltið
var hæst skattlagður söluvarningur
þess tíma, og konungsveldið fyllti
ríkiskassana með tekjum þess.
Skatturinn, nefndur „gabelle", var
óbeinn skattur á neyslu og inn-
heimtur af tollmönnum sem kallaðir
voru „gabelous" - heiti sem er enn
þann dag í dag við lýði um tollmenn
á afskekktum svæðum.
Þessi óbeini skattur á saltneyslu
fól í sér dreifikerfi sem stjómað var
af ríkinu. Ríkið ákvað síðan verð á
salti og seldi það með álögðum
skatti. Charles d’Anjou var fyrstur
til að innheimta saltskatt og gerðist
þannig einráður um sölu salts sem
framleitt var í saltnámum Suður-
Frakklands. Samkvæmt söluskrám
frá 1263 til 1274 var álagningin
fimmfóld miðað við verð til fram-
leiðenda. Gróðinn hefur því verið
um 300% eftir að búið var að draga
frá kostnað. Þessu fyrirkomulagi er
komið á 1343 og saltverslun varð
einokunarverslun konungs. Til að
tryggja þetta fyrirkomulag vom
settar upp í hverju héraði salt-
geymslur sem vom undir beinni
umsjón konungs. Þar var saltkaup-
mönnum skylt að selja vöm sína og
viðskiptavinum að kaupa.
Brouage missti smám saman
mikilvægi sitt þegar Brouage-saltið
mætir aukinni samkeppni frá
Bretagne, Spáni og Portúgal (salt-
skatturinn lifði þó byltinguna af og
var fyrst lagður af 1945) og höfnin
fyllist smátt og smátt upp. Hemað-
arlegt mikilvægi borgarinnar flutt-
ist síðar til Rochefort undir stjórn
„sólkonungsins" og það markar
endalok borgarinnar. Þegar salt-
verslun leggst af í lok 18. aldar var
saltvinnslan hætt. Brouage var
breytt í fangelsi á tímum byltingar-
innar en árlega dó um þriðjungur
íbúa hennar vegna óheilnæms lofts-
lags við mýrarnar. Það er ekki fyrr
en á 19. öld sem mýrarnar vora
þurrkaðar upp og breytt í beitilönd.
Ekki er ýkja langt síðan að fyrrum
saltmýrar fengu nýtt hlutverk í
ostrurækt.
Saltframleiðslan er ekki ennþá úr
sögunni í Charente-Maritime því
ennþá er framleitt salt á eyjunum
Ré og Oléron. í dag á sér stað end-
urnýjun í þessari atvinnugrein:
ungir saltverkamenn hafa flust til
héraðsins og framleiða gæðasalt.
Þessir framleiðendur taka tillit til
viðkvæmrar náttúrunnar og afurðir
þeirra eru til marks um það besta
sem héraðið hefur upp á að bjóða:
sól og skjólsælar strendur. Þessi
afurð er líka þáttur í umfangsmikl-
um viðskiptum t.d. með saltfisk og
er því hluti af nútímalegu hagkerfi.
Sýningin tekur saman þessa sögu
Brouage og saltsins, en gefur líka
innsæi í nútíma Charente Ma-
ritime, sem hefur valið einkennis-
orðin „Land og haf, sigur í samein-
ingu“.
Höfimdur er verzlunarfuUtrúi í
franska sendiráðinu.
Slóðir saltsins fyrr
saltið færði valdamönnum þess
tíma.
Alkunnugt er að salt hefur haft
mikilvæg áhrif í mörgum samfélög-
um, jafnvel verið undirstaða þeirra
eins og í Sahara-eyðimörkinni, þar
sem heilir þjóðflokkar byggðu af-
komu sína á saltverslun milli norð-
urs og suðurs. „Hvíta gullið“ eins og
saltið var kallað í eina tíð var
ómissandi fyrir lífið sjálft. Á norð-
urslóðum var saltverslun löngum
einokuð af Hansakaupmönnum, að-
allega frá Hamborg og Lúbeck, eða
þar til síldin varð svo mikilvægur
hluti af afla norðurlandaþjóðanna.
Útgerðarmenn fóra þá að sækja
saltið sjálfir til Brouage. Minjar
ferða þeirra er enn að finna í Brou-
age: borgarvirkið er byggt á grjóti,
sem kom úr lest skipanna og var
hent við Brouage þegar saltinu var
skipað um borð. Vísindi nútímans
gera okkur kleift að sjá hvaðan
þetta grjót er upprannið en skrifað-
ar heimildir frá þessu tímabili era
af skomum skammti. Hansakaup-
menn neyddust því til að láta einok-
unarverslun af hendi smám saman.
Þótt, eins og fyrr segir, slóðir salts-
ins hafi ekki legið beint frá Brouage
til Islands, sennilega vegna þess að
Islendingar söltuðu ekki fiskinn en
verkuðu í skreið á þeim árum eins
og fram kemur í bók Valdimars U.
Valdimarssonar og Halldórs
Bjamasonar „Saltfiskm- í sögu þjóð-
ar“, er athyglisvert að Englending-
ar notuðu fyrstir salt til eigin nota
til að verka fisk á Islandi í byrjun
14. aldar (fyrsti saltskatturinn er
nefndur í lögum frá 1420) og að ekki
er ósennilegt að í lestum kaupskip-
MARGIR sem lagt hafa
leið sína um Miðbakka
Reykj avíkurhafnar
undanfarið hafa litið inn
í tjald, sem þar stendur
og hýsir sýningu um
salt og saltslóðir. Lítil
umfjöllun hefur verið
um þessa sýningu í fjöl-
miðlum, en hún hefur
vakið forvitni og áhuga
þeirra sem hafa skoðað
hana. Flestir spyrja þó
hvert tilefnið sé og
hvernig standi á því að
salt er efni í heila sýn-
ingu - þar að auki
fransk-íslenska sýn-
ingu.
Hugmyndin að henni vaknaði fyr-
ir um það bil ári, þegar umræður
hófust um möguleika á samvinnu
milli Charente Maritime héraðsins í
Frakklandi og Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum. Þessar um-
ræður leiddu til undirritunar sam-
starfssamnings nú í byrjun júní.
Tengsl þessara svæða í dag era
einkum byggð á saltfiskverslun:
SÍF á öflugt dótturfyrirtæki í hér-
aðinu, nánar tiltekið í Jonzac, og
einu beinu skipasamgöngur milli
Frakklands og Islands era ferðir
saltskipsins Hvítanessins, sem siglir
til Rochefort. En Charente Ma-
ritime, og einkum Brouage (áður
hafnarborg en smáborg inni í landi í
dag), hefur í aldaraðir verið mið-
punktur saltframleiðslu og saltút-
flutnings í Evrópu, allt frá fornöld
til loka 18. aldar. Viðtæk þekldng
minjavarðar Brouage borgar, Nat-
halie Fouquet, og hönnuðarins Jean
Marie Chauvet, svo og vilji Reykja-
víkurhafnar til að setja upp þessa
sýningu í tilefni af Ári hafsins,
gerðu að verkum að sýningin sá
dagsins ljós.
Héraðsstjórn Charente-Maritime
hefur átt í viðskiptum við Island í
fjölda mörg ár, fiskimenn þaðan
sóttu á Islandsmið strax á 16. öld.
Þó að fortíðin gefi ekki tilefni til að
ætla að slóðir saltsins hafi legið frá
Charente-Maritime til
íslands, gefur sýningin
Á slóðum saltsins tæki-
færi til að treysta þau
bönd sem tengja þessi
tvö svæði hvort sem
það er í atvinnulífinu,
umhverfis- eða menn-
ingarmálum. Hafið hef-
ur sterk áhrif á afkomu
þessara svæða, því era
fiskveiðar stór þáttur í
samvinnu þeirra sem og
matvælaframleiðsla og
heilsulindir. Hin fræga
bók Pierre Loti (fædd-
ur í Rochefort) „Á ís-
landsmiðum" endur-
speglar menningararf
hafsins.
Saintonge flóinn við Frakkland
hefur gegnt lykilhlutverki í sögu
Salt, segír Dominique
Plédel-Jónsson, hefur
haft mikilvæg áhrif í
mörgum samfélögum.
saltsins: sögufrægur staður mikillar
saltframleiðslu og gríðarlegs gróða
hennar, þekkt siglingaleið og skipa-
lægi meðal sjófarenda, var hann
miðpunkturinn í eflingu menningar,
efnahags og stjórnmála svæðisins í
þúsundir ára. Brouage, alþjóðleg
viðskiptahöfn, dæmigerður verslun-
arstaður endurreisnartímabilsins,
síðar ósigrandi virkisborg, var
byggð, styrkt og endurbætt af auði
þeim sem af þessari verslun hlaust.
Frá þessum flóa, í hjarta frönsku
strandlengjunnar við Atlantshafið,
lágu slóðir saltsins til allra átta í
Evrópu.
Þegar sagt er að „lífið sé saltfisk-
ur“ á Islandi, hafa Brouage menn
líklega getað svarað að „lífið væri
salt“. í dag liggur Brouage í dvala.
Þessi merkilega og mikilvæga hafn-
arborg í 600 ár liggur nú af náttúr-
unnar hendi langt inni í landi. Virk-
isborg sem ber vitni auðæfum sem
Dominique
Plédel-Jónsson
Spurning 23
Hvaða titil bar
Grease á Ítaiíu?
Léttir störf og
fjölgar frístundum
• Verb fm 14.900 kr.
• Afl 0,8 til 2,5 hestöfl
Eigum hörkutæki fyrír
erfidustu aðstædurnar
Hamraborg I -3 (norðanmegin)
Kópavogur • Sími 564 1864
mmmmm