Morgunblaðið - 09.07.1998, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 47^r
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
1
I
\
I
I
I
i
I
\
BENEDIKT
KRIS TJÁNSS ON
+ Benedikt Krist-
jánsson var
fæddur í Bolungar-
vík 21. ágúst 1910.
Hann lést á Elli-
heimilinu Grund
hinn 2. júlí síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Kristján Gísla-
son, f. 26. júlí 1865,
d. 14. júlí 1941, sjó-
maður í Bolungar-
vík, og kona hans
Sigríður Hávarðar-
dóttir, f. 3. desem-
ber 1873, d. í sept-
ember 1950. Systk-
ini Benedikts voru: Salóme, f. 7.
apríl 1896, d. 6. mars 1912;
Hávarður, f. 26. nóvember
1897, d. í desember 1920; Krist-
ín, f. 10. maí 1900, d. 25. maí
1900; Árni Bárður f. 26. júní
1901, d. 18. júní 1911; Borghild-
ur, f. 30. desember 1903, d. 13.
apríl 1909; Gísli Sveinn, f. 25.
nóvember 1906, d. 22. október
1978, fyrrverandi sundhallar-
forstjóri á ísaflrði, kvæntur
Guðrúnu Vigfúsdóttur vefnað-
arlistakonu; Salómon Borgar, f.
29. nóvember 1913, d. 3. sept-
ember 1945, sjómaður í Reykja-
vík.
Eiginkona Benedikts var Gyða
Guðmundsdóttir, f. 7. janúar
1917, d. 29. nóvember 1991, frá
Skjaldvararfossi á Barðaströnd.
Þau gengu í hjónaband 25. jan-
úar 1944. Börn
þeirra eru Kristján,
f. 3. febrúar 1943,
rafverkfr. í Reykja-
vík, hann á eina
dóttur, Ástu Sól, f.
26. júní 1975; Frið-
gerður Sigríður, f.
16. nóvember 1946,
börn hennar eru
Bryndís, f. 14. des-
ember 1965, Gyða
Björk, f. 15. júlí
1967, og ísak, f. 13.
júlí 1972. Bama-
barnabörnin em
fjögur.
Benedikt fór fyrst á sjóinn fjórt-
án ára og var sjómaður í Bol-
ungarvík til 1935. Hann var sjó-
maður í Reykjavík 1935-1945 og
verkamaður hjá Eimskip í
Reykjavík 1945-1982. Hann var
sérstakur áhugamaður um skák,
söng og íslenska glímu og fylgd-
ist vel með fram á efri ár. Hann
var um skeið formaður Taflfé-
lags alþýðu og tefldi á fyrsta
borði fýrir Eimskip í sveita-
keppni í skák árið 1964. Hann
söng í Kirkjukór Bolungarvíkur,
Karlakór Bolungarvíkur,
Hörpukómum og Barðstrend-
ingakómum og var einsöngvari
með Kirkjukór Bolungarvíkur.
títför Benedikts fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15. Jarðsett
verður í Fossvogskirkjugarði.
Mig langar til að minnast Bene-
dikts Kristjánssonar frá Bolungar-
vík, afar kærs fóðurbróður míns,
með nokkrum orðum. Þegar ég
fæddist var Benedikt eina eftirlif-
andi systkini fóður míns og báðir
foreldrar þeirra látnir. Þeir bræð-
urnir voru því tveir eftir og afar
sterk bönd á milli þeirra og talaði
faðir minn oft um „Bensa bróður“
með mikilli hlýju og virðingu. Þeir
fæddust og ólust upp í Bolungarvík
og voru ætíð miklir Bolvíkingar og
stoltir af uppruna sínum. Þeir
bræður voru mjög líkir í útliti og
áttu margt sameiginlegt. Báðir
tóku virkan þátt í starfsemi Ung-
mennafélags Bolungarvíkur og
voru meðal annars glímumenn góð-
ir, liðtækir í taflmennsku og fylgd-
ust alla tíð vel með heimsviðburð-
um í skák og sund var báðum eftir-
lætisíþrótt. Ekki má gleyma áhug-
anum á sönglistinni og ágætum
sönghæfileikum sem báðir fengu í
vöggugjöf. í ættinni voru söng-
menn góðir og söngur í hávegum
hafður í Bolungarvík þegar þeir
bræður uxu úr grasi. Þeir tóku síð-
ar virkan þátt í kórsöng þar og víð-
ar og nutu þess alla tíð að hlusta á
flutning á íslenskum sönglögum.
Þeir bræðurnir áttu það til að taka
lagið saman og hafa gaman af. Það
gat endað í miklum hlátursrokum
ef annar hvor þeirra fór út af lag-
inu.
Benedikt missti því mikið þegai'
faðir minn lést fyrir tæpum tuttugu
árum. Hann talaði oft um bróður
sinn við mig sem skapaði sterkt
samband á milli okkar. Benedikt
hélt minni sínu í einu og öllu og ef
vöknuðu spurningar af minni hálfu
um uppvaxtarár þeirra í Bolungar-
vík eða líf og starf framan af ævi þá
gat ég ætíð leitað í minningasjóð
Bensa frænda. Þetta var mér afar
dýrmætt og á hann miklar þakkir
skildar fýrir. Gísli, sonur minn, sem
ber nafn fóður míns, fann fyrir sér-
stakri væntumþykju af hálfu Bene-
dikts vegna nafnsins sem tengdist
minningunni um kæran bróður.
Mér eru mjög minnisstæðar
heimsóknir Benedikts og Gyðu til
ísafjarðar þar sem fjölskylda mín
bjó. Fastur liður var ferð til Bol-
ungarvíkur til að heimsækja æsku-
stöðvarnar. Það var ákveðin helgi
yfir þessum ferðum, sem um pfla-
grímsferð væri að ræða. I þá daga
þótti vegurinn til Bolungarvíkur
mjög hættulegur og mér fannst
þetta vera heilmikið ferðalag. Lögð
var leið að Gnmdarhóli, þar sem
æskuheimili bræðranna hafði stað-
ið, farið upp að kirkjunni og hún
skoðuð og farið í kirkjugarðinn til
að votta látnum ættingjum virð-
ingu. Mér eru mjög minnisstæðar
sögurnar sem þeir bræðurnir sögðu
af atvikum úr uppvexti sínum, m.a.
erfiðum lífskjörum og láti systkina
sinna vegna veikinda eða af slysför-
um.
Benedikt stundaði sjómennsku
framan af og vann síðar við upp-
skipumn. Hann settist að í Reykja-
vík og kvæntist Gyðu Guðmunds-
dóttur, ættaðri frá Barðaströnd,
sem lést fyrir nokkrum árum. Hún
var mér og fjölskyldu minni sér-
staklega kær fyrir margra hluta
sakir og var gestrisni hennar og
hjálpsemi við aðra einstök. Heim-
sóknir okkar á heimili þeirra í
Barmahlíð 55 voru orðnar margar
og matarboð og veislur ófáar. Eg
var meðal annars heimagangur þar
á meðan ég stundaði nám við Kenn-
araskóla Islands. Þau Benedikt og
Gyða eignuðust þrjú börn, Ki'ist-
ján, Friðgerði Sigríði og Ársæl.
Benedikt dvaldist síðustu árin á
Elli- og hjúkrunarheimilinu Gnmd.
Hann hafði áður notið þess að fara í
langar gönguferðir og fannst miður
þegar fótamein kom í veg fyrir að
hann gæti farið ferða sinna um bæ-
inn sem fyrr. Eg man frá fyrri ár-
um eftir daglegum gönguferðum
hans og lá leið hans m.a. oft um
Öskjuhlíðina. Hann sagði mér að
hann hefði sundskýluna sína ætíð í
vasanum og skellti sér í laugamar
þegar hann gæti komið því við.
Þegar líða tók á ævi var Bensi
frændi misvel upplagður til að fá
heimsóknir eða til að fara á manna-
mót. Honum leið oft betur annan
daginn og var þá í essinu sínu og
H Erfidrykkjur
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
^ Sími 562 0200 ..
rx i x 111 ixixxj
lék á als oddi. Hinn daginn kaus
hann fremur að hafa hægt um sig
og hvflast. Þrátt fyrir vanlíðan og
hrakandi heilsu var honum mikil-
vægt að halda reglulegu sambandi
og fannst gaman að líta inn eða
koma í afmæli, fermingar o.fl. þeg-
ar hann hafði heilsu til.
Með Benedikt er horfinn á braut
kær fóðurbróðir og um leið hlekk-
urinn minn dýrmæti við ættarupp-
runa í foðurætt. Ég átti eftir að
ræða svo margt við Bensa frænda
og spyrja hann svo margs. Ég og
fjölskylda mín erum þakklát fyrir
allar stundirnar sem við áttum með
honum og varðveitum þær í minn-
ingunni. Ég færi mínar innilegustu
samúðarkveðjur til barna og barna-
barna og fjölskyldna þeirra. Þar
sem ég er stödd vestan hafs get ég
því miður ekki fylgt frænda síðasta
spölinn en verð nálæg í huga.
Eyrún ísfold Gísladóttir.
í dag kveðjum við afa okkar
Benedikt Kristjánsson, sem við
alltaf kölluðum afa Bensa, hinstu
kveðju. Afi náði háum aldri og var
við góða líkamlega heilsu lengstum,
þökk sé því hve hann var duglegur
að ganga og meðvitaður um mátt
og heilbrigði hollrar hreyfingar.
Hann bjó á elliheimilinu Grund frá
því skömmu eftir að ævifélagi hans,
amma Gyða, dó árið 1991. Avallt er
við komum í heimsókn þurfti hann
margs að spyrja því hann vildi
fylgjast vel með því sem var að ger-
ast í nánustu fjölskyldu hans.
Afi var Vestfirðingur, fæddur og
upp alinn í Bolungarvík og var
hann stoltur af uppi-una sínum.
Lífsbaráttan á fyrstu áratugum
aldarinnar var hörð og af átta
systkinum náðu aðeins tveir bræð-
urnii' miðjum aldri, afi og Gísli
bróðir hans sem hann var tengdur
nánum böndum. Aðeins 14 ára
gamall fór afi á sjóinn og stundaði
hann sjómennsku í 20 ár.
Afi fluttist suður til Reykjavíkur
árið 1935 og byggði ásamt ömmu
íbúð í Barmahlíð 55. I Reykjavík
vann hann sem verkamaður
starfsævina á enda, lengst af hjá
Eimskip. Þar ólust upp móðir okk-
ar, Friðgerður Sigríður, og tveir
bræður hennar, Arsæll og Krist-
ján. Afi var nægjusamur og dug-
legur og vildi ekki skulda neinum
neitt. Helsta yndi afa var tenór-
söngur og var söngvarinn Caruso í
mestu uppáhaldi. Hann tók þátt í
kórstarfi bæði fyrir vestan og eins
eftir að hann fluttist suður. Einnig
hafði hann mikla ánægju af tafl-
mennsku og tefldi á mörgum mót-
um.
Undir það síðasta var afi orðinn
lasburða og við þökkum það hve
hann fékk hvfldina fljótt og átaka-
laust með dóttur sína sér við hlið.
Við systkinin þökkum elskulegum
afa okkar samfylgdina og óskum
þess að vel verði tekið á móti hon-
um hinum megin. Langafastelpurn-
ar fimm sem alltaf löðuðu fram
bros hjá langafa kveðja hann með
söknuði. Það verður erfitt fyrir þær
að skilja að hann er ekki lengur á
sínum stað og þær yngstu munu
einungis muna hann af frásögnum
okkar. Guð blessi minningu afa
okkar.
Bryndís, Gyða Björk,
ísak og Qölskyldur.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sótarhringinn.
t
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
GUNNAR FREYSTEINSSON,
lést af slysförum sunnudaginn 5. júlí.
Freysteinn Sigurðsson, Ingibjörg Sveinsdóttir,
Ragnhildur Freysteinsdóttir.
t
Ástkær móðir mín, amma og langamma,
KRISTJANA ÞORKELSDÓTTIR,
Vesturgötu 7,
sem lést fimmtudaginn 2. júlí, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 10. júlí kl. 13.30
Fyrir hönd aðstandanda,
Skúli Einarsson,
Ingifríður R. Skúladóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
AÐALHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
Austurbrún 2,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Áskirkju á morgun,
föstudaginn 10. júlí, kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim,
sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Barnaspítala Hringsins.
Sigrún Jónsdóttir Kundak,
Magnús Skarphéðinsson,
Reynir Skarphéðinsson,
Helga Guðmundsdóttir,
Adda C. Kundak,
Jón-Ali Kundak,
Benedikt B. Ægisson,
Yrsa R Magnúsdóttir,
Stefán K. Magnússon
og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður, sonur minn og bróðir, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRKELL GUNNAR BJÖRGVINSSON,
Eyravegi 5,
Selfossi,
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 30. júní,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju á morgun,
föstudaginn 10. júlí, kl. 13.30.
Friðsemd Eiríksdóttir
Sigrfður Þórðardóttir,
Sigurður Björgvin Björgvinsson,
Þórður Þórkelsson, Lilja Hjartardóttir,
Sigurvin Þórkelsson,
Sveinbjörn Þórkelsson, Halla Thorlacius,
Eirikur Þórkelsson, Unnur Lísa Schram,
Kristrún Þórkelsdóttir, Anton Örn Schmidhauser,
Helga Þórkelsdóttir, Arnar Halldórsson
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JANE PETRA GUNNARSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 10. júlí kl. 14.00
Gunnar Þór Jónsson,
Theodór Guðjón Jónsson,
Guðbjörg Irmý Jónsdóttir,
Örn Stefán Jónsson,
Rúnar Már Jónsson
Inga Marfa Ingvarsdóttir,
Ragnheiður St. Thorarensen,
Róbert Þór Guðbjörnsson,
Ása Kristín Margeirsdóttir,
og barnabörn.