Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGLÝSINGAR
1P
TOLVU Vil iÐLU il
Tölvumiðlun ehf. er 13 ára hugbúnaðarfyrirtæki, sem sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og
þjónustu hugbúnaðar. Aðal áherslusvið fyrirtækisins er hugbúnaður fyrir launavinnslu,
sjúkrahús og sveitarfélög. Þekktasta vara fyrirtækisins er launakerfið H-Laun. H-Laun er í
notkun hjá rúmlega 500 launagreiðendum, þ.á.m. flestum sjúkrahúsum, sveitarfélögum og
skólum landsins ásamt stórum jafnt sem smáum fyrirtækjum Meðal notenda eru mörg af
þekktustu fyrirtækjum landsins s.s. Eimskip, Samskip, Hagkaup, Nóatún, ÍSAL, Nói-Siríus
og Ölgerðin Egill Skallagrímsson. Vegna samstarfssamninga mun notendafjöldi tvöfaldast
á næstunni. Tölvumiðlun er stærsta hugbúnaðarfyrirtækið hér á landi í gerð hugbúnaðar
fyrir heilbrigðisgeirann, og systurfyrirtæki Tölvumiðlunar hefur náð góðum árangri í
útflutningi á slíkum kerfum. Hjá fyrirtækinu starfa nú 20 manns.
Áhugaverð störf hjá framsæknu fyrirtæki
Þjónusta fyrir sveitarfélagakerfin
Starfið felst í uppsetningu, kennslu og þjónustu við notendur sveitarfélagakerfa
Tölvumiðlun ar.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með haldbæra menntun á sviði tölvutækni
og/eða viðskipta. Jaíhffamt koma til greina aðilar með stjómunarreynslu hjá
sveitarféiögum. Áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð og hæíni í samskiptum.
Þjónusta fyrir H-Laun
Starfið felst í uppsetningu, kennslu og þjónustu við notendur H-Launa og
Starfsmannakerfis H-Launa.
Hæfniskröfur eru haldbær menntun á sviði tölvutækni og/eða viðskipta. Aðilar með
marktæka reynslu af þjónustu við einmenningstölvur koma einnig til greina. Áhersla er
lögð á þjónustulund og fagmennsku í hvívetna.
Forritun á heilbrigðiskerfum
Starfið felst í forritun á LEGU, legudeildakerfi Tölvumiðlunar, sem er í notkun á
mörgum sjúkrahúsum hér á landi. Einnig er unnið að gerð fleiri kerfa fyrir sjúkrahús
ásamt því sem verið er að þróa útgáfur kerfanna fyrir markaði erlendis.
Hæfniskröfur em að umsækjendur séu menntaðir á sviði hugbúnaðargerðar og
hugbúnaðarþróunar. Kostur er marktæk reynsla á hugbúnaðarsviði.
r
I boði eru
Áhugaverð og krefjandi störf hjá faglegu og framsæknu hugbúnaðarfyrirtæki.
Vinnuaðstaða er þægileg, liðsandi góður og góð latm fyrir rétta aðila.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí n.k. Ráðningar verða sem fyrst.
Guðný Harðardóttir veitir nánari upplýsingar um ofangreind störf. Viðtalstímar
eru frá kl. 10-13. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem er
opin frá kl. 10-16 alla virka daga..
STRA ehf.
STARFSRÁÐNINGAR
GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR
Mörkinni 3,108 Reykjavík, sími: 588 3031, bréfsími 588 3044
.
Ritari óskast
á umsvifamikla fasteignasölu. Framtíðarstarf.
Uppl. sendist til afgreiðslu Mbl. sem fyrst og
eigi síðar en 14. júlí, merktar; „Ritari — 5286".
Múrarar óskast
Múrarar óskast til starfa strax. Mikil vinna
framundan. Upplýsingar í síma 892 5106.
Kristjan Sigurjónsson,
múrarameistari
Staða gjaldkera
Staða gjaldkera í almennri afgreiðslu lögreglu-
stjóraembættisins í Reykjavík er laus til um-
sóknar. Um fullt starf er að ræða. Viðkomandi
verður að vera skipulagður í vinnubrögðum,
talnaglöggur, nákvæmur og hafa góða fram-
komu. Reynsla af gjaldkerastörfum æskileg.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí nk.
Umsóknum sé skilað til starfsmannastjóra,
sem gefur nánari upplýsingar.
Lögreglustjórinn í Reykjavík.
Utanríkisráðuneytið
Læknar
Auglýst er eftir lækni til starfa í heilsugæslusveit
innan friðargæslusveita Atlantshafsbandalags-
ins (SFOR) í Bosníu-Hersegóvínu. Sveitin mun
starfa undir verkstjórn breska hersins skv. samn-
ingi milli íslenskra og breskra stjórnvalda.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf í
september nk. og að ráðningartíminn verði
sex mánuðir. í ágúst 1998 mun heilsugæslu-
sveitin gangast undir þjálfun í Bretlandi.
Leitað er að duglegum og samviskusömum
einstaklingi, sem getur unnið sjálfstætt við
erfiðar aðstæður, á auðvelt með að umgangast
aðra og taka leiðsögn. Nauðsynlegt er að við-
komandi hafi gottvald á ensku og hafi mikla
aðlögunarhæfileika.
Upplýsingar um kaup og kjörfást á alþjóða-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun, fyrri
störf, tungumálakunnáttu og meðmælendur,
sendist utanríkisráðuneytinu, alþjóðaskrifstofu,
Rauðarárstíg 25,150 Reykjavík.
Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðu-
blöðum.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí 1998.
Litið verður svo á, að umsóknir gildi í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út,
nema annað sé sérstaklega tekið fram í um-
sókninni.
HRÍSEYJARHREPPUR
Sveitarstjóri
Hríseyjarhrepps
Starf sveitarstjóra Hríseyjarhrepps er laust til
umsóknar. Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri
sveitarfélagsins, situr á fundum sveitarstjórnar
með málfrelsi og tillögurétt. Sveitarstjóri hefur
á hendi framkvæmd þeirra ákvarðana sem
sveitarstjórn tekur, er prókúruhafi sveitarsjóðs
og æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitar-
félagsins.
í boði er krefjandi starf fyrir áhugasaman ein-
stakling. Ráðningartími sveitarstjóra er hinn
sami og kjörtímabil sveitarstjórnar, þ.e. 4ár.
Áskilin er góð menntun og hagnýt starfs-
reynsla. Starfskjör verða ákveðin í ráðningar-
samningi. Húsnæði er í boði.
Hríseyjarhreppur er sveitarfélag með um 230
íbúa. í sveitarfélaginu er rekin hitaveita, vatns-
veita, leikskóli, grunnskóli og sundlaug.
Þá er rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars í hönd-
um sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Narfi
Björgvinsson, oddviti, í símum 466 1745 eða
898 7345.
Umsóknirskulu berast á skrifstofu Hríseyjar-
hrepps, Skólavegi, 630 Hrísey.
Umsóknarfrestur til 20. júlí 1998.
Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps.
„Au pair" Sviss
„Au pair" óskasttil Genfartil að annast fjögurra
ára stúlku á skólaaldri. Reykingar óæskilegar.
Upplýsingar í síma 553 2156, helst á morgnana
eða kvöldin.