Morgunblaðið - 09.07.1998, Page 56
56 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
í DAG
Verður kosið
um málefnin?
Frá Bjarka Má Magnússyni:
FYRIR okkur sem búsett erum er-
lendis er sem gull að komast í ís-
lensk dagblöð, jafnvel þótt ekki sé
um nýjustu tíðindi að ræða.
Svo virðist á greinaskrifum hér í
blaðinu að hugsanlegt sameiginlegt
framboð á „vinstri væng“ sé ofarlega
í umræðunni á íslandi.
Greinamar eru margar skrifaðar
af miklu kappi og er sjónum höfunda
yfirleitt beint að hinu slæma starfi er
núverandi stjómarflokkar hafa unn-
ið fremur en að fjalla um hugsanlega
kosti sameiginlegs framboðs. Það
sem einnig vekur athygli lesenda er
jákvætt viðhorf greinarhöfunda til
R-listans er gerir þá ótrúverðuga í
málflutningi sínum gegn Framsókn-
arflokknum.
Að mínu mati er mikilvægast að
draga fram í dagsljósið málefni
hugsanlegs framboðs því um málefn-
in munum við kjósendur kjósa um á
næsta ári.
Við munum ekki kjósa „vinstra
framboð" eingöngu vegna þess að
núverandi stjórn hefur vegið að rétt-
indum verkafólks og „sameiginleg-
um auðlindum þjóðarinnar".
Við kjósendur verðum að vera
sannfærðir um að vænta megi veiga-
mikilla breytinga á skiptingu þjóðar-
auðsins ef „vinstra framboð" á aðild
að næstu ríkisstjórn.
Málefnalega umræðu vantar, að
mínu mati og án hennar get hvorki
ég né aðrir kjósendur tekið afstöðu
með „vinstra framboði".
BJARKI MÁR MAGNÚSSON,
c/o Imnander, Sysslomansgatan 8,
4 tr, 112-41 Stokcholm.
Um sérkennslu
Frá Þorleifi Haukssyni:
VIÐ lestur á greinaflokki Helgu Sig-
urjónsdóttur hér í blaðinu rifjaðist
upp fyrir mér eftirfarandi dæmi-
saga. Fjölskylda mín bjó í Svíþjóð í
rúm átta ár, og þar hófst skólaganga
elstu dótturinnar. Það voru um 25
nemendur í bekknum og í stofunni
við hliðina var annar 25 manna bekk-
ur og kennaramir höfðu nána sam-
vinnu sín á milli. En þriðji kennarinn
tilheyrði líka hópnum. Sá, eða sú,
þetta var allt kvenfólk, hafði htla
stofu til umráða á milli hinna
tveggja. Þar var þeim kennt að lesa
sem áttu erfítt með það og þar var
nemendum sinnt sem trufluðu venju-
legt bekkjarstarf. Og þangað fengu
hinir nemendumir stundum að
koma. Það var alltaf mikið tilhlökk-
unarefni, þau fengu næði fyrir látun-
um í hinum krökkunum, fengu að
lesa eitthvað skemmtilegt og þar var
kennari sem gaf sér tíma til að sinna
þeim persónulega. Þau tóku eftir að
sumir nemendur fengu að vera
þarna oftar en aðrir og þeir þóttu öf-
undsverðir. Dóttir mín var fegin
þegar hún var tekin þama inn í
framburðarþjálfun reglulega í
nokkra tíma en var útskrifuð vonum
fyrr og gat þá sagt skær stjarna og
sjö hundruð sjötíu og sjö sjóveikir
hjúkrunarfræðingar á lýtalausri
sænsku án þess að depla auga.
Það liggur í augum uppi að ekki er
nóg að veita fé tíl sérkennslu. það
þarf að verja því rétt, standa vel að
framkvæmdinni, gagnvart þeim nem-
endum sem sérkennslunnar njóta og
ekki síður gagnvart bekkjarsystkin-
um þeirra. Við aðstæður eins og þær
sem ég var að lýsa er óhugsandi að
nemandi væri lagður í einelti og kall-
aður „sérkennslufiíl". Greinilega eig-
um við enn margt ólært, bæði að því
er varðar áherslur og stefnumótun i
skólastarfí og uppeldisfræðilega
menntun kennara.
ÞORLEIFUR HAUKSSON,
Laugarásvegi 13, Reykjavík.
Sumarbrids
1998
IJmsjón Arnór G.
Ragnarsson
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 5. júlí
var spilaður Mitchell-tvímenningur.
Lauk hér sjöundu spilavikunni í
sumar og varð staða efstu para
þessi (meðalskor 216):
NS
EggertBergs.-ÞórðurSigfús. 265
Erlendur Jóns. - Þórður Bjöms. 264
Hrólfur Hjaltas. - Friðjón Þórhalls. 231
Hafþór Kristjáns. - Rafn Thorarensen 225
AV
Erla Siguijónsd. - Eðvarð Hallgrímss. 267
Oskar Sigurðss. - Sigurður Steingrímss. 254
BaldurBjartmarss.-HalldórÞorvaldsson 241
Jens Jensson - Guðmundur Baldursson 240
Þórður vann vikuna. Röð efstu
manna í liðinni viku varð svona:
Bronsstíg
Þórður Sigfússon 89
Gylfi Baldursson 70
Steinberg Ríkarðsson 60
Erla Siguijónsdóttir 45
Friðjón Þórhaflsson 42
Cecil Haraldsson 37
Að launum fyrir efsta sæti vik-
unnar fær Þórður 3ja rétta kvöld-
verð fyrir tvo á LA Café.
Mánudagskvöldið 6. júlí mættu 32
pör til leiks. Spilaðar voru 14 um-
ferðir, tvö spil á milli para. Meðal-
skor var 364 og þessi pör urðu efst:
NS
Þórður Sigfússon - Torfi Ásgeirsson 427
SigurleifurGuðjónss.-LofturÞórPéturss. 412
Jón V. Jónmundss. - Baldur Bjartmarss. 400
Jón St Ingólfss. - Garðar Jónsson 399
AV
Guðrún Jóhannesd. - Bryndis Þorsteinsd. 454
JóhannMagnússon-KristinnKarlsson 418
JónÞórKarlsson-SigurðurAmundason 407
Guðmundur Friðbjömss. - Kristinn Ingvas. 384
Spilað er öll kvöld nema laugar-
dagskvöld og hefst spilamennskan
alitaf kl. 19:00 Spilastaður er að
venju Þönglabakki 1 í Mjódd, hús-
næði Bridgesambands íslands. Út-
sláttarsveitakeppni er spiluð að
loknum tvímenningi á föstudags-
kvöldum og hefst hún um kl. 23:00.
Hægt er að mæta í hana eingöngu,
en þá er betra að vera búinn að skrá
sig símleiðis (S. 5879360). Allir eru
hvattir til að mæta, hjálpað er til við
að mynda pör og sveitir úr stökum
spilurum.
Norðurlandamót
NORÐURLANDAMÓTINU í
brids var að ljúka í Klækken í Nor-
egi. I síðasta leiknum í opna flokkn-
um léku Islendingar við Færeyinga
og var leikurinn mjögjafn eða 16-14
fyrir Islendinga. Fyrri leikurinn í
morgun við Norðmenn fór 23-7 fyrir
ísland.
Staðan í opna flokknum:
1. Noregur 188
2. ísland 172
3. Danmörk 168
4. Svíþjóð 152
5. Finnland 122
6. Færeyjar 88
í kvennaflokknum spiluðu ís-
lensku konurnar við fínnsku kon-
urnar og töpuðu 11-19 og enduðu
mótið á yfirsetu og fengu 18.
Staðan í kvennaflokknum:
1. Svíþjóð 176
2. Noregur 162
3. Danmörk 160
4. ísland 146
5. Finnland 136
í kvennaflokki spiluðu: Hrafn-
hildur Skúladóttir, Soffía Daníels-
dóttir, Amgunnur Jónsdóttir, Svala
Pálsdóttir og fyrirliði er Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
Spilarar í opnum flokki eru: Jakob
Kristinsson, Jónas P. Erlingsson,
Magnús E. Magnússon, Anton Har-
aldsson og Sigurbjörn Haraldsson.
VELVAKANÐI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Tilvist drauga
og huldufólks
ÉG VAR að horfa á þátt á
Stöð 2 2. júm', þar var mað-
ur að spyija bæði fullorðið
fólk og börn hvort þau
tryðu á drauga og forynjur.
Ég varð undrandi á þessum
menntaða manni að spyrja
þannig. Ég hélt að allir
tryðu á Guð. Það er að
sjálfsögðu sitt hvað að trúa
á eitthvað eða viðurkenna
tílveru þess. Ég trúi ekki á
þá sem ég umgengst dag-
lega, en ég viðurkenni að
sjálfsögðu tilveru þeirra.
Eins er með það sem
kallað eru draugar og
huldufólk, ég trúi ekki á
það en ég viðurkenni að
þessar hulduverur eru til
og allt í kringum pkkur,
þó fæstir sjái þær. Ég hef
orðið fyrir ásókn af verum
sem yrðu sjálfsagt kallað-
ar draugar, það hefur
gengið misvel að losna við
þessar verur en hefur þó
tekist með Guðs hjálp.
Það hafa líka á erfiðum
stundum komið til mín
yndislegar verur sem hafa
umvafið mig ástúð og
kærleika, mig vantar orð
til að lýsa því en get að-
eins þakkað Guði fyrir
þær stundir.
Það er svo margt í
kringum okkur sem fæstir
átta sig á og reyna ekki að
skilja. Ég vara fólk við að
gera grin að því sem það
veit ekki hvað er en álítur
sig vita. Við erum flest
óþroskuð börn á þessu
sviði og þurfum að fá hjálp
hjá þeim sem lengra eru
komnir á þroskabrautinni.
Margrét Jónsdóttir
frá Fjalli.
Lága verðið frá Akur-
eyri er himinhátt
í Reykjavík
NÝLEGA var sagt frá því
í fréttum að lágverðsversl-
un frá Akureyri ætlaði að
hasla sér völl í Reykjavík.
Mikil eftírvænting ríkti
meðal íbúa hverfisins þar
sem hin nýja verslun áttí
að vera og allir biðu
spenntir eftir að sjá hvaða
kostakjör yrðu nú í boði.
Loks þegar þessi norð-
lenska „lágverðsverslun“
var opnuð um síðustu mán-
aðamót kom í Ijós að allt
var tóm blekking.
Mjólkurlítrinn kostar
þar 73 krónur sem er
hærra en í næstu 10-10
verslun og 6 krónum
hærra en í næstu Hag-
kaupsverslun. Það munar
nú um minna. Þar að auki
hafði nýi eigandinn fellt
niður 5% afslátt sem fyrri
eigandi hafði veitt eldri
borgurum. Það er eins og
sumir kaupmenn haldi að
hægt sé að bjóða við-
skiptavinum hvað sem er,
bara ef eigandinn kallar
verslun sína lágverðsversl-
un þá þyrpist fólk að í
blindni og haldi að allt sé
ódýrara en annars staðar.
En það er mesti misskiln-
ingur. Meira að segja eldri
borgarar sjá i gegnum
svona blekkingu. Þó að
ekki séu allar vörur verð-
merktar í hillunum er
hægt að fara með kassa-
kvittun heim og bera sam-
an verð milli verslana. Og
eitt er vist, eldri borgarar
munu ekki fjölmenna í
þessa nýju verslun. Það
má nýi eigandinn bóka.
Eldri borgari.
Tapað/fundíð
Farsími tapaðist
MOTOROLA 7200 farsími
í grænleitri tösku tapaðist
á leiðinni frá Krókhálsi
upp í Grafarvog. Uppl. í
síma 5671953, GSM
897 9956.
Karlmannsúr fannst
CASIO karlmannsúr
fannst í Rauðhólum á
páskadag. Uppl. í síma
557 1438.
Lyklakippa
fannst
LYKLAKIPPA fannst.
Eigandinn var að skoða
íbúð á Langholtsveginum á
sunnudag og gleymdi
lyklunum þar. Uppl. í síma
568 3361, Guðrún.
Hjól fannst
FJALLAHJÓL, fjólublátt
og bleikt að lit, fannst í
Vogahverfí. Uppl. í síma
553 5254 eða 568 6438.
Dýrahaid
Páfagaukur
fannst
PÁFAGAUKUR flaug inn
um glugga á kaffistofu Haf-
rannsóknastofnunar, Skúla-
götu 4. Fuglinn er hvítur,
með grátt og ljósblátt í
vængjum og hvítan haus.
Eigandi getur vitja fuglsins
í Dýraríkinu, Grensásvegi.
Kettlingar fást gefíns
GÆFIR og góðviljaðir
kettlingar óska eftir ást-
ríku heimili. Kassavanir og
algjör krútt. Uppl. í síma
552 0834.
Geltur högni
fæst gefíns
DÓRI-NÓRI, svartur og
hvítur högni, 3ja ára, fæst
gefins til góðrar fjölskyldu
vegna búferlaflutninga.
Upplýsingar í síma
552 8878 eftir kl. 18. í dag.
Morgunblaðið/ Sverrir
VIÐ ELLIÐAVATN
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI lagði land undir fót
fyrir skömmu og brá sér norð-
ur í land. Var þetta fyrsta fór hans
út á þjóðvegina eftir að lögreglan
hóf sérstakt átak gegn hraðakstri.
Er skemmst frá því að segja að átak
lögreglunnar hefur þegar borið ár-
angur, ef miðað er við fyrri ferðir
Víkverja um þjóðveg númer eitt.
Það er áberandi að mjög hefur
dregið úr ökuhraða. Flestum bílum
var ekið á 90-100 km hraða miðað
við klukkustund og á leiðinni
Reykjavík-Akureyri voru það að-
eins tveir bílar sem brunuðu fram-
hjá á ofsahraða, á að giska 120-130
km hraða. Sama var uppi á teningn-
um þegar sama leið var ekin til
baka.
Að mati Víkverja er hér um mikið
framfaraspor að ræða. Um margra
ára skeið hefur ökumönnum liðist
að vanvirða lög um hámarkshraða á
þjóðvegunum. Lögreglan virðist
hafa verið með málamyndaeftirlit
og varla um að ræða að ökumenn
hafi mætt lögreglunni nema í ná-
grenni við Blönduós.
xxx
SEM BETUR fer hafa yfirvöld
lögreglumála séð að við svo búið
mátti ekki standa. Slysin á þjóðveg-
unum hafa verið óhugnanlega tíð og
helsta leiðin til að sporna við þeim
er að draga úr umferðarhraðanum.
Mikilvægt er að ekki verði bara um
tímabundið ástand að ræða og að
allt fari í sama farið aftur. Eftirlit-
inu þarf að halda áfram af fullum
krafti allan ársins hring.
xxx
OTRÚLEGUR munur er að aka
þjóðvegina nú til dags miðað
við ástandið fyrir nokkrum árum
þegar langir kaflar á þjóðvegi
númer eitt voru ómalbikaðir. Nú
er hægt að aka vegina á jöfnum og
góðum hraða. Verstu staðirnir
hafa verið lagaðir, s.s. á Öxnadals-
heiði, og tvíbreiðum brúm fer
fjölgandi.
Aðeins þar sem unnið er að vega-
bótum þurfa ökumenn að draga um-
talsvert úr hraða. Ekki virða allir
ökumenn þær hraðatakmarkanir og
nokkrum sinnum fékk Víkverji
grjótdrífu yfir bílinn sinn. Hver ber
ábyrgðina ef umtalsverðar
skemmdir verða á lakki bíla við slík-
ar aðstæður? Fróðlegt væri að fá
svar við því.
Víkverja finnst einkennilegt að
ekki skuli finnast hentugri aðferð til
að setja slitlag á vegi en sú að bera
á veginn tjöru og fínkoma möl þar
ofan á. Bílamir eru síðan látnir
þjappa mölinni í tjömna með til-
heyrandi grjótflugi. Hvers vegna
eru vegimir ekki malbikaðir eins og
gert er í borgum og bæjum?