Morgunblaðið - 07.08.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.08.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1998 23 LISTIR Fimlega út- fært spilverk TOMLIST Dómkirkjan ORGELTÓNLEIKAR Andreas Jacob lék verk eftir Liibeck, Pachelbel, J.S. Bach, Brahms og Mendelssohn. Mið- vikudaginn 5. ágúst. ÞAÐ kemur fyrir að tónlistar- menn, sem eiga leið hér um hlað- ið hjá okkur Islendingum, taka sig til og halda tónleika og svo var um Andreas Jacob, orgelleik- ara frá Niimberg. Jacob hóf tón- leikana á prelúdíu eftir Vincent Lúbeck, er starfaði lengst af sem orgelleikari í Hamborg. Lúbeck var af ætt „organista" í tvær ald- ir og þó aðeins hafí varðveist níu orgelverk eftir hann hefur hon- um verið skipað á bekk með Buxtehude. Jólakantatan Will- kommen sússer Bráutigam, eftir Lúbeck, nýtur enn vinsælda í Þýskalandi. Strax við upphaf leiksins hjá Jacob var ljóst að hann er töluverður „tekniker" og hefur yfir að ráða mjög léttri og leikandi fótspilstækni. Þrátt fyr- ir þetta var leikur Jacobs nokkuð yfírlætislegur og á köflum ógæti- lega útfærður. Sjakonnan í F eftir Núrnberg- orgelleikarann Pachelbel var fal- lega flutt en þar á eftir lék Jacob D-dúr-prelúdíuna og fúguna BWV 532 eftir J.S. Bach og þar mátti og heyra tölvert óþol í leik þessa ágæta orgelleikara. Upp- hafið á prelúdíunni, sem er eins konar tokkata, var allgöslulega leikið. Fúgustefið er mjög óvenjulegt fyiir Bach og fúgan í heild ber sterkan keim af tokkötu. Verkið var á margan hátt glæsilega flutt og var t.d. pedalleikur Jacobs sérlega létti- lega útfærður. Útfærsla Jacobs á þremur af Schúbler-sálmforleikj- unum var mjög óróleg og sama má segja um a-moll-fiðlukonsert- inn eftir Vivaldi, sem Bach um- ritaði fyrir orgel, þótt hinn sér- kennilegi miðþáttur væri skemmtilega mótaður. Tveir sálmforleikir eftir Bra- hms voru án þeirrar íhugunar, sem ætla má að hafi verið Bra- hms mikilvæg, en það var í B- dúr-orgelsónötunni eftir Mendelssohn, þar sem Jacob lék oft meistaralega vel, þótt verkið í heild hafi verið allt of hratt flutt. Andreas Jacob er mikill „tekniker" en vantar enn þann þroska að geta haldið aftur af óþoli sínu, sem yrði til þess að leikur hans yrði feillaus og hugs- anlega gæddur þeirri íhugun, sem öll góð tónlist býr yfir og ekki má láta víkja fyrir þörf manna til að sýna kunnáttu sína. Það á aldrei að vera markmið að leika eins hratt og mögulegt er, því flutningur tónlistar á vera annað og meira en fimlega út- fært spilverk. Jón Ásgeirsson Hugleikur sló í gegn á hátið í Harstad LEIKFÉLAGIÐ Hugleikur kom, sá og sigraði á alþjóðlegu leiklistar- hátíðinni í Harstad í Noregi með sýningunni Sálir Jónanna ganga aftur. Verkið, sem Viðar Eggerts- son leikstýrði, byggist á þjóðsög- unni um Sálina hans Jóns míns og var sýnt í Reykjavík á liðnum vetri. Móttökur áhorfenda í Harstad voru gi-íðarlega góðar og umsagnir gagn- rýnenda eftir sýninguna voru á einn veg: Takk fyrir frábæra sýningu, segir í frétt frá Sesselju Trausta- dóttur. Gagnrýnandi Harstadstidningen efaðist um að rétt væri að telja Hugleikssýninguna sem áhuga- mannasýningu. Hann dáðist að því hversu fagmannlega hún var unnin og hversu ótrúlega mikil skemmt- un væri í sýningunni, þrátt fyrir að hann skildi ekki eitt einasta orð úr textanum. Það var ekki aðeins gagnrýn- andinn sem skemmti sér vel á sýn- ingunni. Menn hlógu almennt al- veg gríðarlega mikið. Einn sænsk- ur áhorfandi tók svo mikil bakfóll af hlátri að hann endaði á stólbak- inu á sætinu fyrir framan sig og hlaut af því ljótan skurð á enni. I kjölfar sýningarinnar í Har- stad hefur Hugleik borist boð á nokkrar leiklistarhátíðar víða um heim, m.a. í Lettlandi og Sálir Jón- anna verið nefnd sem fulltrúi Norðurlandanna á alþjóða leiklist- arhátíðinni í Marokkó að ári. Sönglög eftir íslenskar konur í Norræna húsinu TÓNLEIKAR verða haldnir í Nor- ræna húsinu sunnudaginn 9. ágúst kl. 16. þar sem eingöngu verða flutt verk eftir tónskáld sem eru konur og eru flytjendurnir allir konur. Það eru þær Marta G. Halldórs- dóttir sópran, Unnur Vilhelmsdóttir píanó og Lovísa Fjeldsted selló, Hallfríður Ólafsdóttir flauta, sem flytja sönglög eftir Elínu Gunn- laugsdóttur, Karólínu Eiríksdóttur, Báru Grímsdóttir, Hildigunni Rún- arsdóttur og Jórunni Viðar. Ljóðin sem sungin verða eru eftir ýmsa höfunda, m.a. Steingrím Thor- steinsson, Sveinbjörn Egilsson, Jónas Hallgi’ímsson, Hannes Pét- ursson, Stein Steinarr og Sigurð Pálsson. Aðgangur að tónleikunum er kr. 700.Verkin sem flutt verða eru; Elín Gunnlaugsdóttir: Barna- lög - í gamni og alvöru f. sópran og píanó (1994) Karólína Eiríksdóttir: Sem dropi tindrandi f. sópran og pí- anó (1996) Bára Grímsdóttir: Vögguvísa (1992) og Nóttin spinnur (1985) f. sópran og píanó. Jórunn Viðar: Dans f. flautu, selló og píanó, Sætröllskvæði. Gamalt danskvæði f. sópran, flautu og píanó. Kall sat undir kletti, Við Kínafljót, Gestaboð um nótt, og Vort líf. Hildigunnur Rúnai'sdóttir: Man ég þig mey (1996) úts. f. sópran og flautu. Hættu að gráta hringaná (1996), úts. f. sópran, flautu og selló. Briet, alþjóðlegur og íslenskur meistari. Fæddir eru guilfallegir Briard hvolpar. Áhugasamir fá uppl. í síma 897 1992 peins östud.- laugard g sunnudag ( Skeifunni, Smáratorgi, Akureyri og Njarðvík. HAGKAUP Alltaf betri kaup
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.