Morgunblaðið - 28.08.1998, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Félagar í Baldri
kæra álagningu
Morgunblaðið/Sigurgeir
Leggja rafmagn, vatn og síma út í kvína
MIKILL meirihluti þeirra félaga í
verkalýðsfélaginu Baldri sem fékk
greiðslur frá félaginu í verkfallsátök-
um á síðasta ári hefur kært að
greiðslan skuli skattlögð og Pétur
Sigurðsson, formaður félagsins, seg-
ir að um tvísköttun sé að ræða og
málinu verði skotið til dómstóla. Ef
niðurstaðan þar verði ríkisvaldinu í
hag verði málinu áfrýjað til alþjóð-
legra dómstóla nema þeim mun
sterkari rök fyrir skattlagningunni
komi fram í dómsniðurstöðunni hér
innanlands.
Um er að ræða eitthvað á fjórða
hundrað félaga í Baldri. Við álagn-
ingu í sumar voru greiðslurnar frá
Baldri skattlagðar eins og um tekjur
væri að ræða. Nokkur bréfaskipti
höfðu áður átt sér stað milli skattyf-
irvalda og Baldurs og liggur meðal
annars fyrir bréf frá ríkisskattstjóra
þar sem greiðslurnar eru taldar
skattskyldar. Pétur segir að félagið
sætti sig ekki við þá niðurstöðu. Um
sé að ræða endurgreiðslur á inneign
sem félagar hafi átt hjá félaginu eftir
áratugagreiðslur félagsgjalda, en
gjöld til verkalýðsfélaga hafi verið
skattskyld frá árinu 1980.
Oréttmæt tvísköttun
Pétur segir að um óréttmæta tví-
sköttun sé því að ræða og mikill
meirihluti þeirra sem fengið hafi
greiðslurnar hafi kært álagninguna
samkvæmt ráðleggingum félagsins.
Næst muni það væntanlega gerast í
málinu að skattayfirvöld visi kærun-
um frá og þá sé kominn grundvöllur
til málshöfðunar. Samkvæmt réttar-
venjum á íslandi og hvernig opin-
berir dómstólar, þó þeir eigi að vera
hlutlausir, líti á ríkissjóð sé hugsan-
legt að þeir úrskurði ríkissjóði í hag
og þá komi til álita að vísa málinu til
alþjóðlegra dómstóla. „Það verður
þá að vera í þessum dómum eitt-
hvað mjög sannfærandi sem ekki
hefur komið fram ennþá til þess að
við förum að lúta þeim,“ sagði Pét-
ur.
Hann sagði að það hefði þráfald-
lega gerst í opinberum málum að al-
þjóðadómstólar litu öðru vísi á mál
heldur en heimamenn.
Hæstu greiðslurnar frá félaginu í
umræddum tilvikum numu um 80
þúsund krónum. Pétur sagði að auð-
vitað munaði ríkissjóð ekkert um
þessar tekjur, þó fólkið munaði um
þetta. „Mér finnst nú svona miðað
við skattskrárnar, sem hafa legið
frammi undanfarið, og maður hefur
verið að skoða, að þá séu matarhol-
urnar miklu frekar hjá einhverjum
öðrum en félögum hjá Baldri,“ sagði
Pétur einnig.
UNNIÐ hefur verið að því að
leggja vatn, rafmagm og síma í
húsin sem sett verða upp á kvínni
fyrir háhyminginn Keikó í
Klettsvík í Vestmannaeyjum
næstu daga.
Ætlunin er að kafarar og
gæslumenn hafí aðstöðu í húsun-
um. Gengið verður frá lögnunum
þannig að þær liggi undir innsigl-
inguna, meðfram Heimakletti og
upp í Klettsvík. Þar verður tengi-
kassi og þaðan liggja þær yfir í
kvúia.
Bandaríski flugherinn staðfesti
í gær að hann mundi sjá um
flutning hvalsins Keikós með
eimii af C-17 vélum sínum frá
Newport í Oregon til Vestmanna-
eyja hinn 9. september næstkom-
andi. Áætlaður kostnaður við
þennan fiutning er talinn nema
um 300.000 dollurum eða um 22
milljónum króna sem greiddar
verða af Free Willy Keiko stofn-
uninni sjálfri, að því er segir í
frétt frá Reuters-fréttastofunni.
Flogið verður án millilendingar
og mun vélin taka eldsneyti úr
sérstakri eldsneytisflugvél sem
fylgir henni en áætluð lending er
snemma að fimmtudagsmorgni
hinn 10. september.
Jaschke frumkvöðull á sviði
kínverskra lækninga
Angelika Jaschke þakkar
leitarmönnum og íslensku þjóðinni
Þýsku feðgarnir
jarðsettir á
Stóra-Núpi
ÚTFÖR þýsku feðganna sem fór-
ust í flugslysinu í Vesturhorni aust-
an við Höfn í Homafirði fyrr í
þessum mánuði fór fram síðastlið-
inn miðvikudag að Stóra-Núpi í
Gnúpverjahreppi.
Unnu Isiandi og höfðu
oftsinnis dvalið hér
I bréfi sem Angelika Jaschke,
fyrrverandi eiginkona dr. Manfred
Jaschke og móðir elsta sonar hans,
Tobiasar, sendi Morgunblaðinu
kemur fram að það hefði verið í
anda þeirra feðga að vera jarðsett-
ir hér á landi þar sem þeir unnu ís-
landi og höfðu oftsinnis dvalið hér.
Jafnframt þakkar hún fyrir hönd
vandamanna framlag björgunar-
sveitamanna og hjálparsveita sem
lögðu sig í hættu við hinar erfiðu
leitaraðstæður. Þá þakkar hún
einnig íslensku þjóðinni fyrir inni-
legar samúðarkveðjur og sérstak-
lega þeim sem studdu hana með
kærleika og hjálpsemi.
Útfórin fór fram á 12. afmælis-
degi Georgs, yngri sonar Manfreds
Jaschkes. Séra Axel Amason sá
um útfórina.
ÞÝSKI læknirinn dr. Manfred
Jaschke, sem fórst í flugslysi við
Höfn í Hornafirði fyrir stuttu, var
fmmkvöðull á sviði kínverskra
lækninga í Berlín. Hann starfaði
tíu ár í Peking og giftist þar kín-
verskri konu, Xiu-Rong Sun, sem
var frænka Pu Yi, síðasta keisar-
ans í Kína.
Þegar fréttir bárust af slysinu
var eiginkona Jaschkes stödd í
Peking í heimsókn hjá ættingjum
ásamt eins árs gömlum syni þeirra
hjóna, en hélt þegar heim á leið til
Berlínar.
Jaschke var af austurísk-þýsk-
um ættum, kominn af iðnrekendum
og auk þess tengdur konungsfjöl-
skyldunni í Saxlandi. Hann stund-
aði nám í Waldorfskólum í Þýska-
landi og Englandi. Löngum dvaldi
hann einnig á setri saxnesku kon-
ungsfjölskyldunnar á Irlandi.
Hann lauk stúdentsprófi árið
1971 í Þýskalandi með góðum ár-
angri og nam eftir það guðfræði og
heimspeki í Vín, Stuttgart og
Tiibingen, og síðar læknisfræði við
ýmsa þýska háskóla.
Jaschke stundaði um skeið lækn-
isstörf á sjúkraskipi sem þjónaði
fiskiskipum á norðlægum miðum,
síðar var hann við störf á átaka-
svæðum í Líbanon, Sýrlandi og
ísrael í þjónustu þýska ríkisins.
Árið 1983 hlaut Jaschke styrk til
rannsókna á kínverskum lækning-
um og hélt til Peking. Þar var hann
við nám og síðar rannsóknir og
hlaut árið 1987 stöðu við Kínverska
lækningaháskólann. Ári síðar hafði
hann frumkvæði að stofnun sér-
stakrar deildar við skólann til að
sinna útlendingum í Peking.
Árið 1992 flutti Jaschke aftur til
Þýskalands og rak þar sjúkrastofn-
anir þar sem beitt var bæði vest-
rænum og kínverskum lækningað-
ferðum. Flest lyf sem hann notaði
við lækningar sínar bjó hann sjálf-
ur til úr jurtum og ýmsum efnum
sem hann lét senda sér frá Kína.
í dagblöðum í Berlín, þar sem
Jaschke starfaði síðustu árin, var
honum lýst sem frumkvöðli á sviði
kínverskra lækninga í borginni. Á
lækningastofu hans þar störfuðu
tuttugu manns, en um skeið rak
hann einnig lækningastofu á eyj-
unni Rúgen. I fréttum af láti
Jaschkes í þýska dagblaðinu
Berliner Kurier lýstu starfsmenn
hans í Berlín honum sem frábær-
um stjórnanda og stórkostlegri
manneskju.
Einnig var talað við starfskonu
ferðaskrifstofu þar sem hann
keypti ferðir sínar til Kína. Konan
sagðist hafa verið lengi í meðferð á
lækningastofu Jaschkes vegna
mígrenis og hefði sjúkdómurinn
skánað til muna.
Omega Farma og Guðmundur Franklín hætt samstarfi við Urði Verðandi Skuld
Töldu að komið
væri á samkomulag
OMEGA Farma ehf. og Guðmund-
ur Franklín Jónsson verðbréfa-
miðlari hafa hætt samstarfi við
erfðarannsóknafyrirtækið Urði
Verðandi Skuld. Stanley Pálsson,
stjómarformaður Omega Farma,
segir að samkomulag hafi verið
handsalað við Tryggva Pétursson,
framkvæmdastjóra UVS, um að
Omega Farma myndi draga sig út
úr viðræðum við rannsóknastofur
þær sem UVS var einnig í viðræð-
um við og fá í staðinn hlut í fyrir-
tækinu UVS. Rúnar Birgisson,
upplýsingafulltrúi UVS, segir enga
samninga hafa verið gerða við
Omega Farma. Hann kannast ekki
við það samkomulag sem Stanley
Pálsson kveðst hafa gert við fyrir-
tækið og því geti hann ekki tjáð sig
um það.
Stanley segir Omega Farma
hafa farið að undirbúa stofnun
erfðarannsóknafyrirtækis i nóvem-
ber síðastliðnum. Þegar forsvars-
menn UVS hafi farið af stað fyrir
fáum mánuðum hafi þeir verið með
nákvæmlega sömu hugmyndir og
Omega Farma um krabbameins-
rannsóknir. „Þeir ætluðu að byrja
á sömu krabbameinum og við og
vera í samvinnu við sömu rann-
sóknastofur og við höfðum verið að
ræða við í marga mánuði. Þannig
að rannsóknastofumar höfðu sam-
band við okkur og sögðu að það
væri ómögulegt að vera að semja
við tvo aðila með sömu hugmynd-
irnar og báðu okkur um að samein-
ast um þetta verkefni. Svo við sett-
umst niður til þess að reyna að ná
samkomulagi og við töldum að það
væri komið á samkomulag, sem við
handsöluðum við Tryggva Péturs-
son,“ segir Stanley.
„Þremur vikum seinna var okkur
svo sagt að þeir teldu að samkomu-
lagið væri ekki í gildi, það hefði
orðið forsendubrestur, og töldu sig
meira að segja hafa rift þessu á
tímabilinu með því að hafa sam-
band við Guðmund Franklín, sem
reyndar var ekki aðili að samkomu-
laginu, þó að hann hafi verið við-
staddur þegar það var handsalað.
Hann mótmælir að því hafi verið
rift við sig, enda hefði því þá heldur
ekld verið rift við réttan aðila,“
segir Stanley ennfremur.
Hafa misst forskotið
Guðmundur Franklín staðfesti í
samtali við Morgunblaðið í gær að
hann væri hættur samstarfi við
UVS en vildi að öðru leyti ekkert
láta eftir sér hafa um málið.
Stanley segir að eftir að umrætt
samkomulag hafi verið handsalað
hafí Omega Farma haft samband
við rannsóknastofurnar, sagt að
Omega Farma hefði hætt við sín
áform og fjárfestum og öðrum vís-
að á UVS, þar sem Omega Farma
væri komið í samstarf við fyrirtæk-
ið. Þegar svo þeir Snorri Þorgeirs-
son og Bernhard Pálsson, stjórnar-
menn í UVS, hafi komið til landsins
í síðustu viku virðist allt hafa verið
tómur misskilningur.
Aðpurður hvort Omega Farma
hyggi á stofnun annars fyi'irtækis
á sviði erfðarannsókna útilokar St-
anley það ekki en telur þó að það
geti reynst afar erfitt eftir það sem
á undan er gengið. „Það er öllum
alveg ljóst að við erum búnir að
gefa frá okkur það forskot sem við
höfðum. Við vorum byrjaðir að
vinna, höfðum átt marga fundi með
þeim sem reka rannsóknastofum-
ar, með yfirstjórn Landspítalans,
Háskólans og Krabbameinsfélags-
ins, og bjóða þeim eignarhlut í okk-
ar félagi." Eftir að þessum aðilum
hafi svo verið vísað á UVS sé það
ekki augljóst mál að Omega Farma
geti farið af stað aftur. „Við gáfum
þetta frá okkur í það langan tíma
að það er alveg spurning hvort við
gáfiim þeim ekki allt forskotið sem
við vorum með,“ segir Stanley.
Engir samningar gerðir
við þessa aðila
Rúnar Birgisson, upplýsingafull-
trúi Urðar Verðandi Skuldar, segir
enga samninga hafa verið gerða við
Omega Farma og kannast ekki við
það samkomulag sem Stanley Páls-
son kveðst hafa gert við fyrirtækið
og því geti hann ekki tjáð sig um
það. „Við tölum að sjálfsögðu við
fjölda manns þegar við erum í við-
ræðum en það hafa ekki verið
gerðir neinir samningar við þessa
aðila. Þetta eru hins vegar hinir
mætustu menn, ekki hvað síst St-
anley Pálsson, og hvað framtíðin
ber í skauti sér veit enginn,“ segir
Rúnar.’