Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hæstiréttur fjallar um nýjan öndunarmæli Akvörðun lögreglu- stjóra staðfest HÆSTIRÉTTUR hefur úrskurðað í máli, sem lögreglustjórinn í Reykjavík höfðaði gegn Héraðs- dómi Reykjavíkur eftir að Héraðs- dómur felldi úr gildi bráðabirgða- sviptingu ökuréttar, sem ökumanni var gert að sæta með ákvörðun lög- reglustjóra. Staðfesti Hæstiréttur ákvörðun lögreglustjórans í Reykjavík þess efnis að svipta öku- manninn ökuieyfi vegna ölvun- araksturs. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómaramir Garðar Gíslason, Arn- ljótur Björnsson og Gunnlaugur Claessen. Lögreglan stöðvaði ökumann við Höfðabakka í Reykjavík 28. júlí sl. og grunaði hann um ölvunarakstur. Var framkvæmd mæling með nýj- um öndunarmæli, sem samkvæmt lögum er lagður að jöfnu við blóð- rannsókn sem sönnunargagn. Kom þá í ljós að vínandamagn í lofti sem ökumaður andaði frá sér var 0,456 mg í lítra lofts að teknu tilliti til skekkjumarka. Samkvæmt því var vínandamagn yfir þeim mörkum sem um ræðir í 2. mgr. 45. gr. um- ferðarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997. Hinn nýi mælir sem lögreglan hefur tekið í notkun er af gerðinni Intoxylizer 5000 N og eru sambæri- leg tæki notuð annars staðar á Norðurlöndum. Lögreglumaður framkvæmir sjálfur mælinguna í stað þess að færa ökumann til lækn- is í blóðtöku og liggur niðurstaða um áfengisáhrif þá strax fyrir, sem leiðir til þess að mál taka styttri tíma. Morgunblaðið/Ólafur P. Stephensen Minningarsjóður Ólafs Einarssonar styrkir namibíska stúdenta Fimmta sæti á dansmdti HALLDÓRA Reynisdóttir og Isak Halidórsson, Dansfélaginu Hvönn, höfnuðu í 5. sæti í keppni í suður-amerískum döns- um í aldursflokki 14 til 15 ára unglinga á German Open 1998- mótinu, sem haldið er í Þýska- landi, á miðvikudag. 212 pör tóku þátt í keppninni í þessum flokki. Þá urðu Hólmfríður Björns- dóttir og Jónatan Arnar Örlygs- son í 5. sæti í suður-amerískum dönsum í yngsta flokki á þriðju- dag. Þar kepptu 68 pör. Tíu ís- lensk pör taka þátt í mótinu, sem fram fer 25. til 29. ágúst. HALLDÓR Ásgrimsson utanrík- isráðherra afhenti í síðustu viku tveimur namibiskum há- skólastúdentum námsstyrki úr Minningarsjóði Ólafs V. Einars- sonar fískifræðings, sem lézt í fyrra. Afhendingin fór fram í Windhoek, höfuðborg Namibíu, þar sem Halldór var í opinberri heimsókn. Ólafur V. Einarsson starfaði um fímm ára skeið í Namibíu á vegum Þróunarsamvinnustofn- unar íslands. Eftir andlát hans stofnuðu ættingjar hans og vin- ir sjóð til að styrkja efnilega unga Namibíumenn, sem stunda nám í sjávarlíffræði, sjávarvist- fræði, Iæknisfræði eða verk- fræði. Þetta er í annað sinn, sem styrkir eru veittir úr sjóðnum. Að þessu sinni hlutu styrk þau Loide N. Amupala og Wilfred N Bezuidenhout, sem bæði nema við Háskóla Namibíu í Wind- hoek. Sigurjóna Sigurðardótt- ir, eigir.kona Halldórs Ásgríms- sonar, fylgist með er maður hennar afhendir styrkina. Sun Maid rúsínur 500g dós -ai IM • UM LAND ALLT Hádegisfundir Sagnfræðingafélagsins Fjörug umræða á spjallrás félagsins Sagnfræðingafélag ís- lands gengst í vetur fyrir opnum hádegis- fundum undir yfirskrift- inni Hvað er félagssaga? Fundirnir eru haldnir annan hvern þriðjudag í Þjóðarbókhlöðunni og mun Ellen Gunnarsdóttir sagnfræðingur flytja næsta fyrirlestur hinn 1. september næstkomandi. Nefnist hann Staða kvenna sem máltæki guðs í hinni kaþólsku barokk- menningu átjándu aldar í Mexíkó. Tveimur vikum síðar flytur Þorsteinn Helgason erindi sem nefn- ist „Atburðir verða félags- og menningarsaga" en haldnir verða að minnsta kosti sjö fundir fyrir ára- mót. - Hver er tilgangurinn með þessum hádegisverð- arfundum? „Hádegisverðarfundirnir uðu á liðnu vormisseri haldnir voru sex fundir. Sigurður Gylfi Magnússon byrj- þegar Hug- voru myndin er fyrst og fremst sú að efna til snarprar umræðu um að- ferðir sagnfræðinnar og ná til mun stærri hóps en sagnfræðinga sjálfra. Það tókst mjög vel og sem dæmi má nefna að við vorum með fund í júní þar sem fjallað var um „ótrúlega fegurð íslenskra kvenna“ og sóttu þann fund um 100 manns. Við tilsjónarmennirnir vorum því afskaplega ánægðir með hvernig til tókst. I vetur mun- um við auglýsa fundi Sagnfræð- ingafélagsins í samstarfi við Rann- sóknastofu í kvennafræðum og all- ir fyrirlestrar sem snerta feminísk fræði verða haldnir í samvinnu við hana. Hugmyndin með þessu er sú að ná til fleiri en gallhörðustu sagnfræðinga. Fyrirlestrarnir eru 15-20 mínútur svo tími gefist til fyrirspuma og fyrirlesarar eru hvattir að láta sverfa til stáls. Reyndin hefur líka orðið sú að mjög fjörugar umræður hafa orðið á eftir.“ - Hvað er efnisvaiinu ætlað að endurspegla? „Fyrirlestraröðin þessi þrjú misseri, það er síðasta vormisseri, haustmisserið nú og á vormisseri ‘99, eiga að snúast um spurning- una: Hvað er félagssaga? Hins vegar er fyrst og fremst mælst til þess að menn ræði aðferðir sagn- fræðinnar og þá tengsl einstakra verkefna við félagssöguna, hvort sem menn em að vinna á vettvangi félagssögunnar eða ekki. Spum- ingin er sú að hafa ákveðinn fók- us.“ - Hvað er átt við með félags- sögu? „Það er dálítið erfitt að útskýra það í örstuttu máli. Hugtakið hef- ur verið mjög á döfinni í sagnfræð- inni hérlendis síðustu tíu ár. Fé- lagssagan er saga alþýðunnar og í raun safnheiti sem geymir ýmsar tegundir sögu, til dæmis sögu barna eða kvenna. Það má segja að félagssagan taki til sögu flestra minni- hlutahópa á hvaða landsvæði sem er og sögu alþýðufólks. Þetta er ekki formleg ► Sigurður Gylfi Magnússon fæddist árið 1957 í Reykjavík. Hann Iauk stúdentsprdfí frá Verslunarskóla íslands árið 1980, BA-prófi í sagnfræði og heimspeki frá Háskóla Islands árið 1984, MA-prófi frá Camegie Mellon-háskólanum í Pittsburgh í Bandaríkjunum árið 1987 og doktorspröfi þaðan árið 1993 með ritgerð um alþýðumenningu á Islandi. Sigurður er fastur stundakennari við Háskóla Is- lands og einn þriggja tilsjónar- manna hádegisverðarfundanna. Hann er jafnframt varaformaður Sagnfræðingafélags Islands og hefur gefið út Ijórar bækur. Sú nýjasta, Menntun, ást og sorg, var gefin út í fyrra. pólitísk saga eða hugmyndasaga, hún er svolítið í andstöðu við hag- söguna. Hún er saga fólksins í landinu, ef hægt er að orða það þannig. Félagssagan er það víð að við höfum reynt að negla niður einhverja skilgreiningu, sem er þá um leið verkefni þessara funda, að reyna að ná sátt um það hvað fé- lagssaga er. Einhver myndi svara því að félagssaga væri allt. Mark- mið okkar er aðallega það að skapa ákveðna umræðu og hvetja til markvissra rannsókna á þessu sviði. Það er þýðingarmikið fyrir hóp manna á borð við sagnfræð- inga að þjálfa ákveðna orðræðu, svo menn tali sama tungumál. Það hefur stundum skort.“ - Umræðan hefur líka verið líf- leg á Netinu, ekki satt? „Við komum upp spjallrás á Netinu í tengslum við hádegis- verðarfundina sem við köllum Gammabrekku og þar hefur orðið ansi fjörug umræða í kjölfar fund- anna. Fólk hefur kvatt sér hljóðs þar og rætt einstök atriði fyrir- lestranna. Eftir fyrsta fundinn fékk ég viðstadda til þess að skrá netföng sín og við byrjuðum á því að senda þeim póst. Eftir annan fundinn í vor komum við þessu í fast form en spjallrásin er hugsuð sem upplýsingatorg fyrir sagn- fræðinga þar sem sagt er frá nýj- um bókum og nýjum fundum og vinir okkar og félagar erlendis hafa einnig sagt frá áhugaverðu efni sem er á döfmni þar sem þeir búa. Síðan er þetta vettvangur fyr- ir fólk til þess að ræða sagnfræði- leg álitamál. Þeir sem vilja koma skoðunum sínum áleiðis gerast áskrifendur með því að skrifa majordomo@rhi.hi.is og nú eru -------- komnir yfir 150 þátttak- Tugir sagn- endur. Það má segja að fræðinga Ijáðu Þetta se bylting innan í mánuð sagnfræðinnar. Við ná- um til mikið fleiri á miklu skemmri tíma og umræðan er gríðarlega „dýnamísk". Ég get nefnt sem dæmi nýlegan fyrirlestur Ingu Huldar Hákonardóttur, „Annáll sigranna - Eru konur þar á blaði" sig en í kjölfar þess kvöddu sér hljóðs tugir sagnfræðinga í heilan mán- uð, tjáðu sig um fyrirlestur hennar og tengt efni sem spannst í kring- um hann. Þetta hefur opnað alger- lega nýja möguleika innan fags- ins.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.