Morgunblaðið - 28.08.1998, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998
AKUREYRI
MORGUNB LAÐIÐ
Hríseyjarkirkja 70 ára
Hátíðarmessa
á sunnudag
HATIÐARMESSA verður í Hrís-
eyjarkirkju sunnudaginn 30. ágúst
nk. 14.00 í tilefni af 70 ára afmæli
kirkjunnar. Par munu séra Birgir
Snæbjörnsson prófastur og séra
Hulda Hrönn M. Helgadóttir sókn-
arprestur þjóna fyrir altari.
Séra Fjalarr Sigurjónsson, fyrsti
prestur Hríseyjarprestakalls, mun
predika og séra Torfi Hjaltalín
Stefánsson lesa ritningarlestra.
Einnig mun Ásgeir Halldórsson
málarameistari flytja ágrip af sögu
kirkjunnar og Jón Á. Stefánsson
tækniteiknari tala um táknmál
kirkjunnar. Kór Hríseyjarkirkju
syngur undir stjórn Guðjóns Páls-
sonar og Michael Jón Clarke syng-
ur einsöng.
Eftir athöfnina er öllum boðið í
kaffisamsæti í félagsheimilinu Sæ-
borg. Þar mun m.a. séra Ágúst Sig-
urðsson flytja ágrip af kirkjusögu
Hríseyjar og Svandís Gunnarsdótt-
ir og Vera Sigríður Sigurðardóttir
syngja tvísöng. Boðið verður upp á
dagskrá fyrir börnin meðan á kaffi-
samsætinu stendur og m.a. farið í
útsýnisferð um þorpið á trakt-
orsvagni. Eftir kaffið verður farin
ferð í kirkjugarð Hríseyjar á Salt-
nesi en þar er verið að vinna að
lokafrágangi við stækkun hans.
Hríseyjarferjan Sævar leggur af
stað frá Árskógssandi kl. 13.30.
Þeir sem vilja láta aka sér frá höfn-
inni til kirkju munu verða fluttir á
traktorsvagni.
Sigrún Hjálmtýsdóttir
á Norðurlandi
SIGRÚN Hjálmtýsdóttir sópran-
söngkona og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari halda
tvenna tónleika á Norðurlandi nú
um helgina.
Þeir fyrri verða í félagsheimilinu
Skjólbrekku í Mývatnssveit á morg-
un, laugardaginn 29. ágúst kl. 14,
þeir síðari í Akureyrarkirkju sunnu-
daginn 30. ágúst kl. 20.30. Á efnis-
skrá verða íslensk, ítölsk og norræn
sönglög ásamt óperuaríum.
Tónleikar þessir hafa lengi staðið
til. í fyrravetur var ófært í Mý-
vatnssveit og varð þá að fresta tón-
leikahaldi en vonandi verða veð-
urguðirnir stilltir núna. Aðgöngu-
miðar eru seldir við innganginn.
A JAÐARSVELLI VIÐ AKUREYRI
29. - 30. ÁGÚST 1998
°ðruvísi rnótl
KEPPNISFYRIRKOMULAG
Einn flokkur,
Leikið verður punktakerfi - Stableford - með 7/8 forgjöf, tveir og tveir leika saman betri bolta,
hámarksgefin forgjöf er 18.
GLÆSILEG VERÐLAUN
10 efstu sætin gefa verðlaun !!!
1.
2.
Golfferð fyrir tvo, til ISLANTILLA með Urval-Utsýn,
að verðmæti kr. 133.000.
Golfferð fyrlr tvo til DUBLIN með Samvinnuferðum-Landsýn,
að verðmæri kr. 106.600.
3. Helgarferð tll Reykjavíkur / Akureyrar, að verðmæti 30.000.
4. - 6. Flug, Ak. - Rek. - Ak. með íslandsflugi
7.-10. Vöruúttekt í Golfbúðinni að Jaðri, að upphæð kr. 5.000 hver.
Nándarverðlaun á 4. og 18. holu, báða daga.
ÞÁTTTÖKUGJALD / SKRÁNING
Þátttökugjald er kr. 2.500 á mann.
Tveir skrá sig saman í liö.
Skráning og pantanir á rástímum er í slma 462-2974.
Skráningu lýkur föstudaginn 28. ágúst kl. 17.00.
PGA-MEISTARI
Sérstakur flokkur atvlnnumanna er einnig á mótlnu II!
Verðlaun $1.000
Hver verður PGA-MEISTARI í ár?
m
t$k SiitlMlirllr lnlifi HEKIA
liHi'trtri
-f© FÍsMuruM.
ISlAmnUB
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Brugðið
á leik
VINIRNIR Arnar Bjarnason og
hundurinn Gormur voru að
viðra sig í góða veðrinu á Akur-
eyri á dögunum. Þeir brugðu á
leik og Arnar gerði sig líklegan
til að setjast á bak Gormi, sem
var ekki alveg tilbúinn í þann
leik.
Harðbak-
ur með
fullfermi
HARÐBAKUR EA, ísfisktogari
Útgerðarfélags Akureyringa hf.,
kom til heimahafnar í fyrrinótt með
fullfermi, 215-220 tonn, eftir 8 daga
túr.
Skipið var við veiðar fyrir vestan
land og gekk veiðin mjög vel síðustu
dagana í túrnum. Stærstur hluti afl-
ans er karfi en um þriðjungur
þorskur.
Sæmundur Friðriksson, útgerð-
arstjóri ÚA, sagði að kvótastaða
fyrirtækisins væri alveg ágæt en
kvótaárinu lýkur um næstu mán-
aðamót. „Við höfum getað haldið
okkar striki af fullum krafti allt
kvótaárið, m.a. vegna þess að við
leigðum frystitogarann Svalbak til
þýska útgerðarfyrirtækisins Meck-
lenburger Hochseeílscherei."
Sæmundur sagði að svo gæti far-
ið að Árbakur, ísfisktogari félags-
ins, myndi landa fyrir kvótaáramót
og þá þyrfti að taka eitthvað fyrir-
fram af kvóta næsta árs.
----------------
Ferðafélag
Akureyrar
Gengið yfír
Vaðlaheiði
FERÐAFÉLAG Akureyrar ætlar
að ganga Þingmannaveg, sem er
gönguleið yfir Vaðlaheiði, laugar-
daginn 29. águst nk. og verður lagt
af stað frá skrifstofu félagsins við
Strandgötu kl. 9.00.
Gengið er upp frá Eyrarlandi og
farið inn á foma reiðleið er nefnist
Þingmannavegur og hlykkjast upp
hlíðina. Efst í brekkunum er fylgt
vörðum norðaustur yfir Járnhrygg
niður í Fnjóskadal. Á þessari leið er
farið yfir brú sem er athyglisverð
grjóthleðsla frá 1871.
Skrifstofa Ferðafélags Akureyrar
er opin virka daga frá kl. 16-19 og
þar fer fram skráning í ferðir, í
síma 462-2720.
MITSUBISHI umboðlð á íslandi
MITSUBISHI umboðlð á Akureyrl naUurmM.
Brauðgerð Kaupfélags Eyfírðinga
Rekstrarleyfi
ekki bundið tíma
JÖRUNDUR Traustason, brauð-
gerðarstjóri Brauðgerðar KEA,
sagði að rekstrarleyfi fyrirtækisins
væri ekki bundið við tíma, heldur
þyrfti að uppfylla ákveðin skilyrði
varðandi GÁMES vottun sem
Brauðgerðin hefur nú þegar.
Brauðgerð KEA er í sama húsi
og Listasafnið á Akureyri og í við-
tali við Harald Inga Haraldsson,
forstöðumann safnins í Morgun-
blaðinu 1 gær, kemur hann inn á
sambýli safnins og brauðgerðarinn-
ar. Haraldur Ingi sagði að Brauð-
Aksjón
Föstudagur 28. ágúst
21.00Þ-Sumarlandið Þáttur fyrir
ferðafólk á Akureyri og Akureyringa í
ferðahug.
MaEhn
Sýnt á RcnniUerkstœðitm
Akureyri
FJÖGUR HJORTU
í kvöld 28/8 kl. 20.30 örfá sæti
laugard. 29/8 kl. 20.30
AimSALA I SIMA {,01-3690
gerðin hefði rekstrarleyfi í húsnæð-
inu til ársins 2000.
Jörundur sagði það ekki rétt og
að Brauðgerðin hefði leigusamning
til ársloka 2001. Hann sagði jafn-
framt að starfsemin í húsinu væri
eins og tveir ólíkir heimar en þó
hefði samstarf þessara aðila verið
mjög gott.
-------♦-♦♦------
Sigrún og
Selma loka
Listasumri
LOKATÓNLEIKAR á Listasumri
verða í Akureyrarkirkju á afmælis-
degi Akureyrarbæjar laugardaginn
29. ágúst kl. 17 þar sem Sigrún Eð-
valdsdóttir fiðluleikari og Selma
Guðmundsdóttir píanóleikari leika.
Á efnisskránni eru sónötur Jóns
Nordal, Debussys og Janaceks, auk
slavneskra dansa Dvoraks/
Kreislers. Þær Sigrún og Selma
hafa frá árinu 1986 margsinnis leikið
saman á tónleikum um víða veröld
og auk þess gefíð út tvo vinsæla
geisladiska.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur en
500 krónur fyrir námsmenn, elli- og
örorkulífeyi’isþega.