Morgunblaðið - 28.08.1998, Page 16

Morgunblaðið - 28.08.1998, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ 4 LANDIÐ Loðdýrabændur óttast verðfall á skinnum Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson FUNDARGESTIR við loðdýrahúsið í Ásgerði II. Hrunaraannahreppi - Samband ís- lenskra loðdýrabænda hélt aðal- fund sinn á Flúðum laugardaginn 22. ágúst og kom þar fram að bændur óttast verðfall á skinnum. Haldinn var svokailaður búdagur á föstudeginum 21. ágúst. Hann hófst eftir hádegi á því að Sigur- jón Bláfeld flutti fyrirlestur um nýjustu tilraunir á Hvanneyri. Síðan var minkabúið Mön í Gnúp- verjahreppi, sem er nýuppbyggt, heimsótt. Þau Katrín Sigurðar- dóttir og Stefán Guðmundsson í Ásaskóla eiga það bú. Þá var haldið að Ásgerði II í Hrunamannahreppi, þar sem þeir feðgar Þorbjörn Sigurðsson og Sigurður Jónsson eru með um- fangsmikla minkarækt. Nokkur fyrirtæki sem flytja inn vélar og verkfæri, fóðurvörur og aðrar rekstrarvörur til loðdýraræktar voru með vörusýningar. Einnig kynnti Kaupfélag Skagfírðinga loðdýrahús sem það flytur inn og eru teiknuð af Guðmundi Þór Guð- mundssyni á Marlandi í Skaga- firði. Verulegar tækniframfarir eru í þessari búgrein sem og öðr- um búgreinum. í spjalli við Bjarna Guðmunds- son í Túni, formann SÍL, kom fram að sithvað er á döfínni hjá samtökunum. „Útlitið í loðdýra- ræktinni fer eftir því hvernig okk- ur tekst að vinna úr okkar innri málum, hvernig okkur tekst að vinna okkar heimavinnu, ef svo má segja,“ sagði Bjarni. „Við höfum verið að skoða hag- kvæmnina í fóðurgerðinni, sem er langstærsti kostnaðurinn á búun- um. Við höfum verið að skoða þetta í samanburði við danskar fóðurstöðvar en loðdýrarækt í Danmörku er sú mesta í heimin- um. Við höfum ákveðna þætti hag- stæðari, svo sem hráefnisverð, en fasti kostnaðurinn er mun hærri hjá okkur vegna þess að við erum með of litlar fóðurstöðvar. Við er- um með miklu minni fóðurstöðvar sem gerir það að verkum að kostnaðurinn deilist á of fá kíló. Ef við náum fóðurkostnaði niður og náum að bæta fóðurgæðin eins og er verið að vinna að en það er verið að vinna að gæðaeftirliti á fóðurstöðvunum á sama hátt og er í matvælaiðnaði þá líst mér vel á framtíðina." Bjarni kvaðst hafa ákveðnar áhyggjur af stöðu efnahagsmála í Rússlandi og Asíu. „Gengisþróun í Rússlandi og Asíulöndum getur hins vegar haft skammtímaáhrif á markaðinn,“ sagði hann. „Við verðum oft að horfa á hvort skinnaverð sé hátt en við þurfum einnig alltaf að hafa meiri mun milli tekna og gjalda en samkeppnisaðilar okkar. Ef við er- um með lægri tilkostnað og lægra skinnaverð þá lifum við slæmu árin af. Erlendis hafa búin stækkað mjög mikið vegna tæknivæðingar sem er komin fram á síðustu árum. Og rannsóknir bæði innlendar og erlendar benda til þess að það sé meiri hagkvæmi á stærri búum en hér eru yfirleitt. Við erum með of lítil bú.“ Arvid Kro, framkvæmdastjóri SIL, sagði að Rússar keyptu um 60% af öllum minkaskinnum í heiminum. Þróun efnahagsmála þar væri því verulegt áhyggjuefni. — Skólatilboð #2 233 MHz PREMIUM PC 233 MHz Pentum II tumtölva með 64MB minni, 4.3GB hörðum disk, 32x CD drifi, Soundblaster 16VE hljóðkorti, 33.6K bps mótaldi, hátölurum, 17" litaskjá og Windows 98 uppsett ásamt CD. aflelns kr. 119i900)a Skólatitboð #3 400 MHz PREMIUM PC 400MHz Pentum II turntölva með 128 MB minni, 8.4GB hörðum disk, DVD drif, Soundblaster AWE64 hljóðkorti, 56.6 Kbps mótaldi, hátölurum, 17“ litaskjá og Windows 98 uppsett ásamt CD. aðeins kr. 239.900,- Skólatitboð #1 266 MHz PREMIUM PC 266 MHz Pentum II turntölva með 64MB minni, 6.4GB hörðum disk, 32x CD drifi, Soundblaster AWE64 hljóðkorti, 56.6 Kbps mótaldi, hátölurum, 17“ litaskjá og Windows 98 uppsett ásamt CD. aðeins kr. 129.900,- 20-90% afsláttur af öllum skólatöskum 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.