Morgunblaðið - 28.08.1998, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998
MORGUNB LAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður Frumherja hf. 3,2 milljónir á fyrri hluta ársins
Utkoman í samræmi
við væntingar
HAGNAÐUR samstæðu Frumherja
hf. nam 3,2 mkr. fyrstu sex mánuði
ársins samanborið við um 1,2 mki-.
tap á sama tíma í fyrra. Heildarvelta
fyrstu sex mánuðina var 167,3 mkr.
og jókst um 15,7% frá sama tíma í
fyrra.
Að sögn Óskars Eyjólfssonar
framkvæmdastjóra félagsins er út-
koman í samræmi við væntingar og
er hún helst að þakka auknu hag-
ræði vegna betri nýtingar starfsfólks
og samlegðaráhrifum, að hans sögn.
Rekstrargjöld Frumherja voru
161,8 mkr. á fyrri árshelmingi, borið
saman við 147,7 mkr. á sama tíma í
fyrra, og jukust því um 9,5% á milli
ára.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að fjárhagur þess sé traustur
og nam eigið fé þess 288,7 mkr. í lok
tímabilsins. Eiginfjárhlutfall var
67,5% og veltufjárhlutfall 1,77.
Vejtufé frá rekstri nam 15,3 mkr.
í tilkynningunni kemur fram að
talsverðar breytingar hafi orðið á
rekstri Frumherja á tímabilinu með
tilkomu fleiri verkefna og rekstrar-
hagræðingu. Félagið, sem áður hét
Bifreiðaskoðun hf., annast nú skoð-
unar- og prófunarstarfsemi á öku-
tækjasviði, rafmagnssviði og lög-
mælissviði auk þess sem dótturfélag
Frumherja hf. annast skoðanir á
innra eftirliti í sjávarútvegsfyrir-
tækjum.
Verkefnastaða félagsins er góð, að
því er segir í fréttatilkynningunni,
og vonast er til að með tilkomu
nýrra verkefna náist enn frekari
hagræðing í rekstri á seinni hluta
ársins.
Fleiri verkefni forsenda
aukins vaxtar
„Þessi útkoma er í samræmi við
væntingar. Reksturinn hefur gengið
eins og áætlað var og þær hagræð-
ingar sem gerðar hafa verið eru að
skila sér og munu skila sér enn bet-
ur á síðari hluta ársins," segir Óskar
Eyjólfsson.
Hann segir hagræðið aðallega
fólgið í samlegðaráhrifum sem skap-
ast af sparnaði í starfsmannahaldi.
„Það má segja að nýting starfs-
manna sé betri en hún var áður.
Einnig hefur starfsfólki verið fækk-
að á þessu ári og á því síðasta.
Hann sagði að það sem gera þurfi
í eftirlitsgeiranum til að ná frekara
hagræði, og til að skapa vaxtar-
möguleika, sé að fá fleiri verkefni og
nefnir þá helst verkefni sem nú eru
á höndum hins opinbera, eins og t.d.
vinnueftirlit, skipaskoðanir og heil-
brigðiseftirlit.
„Við þurfum að halda úti ákveðn-
um mannafla og húsnæði og það
þarf að nýta betur. Það gæti náðst
með t.d. einkavæðingu vinnueftir-
lits, skipaeftirlits og heilbrigðiseftir-
lits sem allt fellur vel að starfsemi
okkar.
Eg tel að það sé hagræði í þvi íyr-
ir fyrirtæki í landinu að geta samið
við einn aðila, um að sinna því eftir-
liti sem þarf, í stað margra."
Óskar segir að þó vaxtarmögu-
leikar séu ekki miklir að óbreyttu
hjá fyrirtækinu séu vaxtarbroddar
Frumherii hf. VSras1’
Jan.-júní 1998 Jan.-júní
Rekstrarreikningur 1997 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld 167,3 161,8 144.6 147.7 +15,7% +9,5%
Rekstrarhagnaöur fyrir fjármagnsliði Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 5,5 -0,7 -3,1 3,5 -
Hagnaöur fyrir skatta 4,8 0,4
Hagnaður tímabilsins 3,2 -1,2 -
Efnahagsreikningur 30/6 '98 31/12 '97 Breyting
\ Eignir: \ Milljónir króna
Fastafjármunir 305,7 307,3 -0,5%
Veltufjármunir 122,1 117,6 +3,8%
Eignir samtals 427,8 424,9 +0,7%
| SkuJdir og eigid fé: \ Eigið fé 288,7 281,6 +2,5%
Langtímaskuldir 70,1 76,4 -8,2%
Skammtímaskuldir 68,9 66,7 +3.3%
Skuldir og eigið fé samtals 427,7 424,7 +0,7%
Kennitölur og sjóðstreymi 1998 1997 Breyting
Eiginfjárhlutfall 67,5% 66,3%
Veltufjárhlutfall 1,77 1,76
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 15,3 11,4 +34,2%
hjá því. Til dæmis segir hann að
100% aukning hafi orðið í ástands-
skoðun bifreiða og einnig talsverð
aukning í tjónaskoðun. Það er þó að-
eins lítill hluti af veltunni, að hans
sögn.
77 milljóna króna tap hjá Marel
Minni fjár-
festingar í
fískiðnaði
Úr samstæðureikningi
Marels hf. 30. júní 1998 IMrntíl
30.6 1998 30.6 ‘97 Breyting
Rekstrartekjur 1.731,8 2.056,2 -15,8%
Rekstrargjöld 1.788,0 1.906,2 -6,2%
Rekstrarhagnaður (56,3) 150,1
Fjárm.gj. umfram fjármunatekjur (33,8) (13,5) 150,4%
Hagnaður af reglulegri starfsemi (90,1) 136,6
Hagnaður fyrir skatta (109,1) 136,6
Hagnaður ársins (77,1) 104,9
30.6 1998 31.12'97 Breyting
Veltufjármunir 1.796,7 1.714,8 4,8%
Fastafjármunir 787,7 845,5 -6,8%
Eignir samtals 2.584,4 2.560,3 0,9%
Skammtímaskuldir Langtímaskuldir 983,8 1.151,4 1.106,1 -11,1% 879,0 31,0%
Skuldir samtals 2.180,0 495,3 ~
Eigið fé 2.584,4 2.560,3 0,9%
|
Veltufé frá rekstri (47,0) 199,3
REKSTRARTEKJUR Marel sam-
stæðunnar á fyrri árshelmingi 1998
námu 1.732 milljónum króna saman-
borið við 2.056 milljónir á sama tíma
í fyrra, sem jafngildir 16% sam-
drætti tekna. Tap af rekstri fyrir-
tækisins eftir skatta varð 77 m.kr.
en 105 m.kr. hagnaður varð af
rekstri fyrirtækisins á sama tíma í
fyrra. Heildareignir Marel í lok júní
voru bókfærðar á 2.584 milljónir
króna, en voru 2.560 milljónir við
síðustu áramót. Skuldir án tekju-
skattsskuldbindingar námu 2.155
m.kr. en voru 2.501 milljón við síð-
ustu áramót. Eigið fé félagsins í lok
júní 1998 var 404 milljónir en var
495 milljónir króna í árslok 1997.
Hlutafé er 218 milljónir að nafn-
verði. I lok tímabilsins var eiginfjár-
hlutfall 16%, veltufjárhlutfall 1,8 og
lausafjárhlutfall 1,1. Tap móðurfé-
lagsins án dótturfyrirtækja, að
teknu tilliti til tekjuskattsskuldbind-
inga var á fyrri árshelmingi 62 m.kr
samanborið við 25 m.kr. hagnað á
sama tíma í fyrra.
Tekjur drógust
saman um 15%
I fréttatilkynningu frá félaginu
kemur fram að helsta ástæða fyrir
tapi fyrirtækisins sé að tekjur hafi
dregist saman um 15% frá fyrra ári
sem rekja má til samdráttar I sölu
Marel hf. og dótturfyrirtækisins
Carnitech A/S í fiskiðnaði. Meginá-
stæðu þessa samdráttar í tekjum má
rekja til minni fjárfestingar i fisk-
iðnaði. Þá er bent á að versnandi
ástand þorskstofnsins í Barentshafi
og samdráttur á veiðiheimildum hafi
minnkað framboð á fiski og valdið
verulegri hækkun á verði á óunnum
fiski.
Geir A. Gunnlaugsson fram-
kvæmdastjóri segir að söluaukníng
samstæðunnar í kjúklinga- og kjöt-
iðnaði hafi skilað góðum árangri en
það vegi samt sem áður ekki upp
þann samdrátt sem orðið hefur í
fiskvinnslu: „Við höfum t.a.m. ein-
ungis afgreitt eitt vinnslukerfi á
þessu ári samanborið við þrjú í
fyrra. Skýringin á þeim samdrætti
felst í því að verð á lítið unnum fiski
hefur verið mjög hátt undanfarið og
þvi einfaldlega ekki hagkvæmt fyrir
fiskframleiðendur að fjárfesta í stór-
um vinnslubúnaði þegar verðmunur-
inn á unnum og óunnum afurðum er
mjög lítill. Eg tel þó ekki líklegt að
þetta ástand verði viðvarandi. Ann-
aðhvort mun verð á blokk lækka eða
unnar afurðir hækka og eftirspurn
eftir vinnslukerfum þ.a.l. aukast.“
Geir segir rekstraráætlanir sam-
stæðunnar ekki gera ráð fyrir að
skila hagnaði á árinu í heild en hins
vegar sé búist við að aukin sala og
batnandi verkefnastaða styrki
reksturinn. Þá hafi verið gerðar ráð-
stafanir til að lækka rekstrar- og að-
fangakostnað auk þess sem Ijóst er
að launakostnaður muni lækka í
kjölfar þeirra uppsagna sem gi-ipið
var til á árinu.
Góður fjárfestingarkostur
Albert Jónsson, forstöðumaður
verðbréfamiðlunar Fjárvangs, segir
tap félagsins ekki koma á óvart þó
að það sé ívið meira en flestir bjugg-
ust við: „Þrátt fyrir slakt milliupp-
gjör, þá tel ég þetta fyrirtæki góðan
fjárfestingarkost og þá sérstaklega
til lengri tíma litið. Markaðurinn
hefur verið þeim óhagstæður á árinu
og allar líkur á að það breytist til
batnaðar. Þá hefur félagið verið að
hasla sér völl á nýjum sviðum í kjöt-
og kjúklingavinnslu og ekki hægt að
krefjast þess að þær ráðstafanir fari
að skila tekjum undir eins.“
Albert segir erfitt að spá í seinni
hluta ársins en til aðeins lengiú tíma
litið þá gætu menn farið að sjá veru-
legan bata hjá Marel.
-----------------
Verðbréfaþing
505 m.kr.
viðskipti
VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi í gær
námu 505 m.kr., mest á langtíma-
markaði skuldabréfa, alls 234 millj-
ónir. Viðskipti með hlutabréf námu
77 m.kr., mest með bréf Samherja,
27 milljónir króna og með bréf SR-
mjöls og SÍF, um 12 m.kr með bréf
hvors félags. Verð bréfa Vinnslu-
stöðvarinnar hækkaði í gær um
7,8% og verð bréfa Frumherja
hækkaði um 5,6%. Hlutabréf sjávar-
útvegsfyi-ii-tækja hækkuðu almennt
í verði og vísitala sjávarútvegs
hækkaði um 1,4%. Úrvalsvísitala
Aðallista hækkaði um 0,98% í gær.