Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 19 Samherji hf. hagnast um 506 milljónir kr. á fyrri árshelmingi Viðsnúningur á erlendri starfsemi HAGNAÐUR af erlendri starfsemi í stað verulegs taps og fjármuna- tekjur í stað verulegra fjármagns- gjalda eru helstu skýringamar á miklum afkomubata samstæðu Samherja hf. frá síðasta ári. Hagn- aður samstæðunnar nam 506 millj- ónum kr. á fyrri helmingi þessa árs en til samanburðar má geta að hagnaður alls síðasta rekstrarárs var liðlega 200 milljónir kr. Hagn- aður Samherja er jafnframt um það bil tvöfalt meiri en verðbréfafyrir- tækin spáðu. Á síðasta rekstrarári var 173 milljóna króna tap af erlendum dóttur- og hlutdeildarfélögum Sam- herja og dró það afkomu félagsins verulega niður. I ár varð hins vegar 68 milljóna króna hagnaður, sam- kvæmt milliuppgjöri móðurfélags- ins, og er afkomubatinn því liðlega 240 milljónir kr. Samherji birti ekki milliuppgjör á síðasta ári og eru töl- ur alls síðasta árs því birtar til sam- anburðar í meðfylgjandi töflu. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, segir að þegar fé- lagið hóf þátttöku í rekstri erlendis hefði það legið fyrir að ráðast í mikla endurskipulagningu á fyrir- tækjunum, ekki síst í veiðum. Það hefði verið gert í fyrirtæki þeirra í Skotlandi og einnig Þýskalandi en þar á Samherji GmbH nú 99% þýska útgerðarfélagsins DFFU. Þorsteinn segir að lögð hafi verið áhersla á þetta starf. „Því er ekki lokið en það hafa verið tekin skref í rétta átt.“ DFFU keypti nýlega lít- inn ísfísktogara sem aðallega verð- ur gerður út til veiða á Norðursjó. Kaupin eru liður í því að nýta kvóta félagsins betur og auka fjölbreytni í rekstri. Fjármunatekjur í stað gjalda Fyrstu sex mánuði ársins hafði samstæðan 48 milljónir kr. í fjár- munatekjur á móti 322 milljóna kr. fjármagnsgjöldum á öllu síðasta rekstrarári. Breytingin nemur því 370 milljónum kr. á milli uppgjöra. Þorsteinn segir að lækkun vaxta og gengishagnaður skýri þessa breyt- ingu að stærstum hluta. Hann segir að menn geri stundum of mikið úr áhrifum gengisbreytinga á afkomu fyrirtækja. Samherji leitist við að hafa skiptingu langtímalána í nokkru samræmi við skiptingu tekna eftir gjaldmiðlum. Við lækk- un gengis mikilvægra gjaldmiðla lækki því tekjur fyrirtækisins af sömu ástæðum og gengishagnaður myndist. Rækjuveiðar og vinnsla hefur gengið verr hjá Samherja eins og öðrum fyrirtækjum á þessu ári. Þá hefur verð á grásleppukavíar verið mjög lágt og loðnuvertíðin lakari en á síðasta ári. Á móti kemur að bol- fiskveiðar félagsins hafa gengið mjög vel og náð að vega upp þann samdrátt sem varð í hinum greinun- um. Þá hefur markaðs- og sölustarf- semin einnig gengið vel, að sögn Þorsteins Más. Veltufé frá rekstri nam 755 millj- ónum kr. á fyrri árshelmingi. Skammtímaskuldir samstæðu Sam- herja eru nú meiri en um síðustu áramót og veltufjárhlutfallið lægra. Meginástæða þess er sú að skuld- bindingar félagsins vegna kaupa á 49,5% hlut í DFFU í Þýskalandi í Landsbanki íslands greiðir upp skuldabréf Heildarinn- lausnir í kring- um 82 milljónir LANDSBANKI íslands hefur ákveðið að nýta sér uppgreiðsluá- kvæði skuldabréfa, útgefinna af Lind hf. í 2. flokki Á 1993, þann 21. ágúst 1993. Bréfin verða greidd Gengislækkun norsku krónunnar Hefur ekki áhrif á olíukaup LÆKKANDI gengi norsku krónunnar mun ekki hafa áhrif á kaup íslenskra olíufélaga á ol- íu frá Noregi. Samkvæmt upplýsingum frá Olíufélaginu hf. og Skeljungi hf. fara öll kaup á olíu fram með dollurum og því hafa sveiflur á gengi norsku krónunnar engin áhrif á olíuverð. Gengi norsku krónunnar lækkaði í gærmorgun um 3,4% á gjaldeyrismarkaði í Ósló sök- um óróleika á fjarmálamörkuð- um heims, að talið er. lok tímabilsins svo og skuldbinding- ar vegna kaupa á nóta- og togskip- inu Garðari frá Noregi í lok apríl eru færðar meðal skammtíma- skulda en unnið er að langtímafjár- mögnun. Góðar horfur Þorsteinn Már telur horfur fyrir árið í heild viðunandi. „Við erum sáttir núna og reynum áfram að gera okkar besta.“ Hann segir að ýmsar sviptingar séu í því alþjóð- lega umhverfi sem íslenskur sjávar- útvegur starfi í, nefnir umrót í Asíu og Rússlandi sem dæmi um það. Slíkar breytingar hafi áhrif á rekst- urinn á árinu en hversu miklar sé erfitt að spá íýrir um. í grein í Morgunblaðinu fyrir mánuði kemur fram að flest verð- bréfafyrirtækin gerðu ráð fyrir 200-300 milljóna króna hagnaði af rekstri Samherja á fyrri hluta árs- ins en hagnaðurinn reyndist vera tvöfalt meiri. Tryggvi Tryggvason, framkvæmdastjóri Kaupþings Norðurlands hf., segir að væntingar til Samherja hafi aukist eftir að milliuppgjör sjávarútvegsfyrirtækj- anna fóru að birtast. Afkoman hafi hins vegar reynst enn betri. Vekur hann athygh á að mestu máli skipti viðsnúningur á fjármagnsliðum og erlendri starfsemi sem stjórnendur SAMHERJI hf Samstæðureikningur Úr milliuppgjöri 1998 Rekstrarreikningur Rekstrartekjur, milljónir kr. Rekstrargjöld Hagnaður fyrir afskriftir Afskriftir Fjármagnsliðir Hagnaður af reglulegri starfsemi Aðrar tekjur (gjöld) Hagnaður tímabilsins Efnahagsreikningur Veltufjármunir, milljónir kr. Fastafjármunir 1/1-30/6 1998 4.809 3.810 999 (436) 48 611 57 506 30.6.98 3.148 9.777 Eignir alls Skammtímaskuldir Langtímaskuldir og skuldb. Eigið fé Skuldir og eigið fá alls Kennitölur Eiginfjárklutfall Veltufjárhlutfall Veltufé frá rekstri, milljónir kr. 12.925 4.464 4.339 4.122 12.925 31,9% 0,70 755 Ailtárið 1997 7.405 6.035 1.370 (759) (322) 289 55 204 31.12.97 2.462 8.205 10.667 2.533 4.447 3.687 10.667 34,6% 0,97 974 Breyting 27,9% 19,2% 21,2% 76,2% -2,4% 11,8% 21,2% félagsins virtust nú vera búnir að ná tökum á. Gengi hlutabréfa Samherja var 9,80 í gærmorgun og segir Tryggvi að það hafi endurspeglað væntingar um góða afkomu. Niðurstaða milli- uppgjörsins sýndi að félagið ætti vel fyrir þessu gengi og gott betur og sagði að það kæmi sér á óvart ef gengið hækkaði ekki næstu daga. Eftir að opnað var fyrir viðskipti með bréf Samherja í gær hækkaði gengið upp í 10,50 en lækkaði svo aftur niður í 10 sem er 2% hærra en í upphafi dags. Tryggvi er bjartsýnn á afkomu Samherja á árinu í heild en telur þó óvarlegt að tvöfalda hagnaðinn af fyrri árshelmingi og reikna með milljarðs hagnaði fyrir árið allt. upp þann 15. september nk. á öll- um afgreiðslustöðum bankans. Bréfin eru bundin lánskjaravísi- tölu. Grunnviðmiðun verðtrygging- ar var 3307 stig lánskjaravísitölu í ágúst 1993. Þórarinn Þorbjörnsson hjá við- skiptastofu Landsbankans sagði að heildarflokkurinn, sem væri í inn- köllun, væri útgefinn upp á 50 milljónir króna og að bréfin hafi verið seld á opnum markaði. Bréfin eru með gjalddaga 15. september 2001, að sögn Þor- björns, sem átti að vera lokagjald- dagi, en þar sem bréfin hafa inn- köllunarákvæði nýtti bankinn sér rétt sinn til innköllunar. „Þessi bréf bera 8,5% vexti sem er talsvert hærra en almennt ger- ist á markaði í dag og þessvegna nýtir bankinn sér innköllunarrétt- inn sem er í skuldabréfunum," sagði Þórarinn og sagði að þetta þýddi það, að ef eigendur bréfanna innleysa ekki bréfín fyrir 15. sept- ember, fá þeir ekki vexti á þau frá þeim tíma. Að sögn Þórarins verða heildar- innlausnir í kringum 82 m.kr. Greiðslustaður skuldabréfanna er í afgreiðslu bankans að Lauga- vegi 77, Reykjavík. Heimilt verður að framvísa skuldabréfum í öllum afgreiðslum bankans sem aðstoða munu við innlausnina. c Landsvirkjun Til hamingju með nýju fjármögnunina. Landsvirkjun réðst í skuldabréfaútboð að fjárhæð kr. 2.500.000.000 til 15 ára með gjalddaga 24. ágúst 2013. Skuldabréfin voru gefin út þann 24. ágúst 1998 og seldust upp á fyrsta söludegi. Umsjónaraðili útboðsins, íslandsbanki hf. í samvinnu við Búnaðarbanka íslands hf. ISLANDSBANKI ®BIJNAÐARBANKINN NS “ Tmmtur banki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.