Morgunblaðið - 28.08.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 23
ERLENT
Iskyggileg ofþenslumerki og mikil ólga í norskum efnahagsmálum
Vextir tvöfaldast og
gengi hlutabréfa lækkar
Garður helg-
aður Díönu
í París
París. Reuters.
BORGARSTJ ÓRNIN í París til-
kynnti í gær að fyrirhugað væri
að byggja garð í minningu Díönu
prinsessu, réttu
ári eftir að hún
lét lífið í bílslysi
í borginni.
í tilkynningu
frá borgar-
stjórninni segir
að borgarstjór-
inn Jean Tiberi
hafi í samráði
við fjölskyldu
prinsessunnar
og bresku ríkisstjórnina ákveðið
að heiðra minningu hennar með
þessum hætti. Rætt hafi verið um
að nefna götu í borginni eftir
Díönu, en frá því hafí verið horf-
ið vegna þess að það hefði tekið
að minnsta kosti fimm ár.
Garðurinn verður staðsettur
við hliðina á barnaheimili í
Marais-hverfinu, sem er eitt
það elsta í París. I tilkynning-
unni segir að garðurinn verði
helgaður því að fræða börn um
náttúruna og garðyrkju, og
verður hann opinn almenningi
um helgar.
GENGI norsku krónunnar lækkaði
áfram í gær og hefur gengi norsku
krónunnar aldrei mælst jafnlágt
gagnvart evrópsku myntkörfunni,
ECU. Þá lækkaði gengi hlutabréfa í
norsku kauphöllinni um 3,8% og
hafði áður lækkað um 3,6% á mið-
vikudag.
Við lok viðskipta í kauphöllinni í
gær stóð norska hlutabréfavísitalan
í 1007,27 stigum. Hefur hún ekki
verið lægi-i frá því í janúar 1997.
Hæst náði vísitalan hinn 6. maí sl.
er hún var 1423 stig. Ekki síst voru
það hlutabréf norskra stórfyrir-
tækja er lækkuðu verulega í verði.
Gengi hlutabréfa í stærstu bönkum
Noregs lækkaði um 5-7% og í
stærstu iðnfyrirtækjum um allt að
12%.
Sérfræðingar segja að veik staða
norsku krónunnar hafi valdið lækk-
un hlutabréfavísitölunnar að miklu
leyti en einnig hafi blikur á lofti í al-
þjóðlegum efnahagsmálum haft
áhrif.
Norskir bankai- héldu í fyrradag
áfram að hækka vexti. Den Norske
Bank tilkynnti 2,5 prósentustiga
hækkun á vöxtum húsnæðislána
bankans og nema þeir nú 9%.
Skömmu síðar boðaði Fokus bank
þriggja prósentustiga hækkun hús-
næðislána. Bera húsnæðislán síðar-
nefnda bankans þar með 9,71%
vexti. Eru vextir í Noregi nú þeir
hæstu í Evrópu að Grikklandi und-
anskildu.
í fréttaskýringu í Aftenposten
segir að þótt norskir vextir hafi tvö-
faldast á undanfömum tveimur
mánuðum sé þar með ekki öll sagan
sögð. Hinn raunverulegi fjármagns-
kostnaður geti fjóifaldast, haldist
vaxtastigið óbreytt, eftir að tekið
hafi verið tillit til áhrifa skatta-
reglna. Vaxtastig er nú sambæri-
legt og það var í byrjun áratugarins
en þá lentu tugir þúsunda fjöl-
skyldna í Noregi í greiðslueiflðleik-
um vegna fjármagnskostnaðar.
Raunvextur voru neikvæðir í
Noregi á árunum 1983-1987 vegna
mikillar verðbólgu og þótt raun-
vextir hafi verið jákvæðir á árunum
1983-1987 voru þeir mjög lágir eða
um 2%. Eftir það fór vaxtastig
hækkandi og náði hámarki á árun-
um 1991 og 1992 er Noregur gekk í
gegnum tímabil mikilla efnahags-
þrenginga á sama tíma og verð-
bólga lækkaði mikið. Síðan hafa
vextir farið lækkandi og höfðu á síð-
asta ári ekki mælst lægri í áratug.
Krónan flýtur
Mikil ólga hefur verið á norskum
fjármálamarkaði það sem af er vik-
unnar. Norski seðlabankinn hækk-
aði vexti sl. fóstudag og aftur á
mánudag og lýsti að því búnu yfir
að ekki yrði gripið til frekari að-
gerða til að verja gengi norsku
krónunnar. Jafngildir það því að
gengi krónunnar sé látið fljóta á
mörkuðum.
Mikill þrýstingur hefur verið. á
gengi norsku krónunnar síðastliðna
mánuði og er helsta skýringin á því
sögð lækkun olíuverðs á alþjóða-
mörkuðum auk mikilla kauphækk-
ana í kjarasamningum. Þá er stjórn
Kjell-Magne Bondeviks ekki sögð
hafa náð að afla sér nægilegs trú-
verðugleika í efnahagsmálum. Hef-
ur þetta valdið spákaupmennsku á
peningamörkuðum en seðlabankinn
reyndi að halda genginu stöðugu
allt þar til í byrjun vikunnar.
Ákvörðun seðlabankans hefur
mælst misjafnlega fyrir en flestir
vona að hún verði til að jafnvægi
komist á í peningamálum þjóðarinn-
ar. Ekki hafi verið hægt að verja
gengi krónunnar endalaust með
vaxtahækkunum í kapphlaupi við
spákaupmenn á peningamörkuðum.
I leiðara dagblaðsins Stavanger
Aftenblad segir að gengislækkun sé
ekki stórslys. Lægra gengi komi út-
flutningsatvinnuvegum til góða og
fólk verði á móti að sætta sig við
dýrari innflutningsvarning og sólar-
landaferðir.
Enn deilt um stöðu Lettlands-Rússa
Þj óðaratkvæða-
greiðsla um
ríkisborgararétt
Ríga. Reuters.
HALDIN verður þjóðaratkvæða-
greiðsla í Lettlandi 3. október nk.
um það hvort gera eigi fólki sem
tilheyrir rússneska minnihlutan-
um í landinu auðveldara að öðast
lettneskan ríkisborgararétt eða
ekki. Samtímis verður gengið til
þingkosninga. Þetta tilkynnti
lettneska stjórnin í gær.
Yfirkjörstjórn landsins stað-
festi að andstæðingar rýmkunar
á ákvæðum um ríkisborgararétt
hefðu safnað 226.530 undirskrift-
um frá almenningi til stuðnings
kröfunni um að þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið. 131.147 undir-
skriftir hefðu nægt til að knýja
atkvæðagreiðsluna fram, sam-
kvæmt ákvæðum þar að lútandi í
lettnesku stjórnarskránni.
í júni sl. samþykkti lettneska
þingið breytingu á lögum um rík-
isborgararétt, sem gengu út á að
gera ríkisfangslausu fólki í land-
inu, sem flest er af rússnesku
bergi brotið, auðveldara að öðlast
ríkisborgararétt, en þjóðernis-
sinnaðir stjórnmálamenn, sem
voru andsnúnir þessari breyt-
ingu, hrintu af stað undirskrifta-
herferðinni til að knýja fram
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Allir flokkar nema einn
fylgjandi breytingu
Að undanskilinni Föðurlands-
og frelsisfylkingunni, flokks
Guntars Krasts forsætisráð-
herra, studdu allir helztu stjórn-
málaflokkar á lettneska þinginu
breytingarnar í von um að þær
mættu verða til að bæta sam-
skiptin við Rússland og slá á
áhyggjur vestrænna ríkja og
stofnana af mannréttindamálum í
landinu.
Reuters
, - I
SPRENGJA sprakk í miðri mið-
borg Tel Aviv í gær, annarrar
stærstu borgar Israels, á fjölfar-
inni götu í grennd við aðalsam-
kunduhús borgarinnar. 21 slas-
aðist, þar af einn alvarlega. Hér
beitir sérþjálfaður lögreglumað-
ur vélmenni fyrir sig til að kanna
hvort leifar af sprengiefni finnist
enn á vettvangi.
Sprengjunni hafði verið komið
fyrir í ruslafötu og sprakk um
Sprengja í
Tel Aviv
morguninn, þegar mikil umferð
var um götuna. Lögreglan telur
palestínska öfgamenn bera
ábyrgð á tilræðinu, en enginn
hafði lýst því á hendur sér í gær.
Þetta var fyrsta sprengjutilræðið
í Tel Aviv frá því þrjár konur
létu Iífið í sjálfsmorðstilræði
Palestínumanns í marz 1997.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, lét svo um mælt
eftir tilræðið, að hann myndi
ekki samþykkja neina samninga
um að láta af hendi meira land-
svæði á Vesturbakkanum í hend-
ur heimastjórnar Palestínu-
manna nema hún gengi hart
fram í að beijast gegn „morð-
ingjum og hryðjuverkum".
Nýtt val í lífeyrissparnaði
Lífsbrautin
Oskir fólks á sviði lífeyrissparnaðar eru mismunandi.
Lífsbrautin gefur sjóðfélögum kost á að fjárfesta í þremur mismunandi deildum:
uífTL Llf JLXJL
Líf I stefnir að góðri langtíma- Líf II stefnir að góðri ávöxtun til Líf III er áhættuminnsta deildin
ávöxtun, með því að nýta fjölbreytt lengri tima með áhættudreifingu. með litlar sveiflur í ávöxtun.
Lífl
Líf I ste
ávöxtun
tækifæri sem bjóðast á mörkuðum.
Hafðu samband við ráðgjafa Landsbréfa
x LANDSBREF HF.
7^4
SUOURLANDSBRAUT 24. 108 REYKJAVÍK, SÍMI 535 2000.BRÉFSÍMI 535 2001, landsbref.is