Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Umfangsmikil og fjölbreytt starfsemi á leikárinu STARFSEMI Leikfélags Reykjavík- ur verður ívið umfangsmeira á kom- andi leikári en á síðastliðnum vetri. Fyrir því er grundvöllur, að sögn Þórhildar Þorleifsdóttur, leikhús- stjóra, enda hafi starfsemi Borgar- leikhússins gengið vel í fyrra. Langt mun vera síðan svo margir áhorfend- ur sóttu sýningar LR og margfaldað- ist fjöldi þeirra frá árinu áður. „Það er ánægjulegt hversu margt í starf- semi LR fékk góðar viðtökur á síð- asta leikári. Það bendir til þess að áhorfendur vilji enn meira og því j lofa ég umfangsmikilli og : fjölbreyttri starfsemi í : vetur,“ sagði Þórhildur og Katrín Hall, listdans- ; stjóri, tók í sama streng. j Sagði að íslenski dans- ; flokkurínn gæti horft | stoltur fi'am á veginn og haldið áfram að efia starfsemina í Borgarleik- húsinu í samvinnu við leikfélagið. Stóra sviðið Islenski dansflokk- urinn Morgunblaðið/Golli FRÁ ÆFINGU LR á Mávahlátri eftir Kristfnu Marju Baldursdóttur sem frumsýnt verður á Stóra sviðinu 9. október. íslenski dansflokkur- inn hefur leikárið 1. októ- ber með því að taka upp afmælissýningu sína á þremur dans- verkum, Night eftir Jorma Uotinen, Stoolgame eftir Jirí Kylián og La Cabina 26 eftir Jochen Ulrich. Sýn- ingin var frumsýnd á Listahátíð í Reykjavík í vor. Dansflokkurinn efndi fyrr í sumar tO samkeppni ungra danshöfunda um stutt frumsamið dansverk. Valin verða nokkur bestu verkin sem borist hafa og þau sýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins, þar sem þau verða dæmd og þrjú bestu verkin verðlaunuð. Þetta er í fyrsta sinn sem keppni af þessu tagi er haldin hér á landi. I febrúar frumsýnir dansflokkur- inn nýja sýningu, sem samanstendur af verkinu Brot - Kæra Lóla eftir Hlíf Svavarsdóttur, fyrrverandi list- dansstjóra, og tveimur verkum eftir Portúgalann Rui Horta. Önnur starfsemi Fjöldi áhorf- enda marg- faldaðist milli ára Hjá LR er fyrsta frumsýning leikársins á Stóra sviðinu fyrirhuguð 9. október. Er það leik- gerð Jóns Hjartarsonar á fyrstu skáldsögu Krist- ínar Marju Baldursdótt- ur, Mávahlátri, sem út kom 1995. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Sögusvið verksins er ís- lenskt fiskiþorp á sjötta áratugnum. Þama hafði verið farsælt líf þar til einn góðan veðurdag að kona nokkur, allsérstæð, Freyja að nafni, birtist I skyndilega, komin alla leið frá Amer- j íku. Brátt fer hið rótgróna samfélag | allt úr skorðum, þama verður vett- : vangur undarlegrai- og spennandi at- ; burðarásar. Leikendur í Mávahlátri era Björn S Ingi Hilmarsson, Edda Björg Eyj- ; ólfsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, ; Halldóra Geirharðsdóttir, Hanna ; María Karlsdóttir, Hildigunnur Þrá- ' insdóttir, Inga María Valdimai-sdótt- ‘ ir, Jóhann G. Jóhannsson, Jón Hjartarson. Margrét Helga Jó- hannsdóttir, Pétur Einarsson, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigrún Edda ; Björnsdóttir, Soffía Jakobsdóttir, f Sóley Elíasdóttir, Theodór Júlíus- I son, Valgerður Dan, Þórhallur : Gunnarsson og Halldór Gylfason. Tónlist er eftir Pétur Grétarsson, búninga gerir Una Collins og leik- mynd er eftir Sigurjón Jóhannsson. Bamaleikrit vetrarins er Pétur Pan eftir James Barrie í þýðingu i Karls Ágústs Úlfssonar. Verður verk- í ið, sem nú er sýnt í fyrsta sinn á Is- landi, framsýnt á annan í jólum. Leik- : stjóri verður María Sigurðardóttir. Einu sinni vöru þrjú systkin sem áttu heima í Lundúnum. Vanda var elst. Hún sagði bræðrum sínum, Jóni f og Mikka, sögur á hverju kvöldi og oftar en ekki fjölluðu þær um ímynd- í aðan snáða, Pétur Pan, sem átti heima í Hvergilandi. En Vanda vissi i ekki að Pétur Pan var til í raun og veru. Inn í söguna er flettað dansi og : söng. Með helstu^ hlutverk fara Ari Matthíasson, Árni Pétur Guðjónsson, Edda Björg ; Eyjólfsdóttir, Ellert A. Ingimundarson, Friðrik | Friðriksson, Gísli Rúnar i Jónsson, - Inga María | Valdimarsdóttir, Jóhann j G. Jóhannsson og Sigrún Edda : Björnsdóttir en auk þeirra kemur ' fram fjölmennur hópur barna og unglinga. Tónlist er eftir Kjartan Ólafsson, dansar eftir Láru Stefánsdóttur, . Una Collins hannar búninga og leik- mynd gerir Jón Þórisson. Eitt kunnasta leikrit aldarinnar, Horft frá bránni eftir Bandaríkja- manninn Aithur Miller verður frum- sýnt á Stóra sviðinu í janúar. Leik- stjóri verður Kristín Jóhannesdóttir í og Stígur Steinþórsson smíðar leik- Leikárið 1998-99 í Borgarleikhúsinu var kynnt á blaðamannafundi í gær. Þórhildur Þorleifsdóttir, leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, og Katrín Hall, listdansstjóri Islenska dansflokksins, fóru yfír sviðið og lofuðu umfangsmikilli og fjölbreyttri starf- semi í leikhúsinu í vetur. Hegels. Hér einbeitir höfundur sér að átökum hugsjóna og hugmynda og lætur söguna gerast í nútíman- um. Búasaga hlaut fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur sem efnt var til í tilefni af eitt hundrað ára afmæli félagsins. Fegurðardrottningin frá Línakri eftir ungan Ira, Martin McDonagh, rekur lestina á Litla sviðinu. Verður verkið ft-umsýnt í febrúar í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Þýðing er eft- ir Karl Guðmundsson. Verkið, sem sló í gegn í Lundúnum, fjallar um mæðgur sem búa saman við sérkennilegar að- stæður. Barist er upp á líf og dauða. Tvær sýningar verða teknar upp frá síðasta vetri, farsinn Sex í sveit eftir Marc Camoletti í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar og Sumarið 37 eftir Jökul Jakobs- son. Hefjast sýningar á báðum verkum í sept- ember. Þá verður sýn- ingum á söngleiknum „Grease“ fram haldið á leikárinu. Horft frá brúnni eftir Miller í nýrri þýðingu Morgunblaðið/Arnaldur ÞÓRHILDUR Þorleifsdóttir leikhússtjóri kynnir Ieikárið 1998-99 á blaðamannafundi í Borgarleikhúsinu. mynd. Notuð er ný þýðing Sigurðai' Pálssonar á verkinu. Verk þetta gerist í hafnarhverfí ítalskra innflytjenda í New York. Hafnarverkamaðurinn Eddie gengur Katrínu, systurdóttui' sinni, í fóður- stað. Er fram líða stundir og Katrín verður ástfangin af ungum ítala, frænda eiginkonu Eddies, blossar upp afbrýðisemi og það rennur upp fyrir honum að tilfinningar hans til Katrínar eru flóknari en hann hefur gert sér grein fyrir. Eddie einsetur sér að skilja elskendurna að. Ekki hefur enn verið skipað í hlutverk. Vorið vaknar nefnist verk eftir þýska leik- skáldið Frank Wadekind sem fnimsýnt verður í mars. Er það skrifað árið 1890 en ekki frumsýnt fyrr en 1906. Hafliði Arngrímsson þýðir leikritið. Fjallar það um ungt fólk á þrösk- uldi þess að verða fullorðið. Tilfínn- ingarót, átök, fyrsta kynlífsreynslan og órar eru í forgrunni. Gamanleikurinn Stjórnleysingi ferst af slysfórum eftir nóbelsskáldið Dario Fo í leikstjórn Maríu Sigurð- ardóttur verður síðasta frumsýning leikársins á Stóra sviðinu, í mars. Silja Aðalsteinsdóttir þýðir verkið. Verkið byggist á raunverulegum atburðum sem urðu vopn í báráttu fólksins fyrir betra lífi. Höfundur beinir skeytum sínum að réttarkerfi valdhafanna og skopast óspart að lögreglu hinna spilltu ráðamanna. Litla sviðið Ofanljós eftir eitt fremsta leikrita- skáld Breta, David Hare, í þýðingu Árna Ibsen er fyrsta verkið sem frumsýnt verður á Litla sviðinu, 20. september: Leikstjóri er Kristín Jó- hannesdóttir, leikmynd og búninga gerii' Stígur Steinþórsson og leik- endur eru Þorsteinn Gunnarsson, Guðlaug Elísabet Ólafs- dóttir og Friðrik Frið- riksson. Ástarsamband mið- aldra manns og ungrar stúlku hefur beðið skip- brot en lifnar á ný þegar maðurinn leitar stúlkuna uppi í ör- væntingu og þunglyndi eftir dauða konu sinnar. Búasaga nefnist nýtt verk eftir Þór Rögnvaldsson sem frumsýnt verður í desember. Leikmyndahönn- uður og leikstjóri verður Eyvindur Erlendsson en búninga gerir Una Collins. Verkið er byggt á grunni Kjal- nesingasögu en hefur um leið sterka skírskotun til Antígóníu Só- fóklesar og ekki síður til verka Halldórs Laxness, Nietzches og Leiklestur sígildra ljóðleika verð- ui' á dagskrá Leikfélags Reykjavíkur í vetur. Er hann einkum til heiðurs einum fremsta þýðanda íslendinga, Helga Hálfdanarsyni, sem þýtt hefur mörg helstu sviðsverk ieiklistarinn- ar, svo sem alla grísku harmleikina og öll leikrit Williams Shakespeares. Af öðrum skáldum sem ber á góma má nefna Pierre Corneille, Jean Racine, Julio Dantas, Don Pedro Calderón de la Barca og Henrik Ib- sen. LR heldur áfram með kynningu og umræður í tengslum við sýning- ar hússins í vetur en þessi háttur var tekinn upp í fyrra. Mæltist hann, að sögn leikfélagsmanna, vel fyrir. Einnig munu aðstandendur leikhússins heimsækja hópa víðs vegar á höfuð- borgarsvæðinu til að kynna starfsemi LR og einnig einstök verk. Þá munu grunnskóla- börn halda áfram að kynnast starfsemi Borgarleikhússins í vetur líkt og hin síðari ár. Er fræðslustarf þetta orðið fastur liður í starfsemi leikhússins. Þá er þess ógetið að um mánaða- mótin september/október fer LR í Austurveg, nánar tiltekið til Moskvu, þar sem félaginu hefur verið boðið með sýningu sína, Feður og syni, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu í fyrra. Segir Þórhildur þetta boð ein- stakt og ánægjulegt, auk þess sem í því felist mikil hvatning fyrir Leikfé- lag Reykjavíkur. EITT verka Sveinbjargar. Grafík hjá Ófeigi SVEINBJÖRG Hallgrímsdóttir opnar gi-afíksýningu laugardaginn 29. ágúst n.k. kl. 14 - 16 í List- munahúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Þetta er fimmta einkasýning henn- ar en að auki hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga. í kynningu segir: „Innblástur verkanna er ímynd frelsisins. Eg sé fuglana fljúga, heyri vængjaþyt í lofti og veit að frelsið er dýr- mætt“. Myndinar eru allar unnar á þessu ári með blandaðri tækni en mest er þó unnið með þurrnál á kopar- og álplötur og hver mynd þrykkt með mismörgum plötum. Sveinbjörg lauk námi úr mynd- menntakennaradeild MHÍ 1978 og málaradeild MHÍ 1992. Hún er fé- lagi í SÍM og Grafíkfélaginu. Hún er með vinnustofu sína í Listagil- inu, Akureyri og rekur þar sam- hliða sýningarsalinn Gallerí Svart- fugl, þar sem fjöldi listamanna hef- ur sýnt verk sín. Sýningin er opin á opnunartíma Listmunahúss Ófeigs mán. - fös. kl. 10-18 og lau. 11-14. Listakonan verður viðstöddum við opnun sýn- ingarinnar og jafnframt sunnud. 30. ágúst kl. 13-15. Sýningin stendur til 12. sept. MARKÚS við eitt verka sinna. Markús sýnir í Eden NÚ stendur yfir sýning Markús- ar Sigurðssonar f Eden í Hvera- gerði. Þetta er hans fjórða einka- sýning. Sýningunni lýkur 6. sept- ember. -------------- Lokatönleikar á Jómfrúnni ÞRETTÁNDU og slðustu jazztón- leikar veitingahússins Jómfrárinnar þetta sumarið fara fram laugardag- inn 29. ágúst kl. 16-18. Að þessu sinni leika Sigurður Flosason saxó- fónleinari, Bjöm Thoroddsen gítar- leikari og Gunnar Hrafnsson kontrabassaleikari. Sérstakur gest- ur með hljómsveitinni verður söng- konan Hólmfríður Jóhannsdóttir. Hólmfríður er útskrifuð frá söng- skólanum í Reykjavík og hefur ver- ið við framhaldsnám í óperu- og ljóðasöng í Vín undanfarin ár. Tónleikarnir fara fram á Jóm- frúrtorginu á milli Lækjargötu, Pósthússtrætis og Austurstrætis ef veður leyfir, en annars inni á Jóm- frúnni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.