Morgunblaðið - 28.08.1998, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 29
LISTIR
Hvalir
í Kringl-
unni
SAMSÝNING nokkurra Usta-
manna verður opnar í sýningar-
rými Gallerís Foldar og Kringlunn-
ar á annarri hæð gegnt Hagkaupi,
laugardaginn 29. ágúst. Þema sýn-
ingarinnar er Hvalir. Sýningin er
sett upp í tilefni af komu háhyrn-
ingsins Keikos til landsins.
Þeir sem eiga verk á sýningunni
era; Daði Guðbjömsson, Hekla
Björk Guðmundsdóttir, Irene Jen-
sen, Lýður Sigurðsson, Sigrún
Eldjárn, Soffía Sæmundsdóttir og
Tolli.
Sýningin er opin á venjulegum
opnunartíma Kringlunnar.
----------------
Tónleikar í
Kristskirkju
HALLVEIG Rúnarsdóttir söng-
nemi og Steingrímur Þórhallsson
orgelnemi halda tónleika sunnu-
daginn 30. ágúst í Kristskirkju
Landakoti kl 20.30 í tilefni þess að
þau halda utan til náms með
haustinu. Einnig kemur fram Nora
Cornblueh sellóleikari.
Flutt verða verk eftir íslensk og
erlend tónskáld, svo sem Snorra
Sigfús Birgisson, Hildigunni Rún-
arsdóttur, Sigvalda Kaldalóns, Jo-
hann Sebastian Bach, Max Reger
og Wolfgang Amadeus Mozart.
Aðgangur er ókeypis.
----------------
Sýning á verk-
um Listasmiðju
Hins hússins
LISTASMIÐJA Hins hússins opn-
ar sýning á verkum sínum n.k.
laugardag kl. 16 í Gallerí Geysi,
Hinu húsinu við Ingólfstorg.
Á sýningunni eru ýmsir munir
sem eru gerðir með endurnýtingu
efnis í huga. Þar getur að líta m.a.
töskur gerðar úr gummíbátum,
framleg taflborð, spegla, o'.fl.
Að sýninguni standa fjögur ung-
menni sem hafa verið í starfsnámi í
Hinu húsinu.
Sýningin stendur frá 29. ágúst til
13. september.
Jón lærði og rit-
verk hans
BÆKUR
F r æ ð i r i t
EDDURIT JÓNS
GUÐMUNDSSONAR LÆRÐA
Skráð af Einari G. Péturssyni. Útgef-
andi: Stofnun Árna Magnússonar á
íslandi, 1998.1. bindi 512 bls., II.
bindi 116 bls.
JÓN Guðmundsson, sem kallaður
hefur verið hinn lærði, var sautjándu
aldar maður (1574-1658). Allur al-
menningur mun lítið vita um hann
nú, sem varla er von. En sá sem eitt-
hvað hefur gluggað í skræður mun
þó hafa séð nafni hans bregða fyrir
stöku sinnum, einkum í sambandi við
galdra. En Jón þessi þótti öðrum
mönnum traustari að kveða niður
drauga og orti á þá hin mögnuðustu
ljóðmæli (Fjandafæla og Snjáfjalla-
vísur). Þá hefur hann verið titlaður
fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn
fyrir rit sín og teikningar um þau
efni. Hnýsinn var hann í forn fræði
og fróður vel, rúnameistari mikill,
listaskrifari og málari.
Illt orð hefur þó lengstum farið af
Jóni þessum. Hann var dæmdur fyr-
h' galdra og slapp naumlega við eld-
inn. Til Kaupmannahafnar fór hann
til að fá miidaðan dóm sinn og tókst
það, en var þó lengi útlægur af sín-
um heimaslóðum.
Sumh' kunnu þó vel að meta Jón
sakir lærdóms hans og voru þar hel-
stir Brynjólfur biskup Sveinsson,
sem fékk hann til að rita sitthvað, og
Ole Worm í Kaupmannahöfn, sem
leitaði til hans um rúnafræðslu.
Munaði mikið um vemdarhendi
þessara valdamanna.
Erfiða ævi átti Jón og hrakfalla-
sama eins og ævikvæði hans langt
ber með sér.
Einar G. Pétursson, sérfræðingur
á Árnastofnun, hefur nú í nærfellt
þrjá áratugi haft það að höfuðverk-
efni að kanna ævi og fræðastörf Jóns
lærða. Árangur þess hefur birst í
mörgum ritgerðum á liðnum áram og
nú síðast í miklu og vönduðu ritverki,
sem hann varði til doktorsgráðu nú í
vor. Má segja að hrakfallamaðurinn
Jón Guðmundsson lærði hafi nú loks-
ins fengið uppreisn æru.
Rit þetta er í tveimur bindum. Hið
iyrra ber undh'titilinn Þætth' úr
fræðasögu 17. aldar I. Inngangur. Sá
inngangur er raunar ekkert smáræði,
á sjötta hundrað blaðsíð-
ur. Hið síðara er stafrétt
útgáfa á tveimur ritum
Jóns lærða. Hið fyrra
nefnist Samantekt um
skilning á Eddu og er
það sýnu lengra (91
bls.). Á eftir fer örstutt
ritgerð, hér nefnd Rist-
ingar, og fjallar hún um
rúnir. Báðum bindum
fylgja að sjálfsögðu
vandaðar skrár.
Það er vitaskuld ekki
á mínu færi að fjalla fag-
lega um þetta ritverk.
Það hefur verið gert í
andmælaræðum við
doktorsvörnina og verð-
ur sjálfsagt einnig gert í
fagtímaritum. Hér verður að láta
nægja að lýsa ritinu í allra stærstu
dráttum og kynna það væntanlegum
lesendum. Hafa verður í huga að hér
er um að ræða fræðirit, sem unnið er
eftir ströngum reglum vísinda-
mannsins, og því er það ekki ýkja að-
gengilegt almennum lesendum, „ekki
við alþýðuskap", mætti segja.
Fyrra bindið, Inngangurinn,
skiptist í sex kafla. Sá fyrsti nefnist
Samantektir um skilning á Eddu og
Ristingar - tilefni og höfundur.
Þetta eru titlar hinna tveggja verka
Jóns lærða sem til umfjöllunar eru.
Þar sýnir höfundur fram á að bæði
ritin séu eftir Jón lærða, en um það
hafa verið skiptar skoðanir, og hafí
þau verið gerð fyrh' Brynjólf biskup
Sveinsson. I þessum kafla er rætt
um fornfræðaiðkanir á 17. öld og
koma þar mjög við sögu Ole Worm,
Brynjólfur biskup, Þorlákur biskup
Skúlason og fleiri. Þetta er afar fróð-
legur kafli og prýðilega læsilegur.
Annar kafli nefnist Jón Guðmunds-
son lærði - æviferill og ritstörf (96
bls.). Æviferill Jóns er rakinn eftir
því sem heimildir leyfa, en þær eru
því miður fátæklegar og á margt
verður að giska. Mér sýnist þó að
höfundi hafi tekist að draga ýmislegt
fram sem ekki var áður kunnugt um.
í síðari hluta þessa kafla er fjallað
um ritstörf Jóns lærða og grafist
fyrir um hvaða verk megi eigna hon-
um með réttu og hvað honum hefur
verið ranglega eignað. Þetta hefur
augljóslega verið allmjög á reiki og
fæ ég ekki betur séð en að höfundur
hafi greitt svo vel úr flækjum að örð-
ugt verði að bæta um. Allur er þessi
kafli einstaklega vand-
aður og liggja bersýni-
lega miklar rannsóknir
að baki.
Þegar hér er komið
sögu hygg ég að al-
mennum lesanda fari að
þykja hart undir tönn.
Þriðji kaflinn nefnist
Handi’it Samantekta.
Eru þar tekin til athug-
unar þau handrit sem
til eru af þessu riti (eða
hlutar þeirra) og ýmis-
legt varðandi þau, svo
sem útlit, arkaskipting,
uppruni, rithendur,
notkun, stafsetning,
skyldleiki handrita og
ýmislegt fleira. Þetta er
langur kafli. Þá kemur stuttur kafli,
Utgáfa Samantekta, og neðanmáls-
greinar við textann. Fimmti kaflinn,
Heimildh- Samantekta, er langur og
að mínu viti einkar mikilvægur. Þar
er skoðað hvaðan textar handi'itanna
eru fengnir. Þykist ég sjá að þar leiði
höfundur sitthvað í ljós sem ekki var
áður vitað. Síðasti kaflinn er um
seinna rit Jóns lærða og ber heitið
Ristingar: skýringar á Brynhildar-
ljóðum. í bókarlok er langur útdrátt-
ur á ensku, svo og mikil heimildaskrá
og nafnaskrá.
Seinna bindið er stafrétt textaút-
gáfa hinna tveggja rita Jóns lærða
með rækilegum „apparatus criticus"
neðanmáls. í lok þessa bindis er
einnig skrá yfir nöfn svo og upphöf
vísna.
Jafnvel ófagmenntuðum lesanda
getur ekki dulist hvílík óhemjuvinna,
eljusemi og nákvæmni liggui' að baki
verki sem þessu. Þar þarf lengi að
leita heimilda, skoða og rýna og ekki
má skakka um stafkrók. Og varla
eru allar heimildir auðlesnar. Próf-
arkalesturinn einn hlýtur t.a.m. að
hafa verið ærið seinlegur. Þetta leið-
h’ hugann að því hversu rit sem varin
eru til doktorsgráðu ^eta verið alls
kostar ósambærileg. I sumum tilvik-
um er aðeins þriggja ára vinna að
baki og ritgerð aðeins hluti hennar. í
öðrum tilvikum, eins og þessu, er að
baki árangur áratuga rannsókna og
þrotlausrar elju. Því skulu Einari G.
Péturssyni fluttar hugheilar ham-
ingjuóskir vegna þessa merka
áfanga á fræðaferli hans.
Sigurjón Björnsson
Einar G.
Pétursson
„Skvísur
í kjallara“
NÚ STENDUR yfir myndlist-
arsýningin „Chicks in the Ba-
sement" í versluninni Dýi-inu,
Hverfisgötu 26.
Björk Guðnadóttir sýnir
Kjólapúða, Lotta Antonsson
sýnir Bláar pæjuteikningar,
Hrafnhildur Árnardóttir sýn-
ir Heimilisskraut og Ættar-
tré og Sigrún Hrólfsdóttir
sýnir trélitaðar kettlinga-
teikningar.
Sýningin er opin á verslun-
artíma til 12. september.
Sýningum
lýkur
Gallerí Stöðlakot
MÁLVE RKASÝNIN GU Ás-
dísar Guðjónsdóttur lýkur
sunnudaginn 30. ágúst. Opið
daglega frá kl. 14-18.
Gallerí Sævars Karls
Sýning á verkum Kristjáns
Steingríms lýkur miðvikudag-
inn 2. september. Á sýningunni
eru sandblásin málverk efth’
Kristján Steingrím, Kristján
Davíðsson og Bernd Koberling.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10-18 og laugardaga frá kl.
10-16.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Gestasýningunni Vinafundi,
sem undanfarnar vikur hefur
verið í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar á Laugarnesi, lýkur
á sunnudaginn. Auk högg-
mynda Sigurjóns eru þar mál-
verk eftir Þorvald Skúlason,
Guðmundu Andrésdóttur, Jó-
hannes Jóhannesson og Krist-
ján Davíðsson.
Safnið er opið daglega frá kl.
14-17 og í tilefni af 10 ára
starfsafmæli safnsins er ókeyp-
is aðgangur.
www.mbl.is/fasteignir
Tvær sýningar
opnaðar í
Listasafni ASI
TVÆR myndlistarsýningar
verða opnaðar í Sýningarsölum
Listasafns ASÍ á morgun, laug-
ardag kl. fjögur. í Gryfju sýnir
Helena Guttormsdóttir og í Ás-
mundarsal sýnir Sigi'íður Ólafs-
dóttir.
Helena sýnir andlitsmyndh- í
Gryfjunni, undir yfirskriftinni.
Fólk í huga. í kynningu segir, að
verkin séu unnin út frá mannin-
um sem lífvera, félagsveru og
því óræða sem býr innra með
hverjum og einum og gerir enga
tvo eins.
Helena útskrifaðist úr málara-
deild MHÍ árið 1989. Síðan þá
hefur hún haldið eina einkasýn-
ingu og tekin þátt í átta sýning-
um.
Sigríður sýnir í Ásmundar-
salnum og nefnir sýninguna Er
ekki allt gott að frétta? Daglega
lífið er uppsprettan í verkum
Sigríðar en útkoman er hið
gagnstæða, þ.e. eitthvað ein-
stakt, óvenjulegt eða jafnvel
óhugnanlegt.
Afrakstur listamannalauna
Sigríður hlaut listamannalaun
Reykjavíkurborgar á síðasta ári
og er þessi sýning afrakstur
þeirrar vinnu.
Sigríður útskrifaðist úr fjöl-
tæknideild Myndlista og hand-
íðaskóla íslands 1989 og fór svo
til framhaldsnáms í Ecole des
Beaux Arts, í Lyon Frakklandi.
Hún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga og haldið þrjár
einkasýningar.
Sýningarnar verða opnar dag-
lega kl. 14.00-18.00 nema mánu-
daga og þeim lýkur sunnudaginn
13. september.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00
1985-2.fl.B 10.09.98 - 10.03.99 kr. 29.096,00
* lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxlavextir og verðbætur.
* Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 28. ágúst 1998
SEÐLABANKIÍSLANDS