Morgunblaðið - 28.08.1998, Síða 33

Morgunblaðið - 28.08.1998, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 33 AÐSENDAR GREINAR Enn um Reykjanesbrautina! PEGAR göngin und- ir Hvalfjörð voru opnuð flykktust íbúar suð- vesturhornsins til að skoða þetta nýja sam- göngumannvirki og nýta sér bættar sam- göngur norður og vest- ur á bóginn. Greinilegt er að fólk tekur þeim fagnandi. Krafa um úr- bætur í umferðarmál- um vex stöðugt og um- ferðarþunginn hér á suðvesturhorninu kall- ar á aðgerðir. Þing- menn Reyknesinga þekkja umferðarmál þessa svæðis mjög vel. Rannveig Guðmundsdóttir Öll umferð til og frá höfuðborginni liggur um Reykjaneskjördæmi og það er þeirra hlutverk að forgangs- raða verkefnum svo vei sem unnt er. Fæstir vita að t.d. aðgerðir á Bláfjallavegi og nýr vegur að gangamunna sunnan Hvalfjarðar- ganga eru meðal framkvæmda sem koma á borð Reykjanesþingmanna Skipting á framkvæmdafé til vegagerðar í kjördæmunum byggir á gömlu samkomulagi en auk þess hef- ur hin síðari ár verið veitt sérstöku fjármagni til framkvæmda á höfuð- borgarsvæðinu. Við vitum að með stöðugum niðurskurði og óbreyttri skiptingu vegafjár líður langur tími áður en við getum fjármagnað þær stóru framkvæmdir sem kallað er eftir í Reykjaneskjördæmi. Er bara gaman að byggja jarðgöng? Göngin milli ísa- fjarðar, Súgandafjarð- ar og Önundarfjarðar gjörbreyttu aðstöðu fólks fyrir vestan. Hvalfjarðargöngin eru kærkomin samgöngu- bót. Fyrir norðan eru væntingar um skilning ráðamanna landsins á byggingu jarðganga og vegagerðar milli Siglu- fjarðar og Ólafsfjarðar. Sömu sögu er að segja frá Austfjörðum og samgönguráðherra er dreginn inn í togstreitu svæðanna. Þetta eru mikilvæg verkefni sem verður að leysa en ekki dettur nokkrum manni í hug að hægt sé að leggja jarðgöng fyrir hefðbundið vegafé. Óllum er ljóst að slíkt mann- virki verður að fjármagna sérstak- lega og leita til þess nýrra leiða. Að gera út á vegatolla er því aðeins hægt að vegfarendur eigi annan kost eins og dæmi sannar í Hval- firði, þar sem valið er að aka um göngin og greiða vegagjald eða aka fyrir fjörðinn. Hins vegar er það brot á jafnræðisreglu að vera með gjaldtöku ef viðkomandi umferðar- æð er eina samgönguleiðin eins og á ísafirði. Þegar fjallað er um jarðgöng er skilningur ráðamanna á viðfangs- Vímulaus æska, for- eldrahópurinn og stofnun foreldrahúss SAMTöKIN Vímu- laus æska, foreldrasam- tök, hafa nú nýverið hlotið verðskuldaða við- urkenningu samfélags- ins. Þau hlutu forvarna- verðlaunin í ár, gullfal- legt fjöregg eftir lista- konuna Koggu. Það er ekki eina fjöreggið sem Vímulausri æsku og for- eldrahópnum hefur ver- ið falið því fjölmargir foreldrar hafa sótt styrk til þeirra vegna barna sinna. Mikill fengur var að því þegar foreldra- hópurinn kom til liðs við Vímulausa æsku fyrir Anna Ólafsdóttir Björnsson tveimur árum eftir eins árs farsælt brautryðjendastarf. Vímulaus æska og foreldrahópurinn sinna bæði for- vörnum og fjölskyldum barna og ungmenna í vímuefnavanda. Á þeim Draumurinn er, segir Anna Olafdsdóttir Björnsson, að koma á laggirnar foreldrahúsi. liðlega áratug sem ég hef fylgst með samtökunum hef ég séð mörg krafta- verkin eiga sér stað. Foreldasími Vímulausrar æsku var eitt af því fyrsta sem sannaði gildi sitt, for- eldrahópar starfa innan vébanda þeirra og gífurleg sjálfboðavinna er innt af hendi með glöðu geði. Útgjöld samtakanna og launuð vinna hafa alltaf verið í lágmarki. Ráðdeildar- semi er vissulega mikils virði en fjár- skortur hefur þó staðið samtökunum óþarflega oft fyrir þrifum. Flestir kannast nú orðið við Vímulausa æsku og bera jákvæðan hug til sam- takanna. Þrátt fyrir það vita senni- lega fáir hve umfangsmikil starfsemi samtakanna er orðin. Og það umfang er ekki í yfirbyggingu heldur öflugri grasrót og styrkum stoðum hinna ýmsu anga starfseminnar. Þörfin er brýn fyrir þá þjónustu sem samtökin veita. Krafa okkar, segir Rannveig Guðmunds- dóttir, hefur þó alltaf verið að þessa þjóð- braut allra landsmanna ætti að tvöfalda. efninu og að í slíka framkvæmd þarf sérstakt fjármagn. Ef sömu um- ræðu er beint að hefðbundnu en dýru vegamannvirki eins og Reykjanesbrautinni þá eru engin viðbrögð. Reykjanesbraut olnbogabarn? Ekki hefur skort á tillögur og kosningaloforð stjórnmálamanna um þessa lífæð kjördæmisins. Sem betur fer er nú samstaða þing- manna þvert á stjómmálaflokkana um að leita lausna saman. Algjör samstaða var um að lýsa brautina þó um þá forgangsröðun væru skiptar skoðanir fagmanna. Almenn ánægja virðist með lýsinguna hjá vegfarendum en það er ekki ljóst hvort sú aðgerð lækkar slysatíðni. Samkvæmt upplýsingum Vegagerð- arinnar tekur 3 til 5 ár að meta áhrif og slysatíðni. Ekki eru mark- tækar upplýsingar um að slysum hafi fækkað við lýsingu Reykjanes- brautar og slysakostnaður er eitt- hvað hærri. Það er ekki heldur unnt að álykta um helstu orsakir slysa þó skráning fari fram til að afla þessar- ar þekkingar. Almennt er talið að þriðjungur slysa á þjóðvegum íandsins sé útafkeyrslur. Það liggur hins vegar ekki fyrir að hvaða marki framúrakstur við óæskilegar aðstæður er slysavaldur. Ef dregst úr hófi með tvöföldun brautarinnar getum við þurft að fara svipaða leið og á Hellisheiði að vera með auka- akrein á ákveðnum köflum en það er aðferð sem víða er notuð, til dæmis í írlandi. Krafa okkar hefur þó alltaf verið að þessa þjóðbraut allra landsmanna ætti að tvöfalda. Hvað er til ráða? Þingmennirnir hafa rætt að leita þurfi nýrra leiða til að fjármagna tvöföldun Reykjanesbrautar. Hug- myndir voru kveiktar meðal annars um að leita eftir samvinnu við líf- eyrissjóðina um fjármögnun. En þó samstaða væri í þingmannahópn- um og samstaða um að nýtt fjár- magn þurfi að koma til er ekkert hægt að gera nema stjórnarflokk- arnir taki af skarið. Það er ríkis- stjórnin sem semur. Ríkisstjórnin ákveður hvort gengið er til samn- inga eða ábyrgðir veittar eins og þegar byggja á jarðgöng. Ekkert hefur hreyfst í þessa veru og þegar samgönguráðherra talar nú um næstu stóru verkefnin á eftir Hval- fjarðargöngum þá er hann að tala um ný jarðgöng, hann er ekki að tala um tvöföldun Reykjanesbraut- arinnar. Hvað ætlar ríkisstjómin að gera? Er þess að vænta að leitað verði nýrra leiða í fjármögnun eins og þegar ráðast á í jarðgöng? Að óbreyttu kemur almennileg fjárveit- ing í þetta stóra verkefni í fýrsta lagi eftir 6 ár svo við verðum komin nokkuð inn í nýju öldina áður en tvöfóldun brautarinnar lýkur. I um- fjöllun um stóru samgönguverkefn- in framundan á ekki eingöngu að horfa til nýrra jarðganga. Það á að leita leiða til að tvöfalda Reykjanes- brautina - sem sérverkefni - eins og jarðgöng. Höfundur er alþingismaður og for- maður þingflokks jafnaðarmanna. Draumur um for- eldrahús Fyrir leikmann eins og mig, sem hefur að- eins um skamma hríð starfað í stjórn sam- takanna, er það ævin- týri líkast að fylgjast með draumum verða að veruleika. Foreldar barna og ungmenna í vímuefnavanda vita hvar skórinn kreppir og sérfræðingar Vímu- lausrar æsku vita líka hvaða aðstoðar er helst leitað. Draumur þeirra nú er að koma á laggirnar foreldrahúsi. Þangað eiga foreldrar að geta leitað hvenær sem er á nóttu eða degi eftir ráðgjöf, stuðningi og hlýju. Þar eiga að starfa hlið við hlið sérfræðingar og foreldrar í sjálfboðastarfi. Hvort tveggja er þegar fyrir hendi hjá Vímulausri æsku en þörfin er bara svo miklu meiri en getan til að svara henni. Aðstaða fyrir sífellt öflugra starf samtakanna í þágu foreldra er takmörkuð. Foreldra- síminn hefur verið rekinn frá einka- heimilum að meira eða minna .leyti og ekki hefur verið spurt um að- stæður þegar nýjungar í starfsem- inni hafa farið af stað. Raunhæfar lausnir og reddingar í okkar mikla reddingaþjóðfélagi er vissulega oft hægt að gera krafta- verk. En ég held að tími sé komin til að hlusta á raddii- þeirra sem gerst þekkja og svara kalli Vímulausrar æsku og foreldrahópsins um for- eldrahús. Það er ef til vill merkasta afsprengi farsællar samvinnu. Hug- myndirnar eru til, vel mótaðar og ígrundaðar. Saga samtakanna sýnir að þau skila vel þeim verkefnum sem þau taka að sér. Um þessar mundir eru fulltrúar samtakanna að kynna hugmyndir sínar fyrir ýmsum aðil- um. Það er samfélaginu gæfa að mínu mati, að hlusta á orð þeirra. liöfundur er sagnfræðingur. Framhaldsskólar hf. Þegar nemendur eru í lok síðasta mánaðar gerðu menntamálaráðu- neytið, Hafnarfjarðar- bær og fjármálaráðu- neytið með sér samning þess efnis að leitað yrði út í einkageirann til að byggja og reka Iðnskól- ann í Hafnarfirði. Með þessum samningi var brotið blað í sögu al- mannaþjónustu og menntunar hér á landi. Þannig var komið á fallskatti, innritunar- gjöld hafa verið lengi við lýði, svo og efnisgjöld sem geta orðið starfs- námsnemum ansi þröngur stakkur. Notendagjöld, þjónustu- gjöld eða skólagjöld Nú er tíundað í skýrslu fjármála- ráðuneytisins eitthvað sem kallað er notendagjöld eða, eins og segir orð- rétt: „Leggja ber áherslu á að sem stærstur hluti tekna rekstraraðila sé fenginn með notendagjöldum sem aftur er háð frammistöðu þess sem veitir þjónustuna með tilliti til gæða og verðs“ (bls. 9). Samkvæmt mínum kokkabókum þá þýðh- þetta að innan tíðar verði sett á skólagjöld í íslensk- um framhaldsskólum. Skólagjöldin verða þó kölluð eitthvað annað fyrst um sinn eins og notendagjöld eða Drífa Snædal þjónustugjöld en sífellt erfiðara verður fyrir menntamálayfirvöld að halda því fram að skóla- ganga á Islandi sé ókeypis, þegar nemend- ur eru famir að borga tugi þúsunda í hin ýmsu gjöld sem bera hin skrautlegustu heiti. Breski draumurinn Svo litið sé til skýrsl- unnar aftur þá er þar gjarnan vitnað í að- gerðir Breta, en þeir hafa verið hvað stór- tækastir í einkavæð- ingaráformum að undanfómu. Látið er vel af árangrinum þar en hvergi er minnst orði á það að nýlega vora sett á skólagjöld á hærri skólastigum í Bretlandi og nema þau hundruðum þúsunda. Hvergi er minnst á þær þúsundir Breta sem sjá draum sinn um framhaldsmenntun fara í súginn vegna fjárskorts og hvergi er minnst á þá hæfileika sem fara til spillis þegar peningar era farnir að for- gangsraða inní skólakerfið, en ekki hæfni hvers nemenda. Þegar öll kurl eru komin til grafar verður eftirlits- kostnaður, útboðskostnaður og ann- ar kostnaður ríkisins svo hár að einkavæðingin er orðin dýrari en ríkisreksturinn. farnir að borga tugi þúsunda í ýmiss konar gjöld, segir Drífa Snædal, er erfitt að halda því fram að skólaganga sé ókeypis. Hver ber ábyrgðina? Það er gjörsamlega óþolandi að horfa uppá það gerast trekk í trekk, að skólar og námsgreinar era fjársveltar upp að þvi marki að ráða- menn skólanna fara sjálfir að leita út í einkageirann, þar sem ríkisvaldið er hætt að sinna skyldum sínum og engum dettur í hug að það sjái sóma sinn í því lengur. Smátt og smátt eru menntamála- yfirvöld hins vegar að færa ábyrgð- ina yfir í einkageirann og eins og all- ir vita er afar erfitt að ætla svo að draga hina ósýnilegu hönd frjáls- hyggjunnar til ábyrgðar fyrir slakri menntun í landinu. Höfundur er formaður Iðnnema- sambands Islands. MIÐAR I LEIKHUSIÐ Notfærðu þér 800 númerin, gjaldfrjáls þjónustunúmer fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka. I < • Tf 1 númer SIMINN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.