Morgunblaðið - 28.08.1998, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 35
[far athugasemda
Kristjana Motzfeldt, sérfræðingur á Náttúrufræðistofnun Grænlands
f., Einar E. Sæmundsen, Gísli Gíslason, Yngvi Þór Loftsson.
SKÝRINGAR
QO Núverandi orkuvinnslusv.
inrverndarsv.
vemdarsvæði
ir svæði
’st svæði
græðslusvæði
ririðuð svæði
rmiðstöðvar
ídismiðst.
ir
Fyrirhuguð orkuvinnslusv.
I—ijj. Fyrirhuguð orkuvinnslusv.
*—1 ** með fyrirvara með tilhögun virkjana
------ Núverandi háspennulinur
------Fyrirhugaðar hásp.linur
Aðalfjallvegir
Fjallvegir
Stofnvegir
Tegnivegir
Þéttbýli
nyndir
rðinni
virkjun og skýrt nánar náttúru-
verndargildi þessara svæða. I þess-
um flokki eru Skaftárveita 1
(Langisjór), Stafnsvatnavirkjun og
virkjun á vatnasviði Skjálfanda-
fljóts.
Nefndin heldur fast við þá skoðun,
sem kom fram í auglýstri tillögu, að
víkja eigi frá fyrirliggjandi virkjun-
arhugmyndum vegna mikilla nátt-
úruverndarhagsmuna, ekki síst norð-
an Vatnajökuls. Ekki er tekið undir
óskir um að fallið verði frá fyrirvör-
um um Fljótsdalsvirkjun og Norð-
lingaölduveitu. Bent er á að tækni-
framfarir síðustu ára opni möguleika
á því að tengja saman virkjanakosti á
milli vatnasviða með því að samnýta
miðlanir og aðrennslisgöng virkjana.
Eðlilegt sé því að skoða alvarlega
möguleika á því að tengja saman
virkjanir norðan Vatnajökuls til þess
að hlífa stórum samfelldum gróður-
lendum, ekki síst Eyjabökkum. Af
þeim ástæðum tekur nefndin ekki
undir óbreyttar eldri áætlanir um
Fljótsdalsvirkjun, þrátt fyrir heim-
ildarlög frá 1981. Bendir nefndin á að
skoða beri til hlítar möguleika á að
virkja saman Jökulsá á Brú (Kára-
hnúkavirkjun) og Jökulsá á Fljótsdal
með þeim hætti að Kárahnúkalón
geti nýst sem miðlun fyrir bæði
vatnasviðin.
Vegaframkvæmdum á hálendinu
haldið í lágmarki
Almennt er gert ráð fyrir að upp-
bygging ferðamannaaðstöðu verði
takmörkuð á miðhálendinu og er
megináhersla lögð á jaðarsvæðin og
nokkur afmörkuð svæði í nánd við
aðalfjallvegi. Nefndin telur rétt að
halda vegaframkvæmdum á hálend-
inu í lágmarki og að möskvar vega-
netsins séu sem stærstir. Brýnustu
framkvæmdir eru uppbyggðir
stofnvegir, svokallaðir aðalfjallveg-
ir, sem liggja þvert gegnum hálend-
ið á milli byggðarlaga. Fjallvegir
eru tengivegir hálendisins og eru
yfirleitt opnir skemur en aðalfjall-
vegirnir. Sú breyting er nú gerð á
skilgreiningu fjallvega að ekki er
lengur skilyrt að allar helstu ár
verði brúaðar.
Unir sér vel í stér-
brotinni náttúrunni
Kristjana Motzfeldt, sérfræðinfflir á Nátt-
úrufræðistofnun Grænlands, fluttist til
Grænlands fyrir sex árum eða um það leyti
sem hún fflftist Jonathan Motzfeldt, sem nú
er formaður grænlensku landstjórnarinnar.
Arna Schram hitti Kristjönu á Grænlandi á
dögunum og bað hana að segja sér frá störf-
um sínum á Grænlandi og lífínu þar.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
KRISTJANA Motzfeldt, sérfræðingur á Náttúrufræðistofnun Græn-
lands, á góðri stund í Brattahlíð við Eiriksfjörð ásamt eiginmanni sín-
um, Jonathan Motzfeidt, formanni grænlensku landsljórnarinnar.
KRISTJANA Motzfeldt seg-
ist hafa kynnst Jonathan
Motzfeldt á 75 ára afmæli
Búnaðarsamtaka Suður-
Grænlands, sem haldið var í Qaqor-
toq árið 1990. „Eftir að hafa tekið
mér umhugsunarfrest í tvö ár ákvað
ég að flytja til Grænlands og sé ekki
eftir því,“ segir hún í samtali við
blaðamann. Kristjana og Jonathan
létu gefa sig saman við kristilega at-
höfn í Hvalseyjarkirkju við Einars-
fjörð á Suður-Grænlandi árið 1992 og
eiga þau nú heimili í höfuðstað Græn-
lendinga, Nuuk, á sunnanverðu V-
Grænlandi.
Þar gegnir Kristjana stai-fí sér-
fræðings hjá Náttúrufræðistofnun
Grænlendinga en þegar hún kynntist
Jonathan vann hún hjá Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins (RALA) við
að kortleggja gróður á Suður-Græn-
landi, m.a. með tilliti til sauðfjárrækt-
ar. Jonathan er eins og kunnugt er
formaður grænlensku landstjórnar-
innar, en hann tók við því embætti í
september á síðasta ári. Hann hefur
þó áður gegnt starfí landstjórnarfor-
manns eða á árunum 1979 til 1991.
Kynni Kristjönu af Grænlandi
hófust reyndar löngu áður en hún
fluttist þangað búferlum og svo
skemmtilega vill til að Jonathan átti
þar hlut að máli. Kristjana er kennari
að mennt en hóf störf hjá RALA árið
1976, fyrst sem sumarmanneskja,
með kennaranáminu, en síðar sem
fastur starfsmaður. Árið eftir að hún
hóf störf hjá stofnuninni eða árið 1977
var hafist handa við að vinna að fimm
ára samstarfsverkefni með Græn-
lendingum sem fólst í því að kort-
leggja gróður á Suður-Grænlandi,
m.a. með tilliti til mögulegrar eflingar
sauðfján-æktar á Suður-Grænlandi.
Upphafsmaður þess að íslendingar
fóru að vinna að gróðurrannsóknum á
Grænlandi var Jonathan Motzfeldt,
að sögn Kristjönu. Hann var þá for-
maður nefndar sem hafði m.a. það
verkefni að kanna möguleika eflingar
sauðfjárbúskapar á Grænlandi. „Jon-
athan hafði samband við yfu-völd á ís-
landi árið 1975 og ári síðar kom hann
til íslands þar sem ákveðið var að ís-
land tæki þátt í rannsóknum á sauð-
fjárhögum á Grænlandi," segir Krist-
jana, en hún tók þátt í því verkefni
fyrir hönd RALA og vann við það
næstu sumrin að gróðurgreina ákveð-
in svæði á Suður-Grænlandi út frá
loftmyndum. Umsjónarmenn verk-
efnisins voru Ingvi Þorsteinsson frá
íslandi og Kaj Egede frá Grænlandi.
Verkefnið tók um fimm ár, en að
þeim tíma loknum var búið að kort-
leggja svokallaða gömlu Eystribyggð
á Suður-Grænlandi með tilliti til
sauðfjárræktar og talið að landið gæti
borið um 55.000 fjár. í dag eru 21.000
til 22.000 fjár fyrir utan lömb á Græn-
landi, þannig að samkvæmt því eru
enn möguleikar á að efla sauðfjárbú-
skap, að sögn Kristjönu.
Lífsskilyrði hreindýra
rannsökuð
Ki’istjana hefur frá því hún byrjaði
á fyrrgreindu verkefni fyrir hönd
RALA unnið að gróðurrannsóknum á
Grænlandi og síðustu árin eða frá ár-
inu 1995 hefur hún unnið við það sem
sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofn-
un Grænlands. Sú stofnun er með
höfuðstöðvar í Nuuk og var komið á
fót fyrir þremur árum í samræmi við
nýsamþykkt lög. Á sama tíma var
sambærileg stofnun lögð niður í Dan-
mörku.
Á vegum Náttúrufræðistofnunar-
innar er unnið að hafrannsóknum, en
auk þess er unnið að rannsóknum á
fuglum, gróðri og land- og sjávar-
spendýrum, að sögn Kristjönu en um
það bil fjörutíu manns vinna á stofn-
uninni.
Starf það sem Kristjana hefur nú
með höndum hjá stofnuninni felst í
gróðurrannsóknum á vesturströnd
Grænlands m.a. með tilliti til hrein-
dýrabeitar. Um er að ræða þriggja
ára verkefni sem hófst á liðnu ári.
„Meginmarkmið verkefnisins er að
kanna lífsskilyrði hreindýra, og
hvemig þau spjara sig, þannig að
hægt sé að stjórna þvi hvernig stofn-
inn er nýttur,“ segir Kristjana og
bætir því við að árið 1970 hafi um eitt
hundrað þúsund villt hreindýi’ verið á
Grænlandi en árið 1993 hafi þau verið
um tíu þúsund.
„Það ár var hreindýrastofninn frið-
aður en tveimur árum síðar var sett-
ur á veiðikvóti, sem skiptist milli
veiðimanna og frístundaveiðimanna,“
segir hún og tekur fram að hrein-
dýraveiðitíminn sé frá 15. ágúst til 10.
september. Kristjana segir aðspurð
að sennilega séu margar ástæður fyr-
ir þvi að villtum hreindýrum hafi
fækkað á Grænlandi á undanfórnum
áratugum. Meðal annars sé það
vegna slæms tíðarfars og ofveiði.
Hins vegar sé vonast til þess að rann-
sóknirnar gefi til kynna hvað það sé í
náttúrunni sem gerir að verkum að
stofninn hefur minnkað eins og raun
ber vitni.
Ki-istjana hefur þurft að ferðast
mikið um vesturströnd Grænlands
vegna verkefnisins sem hún vinnur
að. Hefur hún m.a. þurft að fara um
landið með gervitunglamyndir og
gróðurgreina það sem gervitunglin
sjá, en þannig á að kortleggja þrjú
stór svæði á vestanverðu Grænlandi
m.a. með tilliti til hreindýrabeitar, að
sögn Kristjönu. „Þá eru gervihnatta-
myndirnar notaðar til þess að sjá
hvenær gróður byrjar að taka við sér
á vorin og hvenær hann byrjar að
fölna að hausti," segir hún, og skýrir
frá því að snjóalög séu auk þess
könnuð, en hreindýr geta grafið niður
um 80 cm í gegnum snjó til að komast
að grasi.
Ævintýraferð á vélsleðum
Þá hefur Kristjana ferðast um
Grænland og safnað ýmsum sýnum
úr hreindýrum vegna verkefnisins, en
þegar ákveðið var að hefja hreindýra-
veiðar að nýju með kvóta fékk Nátt-
úrufræðistofnun Græniands heimild
til að fella 100 hreindýr vegna verk-
efnisins sem Kristjana vinnur ásamt
fleirum að. „Akveðið var að fella dýr-
in á tveimur mismunandi stöðum á
tveimur tímabilum, þ.e. á fyrrihluta
vetrar og seinnihluta vetrar,“ segir
hún, en samkvæmt þeirri áætlun
voru 50 kýr felldar í vor.
„Þetta var mikil ævintýraferð,“
segir hún þegar hún lýsir ferðinni í
vor þegar dýrin voru felld. „Við feng-
um undanþágu til þess að vera á
vélsleðum og ferðuðumst um á þeim,
völdum dýrin og tókum úr þeim sýni.
Til dæmis var fitulag mælt, teknar
blóðprufur og eggjastokkar fjarlægð-
ir, en á þeim er hægt að sjá hve
mörgum kálfum kýrnar hafa borið,“
segir Kristjana.
Hennar verkefni var að sjá um að
kanna fæðuval hreindýranna í ferð-
inni, en til þess var magainnihald
dýranna m.a. gróðurgreint. Mörg af
þeim sýnum sem tekin voru í ferðinni
í vor hafa síðan verið send utan til
greiningar, til að mynda til Noregs,
og segir Kristjana að vænta megi nið-
urstaðna fljótlega.
Náttúran stór þáttur í
lífí Grænlendinga
Kristjana segir aðspurð að sér líki
vel á Grænlandi, enda sé náttúran
stórbrotin. „Ef fólk hefur ekki gaman
af náttúrunni er lítið um að vera á
Grænlandi,“ fullyrðir hún og bætir
því við að náttúran og veiðimennskan
séu stór þáttur í lífí Grænlendinga og
þeirra sem búi á Grænlandi. „Aðlög-
unarhæfni fólks sem býr á Grænlandi
helgast enda af því hvort það hefur
áhuga á að ganga úti í náttúrunni og
fara á veiðar," segir hún.
Þegar Kristjana er innt eftir því
hvernig sé að vera á Grænlandi í
skammdeginu útskýrir hún að áhrif
skammdegisins séu minni í Nuuk en í
Reykjavík, en þessar borgir eru á
sömu breiddargráðu. „Ástæðan fyrir
því að skammdegisáhrifin eru minni í
Nuuk en í Reykjavík er fyrst og
fremst sú að á Grænlandi er skipt frá
sumartíma yfir á vetrartíma," segir
hún og á við að tíminn sé færður fram
um eina klukkustund i byrjun sumars
en síðan aftur um einn tíma í byrjun
vetrar. Ennfremur segir hún að áhrif
skammdegisins séu minni í Nuuk
vegna þess hve mikill snjór sé þar á
veturna, en birtan frá snjónum valdi
því að ekki virðist eins dimmt.
Kristjana segir annars að lífsskil-
yrði Islendinga og Grænlendinga séu
um margt svipuð. Atvinnuvegirnir
séu einhæfir og viðkvæmir og að allt
sé miklu dýrara en í flestum öðrum
löndum. „Þá búa Grænlendingar og
íslendingar á tiltölulega ómenguðu
svæði og þar af leiðandi eru vörumar
sem framleiddar eru hér margfalt
hreinni en annars staðar," segir hún
og bendir á í þessu sambandi að
Grænlendingar flytji nú þegar út
lambakjöt, sem þeir telji að sé besta
kjöt í heimi. Auk þess séu þeir að
undirbúa útflutning á hreindýrakjöti.
Talið berst aftur að hreindýraveið-
um á Grænlandi og kemur þá í ljós að
Kristjana og Jonathan eru í þann
mund að fara í veiðiferð, enda hafi
hann fengið einu dýri úthlutað í ár,
þegar kvótanum var skipt á milli frí-
stundaveiðimannanna. „Einum þriðja
af heildarkvótanum er úthlutað til frí-
stundaveiðimannanna á Grænlandi.
Þeir sem hafa áhuga á því að fá veiði-
leyfi sækja um það sérstaklega. Síðan
eru umsóknirnar settar í einn pott og
dregið um það hver fær heimild til að
fella eitt dýr á árinu," útskýrir hún og
segir nánar frá því hvernig veiðiferð-
inni er háttað.
„Við siglum fyrst inn fjörðinn,
göngum svo inn í landið þar til við ná-
um dýri og gerum að því á staðnum.
Tökum hjarta og lifur með okkur auk
skrokksins, sem er hlutaður niður og
borinn niður í bát,“ segir hún að síð-
ustu, því Jonathan bíður eftir henni
við bát þeirra og ekki hægt að tefja
hana lengur frá skemmtilegri veiði-
ferð. Seinna komst blaðamaður
reyndar að því að þau hefðu aðeins
náð ungum vöðusel og því var aftur
lagt af stað á hreindýraveiðar vikuna
á eftir.