Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 61
FÓLK í FRÉTTUM
STUÐMENN hafa verið á ferð-
inni um landið í allt sumar og
hlotið hljijar viðtökur hjá land-
anum sem hefur verið duglegur
að mæta til að rifja upp gömul
og ný stuðmannaspor. Hljóm-
sveitin er nú komin aftur til
Reylgavíkur og ekki til að hvíla
sig, heldur héldu Stuðmenn
tvær samkomur um helg-
ina, bæði á Hótel íslandi á
föstudagskvöldið og í Þjóð-
leikhúskjallaranum á menn-
ingarnótt.
Þá var lágmenningarkvöld
yfírskrift samkomunnar.
„Okkur langaði að skapa ein-
hvers konar andsvar við menn-
ingamótt, þama í kjallara
musteris hámenningarinnar.
„Popptónlist er að sumra mati
einhvert allra lægsta afbrigði
menningarinnar, og því fannst
okkur lgörið að gefa fólki kost á
að velta sér upp úr dreggjum
mannlífsins fram á morgun í
myrkum kjailaranum," sagði
Jakob Frímann aðspurður.
Yfirskrift um lágmenningu
aftraði ekki fólki að mæta á
samkomuna þetta kvöld, nema
síður væri.
„Það mun víst aldrei hafa
verið jafnmargt í þessu húsi
hvorki fyrr né síðar, og stóð
samkoman í um átta klukku-
tíma alls, síðustu gestirnir voru
farnir um hálfsjöleytið. Þetta
var því einhvers konar mara-
þonvaka,11 sagði Jakob Frím-
ann.
Það er ekki víst að sam-
komurnar verði jafnlangar í
lokahrinu Stuðmanna sem hefst
um næstu helgi á Suðurnesjum
og þar næstu helgi fá bæði
Akureyringar og Reykvíkingar
að hrista skankana í takt við
stuðmennska tóna.
„Síðan er vertíðinni lokið í
bili. Sveitin er að vinna nýja
breiðskífu, auk þess sem for-
söngvararnir eru báðir í veiga-
miklum hlutverkuin í nýrri ís-
lenskri kvikmynd sem tökur eru
að heíjast á,“ sagði Jakob Frím-
ann um áform sveitarinnar á
næstunni.
EGILL og Ragnhildur
eru alltaf góð saman.
STUÐKONURNAR Aðalheiður
Árnadóttir og Elín Reynisdóttir.
MARGRÉT Böðvarsdóttir,
Sigurgeir Sigurðsson og Júlí-
us Sigurðsson nutu lágmenn-
ingarinnar út í ystu æsar.
JAKOB Frímann í ham.
Morgunblaðið/Halldór
ÁGIJST Guðmundsson, Ágústa Sigurðardóttir, Guðlaug Guðna-
dóttir og Ragnar Reynisson voru í rétta stuðinu í Þjóðleikhús-
kjallaranum.
KVIKMYNDIR/Regnboginn sýnir spennumyndina „Nightwatch“ með
Ewan McGregor, Nick Nolte og Patricia Arquette í aðalhlutverkum, en
myndin er bandarísk endurgerð dönsku myndarinnar Næturvörðurinn
sem sýnd var hér á landi fyrir nokkrum árum.
A nálum á
næturvaktinni
NÆTUR-
VÖRÐURINN
verður að
hafa sig
allan við
á vaktinni.
Frumsýning
UNGUR laganemi fær hluta-
starf sem næturvörður um
svipað leyti og raðmorðingi
tekur að ógna íbúum borgarinnar, en
meiri skelfing fylgir því að allar vís-
bendingar um morðingjann benda til
sektar næturvarðarins. Lögreglan er
að nálgast hann óðfluga og þessi sak-
lausi ungi maður er efstur á lista yfir
grunaða, en til þess að leysa gátuna
verður hann svo sannarlega að halda
sér glaðvakandi. Hugmyndina að
myndinni fékk danski leikstjórinn
Ole Bornedal þegar hann heimsótti
líkhús í Kaupmannahöfn sem honum
þótti í senn fagurt og ógnvekjandi.
Það vakti hann til umhugsunar um
lífíð og hvernig menn lifa því og hann
setti sér það markmið að gera mynd
í anda klassískra spennumynda frá
sjötta og sjöunda áratugnum, en þó
með þeim hætti að myndin höfðaði til
kvikmyndahúsagesta í dag. „Það
besta við spennumyndir fyrri ára er
að þær eru bæði ógnvekjandi og stíl-
hreinar í senn og í Næturverðinum
var það takmarkið að skapa mikla
spennu en jafnframt að gera mynd-
ina skemmtilega á að horfa,“ segir
Bomedal.
í því skyni að færa upprunalegu
dönsku myndina í búning fyrir
bandaríska áhorfendur fengu þeir
Bomedal og framleiðandinn Michael
Obel til liðs við sig handritshöfund-
inn Steven Soderbergh sem gert hef-
ur myndirnar „Sex, lies and videota-
pe“, Kafka og „King of the Hill“.
Þegar handritið lá fyrir reyndist
auðvelt að fá leikara í fremstu röð til
að fara með hlutverk í myndinni og
fyrir valinu í aðalhlutverkin urðu
Nick Nolte, sem fer með hlutverk
lögreglumannsins, Ewan McGregor,
sem leikur næturvörðinn, og Patricia
Arquette og Josh Brolin sem leika
vini hans. Auk þess að fá réttu leik-
arana í aðalhlutverkin var ekki síður
mikilvægt að setja réttar kringum-
stæður fyrir atburðarás myndarinn-
ar og til þess að gera drungalega
sviðsmynd líkhússins fengu þeir
Bornedal og Obel til liðs við sig Ric-
hard Hoover, sem meðal annars sá
um sviðsmyndina í myndunum
„Dead Man Walking" og „Ed Wood“.
Danski kvikmyndatökumaðurinn
Dan Laustsen
sá svo um að
festa myndina
á filmu, en
hann hefur
verið á bak við
myndavélina í
rúmlega 20
dönskum
kvikmyndum
írá því árið
1979 og var
hann jafn-
framt töku-
maður við
gerð uppruna-
legu myndar-
innar um
næturvörð-
inn. Nick
Nolte, sem
fór með
fyrsta kvik-
LAGANEMINN (Ewan Mc-
Gregor) fær hlutastarf sem
næturvörður í líkhúsinu.
myndahlutverk sitt í myndinni „The
Deep“, á nú að baki fjölda minnis-
stæðra hlutverka, en meðal mynda
sem hann hefur leikið í eru „Down
and Out in Beverly Hills“, „48 Ho-
urs“, „The Prince of Tides“, „Lor-
enzo’s Oil“, „Cape Fear“ og
„Jefferson in Paris“.
Skoski leikarinn Ewan
McGregor lék í tveimur
af umtöluðustu mynd-
um ársins 1996, en það
voru myndirnar
„Trainspotting“ og
Emma, en áður hafði
hann leikið i skosku
myndinni „Shallow
Grave“. Hann
hefur nú
haslað sér
völl sem
leikari í
Bandaríkj-
unum og lék
hann þar
síðast í
myndinni
,A Life Less
Ordinarý*
sem Danny
Boyle leik-
stýrði,
en hann
leikstýrði
einnig „Train-
spotting“.
NICK Nolte
í hlutverki
lögreglumannsins
í „Nightwatch".
Fjaran
Jón Möller
leikur rómantíska píanótónlist
Víkíngasveitin
skemmtir i víkingaveisluni
Jöstmlags- og laugardagskviilil
Hljómsveit
Rúnars Júl. ásamt
Magnúsi Kjartans
sjá um Jjörid á dansgóljimi
Jöstudags- og laugardagskvöld
STRANDGÖTU 55 SÍNII 565 1890