Morgunblaðið - 28.08.1998, Page 64
64 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
■% %
4 ->m;
LETHAL
WEAPON
Sýnd kl. 5, 9.20 og 11.
www.samfilm.is
YTT 0G BETRA
MMM.
MEL GIBSON OANNY CLOVER JOEPESCI
RENERUSSO CHRISROCK JETU
Sýnd kl. 5, 6.30, 9 og 11.30. b.í.io. todigitai.
bijaidúiMCg giunii) uú iitt tiiiii Ai)iÁÍidili8
(Airplane, Naked Gun og Hot Shots). Kærkomin
grínmynd eftir allar stóru þrumurnar í sumar
Tómatahátíð í Bunol
Tugir þúsunda tóku þátt
í tómatsósuslagnum.
Bæjarbúar sáu RAUTT
.1
Að stinga sér
til sunds.
ÞEGAR 100 tonnum af fullþroskuðum tómötum er
sturtað á torg bæjarins fyrir framan tugi þúsunda
ákafa kastmenn er ljóst að útkoman verður skrautleg.
Þorpið Bunol á Austur-Spáni er alla jafna afar frið-
sælt. En það vaknaði til lífsins á miðvikudag þegar 30
þúsund manns komu saman á götum úti til að kasta
tómötum hver í annan á hinni árlegu „tomatina“-há-
tíð.
Salatlykt var í loftinu þegar þátttakendur, sem
margir höfðu setið að sumbli yfír nóttina, ösluðu í
gegnum ökklaháa tómatsósuna á götunum og náðu
sér í fleiri tómata til að halda götuslagnum gang-
andi.
Fleiri tonn af tómötum af öllum stærðum flugu
um loftið á innan við klukkutíma svo tómatsafínn
flæddi um göturnar og veggir voru sem málaðir
rauðir.
„Tomatina-hátíðin er öllum til ánægju og yndis-
auka, - mér fínnst ekkert skemmtilegra," sagði Ja-
vier Lozano, heimamaður sem mætti með hlífðar-
gleraugu til að verja augun fyrir sterkum safanum
úr tómötunum.
Það getur verið sárt að fá tómata í sig, eins og
margir komust fljótlega að raun um, einkum ef
þeim er kastað af utanbæjarfólki. Heimamenn
kunna að fletta húðinni af tómötunum og kreista
þá til þess að minnka sársaukann við að fá þá í sig,
en margir af þúsundum ferðamanna þurftu að
reka sig á.
„Það er vont að fá þá í sig til að byrja með,“
segir Monica Kramer frá Kanada. „En það er
hluti af gamninu og spennunni."
Klukkustund eftir að götuslagurinn hófst var
flugeldum skotið á loft til merkis um að slagnum
væri lokið. Heimamenn mættu þá með stórar við-
arhrífur og öflugar vatnsslöngur til að hreinsa
göturnar og veggina áður en safínn þornaði í
heitri sólinni.
Margir þátttakenda, sem voru gegnsósa af
tómatsafa, báðu einnig um að vera hreinsaðir. „Við borðum ekki
tómata á næstunni," sagði Kramer.
„Iljálpaðu mér upp!
Mér fínnst ég vera að drukkna."
RINGO Starr sýnir að hann
er ennþá með hippahug-
sjónirnar á hreinu.
Ringo Starr
spilar fyrst-
ur Bítla í
Rússlandi
RINGO Starr varð á mánu-
dag fyrstur bítlanna til að
spila 1 Rússlandi. 2.400
manns voru viðstaddir tón-
leika með honum í Moskvu.
Fyrr í mánuðinum léku
Rolling Stones á leikvangi í
borginni og þá mættu 60
þúsund manns.
„Það hefði verið gaman
að koma hingað fyrr, en
betra er seint en aldrei,“
sagði Starr við áheyrendur.
Bítlarnir nutu mikilla
vinsælda í Sovétríkjunum
fyrrverandi og þurfti því
ekki að koma á óvart að
Rússarnir hrifust mest af
gömlum Bftlalögum á borð
við „Love Me Do“.