Morgunblaðið - 17.09.1998, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Barnarásin verður flutt af breiðbandi yfír á örbylgju
Segja stefnu Lands-
síma hamla utbreiðslu
Morgunblaðið/Kristínn
Ferðakaup-
stefna í
Laugar-
dalshöll
ÁRLEG ferðakaupstefna Vestur-
Norðurlanda, Vestnorden Travel
Mart, var sett í þrettánda skipti í
gær í Ráðhúsinu í Reykjavík, en
kaupstefnan er haldin í Laugar-
dalshöll að þessu sinni. Kaup-
stefnan stendur til 18. september
og þar munu á þriðja hundrað
fulltrúar fyrirtælya frá yfir tutt-
ugu löndum kaupa og selja ferðir
til Vestur-Norðurlandanna
þriggja, Islands, Grænlands og
Færeyja.
f fréttatilkynningu frá Ferða-
málaráði íslands segir að margar
ferðaskrifstofur og einstaklingar
í ferðaþjónustu séu nú að taka
þátt í ferðakaupstefnunni í fyrsta
skipti og Ieggi nú vaxandi
áherslu á sölu ferða til Iandanna
þriggja.
Laugardaginn 19. september
kl. 11-13 verður haldið málþing
Ferðamálaráðs íslands á Grand
Hótel í Reykjavík. Þar mun
starfsfólk Ferðamálaráðs og full-
trúar Flugleiða erlendis ræða
hvort framboð í ferðaþjónustu
hér á landi sé í samræmi við þró-
un eftirspurnar á erlendum
mörkuðum.
DAGSKRÁ Barnarásarinnar, sem send hefur verið út á breið-
bandi frá 1. maí síðastliðnum, verður send út á örbylgju í opinni
dagskrá á rás Islenska sjónvarpsfélagsins og hugsanlega einnig
hjá Omega í nokkrar vikur frá og með laugardegi eða sunnudegi.
Breiðbandssendingum verður þó einnig haldið áfram.
VI-MR-
dagurinn
ekki hald-
inn f ár
SKÓLASTJÓRI Verslunar-
skóla Islands og rektor
Menntaskólans í Reykjavík
hafa ákveðið að hinn árlegi
VI-MR-dagur verði ekki hald-
inn hátíðlegur í ár. Halda átti
daginn hátíðlegan nk. fostu-
dag en forsvarsmönnum nem-
enda var tilkynnt í gær um að
deginum yrði aflýst.
Mál skólanna
Ragnheiður Torfadóttir,
rektor MR, vildi ekki tjá sig
um ástæður þess að deginum
hefði verið aflýst. „Þetta er
innan skólans, þetta er milli
mín og Þorvarðar og nemend-
anna í skólunum, og mér
fínnst það ekki koma alþjóð
við. Okkur Þorvarði Elíassyni
kom saman um að það væri
ekki ástæða til að halda dag-
inn hátíðlegan að svo komnu
máli,“ sagði Ragnheiður í
samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Á VÍ-MR-dögum heyja
nemendur skólans keppni í
ýmsum greinum.
Ekki náðist í forsvarsmenn
nemendafélaga skólanna í
gærkvöldi.
Lést í um-
ferðarslysi
MAÐURINN sem lést í um-
ferðarslysi í Svarfaðardal á
mánudagsmorgun hét Öm
Víðir Sverrisson, til heimilis á
Karlsbraut 17 á Dalvík.
Öm Víðir var 33 ára, fædd-
ur 29. ágúst árið 1965. Hann
lætur eftir sig þrjú böm.
Öm Víðir var farþegi í bif-
reið sem fór út af Svarfaðar-
dalsvegi, við bæinn Hrafns-
staði skammt sunnan Dalvík-
ur um kl. 5 á mánudagsmorg-
un. Ökumaður bifreiðarinnar
slasaðist lítið.
Böðvar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Barnarásarinnar,
segir að ekki hafí fengist nema
nokkur hundruð áskrifendur að út-
sendingum á breiðbandinu en til
þess að endar næðu saman hefði
þurft fimm þúsund.
Hann segir að stefna Landssím-
ans varðandi breiðbandið valdi því
að það nái ekki verulegri út-
breiðslu hér á landi, en víðast hvar
erlendis sé miklu efni dreift með
þessum hætti og mikill hagnaður
sé af rekstri þess. Vegna þess að
Landssíminn hafí kosið að dreifa
efni, á svonefndu Breiðvarpi, í
samkeppni við Stöð 2, sé því ekki
dreift á breiðbandinu, og því verði
fólk að hafa loftnet þótt það eigi
kost á breiðbandstengingu. Þar
sem nær allt efni, annað en dag-
skrá Barnarásarinnar, er hægt að
fá í gegnum Fjölvarpið, em fáir
sem sjái ástæðu til að leggja út í
kostnað til að tengjast breið-
bandinu. Um 20 þúsund heimili
eigi nú kost á því en aðeins um
1.200 nýti sér það.
„I Hafnarfirði er kapalkerfí á
vegum Rafveitu Hafnarfjarðar og
þar hefur nánast hvert einasta hús
tengst því sem á kost á því, alls um
tvö þúsund heimili. Ástæðan er sú
að það er allt efni inni á þeim kapli
og því er hægt að taka niður loft-
netin,“ segir Böðvar.
Böðvar segir að kannað hafí ver-
ið hvort hægt væri að setja
Barnarásina inn á Fjölvarp Stöðv-
ar 2, en ekki hafí reynst áhugi þar
íyrir því.
Utsendingum hætt
ef áskrifendum fjölgar ekki
Eftir nokkurra vikna sendingar
á örbylgju verður kannað hvort
nægilega margir áskrifendur fáist
til að hægt verði að halda send-
ingum áfram í læstri dagskrá. Að
öðram kosti verður útsendingu
hætt. „Við höfum haldið þessu úti í
fimm mánuði og við getum ekki
haldið mildð lengur áfram án þess
að fá tekjur,“ segir Böðvar. „Ósk
mín er sú að þurfi Bamarásin að
hætta fái að minnsta kosti fleiri en
nokkur hundrað að sjá hana.“
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
C-17 þotan ferðbúin um hádegi
VERIÐ er að leggja lokahönd á við-
gerð flutningaflugvélar bandaríska
hersins, C-17, í viðhaldsstöð Flug-
leiða á Keflavíkurflugvelli þar sem
þessi mynd var tekin í gær. Ráðgert
er að vélin haldi héðan um hádegisbil
í dag til Englands, þaðan til Þýska-
lands og snúi loks til Bandaríkjanna
á ný með viðkomu á Englandi og ís-
landi. Bilun varð í hjólabúnaði þegar
vélin lenti á Vestmannaeyjaflugvelli
með Keikó innanborðs á fimmtudag í
síðustu viku. Bráðabirgðaviðgerð fór
fram í Eyjum og vélinni var síðan
flogið til Keflavíkur.
VIDSiaPn AIVINNULÍF
HUGBÚNAÐUR
8 íslensk
fyrirtæki
Fjárfestum kynnt
starfsemin/B6
BANKAR
Aftur á
sporið
Sparisjóðurinn
í Keflavík/B4
Björgvin Sigurbergsson
atvinnumaður í golfi/C8
Bröndby vann Bayern í
Meistaradeild Evrópu/C4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
4 www.mbl.is