Morgunblaðið - 17.09.1998, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
HANNES Hlífar Stefánsson (t.h.) að tafli gegn Simon Agdestein.
Svæðamdt Norðurlanda í skák
Jafntefli varð á
öllum borðum
SKAK
FYRRI skákin í þriðju umferð
á svæðamóti Norðurlanda í
skák var tefld í gær í Munkebo
á Fjóni í Danmörku. Nú eru að-
eins sex keppendur eftir á mót-
inu og komast sigurvegararnir í
þeim þremur einvígjum, sem nú
standa yfír, beint í úrslitamót
heimsmeistarakeppninnar. Sú
keppni fer fram í borg spilavít-
anna, Las Vegas í Bandan'kjun-
um.
Heimsmeistai’arkeppnin í
skák hefur tekið miklum breyt-
ingum síðan Kasparov og Short
kluíú sig frá Alþjóðaskáksam-
bandinu árið 1993 og tefldu
heimsmeistaraeinvígi undir
merkjum atvinnumannasam-
bands skákmanna. Af þeim sök-
um eru nú tveir heimsmeistai-ar
í skák, hjá Alþjóðaskáksam-
bandinu ríkir Anatólíj Karpov,
en hjá atvinnusambandinu
Garry Kasparov. Mótið á Fjóni
er eitt undanrásamótanna, þar
sem teflt verður um titilinn,
sem Karpov heldur núna.
Hannes Hlífar Stefánsson
stórmeistari er eini íslending-
urinn sem eftir er á svæðamót-
inu í Danmörku. Fimm íslenskir
stórmeistarar hófu keppni á
mótinu en svo óheppilega tókst
til að þeir hafa teflt mikið sam-
an. I fyrstu umferð vann Mar-
geir Pétursson Þröst Þórhalls-
son, 3-1, Hannes Hlífar Stef-
ánsson vann Helga Ass Grét-
arsson, ÍÁ-Á, og Helgi Ólafs-
son vann John Rödgaard frá
Færeyjum, 2Á-1Á. I annarri
umferð vann Hannes Hlífar
Helga Ólafsson, 3-1, en Mar-
geir tapaði fyrir Svíanum Ralf
Ákesson, Á-IÁ.
Hannes Hlífar tefldi í gær
fyrri skák þriðju umferðar við
norska stórmeistarann Rune
Djurhuus og hafði svart. Hann-
es tefldi af miklu öryggi og var
jafntefli samið eftir 32 leiki.
Norski stónneistarinn hefur
teflt mjög vel á mótinu, hann sló
sigahæsta mann mótsins, Dan-
ann Curt Hansen, út úr keppn-
inni í fyrstu umferð, með 2-0.
Hinar tvær skákimar í 3. um-
ferð urðu einnig jafntefli, Ein-
arGausel, Noregi - Ralf Ákes-
son, Svíþjóð, og Peter Heine
Nielsen, Danmörku - Tom
Wedberg, Svíþjóð. Það var sam-
merkt öllum skákunum í gær að
teflt var af mikilli varfærni.
Við skulum nú sjá fyni skák
Hannesar Hlífars og Runes Dj-
urhuus.
Hvítt: Rune Djurhuus
Svart: Hannes Hlífar Stef-
ánsson
Italski leikurinn
1. e4 - e5 2. Re3 - Rf6 3. Bc4
- Rc6 4. d3 - Bb4 5. Rf3 - d5 6.
exd5 - Rxd5 7. 0-0 - Bxc3
Það hefði verið hættulegt
fyrir svart að taka peðið á c3,
t.d. 7. — Rxc3 8. bxc3 - Bxc3 9.
Ba3!? - Bxal 10. Dxal - f6 11.
Hel, með hótuninni 12. d4, og
svartur lendir í erfiðleikum,
vegna þess að hann getur ekki
forðað kónginum af miðborðinu
með því að hróka stutt.
8. bxc3 - 0-0
Ekki er gott fyrir svart að
leika 8.— Rxc3 9. Del ásamt
10. Rxe5 o.s.frv.
9. h3 - Kh8 10. Hel - f6 11.
Bd2 - Be6 12. Bb3 - Bf7 13. d4
- exd4 14. cxd4 - Rb6!
a b c d • l g h
Hannes hefur mjög góð tök á
stöðunni og með síðasta leik
sínum tryggir hann sér yfírráð
yfír hvítu reitunum, d5 og c4.
15. Bf4 - Dd7 16. c3 - Ra5
17. Bxf7 - Dxf7 18. Dc2 - Hfe8
19. Rd2 - Rac4 20. Db3 - c6 21.
a4 - Dd5 22. Hxe8+ - Hxe8 23.
Rxc4 - Dxc4 24. Dxc4 - Rxc4
25. a5 - g5 26. Bc7 - Kg7 27.
g4 - Hc8 28. Bg3 - c5 29. a6 -
bxa6
Svartur má ekki gefa hvíta
peðinu á a6 líf, vegna þess að í
því tilviki verður svarti hrókur-
inn bundinn við að koma í veg
fyrir að hvítur leiki B-b8 og
Bxa7.
30. Hxa6 - cxd4 31. Hxa7+ -
Kg6 32. cxd4 - Hd8 og kepp-
endur sömdu um jafntefli, því
að það er eftir litlu að sækjast,
t.d. 34.Ha4 - Hxd4 35. Kh2 -
Rd2 36.Hxd4 - Rf3+ 37. Kg2 -
Rxd4 o.s.frv.
Bragi Kristjánsson
Vilja auka flugsamgöngur
milli Grænlands og Islands
Morgunblaðið/Kristinn
PETER Gronvold Samuelsen, ráðherra samgöngu-, ferða- og Ijar-
skiptamála, vonast til að íslensk flugfélög taki þátt í aukinni sam-
keppni um millilandaflug til Grænlands í nánustu framtíð.
RÍKISSTJÓRNIR íslands og
Grænlands vilja efla flugsam-
göngur milli landanna og auka
samstarf á vettvangi ferðamála.
Mestur áhugi er fyrir því að
skiptast á reynslu, upplýsingum
og þekkingu á sviði upplýsinga-
tækni í sambandi við ferðamál.
Þetta er meðal þess sem kom
fram í viðræðum Halldórs Blön-
dals samgönguráðherra og Pet-
ers Grönvolds Samuelsens, sam-
göngu-, ferða- og fjarskiptamála-
ráðherra Grænlands, sem er
staddur í þriggja daga opinberri
heimsókn hér á landi.
„Markmið okkar er að ná
auknum fjölda farþega sem ferð-
ast til Islands og áfram til Græn-
lands. Við viljum byggja upp flug
á milli landanna þannig að ferða-
mönnum sem hingað koma verði
gefinn kostur á að halda áfram
til Grænlands,“ sagði Halldór
Blöndal samgönguráðherra á
blaðamannafundi þar sem kynnt
var hvað ráðherrunum hefði far-
ið á milli.
Einokun á flugi til
Grænlands afnumin
. Gronvold Samuelsen lýsti því
einnig yfir að hann vildi auka
flugumferð milli landanna. Hann
sagðist óska þess að íslensk flug-
félög kæmu í auknum mæli inn í
samkeppni um millilandaflug á
Grænlandi. Áratuga einokun í
millilandaflugi hefði í langan
tíma haldið verðinu háu. Undan-
farið hefði þó rofað til þar sem
einokun flugfélagsins SAS á
millilandaflugi til Grænlands var
afnumin nýlega. „Við viljum
lækka verð á flugi til og innan
Grænlands og með aukinni sam-
keppni í flugsamgöngum mun
það takast. Við vonumst því til að
þróunin haldi áfram í rétta átt og
er næsta skref að fylgja í kjölfar
pólitískra samstarfssamninga,"
sagði Gronvold Samuelsen á
fundinum í gær og vísaði þar í
SAMIK-samninginn sem er í gildi
um samstarf landanna á vett-
vangi ferðamála.
Sagði Gronvold Samuelsen að
Grænlendingar væru háðir flug-
samgöngum. Tveir nýir flugvellir
yrðu fljótlega opnaðir á vestur-
strönd Grænlands og hefðu þeir
miklar jákvæðar breytingar í för
með sér, en Grænland hefur unn-
ið mikið að eflingu ferðaþjónustu
í landinu.
, Morgunblaðið/Kristinn
RAGNHEIÐUR Olafsdóttir, umhverfisstjóri Landsvirkjunar, stingur nýjum rafbíl fyrirtækisins í samband.
Landsvirkjun festir kaup á rafbíl
*
Ihuga kaup á tveim-
ur rafmagnsj eppum
LANDSVIRKJUN heíúr fest kaup á
litlum raftnagnsbíl til notkunar í inn-
anbæjarakstri og íhugai- jafnframt
kaup á tveimur litlum rafmagnsjepp-
um til staðbundinnar notkunar í
grennd við virkjanir.
Smábíllinn er af gerðinni Peugeot
106 og er sá fjórði sem keyptur er
hingað til lands. Hinir þrír eru í eigu
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Raf-
magnsveitu Akureyrar og Landssím-
ans.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fúlltrúi Landsvii’lqunai', segir að bíll-
inn hafí verið ívið dýrari en bensínbíl-
ar af sömu gerð og jafnframt þurfí að
kaupa í hann rafgeyma sem kosta um
600 þúsund krónur, en endast jafnt
og bíllinn. „Okkur reiknast til að raf-
magn í bílinn kosti um 150 krónur
fyrir 100 kílómetra, þannig að aukinn
stofnkostnaður miðað við bensínbíl
jafnast út á nokkrum árum.“
Þorsteinn segir að bíllinn endist til
um 80 kílómetra aksturs áðui- en þarf
að endurhlaða hann. Full hleðsla tek-
ur heila nótt.
Bíllinn verðm- notaður í venjuleg-
um bæjarakstri, en jafnframt í kynn-
ingarskyni. „Við hugsum okkur til
dæmis að starfsmenn fari á honum
þegar þeii' halda erindi á ráðstefnum,
taka á móti gestum, á fundi með
stjómvöldum og við fleiri tækifæri.
Við viljum ganga á undan með það að
sýna að það geti verið skynsamlegt
að nota svona bíla í ákveðnum til-
gangi."
Þorsteinn segir að rannsóknir hafi
sýnt að yfirleitt gildi það um fyinr-
tælqabíla í innanbæjarakstri og um
annan bíl á heimili að þeir eru ekki
keyrðir meira en um 50 kílómetra á
dag og því geti rafbílar tekið þau
hlutverk að sér.
Landsvh’kjun hefur kannað mögu-
leika á kaupum á tveimur litlum raf-
magnsjeppum af gerðinni Toyota
Rav, en Þorsteinn segir að þar sem
þeir séu ekki fjöldaframleiddir geti
biðin eftir þeim orðið 1-2 ár. Jepp-
amir kosta rúmar tvær milljónir
ki’óna hver og við bætast kaup á raf-
geymum.