Morgunblaðið - 17.09.1998, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MARBERT
Þessi glæsilegi kaupauki að verðmæti
kr. 1.690 fylgir með þegar keyptir
eru þrír hlutir úr förðunarlínunni frá
MARBERT. Ekki missa af þessu.
Kynningar verða:
Fimmtudag Föstudag
Laugardag
Kvenleg fegurð
Kvenleikinn er í fyrirrúmi hjá MARBERT
veturinn '98-'99. Áhrifin eru sótt í ástriðu-
fullt og lokkandi andrúmsloft Karibahafs-
eyjanna, þar sem rauður litur ástríðunnar
og svartur litur syndarinnar eru
grunntónarnir.
Snyrtivörudeild Snyrtivörudeild
Hagkaups, Smáratorgi. Hagkaups, Smáratorgi.
c^Eí^Mjódd
Mjódd
r'-jr' Stjórntækniskóli íslands
Höfðabakka 9
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐI
Stjórntækniskóli Islands
gefur þér kost á beínskeyttu 250 stunda námi í
markaðsfræðum. Náminu er ætlað að koma til móts
við sívaxandi kröfur atvinnulífsins um hæfari
starfskrafta. Námið er ætlað fólki, sem vill bæta við
sig þekkingu og fá innsýn í heim markaðsfræðanna.
Markmið
namsins er meðal annars að þátttakendur tileinki sér
markaðshugsun í íslensku viðskipta- og athafnalífi
og nái þannig betri árangri.
Námið
er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu og tekin eru
próf í einstökum greinum.
Kennarar
eru allir háskólamenntaðir og eiga að baki góða
reynslu við kennslu og í viðskiptalífinu.
Námsgreinar
Markaðsfræði.
Sölustjórnun og sölutækni.
Vöruþróun.
Vörustjórnun.
Stjórnun og sjálfstyrking.
Auglýsingar.
Tölvunotkun í áætlanagerð.
Viðskiptasiðferði.
„Eg mæli með
náminu fyrir
alla þá, er
| JS »■ starfa við
markaðs- og '
sölustörf. Ég
hef verið í sölumennsku í 6
ár og námskeiðið hefur
nýst mér vel í starfi.
Fjölbreytt og áhugaverð
námskeið."
Elísabet Ólafsdóttir
Eggert Kristjánsson hf.
„Eg mæli
tvímælalaust
með þessu
námi fyrir alla
þá sem
eitthvað eru
tengdir markaðs-, sölu-
upplýsinga-, skipulags-
og/eða framleiðslumálum
sinna fyrirtækja."
Hendricus Bjarnason,
Skýrr
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar.
Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.
NEYTENDUR
Hjólbarðaskipti fyrir veturinn
Notið betri dekkin að framan
fyrir framhjóladrifna bfla
PAÐ fer að líða að því að bifreiða-
eigendur fari að huga að hjólbarða-
skiptum íyrir veturinn.
En hvernig á að velja dekk undir
bflinn? Á að setja slitnu dekkin und-
ir bílinn að framan eða nota betri
dekkin frekar og setja þau slitnu að
aftan?
„Þetta fer allt eftir því hvort bíll-
inn er framhjóladrifinn eða ekki,“
segir Björn Pétursson hjá Félagi ís-
lenskra bifreiðaeigenda.
„Oftar eru framdekkin meira slit-
in þar sem álagið á þeim er meira
og þau dekk sem sjá um að beygja
slitna á ákveðinn hátt. Því ætti að
velja bestu dekkin á driföxulinn
þegar bíllinn er framhjóladrifinn."
Björn segir að ef bíll sé fram-
hjóladrifmn sé meiri hætta á hliðar-
sliti að framan og hann bendir á að
þá sé annað slitmynstur á afturhjól-
unum sem eru ekki með drifi á.
„Það er því gott ráð að benda
neytendum á að skoða slitið á
snertifletinum og velja dekkin eftir
því.“
Lesið úr táknmáli
dekkja
Björn segir að síðan þurfi fólk að
athuga að sum dekk hafí ákveðna
snúningsstefnu. „Framleiðendur
eru farnir að setja á markað dekk
sem eiga að snúast í ákveðna átt.
Þetta má lesa útúr táknmáli dekkj-
anna. Það eru merki á dekkjum og í
þessu tilfelli örvar sem segja til um
snúningsstefnu. Það má líka lesa
útúr þeim hversu gömul dekkin eru,
hvað þau þoli mikinn hraða og svo
framvegis."
Björn segir að miklu skipti að
hjólastilling sé rétt þegar skipt er
um hjólbarða. „Ef fólk skoðar vel
dekkin sér það hvort hjólin hafa
verið rétt stillt því ef svo er ekki eru
dekkin meira slitin á annan veginn."
Sumardekk slæm
á vetuma
- Skiptir miklu að vera á góðum
dekkjum?
„Já það er nauðsynlegt að vera á
góðum dekkjum, öryggisins vegna.
Sumar- og vetardekk eru til dæmis
ekki úr sömu gúmmíblöndu. Vetrar-
dekk eru úr mýkra gúmmíi og þola
því betur frost en sumardekkin sem
harðna meira við frostið."
- Hvað með nagla og keðjur?
Um ágæti þeirra er mikið deilt. Á
Norðurlöndunum virðist vera auk-
inn áróður um að nota ekki nagla-
dekk og til dæmis í Þýskalandi er
notkun þeirra alveg bönnum. Mörg-
um fínnst sem naglarnir skapi
falskt öryggi því þeir slitna fljótt og
duga best í ákveðnu færi þ.e. þegar
ísing er yfír öllu. í snjó skiptir
mynstrið á dekkinu meira máli.“
-Skiptir aldur dekkja einhverju
máli með tilliti til öryggis’
„Þriggja til fjögurra ára dekk eru
talin hafa misst talsvert af sínum
eiginleikum og svo skiptir geymsla
dekkjanna líka máli. Ef dekk eru í
mikilli birtu fúna þau frekar og því
á að geyma þau á dimmum, þurrum
og köldum stað.“
- Hvernig vetrardekk eiga neyt-
endur helst að velja?
„Við höfum engar rannsóknar-
stofur hér á landi sem kanna gæði
dekkja fyrir íslenskar aðstæður.
Það eru nokkrir valkostir í boði,
negld eða ónegld vetrardekk og svo
t.d. harðkorna dekk þar sem málm-
ögnum er blandað saman við
gúmmíið. Þá eru einnig komin á
markað sérstök loftbóludekk en í
þeim tilfellum auka loftbólur í dekki
vel grip. Keðjur eru lítið notaðar á
fólksbíla en þær eru þó enn einn
valkostur og oft nauðsynlegar á
stærri bíla.“
Björn segist ekki vilja fella dóma
um ágæti einnar dekkjategundar
frekar en annarrar en bendir þó á
að dýrari dekkjategundir hafi yfir-
leitt komið betur útúr erlendum
könnunum en þær ódýrari.
Spurt og svarað um neytendamál
Nýmjólk er kjörin á grasgrænu
Hvernig má ná blýantsstrikum af
nýmáluðum vegg og grasgrænu úr
íþróttabuxuni úr bómull?
„Skjót viðbrögð skipta miklu máli
þegar blettir í fötum eða gólftepp-
um eru annars vegar. Best er að
fjarlægja bletti sem allra fyrst og
alls ekki þvo fatnað í þvottavél fyrr
en búið er að meðhöndla blettina.
Ymsa bletti í fötum eins og t.d. eftir
kaffi, ávexti, ávaxtasafa, gos og
rauðvín er oft hægt að fjarlægja
með því að skola strax undir köldu
vatni. Látið blettinn snúa niður og
kalt vatn renna í gegnum efnið.
Nuddið varlega um leið,“ segir
Hjördís Edda Broddadóttir for-
stöðumaður hjá Leiðbeiningastöð
heimilanna.
Þegar um grasgrænu í bómullar-
buxum er að ræða, segir Hjördís
Edda, er best að byrja á því að dýfa
blettinum í skál með nýmjólk í því
að fítan í mjólkinni vinnur á óhrein-
indunum. „Þegar búið er að skola
blettinn í mjólkinni þarf að skola
hann örlítið úr vatni. Þá er upp-
þvottalögur látinn á blettinn og gott
er að hylja blettinn með plasti svo
hann haldist rakur. Látið upp-
þvottalöginn vera á blettinum í 4-6
tíma eða helst yfir nótt. Að því búnu
eru buxurnar bara þvegnar eins og
venjulega."
Hafí buxurnar verið þvegnar og
bletturinn ekki farið úr segir Hjör-
dís Edda að þurfí að bleyta blettinn
með eins heitu vatni og flíkin þolir
svo hægt sé að vinna á óhreinindun-
um. Sömu aðferð og áður er síðan
beitt við buxurnar.
Notið venjulegan fljótandi upp-
þvottalög við blettahreinsun og
helst án litarefna. Einnig þarf að
hafa í huga að litir í efnum eru mis-
viðkvæmir og ekki má láta upp-
þvottalöginn liggja of lengi á blett-
unum því þá gæti efnið upplitast.
Hins vegar er þá hætt við að jblett-
urinn hverfi ekki algjörlega. I slík-
um tilvikum verður að fara þá leið
sem best þykir.
„Besta ráðið til að ná blýants-
strikum af máluðum vegg er að nota
uppþvottalög. Hann er þá settur
næstum því óblandaður á blettinn
og nuddað varlega. Að því búnu á að
fara vel yfir með hreinu vatni. Ef
gljástigið er ekki mikið á málning-
unni þarf að þynna uppþvottalöginn
meira því málningin getur annars
máðst út.“
Appelsínusafí hækkar í verði
- Hvers vegna hefur lítrinn af
Trópísafa hækkað um tugi króna
að undanförnu?
„Safinn hefur ekkert hækkað frá
okkur síðan fyrsta febrúar en í
þessari verðsamkeppni sem er í
gangi hér á höfuðborgarsvæðinu
eru menn að hækka og lækka verðið
frá degi til dags,“ segir Leifur
Grímsson sölustjóri hjá Sól-Víking.
„Meðalverð á lítra af Trópí segir
hann vera 140-160 krónur.“