Morgunblaðið - 17.09.1998, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Náttúruhamfarirnar í Suður-Mexíkó taldar með þeim mannskæðustu í landinu á þessari öld
Eymd og örvænting
á flóðasvæðunum
Mexíkóborg. Reuters.
HUGSANLEGT er, að flóðin í Suð-
ur-Mexíkó séu einhverjar mann-
skæðustu náttúruhamfarir í landinu
á þessari öld. Kemur þetta fram í
opinberri skýrslu, sem birt var í
fyrradag, en þar segir, að vitað sé
um 407 menn látna og líklegt, að lík
849 manna annarra séu grafin í aur-
skriðunum.
I skýrslunni segir, að fieiri hafi
látist af völdum flóðanna nú en felli-
bylsins Pauline, er hann fór yfir
Aeapulco í október fyrir ári, en
mest var mannfallið í jarðskjálftun-
um 1985. Pá fórust 10.000 manns í
Mexíkóborg.
í skýrslunni er dregin upp skelfi-
leg mynd af eyðileggingunni og ör-
væntingu fólksins á hamfarasvæð-
unum. I bænum Pijijiapan fórust 40
af 200 íbúum og á annað hundrað
manna fórst í bænum Valdivia. í
Motozintla fórust líklega 218 manns
og í Tonala er 300 manns saknað.
Liggja líkin í vatnselgnum á jörð-
inni eða berast með ánum til sjávar.
Rænt úr húsum
Mjög erfitt er að komast til þess-
ara staða nema með þyrlum vegna
þess, að vegimir hafa skolast burt.
Vatns- og skolpleiðslur eru ónýtar
og ekkert rafmagn eða símasam-
band.
Glæpamenn hafa nýtt sér neyðina
og fara þeir um í flokkum og ræna
úr yfirgefnum húsum. Eru þeir
vopnaðir og skjóta á þá, sem reyna
að verja eigur sínar.
Enn rignir á þessum slóðum þótt
úrfellið sé ekki jafn óskaplegt og í
síðustu viku og nauðsynlegt þótti að
opna lokur í stíflu raforkuvers til að
létta á þrýstingnum. Líklegt þykir,
að það leiði til flóða í norðurhluta
Chiapas-ríkis en að öðrum kosti
hefði flætt yfir þéttbýli í Chiapa de
Corzo.
CHIAPAS
* Tuxla
Gutierrez
Tehuantepec-
FLOÐIN I MEXIKO
Gífurlegt úrfelli olli aurskriðum í ríkinu Chiapas í Suður-Mexíkó.
Fundist hafa lík nokkurra hundruða manna og enn fleiri er saknað í 53 sveitarfélögum.
Tugir þúsunda hafa misst heimili sín og um hálf milljón manna er bjargarlaus.
Pijijiapan
Mestu flóðasvæðin.
Heilu bæirnir á kafi í aur
Valdivia
25.000 manna
einangraðar
UATEMALA
Guatemala- ^
_____
Kyrrahaf
Margra íbúanna
er saknað
Tapachula
Raðgreiöslur i
Staflanlegir, sterkir stólar fyrir veitingasali o.fl.
Til afgreiðslu strax! [pr~|f7^| hýsgögn
Ármúla 44
sími 553 2035
Færeyingar hvika
ekki frá sjálf-
stæðisáformum
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FÆREYSK stjórnvöld hafa ítrekað
þá ætlun sína að stefna að sjálfstæði
eyjanna, þrátt fyrir bætt samskipti
við Dani og hvatningu Poul Nyrups
Rasmussens forsætisráðherra, um
að fiýta sér hægt. Leggur Anfinn
Kallsberg, lögmaður Færeyja, þó á
það áherslu að breið samstaða þurfi
að nást um málið á meðal Færey-
inga.
Kallsberg sagði nýafstaðna heim-
sókn Nyrups til Færeyja hafa verið
„góða og gefandi". Á meðan á henni
stóð minnti danski forsætisráðherr-
ann Færeyinga á að draga myndi úr
fjárframlagi Dana til þeiira í sam-
ræmi við aukið sjálfstæði. Þá sagði
Nyrup Rasmussen afar mikilvægt að
áætlanir um sjálfstæði nytu mikils
og almenns stuðnings á Færeyjum.
Högni Hoydal, sem fer með sjálf-
stjómarmál í landsstjóminni, hefur
gagnrýnt Nyrap fyrir þessi ummæli,
sem hann segir afskipti af færeysk-
um innanlandsmálum. Kallsberg
tekur hins vegar undir með Nyrap.
„Það er ekki nóg að meirihluti sé fyr-
ir sjálfstæði á Lögþinginu, ef meiri-
hluti þjóðarinnar er ekki fylgjandi
því í þjóðaratkvæðagreiðslu. Því er
nauðsynlegt að eins margir flokkar
og hægt er, styðji þessar áætlanir,"
segir Kallsberg og vísar einkum til
stærsta stjómarandstöðuflokksins,
Jafnaðarmannaflokksins. Þá segir
hann það Ijóst að fullt sjálfstæði
muni þýða að 900 milljóna kr. fjár-
framlag Dana á ári, sem nemur um
einum milljarði ísl. kr., falli alveg
niður.
Nyrap friðmæltist einnig við jafn-
aðarmenn í heimsókn sinni, en fær-
eyski jafnaðarmaðurinn Joannes
Eidesgaard, sem situr á danska
þinginu, hefur reynst dönsku stjóm-
ini óþægur ljár í þúfu. Hann hefur ít-
rekað lýst því yfir að hann skipti sér
ekki af dönskum stjórnmálum og
hefur viljað semja við hinn færeyska
þingmanninn, Ola Breckmann, um
að atkvæði þeirra í danska þinginu
,jafnist út“. Það hefur Breckmann
ekki viljað.
Eftir fundinn með Nyrup kvaðst
Eidesgaard vera reiðubúinn að
styðja dönsku stjómina í málum þar
sem Breckmann greiddi atkvæði
með borgaraflokkunum. Ennfremur
kvaðst hann ekki myndu verða til
þess að fella stjóm jafnaðarmanna.
Þá hörmuðu flokksmenn hans það að
Birthe Weiss, frambjóðandi jafnað-
armanna, skyldi ekki hafa verið valin
forseti danska þingsins fyrir ári en
hún varð að láta í minni pokann
vegna þess að Eidesgaard sat hjá.
Nú er komið annað hljóð í strokkinn
og hvetja færeyskir jafnaðarmenn
Weiss til að bjóða sig fram að nýju,
og Eidesgaard til að greiða henni at-
kvæði sitt. Það hyggst Weiss hins
vegar ekki gera og sagðist Nyrup
vilja halda þingforseta úr röðum
borgaraflokkanna til að leggja
áherslu á að hann óskaði breiðrar
samstöðu í danska þinginu.
Reuters
BRUÐA Jevgenís Prímakovs, forsætisráðherra Rússlands, hefur nú fengið aukið vægi í ádeiluþættinum
„Kukly“ (brúður) sem notið hefur mikilla vinsælda meðal sjónvarpsáhorfenda í Rússlandi.
Lykilmenn Glorbat-
sjovs til æðstu áhrifa
ÞRÍR AF lykilmönnum í stjórn
Míkhaíls Gorbatsjovs, þáverandi
Sovétforseta, gegna lykilhlutverk-
um í nýrri ríkisstjóm Rússlands, að
sögn stjómmálaskýrenda. Gorbat-
sjov hefur borið lof á þá síðustu
daga.
Jevgení Prímakov forsætisráð-
herra, Júrí Masljúkov fyrsti aðstoð-
arforsætisráðherra og Víktor Ger-
atsjenko seðlabankastjóri hafa
fengið það hlutverk að stýra Rúss-
landi út úr efnahags- og gjaldeyris-
kreppu.
Þeir voru með nánustu samverka-
manna Gorbatsjovs á sínum tíma
og tryggir stuðningsmenn hans.
Enginn þeirra hefur nokkra sinni
reynt að snúast öndverður gegn
honum eða stjómartíð hans.
Lofar nýju valdhafana
Stjórnmálaskýrendur í Moskvu
hafa bent á þá mótsagnir sem nú
séu komnar upp í rússneskum
stjómmálum. Þeir segja það kald-
hæðni örlaganna að Borís Jeltsín
Rússlandsforseti skuli nú hafa
Ný stjórn
Jeltsíns að taka
á sig mynd
neyðst til að útnefna til æðstu emb-
ætta í nýrri stjóm sinni nána fylgis-
menn Gorbatsjovs.
Gorbatsjov hefur heldur ekki leg-
ið á liði sínu í samtölum við fjöl-
miðla síðustu daga og borið lof á
nýja valdamenn í stjórnarhöllum á
árbökkum Volgu.
,Júrí Masljúkov er einn hæfasti
hagfræðingur sem fyrirfinnst í
Rússlandi. Jevgení Prímakov er úr-
valsmaður sem ætíð setur hags-
muni rússneska hagsmuni ofar
öllu,“ hefur forsetinn fyrrverandi
m.a. sagt um nýju stjórnarforingj-
ana.
Gorbatsjov segist halda góðu
sambandi við Prímakov
Gorbatsjov upplýsti að hann hafi
haldið og ræktað samband sitt við
Prímakov allt frá því hann hrökkl-
aðist frá völdum við upplausn Sov-
étríkjanna. Talið er að sú frétt vaki
ekki sérstaka kátínu hjá Jeltsín.
Framangreindir menn eiga það
allir sameiginlegt að það var Gor-
batsjov sem á sínum tíma hækkaði
þá í tign; flutti þá úr lítilvægum
embættum og kom þeim til æðstu
áhrifa í Moskvu.
Prímakov var sérfræðingur í
málefnum Miðausturlanda og var
sérlegur sendimaður Gorbatsjovs
við Persaflóa er Rússar freistuðu
þess að afstýra Persaflóastríðinu.
Hlaut hann litlar vinsældir í Was-
hington íyrir framgöngu sína en
ávann sér mikla hylli heimafyrir
með framgöngu sinni.
Gorbatsjov gerði Gerastsjenko
að seðlabankastjóra undir lok
valdatíma síns og Júrí Masljukov
gerði hann að forstjóra Gosplan,
ríkisstofnunar sem stjómaði allri
áætlanagerð fyrir ríkísbúskap Sov-
étmanna. Hlaut hann það vegar-
nesti frá Gorbatsjov að endurskipu-
leggja alla iðnaðarstarfsemi í Sov-
étríkjunum.