Morgunblaðið - 01.10.1998, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Níu Karmelsystur yfírgefa klaustrið í Hafnarfírði til að stofna nýtt klaustur í Hannover
SÍÐASTA altarisgangan. „Kílómetrarnir munu ekki ná að aðskilja okkur. Þeir þijú þús-
und kíldmetrar sem verða á milli okkar, eru ekki neitt fyrir Guði,“ sagði séra Jakob í
kveðjumessunni sem haldin var á mánudaginn.
EINS og siður er í kaþólskri trú messa margir prestar þegar eittlivað sérstakt stendur til.
Og það átti svo sannarlega við þegar systurnar voru kvaddar, þar sem séra-
Patrick, séra Hjalti, séra Jakob, séra Oremus og séra Terstroet messuðu allir. , f
Kílómetrarn-
ir munu ekki
aðskilja okkur
Níu Karmelsystur í Hafnarfírði lögðu
land undir fót í vikunni, þegar þær héldu
til Þýskalands til að stofna nýtt klaustur.
Kveðjumessa var haldin á mánudag,
þar sem vinir og vandamenn komu til
að kveðja systurnar, sem á hverjum
degi biðja fyrir friði í heiminum.
Morgunblaðið/RAX
AÐ LOKINNI kveðjumessunni var haldið kveðjukaffi þar sem Karmelsystur sungu og spiluðu á gítar. Vinum
þeirra gafst tækifæri til að kveðja þær, og voru sumir þegar farnir að tala um heimsóknir til Hannover.
SYSTURNAR sem eftir eru á íslandi veifa til systranna níu í síðasta sinn.
„ÞIÐ GÁTUÐ ekki valið betri dag
en dag englanna til þess að yfir-
gefa okkur, og munu englamir
heiðra okkur öll með nærveru
sinni á erfiðum stundum," sagði
séra Jakob í kveðjumessu í kapellu
Karmelklaustursins á mánudag.
Messan var tileinkuð níu karmei-
systrum sem yfirgáfu klaustrið á
þriðjudagsmorgun. Förinni var
heitið til Hannover í Þýskalandi
þar sem þær munu stofna nýtt
klaustur og halda áfram að biðja
fyrir nágrönnum sínum og heims-
byggðinni allri.
Móðir Agnes er príorinna Kar-
melsystranna í Hafnarfirði. Hún
verður áfram hér á íslandi og
heldur áfram starfi sínu hér.
„Biskupinn í Hildesheim óskaði
eftir því að við stofnuðum nýtt
klaustur í Hannover og til þess
þarf að minnsta kosti átta systur,
en héðan fara þær níu. Hver og ein
ræður því sjálf hvort hún fer eða
verður áfram hér, en ákveðið var
fyrr á þessu ári að fylgja eftir ósk
biskupsins í Hildesheim,“ sagði
Móðir Agnes.
Guð kemur sífellt á óvart
Eins og siður er í kaþólskri trú
messa margir prestar þegar eitt-
hvað sérstakt stendur til, og í
kveðjumessunni á mánudaginn
voru þeir fimm. Séra Jakob var
aðalprestur athafnarinnar og lét
nokkur vel valin orð falla í tilefni
kveðjustundarinnar. „Við sjáum
nú að Guð getur sífellt komið
okkur á óvart. Þið ætluðuð að
vera hér í þessu systrasamfélagi
til æviloka, en nú hefur Jesú kall-
að ykkur í annað land. Þið verðið
að aðlaga ykkur nýju samfélagi
og læra nýtt tungumál. En lífið
felst í því að kveðja, við erum
ferðalangar og verðum sífellt
þess áskynja að ekkert í þessum
heimi er varanlegt. Systrasam-
bandið er ekki varanlegt og ég
veit að kveðjustundin verður erf-
ið. En kílómetrarnir munu ekki
ná að aðskilja okkur. Þeir þrjú
þúsund kílómetrar sem verða á
milli okkar eru ekki neitt fyrir
Guði.“
Karmelsystur í Hafnarfirði
voru 23 áður en systurnar níu
fóru til Hannover. Karmelreglan
er bæna- og íhugunarregla og
biðja systurnar í um átta tíma á
dag, fyrir sjómönnunum, þeim
sem eiga um sárt að binda, sálu-
hjálp allra og fyrir friði í öllum
heiminum. Þær lifa í lokuðu sam-
félagi innan veggja klaustursins
og ferðast ekki nema um flutn-
inga sé að ræða. Þær komu hing-
að árið 1984 og hafa verið í Hafn-
arfirðinum síðan. Árið 1990 stofn-
uðu þær nýtt klaustur í Tromsö í
Noregi og fluttu þá nokkrar til
Noregs. Eftir það komu nokkrar
nýjar systur í klaustrið, og nú er
á ný töluvert af lausum plássum.
Móðir Agnes er tilbúin að taka
á móti nýjum systrum. „Við biðj-
um um að Guð sendi nýjar kallan-
ir til okkar. Þetta er í annað sinn
sem við stofnum nýtt klaustur út
frá okkur hér í Hafnarfirði, og sjá
má að nýjar systur hafa alltaf
bæst í okkar hóp. Við erum alltaf
að vona að íslenskar systur gangi
í regluna en ekki hefur orðið úr
því hingað til. í nýja klaustrið í
Noregi gengu tvær norskar syst-
ur á sínum tíma. Við vonumst til
að fá nýjar systur en það er Guð
sem sendir kallanir, við getum
ekki pantað þær.“
Karmelsystur í Hafnarfirði eru
allar pólskar að uppruna, en þær
leggja sig fram við að læra ís-
lensku og þær sem hafa verið
lengst tala hana ágætlega. Hver
og ein á „ættingja“ á íslandi utan
veggja klaustursins, sem þær
halda sambandi við. Svo eiga þær
líka marga vini, eins og sást á
fjöldanum sem var viðstaddur
kveðjumessuna. Systrareglan er
einnig byggð upp þannig að þær
eru systur, sem búa saman eins
og fjölskylda og tengjast órofa
böndum. Þær eru á öllum aldri,
allt frá 21 árs til 74 ára.
Erfítt á mannlega sviðinu
En skyldi ekki vera erfitt að
kveðja systur sínar eftir margra
ára sambúð í klaustrinu, vitandi að
þær muni aldrei aftur sjást? Systir
Victima var á förum til Hannover
og sagði: „Þetta er köllun frá Guði.
Hann vill að við biðjum fyrh- fólki
alls staðar í heiminum, og að við
séum með klaustur í sem flestum
löndum heimsins. Á mannlega
sviðinu er svolítið erfitt að flytja
héðan, burt frá systrum mínum
sem ég hef búið með undanfarin
ár. En Guð gefur okkur ótal gjafir,
svo á trúarlega sviðinu er þetta
gleðistund fyiár okkur,“ sagði syst-
ir Victima þar sem hún tók við
kveðjuóskum frá vinum og vanda-
mönnum.