Morgunblaðið - 01.10.1998, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 01.10.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 33 LANDSSÖFNUN SÍBS A Reykjalundi er fullt hús af englum AFLEIÐIN G AR slyss, sem Messíana Tómas- dóttir, leikmynda- og búningahöfundur, lenti í árið 1992, voru bakverkir og stans- laus, illþolandi höfuð- verkur. „Það eina sem ég gat gert var að taka verkjalyf. Eg gekk á milli lækna en þeir höfðu engin úrræði önnur en ný verkja- lyf. Verkirnir leiddu niður í bakið, en ég fann minna fyrir þeim, því höfuðverk- urinn yfirgnæfði þá. Loks var ég drifín í svefnrann- sókn og þá kom í ljós að ég svaf nánast ekkert, svo læknirinn nefndi Reykjalund sem úrræði. Eg hafði ekki hugmynd um að þar væri til verkjasvið, en þar dvaldist ég í sjö vikur haustið 1997. Eg fór í bakskóla og lærði að ganga eins og drottning, enda hafði liryggurinn gengið saman á þremur stöðum og mikilvægt að bakið væri beint. Að öðru leyti var farið í gegnum allar hreyfíngar, hvernig beita á lík- amanum rétt og hvað ber að forðast. Eg fór einnig í iðjuþjálf- un og slökun og fékk um leið fræðslu um verkina. Á vissum tíma kom að því að taka þurfti verkjalyfin af mér. Fráhvarfsein- kennin voru veruleg og meðal annars mígreniköst í fjóra daga. Ég var ákveð- in í því að gefast ekki upp og eftir að verkjaköstin hurfu fór allt að ganga vel. Reykjalundur er ótrúleg stofnun og húsið er fullt af englum!“ Messíana segist engin lyf taka núna utan bólgueyðandi, sem haldi verkjunum niðri. „Maður þarf að læra að lifa með þessum krankleika og það hef ég gert. Ég þarf að gæta þess að fá nógan svefn, stunda líkams- þjálfun við hæfí og taka frá tíma fyrir sjálfa mig. Eg er mikill vinnuforkur en hef lært að þekkja mín mörk. Ef ég get ekki gert eitthvað, þá er það svoleið- is. Áður var lausnin að taka verkjalyf og henda sér út í það sem þurfti að gera. Þetta er gjörsamlega nýtt líf og mér er sagt að ég sé breytt manneskja, enda hlýtur per- sónuleikinn að breytast þegar maður er undirokaður af verkj- um alla daga ársins." Messíana Tómasdóttir Öndun léttist um 19% við að hætta að reykja Morgunblaðið/Kristinn HANS Jakob Beck læknir stýrir rannsóknarstofunni, en þar eru gerðar ýmsar þolmælingar. MÆLINGAR á öndunarskerð- ingu lungnasjúklinga á Reykja- lundi frá árinu 1997 sýna, að lungnastarfsemi skánaði að með- altali um 19,4% að meðaltali á sex vikum, eingöngu við það að sjúk- lingarnii’ hættu að reykja. Þeir sem voru verr haldnir af sjúk- dómnum bættu lungnastarfsem- ina hlutfallslega mest, að sögn Hans Jakobs Beck læknis, sem stýrir rannsóknarstofunni. Þjálfun hefur ekki áhrif á öndunarprófið Þegar teknir voru þeir sem fengu lyfjabreytingu að auki var árangurinn í heildina mun betrti. „Þjálfun hefur ekki áhrif á öndun- arpróf sem þetta, þótt hún hafi áhrif á þol manna. Það að hætta að reykja er langmikilvægasti þátturinn til að hafa áhrif á heilsu fólks með lungnateppu. Því finnst okkur ekki hægt að kosta til end- urhæfingar án þess að fólk hætti því,“ sagði hann enn fremur. Auk öndunarmælinga fara fram á Reykjalundi ýmiss konar þol- mælingar á hjartasjúkdómum og lungnastarfsemi. Þær eru gerðar annars vegar til að sjá hvaða framfarir verða hjá einstaklingun- um á dvalartímanum og hins veg- ar til að sjúkdómsgreina eða fá auknar upplýsingar um sjúkdóm- inn. Langflestir hjarta- og lungna- sjúklingar fara í þolmælingu við komu og í framhaldi af henni er tekin ákvörðun um þjálfun. Síðan er prófið endurtekið til þess að meta árangur. Hjartasjúklingar hafa bætt sig um 20% „Að meðaltali hafa menn bætt sig um rúm 20% í hámarksafköstum á fjóram vikum. Þessi árangur er sambland af auknum vöðvastyrk og auknu þoli en einnig má gera ráð fyrir að fólkið hafi náð betri öndun- ar- og próftækni," segir Hans. Til skamms tíma var Reykja- lundur eini staðurinn sem hafði yf- ir fullkomnum tækjum að ráða til að gera þolpróf með mælingu á súrefnisupptöku, en slíkt próf er gert hjá flestum sjúklingum, þar sem vafl leikur á orsök öndunar- færasjúkdóms. Ennfremur hjá þeim sem þurfa að gangast undir aðgerð vegna lungnaþembu. „Þetta gefur fullkomnustu mæl- ingu á þreki og hjálpar til að greina á milli sjúkdóma í hjarta og öndunarfærum, því stundum er óljóst hvað er meira takmarkandi fyrir fólkið, hjarta eða lungu,“ segir Hans Jakob Beck. Hjartanlegar þakkir til fjölskyldu minnar og annarra œttingja og vina sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, skeytum og blómum á 90 ára afmœli mínu hinn 18. september. Guð blessi ykkur öll. Þorkell J. Sigurðsson. ÞEIR ERU Á ALLRA VÖRUM! Nýju varalit- blýantarnir Talkers 12 girnilegir varalitblýantar sem teikna línu og lita varirnar. Varalitur sem Þú talar þessa Kynning í dag, fimmtudag, 10% kynningarafsláttur £ APOTEK GARÐABÆJAR Hrísmóum 2. Opið til kl. 21:00 í KVÖLD GLÆSILEGAR kápur, STUTTFRAKKAR OG DRAGTIR -engu likt- LAUGAVEGI 32 • SÍMI 552 3636
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.