Morgunblaðið - 01.10.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.10.1998, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Niðurstöður samræmdra prófa vorið 1998 Meðaleinkunn hæst í Hagaskóla HAGASKÓLI er með hæstu sam- anlögðu meðaleinkunnina í sam- ræmdum prófum í íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði, sem tekin voru í vor samkvæmt nýútkominni samantekt Rannsóknarstofnunar uppeldis- og menntamála (RUM). Samanlögð meðaleinkunn grunn- skólanna í Reykjavík er hæn-i en annars staðar á landinu í einstökum greinum nema í dönsku, þar er Grunnskóli Reyðarfjarðar hæstur. Næst eftir Hagaskóla með hæstu samanlögðu meðaleinkunnina, er Hlíðaskóli í Reykjavík og í þriðja sæti er Hvassaleitisskólinn í Reykjavík, þá Ölduselsskóli í Breið- holti í Reykjavík og Grunnskóli Eyrarsveitar í Grundarfírði. Álfta- mýrarskóli í Reykjavík og Grunn- skólinn á Hellu eru jafnir en áttundi í röðinni er Valhúsaskóli á Seltjam- amesi, níundi er Austurbæjarskól- inn í Reykjavík og tíundi Kópavogs- skóli. Þá koma Laugalækjarskóli, Foldaskóli, Háteigsskóli og Réttar- holtsskóli í Reykjavík og í fimmt- ánda sæti yfir landið er Víðistaða- skóli í Hafnarfirði. Skólar í Reykjavík efstir Þegar tekið er tillit til saman- lagðrar meðaleinkunnar yfir allt landið eftir landshlutum eru skól- arnir í Reykjavík í efsta sæti og næstir á eftir eru skólar í nágrenni Reykjavíkur, þ.e. í Kópavogi, Hafn- arfirði, á Seltjarnarnesi og í Mos- fellsbæ. I þriðja og fjórða sæti era Austurland og Vesturland, sem era jöfn að stigum, þá Suðurland, Norð- urland eystra, Norðurland vestra, Suðurnes og Vestfirðir. Hæstu meðaleinkunn í einstakri grein hlaut Grannskóli Reyðar- fjarðar í dönsku eða 6,7.1 öðru sæti er Hlíðaskóli í Reykjavík með 6,6 en átta skólar á landinu eru með 6 eða hærra í greininni. Háteigsskóli í Reykjavík er með hæstu meðaleinkunnina í ensku eða 6,6 og allir skólarnir fimm sem eru með yfir 6 eru í Reykjavík. Hæsta meðaleinkunn í íslensku er 6,4 í Snælandsskóla í Kópavogi, Hagaskóla og Hvassaleitisskóla í Reykjavík en fimm skólar á landinu eru með yfir 6 í meðaleinkunn í greininni. I stærðfræði fengu fjórir skólar á landinu 6, þ.e. Hagaskóli, Hlíðaskóli og Foldaskóli í Reykjavík og Grunnskóli Eyi'arsveitar í Grundar- fírði. í samantekt RUM em einungis birtar meðaleinkunnir í gmnnskól- um með ellefu nemendur eða fleiri, sem þreyttu samræmd próf en með- aleinkunnir þessara 44 skóla era teknar með í heildarmeðaltali við- komandi landshluta í einstökum gi'einum. Alþingi kemur saman í 123. sinn í dag Fj árlagafrumvarpinu verður dreift í dag ALÞINGI íslendinga, 123. löggjaf- arþing, verður sett eftir hádegi í dag og að loknum hefðbundnum ávörpum og kjöri þingforseta flytur Davíð Oddsson forsætisráðherra stefnuræðu sína. Er það í fyrsta sinn sem ráðherra fiytur stefnu- ræðu sína á þingsetningarfundi. Síðdegis verður fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar dreift til alþingis- manna og í kvöld verða umræður um stefnuræðuna. Athöfnin hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 13.30, þar sem séra Sigríður Guðmarsdóttir, sókn- arprestur á Ólafsfirði, predikar. Að guðsþjónustu lokinni gengur þing- heimur til Alþingishússins þar sem þingsetning fer fram. Forsætisráð- hema Davíð Oddsson setur þingið í fjarveru Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Islands. Stefnuræða flutt í kvöld Eftir ávarp starfsaldursforseta, Ragnars Arnalds, er áætlað að minnast látins alþingismanns, Ólafs Þ. Þórðarsonar, en að því loknu fer fram kjör forseta Alþingis. Því næst tekur forseti við kjöri og flytur ávarp. Stefnuræða forsætisráð- heira verður síðan um kl. 14.25 og eftir hana verður þingfundi frestað til kl. 15.30. Þá verður fjárlagafrum- varpinu útbýtt og væntanlega lesin upp tilkynning um stofnun nýs þingflokks, þingflokks óháðra. Auk þess fer fram kjör varaforseta þingsins, nefndarkjör og hlutað til um sæti í þingsalnum. Gert er ráð fyrir að þingsetningarfundi ljúki um kl. 16 í dag og að nýr fundur verði boðaður um kvöldið eða um kl. 20.30 þar sem þingflokkar ræða stefnu- ræðu forsætisráðherra. Gert er ráð fyrir að þær umræður standi til kl. 22.30. Siðanefnd Blaðamannafélagsins um kæru Þórs Jdnssonar Amælisvert brot ritstjóra Vísis á siðareg’lum SIÐANEFND Blaðamannafélags Islands telur að Ásgeir Friðgeirs- son, ritstjóri netmiðilsins Vísis (vis- ir.is), hafi framið ámælisverð brot á tveimur greinum siðareglna Blaða- mannafélags íslands með því að geta ekki með viðhlítandi hætti heim- ildar þegar frétt frá Stöðvar 2 var birt í netmiðlinum Vísi (visir.is). I aðalfréttatíma Stöðvar 2 að kvöldi laugardagsins 8. ágúst var birt frétt um nafnlaust, bréf, sent á ísa- firði, þar sem haft var í hótunum við forsætisráðherra og forseta. Klukk- an 20.16 birtist á netmiðlinum Vísi (visir.is) írétt þar sem efnisatriði málsins voru rakin samhljóða frétt Stöðvar 2. I frétt Vísis (visir.is) var þess getið að Stöð 2 hefði rætt við konu sem var granuð um verknaðinn og vitnað til þess viðtals, en Stöðvar 2 var ekld getið að öðru leyti. Endursögn fréttar Stöðvar 2 Þór Jónsson fréttamaður taldi að Vísir (visir.is) hefði brotið siðaregl- ur blaðamanna með „stuldi“ á þess- ari frétt sinni. Ljóst væri af orðalagi og tímasetningu Vísisfréttarinnar (visir.is) að hún væri endursögn fréttar Stöðvar 2 og því hefði Vísi (visir.is) borið að geta heimildar rækilega. Með þessu hefði Vísir (visir.is) brotið gegn 1. grein siða- reglna um að blaðamaður leitaðist við að gera ekkert sem til vanvirðu mætti teljast fyrir stétt sína, að hann forðaðist hvaðeina sem gæti skert hagsmuni stéttarinnar og skyldi sýna drengskap í samskipt- um við starfsfélaga. Einnig hefði 3. grein siðareglna um vandaða úr- vinnslu og framsetningu verið brot- in enda hefði almenningur verið leyndur því að fréttastofa Stöðvar 2 var frumheimild Vísis (visir.is) fyrir fréttinni og þess í stað hefði verið látið líta úr fyrir að fréttin hefði að langmestu leyti orðið til hjá starfs- mönnum Vísis (visir.is). í svarbréfi kæranda til Þórs Jónssonar kom fram að í fréttinni mætti skilja hvaðan upplýsingarnar væru fengnar, annars væri um yfir- sjón að ræða. Vísisfréttin (visir.is), sem styddist ekki við aðrar heimild- ir en frásögn Stöðvar 2, væri senni- lega á gráu svæði þar sem heimild- ar fyrir fréttinni allri væri getið óbeint með því að vitna í samtal Stöðvar 2 við hina grunuðu. Hægt væri að líta svo á að heimildar hefði ekki verið nógu rækilega getið en það hefði ekki verið ásetningur. Hinn kærði ritstjóri var í orlofi þegar Þór Jónsson leitaði leiðrétt- ingar mála sinna hjá Vísi (visir.is) og fór fram á að Vísir (visir.is) birti yfirlýsingu um að fréttin hefði að öllu leyti verið fengin úr fréttatíma Stöðvar 2. í úrskurði siðanefndar kemur fram að stjórnarformaður Vísis hafi rætt mál þetta við frétta- stjóra Stöðvar 2 án þess að þeirra samræðna sæi stað í fréttum Vísis (visir.is). Ekki sýndur drengskapur í niðurstöðum siðanefndar segir að Vísir (visir.is) hafi fullan rétt til að endursegja meginatriði fréttar Stöðvar 2 en eigi þá að nefna heim- ild sína ótvírætt. „Siðanefnd fellst á röksemdir kæranda um að í frétt- inni sé ekki sýndur sá drengskapur í skiptum við starfsfélaga sem siða- reglur gera ráð fyrir. Þar skiptir miklu að óskum um leiðréttingu er ekki sinnt. Orlofsmál ritstjóra Vísis firra ritstjórnina ekki ábyrgð í því efni. Þá getur það ekki talist nægi- lega vönduð úrvinnsla og framsetn- ing í anda 3. greinar siðareglna að geta ekki rækilega heimildar í frétt- inni og sinna í engu ábendingum um leiðréttingu." Samræmd próf í 10. bekk. Meðaleinkunnir skóla 1998 Stærðfræði Meðal- einkunn Islenska Meðal- einkunn Enska Meðal- einkunn Danska Meðal- einkunn Hagaskóli 6,0 V 6,4 V 6,3 6,3 Tjarnarskóli 5,2 5,7 5,6 5,0 Austurbæjarskóli 5,9 5,3 5,6 5,8 Hlíðaskóli 6,0 V 6,2 6,1 6,6 Háteigsskóli 4,6 5,6 6,6 V 5,6 Laugalækjarskóli 5,3 5,4 5,7 5,9 Langholtsskóli 5,1 4,9 5,1 4,8 Vogaskóli 4,5 5,4 6,1 5,7 Álftamýrarskóli 5,6 5,2 6,1 6,0 Hvassaleitisskóli 5,5 6,4 V 6,1 6,1 Réttarholtsskóli 5,8 5,3 5,6 5,5 Seljaskóli 5,4 5,4 5,5 5,0 Ölduselsskóli 5,5 5,9 5,9 5,8 Breiðholtsskóli 4,7 4,9 5,1 4,0 Hólabrekkuskóli 4,6 5,3 4,8 4,8 Fellaskóli 3,8 4,3 4,3 3,8 Árbæjarskóli 5,8 5,2 5,2 5,2 Foldaskóii 6,0 V 5,8 5,1 5,3 Hamraskóli 5,3 5,2 4,9 5,2 Húsaskóli 4,9 5,3 4,9 4,0 Rimaskóli 4,9 4,9 5,0 4,7 Meðaltal 5,2 5,3 5,4 5,1 Nágrannasveitarfélög Reykjavíkur — Hvaleyrarskóli 5,1 5,0 4,5 4,9 Öldutúnsskóli 4,7 4,5 5,0 4,8 Lækjarskóli 3,9 4,5 5,0 4,4 Setbergsskóli 5,2 4,9 5,2 5,0 Víðistaðaskóli 5,4 5,5 5,2 5,6 Garðaskóli 5,3 5,0 5,3 5,0 Þinghólsskóli 4,7 5,1 5,6 4,9 Kópavogsskóli 5,8 5,4 5,4 6,0 Digranesskóli 5,3 5,0 5,3 5,3 Snælandsskóli 5,8 6,4 V 5,1 5,0 Hjallaskóli 4,9 5,1 5,3 5,1 Valhúsaskóli 5,4 6,1 5,9 5,4 Gaqnfræðssk. í Mosfellsbæ 4,9 5,4 4,9 5,3 Meðaltal 5,1 5,2 5,2 5,1 Grunnskóli Grindavíkur 4,4 4,3 4,5 4,4 Grunnskólinn í Sandgerði 3,6 3,9 3,9 4,0 Gerðaskóli 3,6 4,3 4,3 3,4 Holtaskóli 4,8 4,8 5,1 5,3 Njarðvíkurskóli 4,6 4,3 4,9 5,8 Meðaltal 4,2 4,3 4,5 4,6 Heiðarskóli 3,7 5,0 3,7 4,1 Brekkubæjarskóli 4,8 4,7 4,7 4,2 Grundaskóli 4,9 4,6 4,7 4,8 Kleppjárnsreykjaskóli 4,8 5,8 5,5 5,5 Varmalandsskóli 5,8 5,2 4,7 5,9 Grunnskólinn í Borgarnesi 5,0 4,8 4,4 4,5 Laugargerðisskóli 3,3 4,9 3,8 5,1 Grunnskólinn í Ólafsvík 2,9 3,5 3,4 3,7 Grunnskóli Eyrarsveitar 6,0 V 5,3 5,6 6,1 Grunnskólinn í Stvkkishólmi i 5,8 5,1 5,0 5,4 Meðaltal 4,7 4,9 4,6 4,9 Patreksskóli Patreksfirði 4,1 4,5 4,2 3,9 Grunnskólinn á Þingeyri 4,5 4,8 4,8 5,3 Grunnskóli Bolungarvíkur 3,7 4,3 4,3 4,3 Grunnskólinn á ísafirði 4,5 4,4 4,5 4,5 Meðaltal 4,2 4,5 4,4 4,5 Norðurland vestra Laugarbakkaskóli 4,2 5,2 4,4 5,0 Grunnskólinn á Blönduósi 4,5 4,2 4,2 4,1 Grunnskólinn á Sauðárkróki i 4,6 4,0 4,1 4,5 Varmahlíðarskóli 5,4 4,7 4,2 4,8 Grunnskóli Siqlufiarðar 3,8 4,1 4,2 4,3 Meðaltal 4,5 4,4 4,2 4,6 Norðurland eystra Dalvíkurskóli 4,3 3,4 3,6 4,1 Þelamerkurskóli 4,4 5,0 4,6 5,1 Síðuskóli 5,3 4,6 4,5 4,8 Glerárskóli v. Höfðahlíð 4,7 3,6 4,4 3,6 Brekkuskóli 4,9 4,9 4,7 4,5 Hrafnagilsskóli 3,9 3,8 3,2 4,0 Hafralækjarskóli 4,8 5,6 5,3 6,1 Borgarhólsskóli 5,0 4,4 4,3 4,7 Meðaltal 4,7 4,4 4,3 4,6 Austurland Vopnafjarðarskóli 4,3 4,5 4,1 3,4 Egilsstaðaskóli 4,8 4,7 4,3 4,3 Seyðisfjarðarskóli 4,8 4,8 4,8 5,5 Nesskóli 4,1 3,4 4,2 4,1 Grunnskólinn á Eskifirði 4,8 5,9 5,8 5,1 Grunnskóli Reyðarfjarðar 5,6 4,7 4,8 6,7 V Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar 4,7 5,2 4,5 5,2 Heppuskóli Hðfn 4,7 4,5 4,7 5,6 Meðaltal 4,7 4,7 4,7 5,0 Suðurland Kirkjubæjarskóli 4,5 3,9 3,8 4,3 Víkurskóli 4,7 5,8 4,7 5,9 Hvolsskóli 3,6 3,3 3,3 3,8 Grunnskólinn Hellu 5,9 5,5 5,5 6,0 Gr.sk. á Eyrarbakka og Stokkseyri 3,6 3,9 3,9 4,1 Sólvallaskóli 4,5 4,7 4,8 4,8 Flúðaskóli 3,3 5,0 3,6 4,5 Grunnskólinn í Hveragerði 5,7 4,5 4,8 5,1 Grunnskólinn í Þorlákshöfn 4,7 4,7 5,2 5,2 Barnaskóli Vestmannaeyja 4,3 4,5 4,6 4,1 Hamraskóli 4,8 4,9 4,4 4,1 Meðaltal 4,5 4,6 4,4 4,7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.