Morgunblaðið - 01.10.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 4^
„Samtök fyrirtækja
ferðaþj ónustunnar “
UNDANFARIN ár
hefur verið mikil gróska
í íslenskri ferðaþjón-
ustu. Hún kemur m.a. í
ljós í framsækni sam-
gönguráðherra á flest-
um sviðum ferðaþjón-
ustunnar, fjölgun ferða-
þjónustufyrirtækja í
hefðbundnum þjónustu-
greinum og mitólli fjölg-
un möguleika í afþrey-
ingu um allt land. Um
leið og þetta hefur átt
sér stað hafa sveitar-
stjórnarmenn gert sér
enn frekari grein fyrir
auknum hlut sveitarfé-
laganna í ferðaþjónust-
unni. Ferðaþjónustan
hefur fyrst og fremst þróast á undan-
fórnum ái'atugum samhliða starii fyr-
h-tækja eins og Flugleiða, Flugfélags
íslands, ferðaskrifstofa, Atlanta, Is-
landsflugs og hópferðabíla enda ekk-
ert eðlilegra, þar sem þessir aðilar
öðnim fremur hafa séð um flutninga
ferðamanna til og innan landsins. I
öðru lagi vegna framtaks sveitai'fé-
laga víða um land og í þriðja lagi með
uppbyggingu afþreyingar í íslenskri
ferðaþjónustu. I þeÚTÍ uppbyggingu
hefui' hvorki átt sér stað miðstýring
að ofan né að stór ferðaþjónustufyrir-
tæki hafi sett niður afþreyingar-
möguleika um allt land. Það eru hug-
myndir frumkvöðlanna í afþreyingu
sem hafa þróast smátt og smátt í
flestum tilfellum vegna hesta, jeppa
eða vélsleða og vegna sögu, menning-
ar eða landslags þess umhverfis sem
þessir frumkvöðlai' hafa dvalið í.
Nú er þróunin komin á það stig, að
nauðsynlegt er að koma á breyttu
heildarskipulagi í ferðamálum á Is-
landi með hliðsjón af hagsmunum
heildarinnar, vegna hagsmuna fyiir-
tækjanna, ríkis og sveitarfélaga, sam-
taka, skóla og einstaklinga. Ráðherra
ferðamála, Halldór Blöndal, kom af
stað mikilli vinnu við mótun stefnu í
ferðamálum 1996 og hélt áfram með
framkvæmdaáætlun 1997 og 1998.
Þessi vinna hefur komið mörgu til
leiðar. Hún hefur leitt til fram-
kvæmda, skipulagsbreytinga, aukið
rannsóknir og menntunarmöguleika,
opnað augu margra fyrir mikilvægi
ferðaþjónustunnar, hvatt til sér-
menntunnar og ekki síst
fjölgað störfum og aukið
hlut sérmenntaðs fólks í
ferðaþjónustu.
En það er nauðsyn-
legt að halda áfram og
horfa til framtíðar.
Einmitt með framtíðar-
sýn í huga hafa ýmsir
forystumenn í ferða-
þjónustu látið þau orð
falla m.a. á ársþingum
Ferðamálaráðs að lausn-
in væri að stofna heild-
arsamtök í ferðaþjón-
ustu. Slík samtök muni
auka samtakamátt og
kraft markaðssetningar
í ferðþjónustu bæði inn-
anlands sem erlendis,
þar sem að því kæmu kraftar allra
þeirra aðila, sem starfa að framgangi
ferðaþjónustunnar á íslandi. Starfs-
menn samgönguráðuneytisins og
fleiri hafa unnið að breytingum á lög-
um nr. 117/1994 um sldpulag ferða-
Er skipulag ferðaþjón-
ustunnar á tímamótum,
spyr Pétur Rafnsson,
sem telur nauðsyn-
legt að koma á breyttu
heildarskipulagi
ferðamála.
mála. Þessi vinna er einnig að hluta
afsprengi stefnumótunar í ferðaþjón-
ustu og þeirra tillagna sem í henni
birtust. Þar kom m.a. fram sú hugsun
að einfalda stjómsýsluna og sameina
hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, sem
sameinaðir gætu á öflugan hátt tekið
á málum gi'einarinnar, hvort heldur
væri með ríkinu eða í átökum við það.
Fulltrúar fyrirtækja eins og aðrir í
greininni tóku vel í þessi jákvæðu
skilaboð um stofnun samtaka og
hófu undirbúning að málinu. Fyrst
með heildarsamtök í huga, síðan
samtök allra fyrirtækja og nú standa
mál þannig að stofnun samtaka fyr-
irtækja í ferðaþjónustu er í burðar-
liðnum. Samband veitinga- og gisti-
húsa á heiður skilið fyiir þeirra
frumkvæði og forystu í þessum und-
frbúningi. Eins og fram kemur í frétt
í Mbl. 22. september s.l. boðaði Sam-
band veitinga- og gistihúsa til aðal-
fundar 24. sept. m.a. tO að breyta
lögum sambandsins svo önnur fyi-h’-
tæki í ferðaþjónustu gætu gengið í
sambandið. En samkvæmt tillögu,
sem lögð var fyrir fundinn, ætti SVG
eftirleiðis að heita „Samtök ferða-
þjónustunnar". Hér varð þeim á í
undirbúningi að stofnun þessara
samtakanna. Fyrirtækin í ferðaþjón-
ustu eru burðarásar þessarar at-
vinnugreinar. Þó eru mun fleiri aðil-
ar í ferðaþjónustu á Islandi en þau
fyrirtæki, sem boðin er innganga í
þessi væntanlegu samtök. Það er því
rangnefni að þetta séu einhver heild-
arsamtök í ferðaþjónustu á Islandi
eða geti með neinum sanni heitið
„Samtök ferðaþjónustunnar“.
Stjórn Ferðamálasamtaka höfuð-
borgarsvæðisins (FSH) kom á fram-
færi tillögu um heildarsamtök í ferða-
þjónustu og skipulag ferðamála við
skrifstofu Ferðamálaráðs íslands,
samgönguráðuneytið og ýmsa aðila í
ferðaþjónustu fyrir um einu og hálfu
ári, þar sem reiknað var með að öll
fyrirtæki í ferðaþjónustu, ferðamála-
samtök landshlutanna með aðild
sveitarfélaganna, ferðafélög, leið-
sögumenn og önnm- félög stofnuðu
þessi heildarsamtök. Það er öllum
Ijóst, sem hafa einhverja yfirsýn yfir
ferðaþjónustuna, að sveitarfélögin
eru mjög stór hlekkm- í ferðaþjónustu
landsins. Ferðamálasamtökin hafa
einnig mikilvægu hlutverki að gegna
þó misjafnt sé efth’ landshlutum auk
fagskóla, háskóla, ferðafélaga, leið-
sögumanna og annara samtaka sem í
raun eru hluti af ferðaþjónustunni á
Islandi. Þess vegna er það miður að
fulltrúar fyrirtækjanna skuli ekki
hafa skoðað málið betur og í samráði
við aðra aðila í ferðaþjónustu.
Fyrirtækjunum er í sjálfsvald sett
hvers konar samtök þau stofna burt
séð frá því hvað aðrir aðilar í ferða-
þjónustu gera. A undirbúningsfundi
samtakanna á Grand Hotel 4. júní
s.l. var lagt fram plagg undh'bún-
ingsnefndar. Inngangur þess hefst á
þessum orðum: „Hjálagt leggur und-
irbúningsnefnd fram drög að lögum
fyrir heildarsamtök fyrirtækja í
ferðaþjónustu". En vilji fyi'irtækin
Pétur
Rafnsson
kalla þau „Samtök ferðaþjónustunn-
ar“ verða allir aðilar ferðaþjónust-
unnar að eiga möguleika á inngöngu
ellegar setji þau orðið „fyrirtæki" í
eignarfalli fleirtölu á milli, þ.e. „Sam-
tök fyrirtækja ferðaþjónustunnar“,
skammstafað SFF, eða Samtök at-
vinnurekenda í ferðaþjónustu (SAF)
eins og lagt var til á undfrbúnings-
fundinum. Það lýsir því nokknim
hroka á aðalfundi SVG að láta sig
bara hafa það og samþykkja nafnið
„Samtök ferðaþjónustunnar", skítt
með alla aðra aðila í ferðaþjónustu á
Islandi og hvað þeim finnst.
Skipulag ferðaþjónustunnar er á
tímamótum, samtök fyrirtækjanna
eru að sameinast og önnur félög og
samtök munu sameinast í stærri ein-
ingu. Samtökin í ferðaþjónustunni
munu verða flefri en ein og ráðherra
ferðamála mun leggja fram breyt-
ingar á lögum um skipulagið í heild.
í vor þegar ljóst var orðið að fyrir-
tækin stefndu að stofnun fyrirtækja-
samtaka, kom stjóm Ferðamálasam-
taka íslands tillögu til ráðuneytisins,
þar sem hugmyndin var þríeyki, setr^
myndaði heildarskipulag ferðamála *
íslandi. Aðrir aðilar en fyrirtæki í
ferðaþjónustu eins og ferðamálasam-
tök, sveitarfélög og önnur samtök,
félög og einstaklingar skyldu sam-
einast undir einum hatti Ferðamála-
samtaka íslands. Þessir þrír aðilar,
Samtök fyrirtækja ferðaþjónustunn-
ar og Ferðamálasamtök Islands
ásamt samgönguráðherra verði síð-
an þeir aðilar sem myndi heildar-
skipurit ferðamála á Islandi, standi
að ferðamálaráði og markaðsráði
ferðaþjónustunnar.
Höfundur er formaður Ferðamála-
samtaka höfuðborgarsvæðisins og
Ferðamálasamiaka íslands.
-t- Wf' ' 1
B ■ <&*$*** JS!
Mánud. - föstud.
Fimmtudagar
Laugardagar
Sunnudagar
10:00 - 18:00
10:00 - 20:00
11:00 - 16:00
13:00 - 16:00
j TM - HÚSGÖGN
? Síöumúla 30 - Sími 568 6822
yíu^AINl^URENT
40 ára starfsafmæli }'ÍUlíy\lNl//\UW.Nr - seinni hluti. Ævintýri Austurlanda.
Gréta Boiia, förðunarmeistari, kynnir nýju haustlitina,
í dag og á morgun frá kl. 12 og á laugardag frá kl. 11.
Glæsilegir litir og frábærar nýjungar,
þar á meðal nýr farði Teint Singulier.
Verið velkomin
cí
ACA
Vinsamlega munið að panta tíma í förðun.
Kringlunni, sími 568 9033
Reykvíkingar
Munið
borgarstjórnarfundinn
í dag kl. 17.00
sem útvarpað er á
Nær
Reykjavíkiiriioi^
Skrifstofa borgarsljóra