Morgunblaðið - 01.10.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 25
ERLENT
Alþjóðlegur sáttmáli um borgaraleg
og pólitísk réttindi
Kínverjar ætla
að skrifa undir
Peking. Reuters.
TANG Jiaxuan, utanríkisráðherra
Kína, sagði í gær að Kínverjar
myndu skrifa undir alþjóðlegan
sáttmála um borgaraleg og pólitísk
réttindi næstkomandi þriðjudag,
en þá mun kínversk sendinefnd
eiga fund með Bill Clinton, forseta
Bandaríkjanna, í Washington.
Er hér um að ræða annan af
tveimur mikilvægustu mannrétt-
indasáttmálum sem gerðir hafa
verið á alþjóðavettvangi. Skrifuðu
Kínverjar á síðasta ári undir al-
þjóðasáttmála um efnahagsleg og
félagsleg réttindi, en eiga hins veg-
ar enn eftir að staðfesta hann.
Orðin ein
duga ekki
Fregnir þessa efnis koma tveim-
ur vikum eftir að Mary Robinson,
framkvæmdastjóri Mannréttinda-
stofnunar SÞ, lauk sögulegri heim-
sókn sinni til Kína en Kínverjar
hétu því reyndar strax í mars síð-
astliðnum að skrifa undir sáttmál-
ann.
Sögðu fréttaskýrendur í gær að
Kínverjar stigu með þessu fyrsta
skrefið í átt til þess að uppfylla al-
þjóðlegar kröfur um lýðréttindi
sem m.a. snúa að tjáningarfrelsi
manna. Nokkurn tíma mun hins
vegar taka að staðfesta sáttmálann
formlega enda þurfa Kínverjar að
endurskoða ýmis lög og reglur til
að standast kröfur Sameinuðu
þjóðanna.
Meðan á Kínaheimsókninni stóð
benti Robinson á að Kínverjar yrðu
að láta verkin tala, orðin ein dygðu
ekki því Kínverjar þyrftu að taka á
þeirri „mjög alvarlegu" brotalöm
sem er á mannréttindum þar í landi.
Ólíklegt að Kínverjar geri
marga fyrirvara
Pyntingar kínversku lögreglunn-
ar á föngum og ólöglegar handtök-
ur eru meðal þein-a mannréttinda-
brota sem stjórnvöld í Peking hafa
verið sökuð um og segja frétta-
skýrendur þessi brot svo algeng að
það þurfí meira en undirskrifaðan
sáttmála til að binda enda á þau.
Jafnframt hafa Kínverjar ekki gert
sig líklega til að afnema bann á
nýja stjórnmálaflokka og opinber
mótmæli, en hvort tveggja myndi
teljast brot á sáttmálanum sem um
ræðir.
Talið er líklegt að kínversk
stjómvöld muni nú skoða rækilega
hvaða hluta sáttmálans þau telji sig
ekki geta sætt sig við en frétta-
skýrendur segja reyndar að þar
sem takmarkið með undirskrift
sáttmálans sé m.a. að öðlast viður-
kenningu umheimsins sé ólíklegt
að stjórnvöld í Peking grafi undan
sjálfum sér með því að gera of
marga fyrirvara við sáttmálann.
Fjöldi fá-
tækra í
Asíu gæti
tvöfaldast
Washington. Reuters.
FULLTRÚAR Alþjóðabank-
ans sögðu á þriðjudag að tak-
ist ekki að ráða bót á efna-
hagsvandanum í Asíu gæti far-
ið svo að fjöldi fátækra í álf-
unni tvöfaldaðist, færi úr
fjörutíu milljónum manna í
níutíu milljónir.
I skýrslu bankans um efna-
hagsöngþveitið í Asíu, sem
skall á fyrir um ári síðan, segir
að hagvöxtur hafí áðm- verið í
Thailandi, Suður-Kóreu,
Indónesíu og Malasíu en að nú
ríki þar djúp efnahagslægð
sem jafnvel geti enn farið
versnandi. Er bent á að í næst-
um öllum löndum álfunnar hafí
atvinnuleysi aukist mikið og að
verð nauðsynjavara hafi hækk-
að verulega.
Dregið hefur úr útflutningi
Asíuríkjanna og segir Alþjóða-
bankinn að ólíklegt sé að hann
taki að vaxa á næstunni. Varar
bankinn jafnvel við því að líkur
séu á frekari skakkafollum.
Því verði þeir sem sjá um
stefnumörkun í ríkisfjámálum
að halda vöku sinni. I skýrsl-
unni kemur fram að minnki
framleiðsla landanna á næstu
þremur árum, og verði tekju-
dreifíng óhagstæðari, muni
fjöldi fátækra tvöfaldast. Það
hljóti að undirstrika hversu
mikilvægt sé að stuðla að betri
efnahagsafkomu.
LANCÖME
flouge
Haust- og vetrarlitirnir ’98 - ’99
Komið, sjáið og prófið...
....glimmer, mattir, blautir og þurrir. Allt er fáanlegt
og allt er leyfilegt.Tískan verður rauð, meira logandi,
frjálsari og kvenlegri en áður.
Förðun og óvæntur glaðningur.
smart á>ara
Bankastræti 8,
sími 551 3140
Kynning í dag
og á morgun
www.lancome.com
Hólmgarði 2, Keflavík
sími 421 5414
Kynning í dag
VOLVO
■■
Volvo V70 Cross Country gerir þér kleift að komast
lengra án þess að fóma öryggi eða þægindum. Bíllinn
hefur góða veghæð og sjálfvirka hleðslujöfnun, en
jafnframt lágan þyngdarpunkt. Öflug vél með forþjöppu
og millikæh skilar miklum togkrafti á lágu snúningssviði.
Aldrifsbúnaður, sem dreifir vélaraflinu sjálfkrafa á milli
allra hjólanna, sérhannaður fjölliðaöxull með fullri
driflæsingu, háþróuð spólvöm og læsivarðir hemlar tryggja
einstaka rásfestu og svörun við misjafnar aðstæður.
aldrifinn og albúinn
VOLVO V70 XC AWD
CROSS COUNTRY
Upplifðu Volvo V70 Cross Country í reynsluakstri.
BRIMBORG
Faxafeni 8 • Sími 515 7010
Brimborg-Þórshamar
Tryggvabraut 5 • Akureyri
Simi 462 2700
Bllasala Keflavlkur
Hafnargötu 90 • Reykjanesbæ
Sími 421 4444
Blley
Búðareyri 33 • Reyðarfirði
Sími 474 1453
Betri bílasalan
Hrísmýri 2a • Selfossi
Sfmi 482 3100
Tvisturinn
vis'/ on y ajir