Morgunblaðið - 01.10.1998, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.10.1998, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ vantar ekki á þig viðurkenningar og medalíur en svo erum við, þessi afkvæmi þín, svo hjólbeinótt, kiðfætt og brussuleg að við skömmumst okkar fyrir að fara í slátur hvað þá annað. Meng-unarranns6kn gerð á Nickel-svæði í Keflavík UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að gangast fyrir mengunar- rannsókn á svokölluðu neðra Nickel- svæði, landræmu neðan við veginn að Flugstöð Leifs Eiríkssonar, ofan byggðarinnar í Keflavík. Svæðið er afgirt og er hluti af vamarsvæðunum en vamarliðið er hætt að nota það og vill skila því til íslendinga. Um það er hins vegar deilt hvort fulinægjandi mengunarrannsóknir hafí farið fram á svæðinu og hyggst ráðuneytið nú höggva á þann hnút. Reykjanesbær hefur látið í ljós áhuga á að byggja á svæðinu. Heil- brigðisnefnd Suðumesja hefur hins vegar ekki talið mengunarrann- sókn, sem varnarliðið lét gera þar árið 1992, fullnægjandi. Rannsóknin sýndi fram á einhverja olíumengun í jarðvegi á afmörkuðum blettum. Samkvæmt samningum Islands og Bandaríkjanna geta íslenzk yfírvöld ekki gert neinar bótakröfur á hend- ur Bandaríkjunum eftir að varnar- svæði hefur verið skilað, komi í ljós meiri umhverfisspjöll en upplýsing- ar lágu fyrir um við afhendingu svæðisins. Að sögn Þórðar Ægis Óskarsson- ar, skrifstofustjóra varnarmála- skrifstofu utanríkisráðuneytisins, er varnarliðið þeirrar skoðunar að rannsóknin árið 1992 hafí verið full- nægjandi. Aukinheldur telur varn- arliðið sig ekki hafa lagalega heim- ild til þess að kosta frekari rann- sóknir á Nickelsvæðinu. Hann segir að mengunarrannsókn sú, sem ráðuneytið hyggst gangast fyrir, verði svokölluð forrannsókn, til þess ætluð að leiða í ljós hvort um víð- tækari mengun sé að ræða á svæð- inu en olíumengunina. „Við viljum ekki fara í afhendingarviðræður fyrr en við höfum þetta á hreinu," segir Þórður Ægir. Hann segir að á svæðinu séu ým- is mannvirki, t.d. olíutankar og - leiðslur, en það verði ákveðið í af- hendingarviðræðum, þegar þar að komi, hver beri kostnað af að fjar- lægja þau og hreinsa svæðið. Svæðið til lýta Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra tók málið upp á ríkis- stjórnarfundi í gær. Gert er ráð fyr- ir að skili varnarliðið svæðinu, verði það áfram í eigu ríkisins, sem muni taka af því leigu. Halldór segir að leigutekjur muni væntanlega standa undir þeim kostnaði, sem ráðuneytið þarf að leggja í vegna mengunarrannsóknarinnar. „Það er nauðsynlegt að koma þessu máli áfram, því að það er mikið lýti að þessu umhverfi fyrir bæjarfélagið,“ segir Halldór. Að sögn Friðþórs Eydal, upplýs- ingafulltrúa varnarliðsins, heitir Nickelsvæðið eftir Julius R. Nickel, sem var liðsmaður verkfræðisveita Bandaríkjahers og fórst í vinnuslysi á Langley Field í Virginíu 23. maí 1941, nokkrum vikum áður en bandarískir hermenn komu fyrst til Islands í samræmi við hervemdar- samning íslands og Bandaríkjanna. Á stríðsárunum stóð á svæðinu braggahverfi, sem verkfræðisveitir, sem unnu að byggingu Keflavíkur- flugvallar, byggðu og notuðu fyrir starfsemi sína. Svæðið var tekið til afnota fyrir eldsneytisbirgða- geymslur fljótlega eftir að varnar- liðið kom til íslands 1951. Spergilkál, 250g Kryddsíld, 250 ml Eftirlætisblanda, Head & Shoulders, 4 geröir Lucky Charms WB* LEIÐmm HEIM • UM LAND ALLT Bókmenntaþýðingar á íslensku Fullkomin þýð- ing er ekki til Halldóra Jónsdóttir HINN 5. október næstkomandi hefst námskeið á vegum Félags íslenskra háskólakvenna sem ber yfirskriftina Bók- menntaþýðingar á ís- lensku. Félag íslenskra há- skólakvenna hefur und- anfarin ár staðið fyrir endurmenntunarnám- skeiðum sem eru opin öllum. Halldóra Jónsdóttir er umsjónarmaður nám- skeiðsins um bók- menntaþýðingar á ís- lensku. „Á þessu námskeiði verður farið í helstu hugtök þýðingarfræða, sem er fræðigrein innan málvísinda og bók- mennta. Þýðingarfræði er einnig mjög mikilvæg innan guðfræðinnar vegna þýðingar á biblíunni. Þar hefur verið um- ræða um hvernig eigi að túlka orðið í Biblíunni og setja það fram svo viðtakendur orðsins geti tengt það við sinn raun- veruleika." - Hvaða efni verður farið í á námskeiðinu? „Aðallega munu þýðingar á erlendum bókmenntum vera til umfjöllunar. Þá lítum við líka á kvikmyndaþýðingar og frétta- þýðingar vegna þess að í nú- tímaþjóðfélagi erum við alla daga að lesa eða hlusta á þýð- ingar.“ - Hver er munuiinn á bókmenntaþýðingum og frétta- þýðingum? „Fréttimar þarf að þýða mjög nákvæmlega og það sem gildir þar er að vera alveg trúr þeim texta sem verið er að þýða. Þá skiptir ekki eins miklu máli og í bókmenntunum hvort tekið er tillit til persónulegs stíls þess sem skrifar. Innihald- ið er fyrir öllu. I bókmenntunum verður form og innihald að haldast í hendur. Þá mega einkenni höf- undarins ekki týnast og málfar- ið má ekki litast af þýðandan- um.“ - Hvað er góður bókmennta- þýðandi? „Fullkomin þýðing er ekki til því hún nær aldrei sömu áhrif- um og frumtextinn. Góður þýð- andi er sá sem færir lesandan- um sömu upplifun og hann væri að lesa frumtexta. Þýðendur sem eru ekki eins góðir geta þýtt texta alveg rétt málfræðilega en lesandinn finn- ur fljótt að hann gengur ekki al- veg upp því þýðandann vantar tilfinninguna fyrir listrænum þáttum verksins.“ -Þurfa góðir þýð- endur að hafa sér- staka eiginleika? „Þýðandi þarf að hafa málið sem hann þýðir á full- komlega á valdi sínu og auk þess þarf hann að vera mjög góður í málinu sem þýtt er úr.“ Hún segir að þýðandinn verði að vera trúr texta og höfundi annars litast textinn af höfund- areinkennum þýðandans. „Þýð- andi þarf að skynja textann þannig að hann framkalli veru- leikann að baki orðunum. Þýðandi verður eins konai- nýr höfundur sem færir lesend- um í nýju málsamfélagi text- ann.“ ►Halldóra Jónsdóttir er fædd að Skógum undir Eyjaíjöllum árið 1957. Hún lauk BA-prófi í þýsku og dönsku frá Háskóla Islands árið 1980 og cand.phil. prófi í dönskum bókmenntum frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1984. Halldóra er löggiltur skjala- þýðandi. Hún hefúr verið dönskukennari við framhalds- skóla og stundakennari í dönskudeild Háskóla íslands. Halldóra hefur unnið við þýðing- ar og var aðstoðarritsljóri dansk-íslenskrar orðabókar sem út kom á vegum Isafoldar árið 1992. Hún var ritstjóri dansk-ís- lenskrar skólaorðabókar sem út kom hjá Máli og menningu árið 1994 og vinnur nú að samningu íslensk-danskrar orðabókar hjá Máli og menningu. -Hvað er það sem veldur þýðendum mestum erfíðleik- um? „Það er erfiðast að þýða menningarmun, það er að segja í ýmsum málsamfélögum eru til hugtök sem tilheyra þeirri menningu en erfitt er að færa yfir á önnur menningarsvæði." Þá bendir hún á að orð hafí ýmsar hliðarmerkingar sem er- lendir þýðendur átta sig kannski ekki á. „Þetta sjáum við oft í þýðingum á kvikmynd- um. Þá hefur áhorfandinn frum- málið sem hann skilur mjög vel en sér þýðinguna renna hjá um leið og skynjar strax að hún virkar ekki. Skýringin kann að vera þekkingarleysi þýðandans eða tímaskortur." -Hvernig er ástandið al- mennt á þýðingum hérlendis? „Það er mjög mikil gróska í þýðingum. Margir taka að sér að þýða en það er bæði tímafrekt, erfitt starf og illa launað. Þrátt fyrir þetta hafa margar stórkostlegar þýðingar litið dagsins ljós á íslensku. Það er þessum þýðendum að þakka að við fáum að sjá heimsbók- menntirnar á íslensku." Halldóra fær til sín nokkra gestafyrirlesara. Þar á meðal eru Ástráður Eysteinsson pró- fessor sem hefur skrifað fræði- rit um þýðingar og Pétur Gunn- arsson rithöfundur sem hefur þýtt merk bókmenntaverk úr frösnku. Hægt er að skrá sig á námskeiðið hjá formanni Fé- lags íslenskra háskólakvenna, Geirlaugu Þorvaldsdóttur, eða hjá Halldóru Jónsdóttur. Það er erfið ast að þýða menn- ingarmun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.