Morgunblaðið - 01.10.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 2 7
Morgunblaðið/Jim Smart
JOHANN Freyr Björgvinsson,
Sigrún Guðmundsdóttir og Dav-
id Greenal, í hlutverkum sinum
í Stoolgame eftir Jiri Kylian.
Afmælis-
sýningar
dans-
flokksins
SÝNIN GAitÁRIÐ hjá íslenska
dansflokknum hefst í kvöld kl. 20. A
efnisskránni eru þrjú verk: Night,
eftir Jorma Uotinen, listrænan
stjómanda Finnska Þjóðarballetts-
ins, Stool Game eftir Jiri Kylián,
listrænan stjómanda Nederlands
Dans Theater og La Cabina 26 eftir
Jochen Ulrich, stjórnandi Tanz -
Forum.
Þetta er afmælissýning íslenska
dansflokksins, en hann var stofnað-
ur árið 1973 og á 25 ára afmæli á
þessu ári. Verkin voru sýnd á Lista-
hátíð í Reykjavík 3. og 4. júní sl. og
komu dansahöfundarnir til landsins
af því tilefni.
Alls eru fyrirhugaðar fimm sýn-
ingar nú; önnur sýning verður laug-
ardaginn 3. október, þriðja sýning
15. október, fjórða sýning 18. októ-
ber og sú flmmta 22. október.
Nýr dansari Chad Adam
Bantner, kemur nú fram með
flokknum í fyrsta skipti.
I umsögn um sýninguna á Lista-
hátíð sagði listdansgagnrýnandi
Morgunblaðsins, Lilja ívarsdóttir,
að hún væri vegleg afmælissýning
íslenska dansflokksins.
Landsbanki Islands er aðalsam-
starfsaðili Islenska dansflokksins
um sýninguna.
SýningDm
lýkur
Gallerí Kambur
SÝNINGU Ólafs Elíassonar á
insetningum lýkur sunnudaginn
4. október.
Gallerí Kambur er á Þjórsár-
bökkum við Gíslholtsvatn. Sýn-
ingin er opin frá morgni til
kvölds nema miðvikudaga.
Gallerí Geysir
Yfirlitssýningunni 20,20 hug-
myndir um eiturlyf lýkur nú á
sunnudag. Sýning er opin virka
daga frá kl. 8-23, um helgar kl.
13-18.
Mokkakaffi,
Skólavörðustíg
Ljósmyndasýningu Orra
Jónssonar lýkur í dag, fimmtu-
dag.
Hafnarborg
Sýningu Önnu Sigríðar Sigur-
jónsdóttur á skúlptúrum í Aðal-
sal, olíumyndum Margrétar
„ÉG HELD að þessi píanó-
konsert sé aðgengilegur - komi
svolítið á móti áheyrandanum.
Hann er kraftmikill og afdrátt-
arlaus, það er hvergi verið að
teygja lopann og ég daðra við
ýmsar stefnur í tónlist nútímans
- tónlist af léttara taginu. Það
rúmast líka mismunandi stilar í
þessu verki. Þarna eru suður-
amerískir ryþmar, dálítið rokk
og dálítið diskó, hlutir sem alltaf
hafa verið í mínum verkum, af
og til. Ég hef alltaf verið opinn
fyrir því að nota hluti úr ýmsum
áttum, gamla og nýja,“ segir
AtU Heimir Sveinsson tónskáld
um píanókonsert sinn, Eldtákn,
sem frumfluttur verður hér á
landi á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands í Háskólabíói í
kvöld kl. 20.
Eldtákn var upphaflega samið
fyrir tveimur árum fyrir Sin-
fónísku blásarasveitina í Stokk-
hólmi og sænska píanóleikarann
Love Derwinger, sem flytja mun
verkið með Sinfóníuhljómsveit
Islands í Háskólabíói. Var verkið
frumflutt á tónlistarhátíðinni Ny
Musik í Stokkhólmi. „Þetta var
raunar eitt af síðustu verkunum
sem þessi blásarasveit flutti á
sínum ferli, því skömmu síðar
var hún Iögð niður vegna endur-
skipulagningar í menningarlíf-
inu, skilst mér. Ég kalla þetta
því eiginlega banabita sveitar-
innar,“ segir Atli Heimir með
bros á vör.
Blásarasveitir af þessu tagi
eru ekki á hveiju strái, allra síst
á íslandi, þannig að Atli Heimir
tók sig til nýverið og setti verkið
út fyrir sinfóníuhljómsveit. Seg-
ir hann píanópartinn nær þann
sama en aftur á móti hafi hann
breytt hljómsveitarhlutverkinu
örlítið. Verður þessi nýja útgáfa
frumflutt í kvöld.
Barmúsík og nætursöngvar
Eldtákn er í fjórum þáttum.
Fyrsti þátturinn er, að sögn höf-
undar, mars ellegar göngulag.
Annar þáttur er sambland af
rómantískri músík og endar í
rúmbu eða samba, „barmúsík“,
eins og Atli Heimir kýs að kalla
það. „Svo skemmtilega vill til að
Derwinger spilaði á bar þegar
hann var yngri og kann þetta
því allt saman. Hann spilar þetta
Guðmundsdóttur í Sverrissal og
ljósmyndsýningu Bernds
Schliisselburg í Apótekinu lýkur
mánudaginn 5. október.
Hafnarborg er opin alla daga,
nema þriðjudaga, frá kl. 12-18.
Gallerí Fold
Rauðarárstíg 14
Málverkasýningu Gunnars R.
Bjarnasonar í baksal gallerísins,
lýkur nú á sunnudag.
Gallerí Fold er opið daglega
frá kl. 10-18, laugardaga kl.
10-17 og sunnudaga kl. 14—17.
Sýning í Art-
Hún framlengd
LEIKFÉLAGSFÓLKIÐ leggur í hann til Moskvu.
af sannri suður-amerískri til-
finningu.“
Þriðji þáttur er súrrealískt
næturljóð, að sögn höfundar,
þar sem hlutverk kontrabassa,
fagotts og kontrabassaklarínetts
er veigamikið. „Þetta eru furðu-
legir nætursöngvar úr djúpinu!"
Lokaþátturinn er sterkur finale
með diskótakti, að því er fram
kemur í máli Atla Heimis. „í
þessum þætti nálgast ég rokk-
músík, eða þann stíl.“
Titill konsertsins, Eldtákn, er
sóttur í kvæði úr riti Friedrichs
Nietzsches, Svo mælti Zara-
þústra. Segir tónskáldið þetta
fallegt kvæði um eldmerki sem
stíga til himins.
Atli Heimir lýkur lofsorði á
Love Derwinger. Það sé ávallt
upplifun að hlýða á hann leika.
„Það er eins með Love Derwin-
ger og alla afburðamenn - hann
spilar allt sem maður skrifar -
og ekkert múður með það! Ég er
sjálfur píanisti, eða var það, og
veit alveg hvað má bjóða einum
píanista, þannig að í þessum
konsert eru gerðar ýtrustu
tæknikröfur. Hann fer eigi að
síður létt með þetta. Ég spurði
hann reyndar á sínum tíma
hvort ég ætti að breyta ein-
hveiju en svarið var stutt og
laggott: „Nei.“ Þetta samræmist
fullkomlega reynslu minni af af-
burðamönnum - þeir kvarta
aldrei, spila bara og syngja það
sem fyrir þá er lagt!“
Atli Heimir fer einnig fögrum
orðum um hljómsveitarstjórann,
hinn 19 ára Mikko Franck, sem
hann sá stjórna finnsku kamm-
ersveitinni Avanti á nútímatón-
listarhátíðinni Varsjárhaustinu
á dögunum. „Hann er mjög ör-
uggur og kraftmikill stjórnandi.
Hann er vissulega ungur að ár-
um en hver lítur á það þegar
maður sér að þarna fer óvana-
lega þroskaður listamaður.
Þannig að þetta er í óskaplega
góðum höndum!"
Það eina sem Atli Heimir hef-
Morgunblaðið/Kristinn
ATLI Heimir Sveinsson og Love Derwinger ráða ráðum sínum fyrir
tónleikana í kvöld.
ur áliyggjur af er að Sinfóníu-
hljómsveit íslands fái ekki nógu
langan tíma til að æfa verkið.
„Mér hefur oft fundist Sinfónían
ekki taka sér nógu langan æf-
ingatíma. Að þessu þarf að
hyggja betur en verið hefur
gert, þegar flytja á ný verk ann-
ars vegar og erfið verk hins
vegar. Þetta segi ég ekki ein-
göngu tónskáldanna vegna,
heldur líka vegna þessara ágætu
hljóðfæraleikara sem vilja vinna
sín verk vel. Það er annað að
líta á nótur sem enginn hefur
séð áður en að spila sinfóníu
sem allir þekkja. Hlutirnir þurfa
sinn tíma - það verða forsvars-
rnenn SI að skilja!"
Tónskáld vetrarins
Segir Atli Heimir þetta ekki
síst eiga við, þegar nútímatón-
verk eru annars vegar. „Sinfón-
íuhljómsveit Islands er góð
hljómsveit á margan hátt. Hún
er aftur á móti ekki sérlega
reynd í flutningi nútímatónlist-
ar, þótt hún geri það oft vel, og
þarf því að gefa sér meiri tíma
til að æfa fyrir tónleika en
hljómsveitir sem hafa meiri
reynslu á þessu sviði. Það er all-
ur gangur á því hvernig þetta er
gert erlendis en þar sem best er
að verki staðið taka menn sér
meiri tíma en SI.“
Atli Heimir er tónskáld vetr-
arins hjá Sinfóníunni sem þýðir
að flutt verða nokkur verk eftir
hann á starfsárinu. I desember
verður leikið verkið Flower
Shower frá árinu 1973, svíta úr
óperunni Vikivaka verður flutt í
apríl og í sama mánuði verður
frumflutt ný sinfónía eftir tón-
skáldið.
„Ég hef veitt Sinfóníunni
heimild til að flytja þessi verk í
vetur og valið þá hljómsveitar-
stjóra sem ég treysti. Ég kem
líka sjálfur til með að hafa hönd
í bagga, því þótt mér þyki alltaf
ánægjulegt að heyra verk mín
flutt er mér ekki sama hvernig
að flutningnum er staðið. Þetta
á aftur á móti allt að vera í góð-
um höndum," segir Atli Heimir.
Eldtákn er annar píanó-
konsert Atla Heimis. Þann
fyrsta, Höggormskonsertinn,
skrifaði hann fyrir Kammersveit
Reykjavíkur og Halldór Har-
aldsson pianóleikara. Og það er
skammt stórra högga á milli, því
tónskáldið er byrjað á píanó-
konsert nr. 3. Er hann skrifaður
fyrir Miklos Dalmay píanóleik-
ara, sem búsettur er á Flúðum,
en honum lýsir Atli Heimir sem
afburðamanni á sviði tónlistar.
Auk píanókonsertsins verða
flutt á tónleikunum forleikur að
Maskarade eftir Carl Nielsen og
Fyrsta sinfónía Johannesar Bra-
hms.
■ Töfrar/28-29
Daðrað við
ýmsar stefnur
Leikfélag Reykjavíkur sýnir í Moskvu
SÝNING leirlistarkonunnar
Toshiko Takaezu í Art-Hún,
Stangarhyl 7, hefur verið fram-
lengd til föstudagsins 8. október.
Verk listakonunnar era sýnd í
tilefni af 10 ára afmæli Art-Hún,
þar sem sex listakonur hafa
vinnustofu og sýningarsal.
Nú gefst gestum tækifæri til
að sjá myndband um verk og
störf Toshiko Takaezu í sýning-
arsal Art-Hún.
LEIKFÉLAG Reykjavíkur sýndi
Feður og syni eftir ívan Túrgenjev
í Moskvu í gærkvöldi. Önnur sýning
verður í kvöld, fimmtudagskvöld, og
verður Ingibjörg Sólrán Gísladóttir
borgarstjóri viðstödd sýninguna.
Uppselt er á báðar sýningamar,
sem sýndar era í boði Rússneska
akademíska æskulýðsleikhússins.
Leikfélag Reykjavíkur fram-
sýndi Feður og syni í Borgarleik-
húsinu i janúar sl. Alexei Borodín
leikstýrði sýningunni og Stanislav
Benediktov gerði leikmynd og bún-
inga. Þeir era báðir frá Moskvu og
hafa starfað saman í leikhúsi í
meira en aldarfjórðung og hlotið
fjölda verðlauna fyrir sýningar sín-
ar. Alexei Borodín vann leikgerð-
ina upp úr skáldsögu Túrgenjevs
og Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi.
Lýsingu annast Láras Bjömsson
og hljóðstjóm er í höndum Baldurs
Más Amgrímssonar. Leikendur eru
Bjöm Ingi Hilmarsson, Eggert Þor-
leifsson, Guðlaug E. Olafsdóttir,
Guðrún Ásmundsdóttir, Halldóra
Geirharðsdóttir, Kristján Franklín
Magnús, Pétur Einarsson, Sóley Elí-
asdóttir og Þorsteinn Gunnarsson.